Vísir - 13.06.1981, Síða 22
VÍSIR
Laugardagur 13. júni 1981
•••svo hótadi hann
ad rota mig
íslenskt sakamál er á dagskrá i Helgarblaðinu i
þetta skipti. Hér á eftir verður rakinn dómur Saka-
dóms Reykjavikur i nauðgunarmáli, sem Hæsti-
réttur staðfesti. Dóm þennan er að finna i dóma-
safni Hæstaréttar, sem öllum almenningi er frjáls
aðgangur að. Ekki er vikið frá meginatriðum i
málavaxtalýsingu en fellderu brott atriði, sem ekki
skipta höfuðmáli. Það er gert til styttingar. Rétt
þykir að gefa lesendum með þessum hætti litla inn-
sýn i málareksturinn og hversu nákvæmlega er
farið i saumana þegar reynt er að gæta þess réttar-
öryggis sem við eigum að búa við. Það skal tekið
fram að orðalag er hér hvergi sterkara en i dóm-
inum sjálfum og viða dregið úr þvi fyrir siðsemis
sakir.
Vissi ekki hvar það hafði
gerst...
Málið hefst þar sem konan, sem
við köllum hér Sædisi kom á lög-
reglustöðina um klukkan hálf
þrjú aðfararnött þriöjudags. Hun
sagði svo frá að maöur nokkur aö
nafni Grettir heföi þá skömmu
áöur nauögað sér. Hún gat ekki
gert sér grein íyrir hvar þetta
hefði gerst og var hún flutt i
læknisskoðun, sem fór fram þá
strax um nóttina. i vottoröi
læknisins kemur meöal annars
fram, að Sædis var klædd i mikiö
rifinn kjól og sokkabuxur hennar
voru einnig mikið rifnar. Á henm
voru margir marblettir á hálsi og
handleggjum og ótal húörispur á'
efri hluta likamans. Engir áverk-
ar sáust á ytri kyníærum en litils-
háttar roði á buröarbörmum.
,,lVIá ég koma inn?”
Hér kemur svo frásögn Sædisar
af þvi hvernig atburöarasin var.
Hún segist hafa veriö aö leita aö
tilteknu húsnúmeri viö götu hér i
borg en ekki íundiö. Hafi hun þá
ætlaðaðná sér i leigubil en engan
séð lausan, en hins vegar bil sém i
var Grettir og bauöst hann til aö
keyra hana heim. Hún þáöi boðiö
og sá, eftir að hún var komin inn i
bilinn, að maðurinn mundi vera
bróðir Vigíúsar, sem hún þekkti
fyrir. Grettir kom siðan viö i Rik-
inu og keypti þá meöal annars
portvinsflösku fyrir Sædisi.
Þaðan var keyrt heim til Sædisar
og vildi Grettir þá fá aö koma inn
með henni. Sædis íéllst á þaö en
heima voru tveir synir hennar, 14
og 22 ára og eiginmaöurinn
væntanlegur heim á hverri
stundu, enda kom hann skömmu
siðar. Grettir dvaldist ál'ram
heima hjá Sædisi og hélt áfram
drykkju en þáði ekki kvöldmat
með fjölskyldunni. Eftir kvöld-
mat vildi Grettir lá Sædisi með
sér smástund i Sigtún eöa Habæ
og varð úr, meö samkomulagi viö
eiginmann Sædisar, aö þau færu i
Sigtún. Sædis sá litiö al Gretti á
meðan þau voru i Sigtúni en hann
hafði staglast á þvi áöur aö hann
vildi kynna hana fyrir fööur sin-
um og systur. Þegar leiö aö lok-
um dansleiksins i Sigtúni hitti Sæ-
dis Gretti þar sem hann sat á
gólfinu og spurði hann þá orörétt:
„Hvenær á maður að fá aö sjá
hann pabba þinn, þennan fina og
flotta mann og systur þina?”
„Núna, eins og skot”, svaraði
Grettir og tóku þau siðan leigubil
að einhverju húsi sem Sædis vissi
ekki hvar var. Þar fóru þau inn en
enginn virtist vera heima. Eftir
að þau höfðu setið stutta stund fór
Sædisi að gruna að ekki væri allt
með felldu. Grettir stóö þá upp,
tók um handlegg hennar og dró
hana inn i herbergi, sem er inn af
stofunni.
...og svipti sjálfan sig
klæðum
Nú gerðist allt i einni svipan.
Grettir fleygði henni á rúm, greip
fyrir kverkar henni og reif utan af
henni kjól og sokkabuxur en lét
brjóstahald óhreyft. Hann svipti