Vísir - 24.06.1981, Síða 8
8
Miövikudagur 24. júni 1981
VÍSIR
VlSIR
Otgefandi: Reykjaprent h.f.
Ritstjöri: Ellert B. Schram.
Fréttastjóri: Sæmundur Guðvinsson. Aðstoðarfréttastjóri: kjartan Stefánsson.
Fréttastjóri erlendra frétta: Guðmundur Pétursson. Blaóamenn: Axel Ammen-
drup, Árni Sigfússon, Friða Ástvaldsdóttir, Herbert Guðmundsson, Jóhanna
Birgisdóttir, Jóhanna Sigþórsdóttir, Kristín Þorsteinsdóttir, Magdalena
Schram, Sigurjón Valdimarsson, Sveinn Guðjónsson, Þórunn Gestsdóttir.
Blaóamaöurá Akureyri: Gísli Sigurgeirsson. iþróttir: Kjartan L. Pálsson, Sig-
mundur Ö. Steinarsson. Ljósmyndir: Emil Þór Sigurðsson, Gunnar V. Andrés-
son. Útlitsteiknun: Magnús Ölafsson, Þröstur Haraldsson, Safnvörður: Eiríkur
Jónsson.
Auglýsingastjóri: Páll Stefánsson
Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson.
Ritstjórn: Siðumúla 14, simi 86611, 7 linur.
Auglýsingar og skrif stofur: Síðumúla 8, símar 86611 og 82260.
Afgreiðsla: Stakkholti 2-4, simi 86611.
Áskriftarg jald kr. 80 á mánuði innanlands og verð í lausasölu
5 krónur eintakið.
Visir er prentaður i Blaðaprenti, Siðumúla 14.
Útlit er f yrir því, að læknadeil-
an sé að íeysast. Þar með er
neyðarástandi aflétt. ( marga
daga hafa sjúkrahúsin lamast og
nauðsynleg læknisþjónusta verið
í lágmarki vegna f jarvista lækn-
anna. Biðlistar sjúklinga hafa
hrannast upp og f raun og veru
gengur það kraftaverki næst, að
ekki skuli hafa orðið meiriháttar
slys, jafnvel dauðsföll, sem
bein afleiðing af læknaskorti á
sjúkrahúsunum.
Á meðan á þessu hefur gengið.
hefur heilbrigðisráðherra setið í
sumarfríi úti í París. Hann hefur
haft meiri áhuga á að fylgjast
með þingkosningum Frakka en
leita lausnar á neyðarástandi í
heilbrigðismálum (slendinga.
Slík framkoma væri hvergi liðin
nema hér á landi, og sennilega er
Svavar Gestsson einn um það að
leyfa sér.slíkf, ábyrgðarleysi.
Að undanförnu hefur lausn
virst í sjónmáli, en alltaf hefur
•aftur hlaupið f baklás þar til í
morgun að samkomulag náðist.
AAikil stífni og harka hefur ver-
iðí deilunni á báða bóga og alvar-
legar ásakanir og hótanir hafa
ekki bætt andrúmsloftið.
Að því leyti hefur læknadeilan
verið óvenju heiftúðug.
Sagt er að auk grunnkaups-
hækkana hafi læknar krafist
fastrar aukavinnu, hækkaðs bíla-
styrks og annarra kjarabóta í
einu eða öðru formi. Fulltrúar
ríkisvaldsins, einkum ráðherrar,
hafa þvertekið fyrir að grunn-
kaupshækkanir komi til greina,
hvort sem staðið er á þeirri neit-
un eða ekki. í sjálfu sér skiptir
ekki máli í hverju kjarabótin
verður fólgin-jbeirsamningar og
kjarabætur, sem læknar kunna
að semja um verða að sjálf sögðu
til viðmiðunar fyrir aðrar stéttir,
og þar hefur hnífurinn staðið í
kúnni. Það mat samningamanna
rikisins er sennilega rétt, að um-
talsverðar kjarabætur til lækna
munu virka sem sprenging á
aðra kjarasamninga, og því er
mikið í húfi.
Á hinn bóginn sló fjármála-
ráðherra fyrir neðan beltis-
stað, þegar hann sakaði
lækna um að láta aðgerðir sínar
bitna á sjúklingum. Sattaðsegja
er það dálítið kostulegt, að heyra
talsmenn Alþýðubandalagsins
hafa uppi slíkan málf lutning sem
felur í sé siðferðilegt mat á því
hvort verkföll eða uppsagnir eigi
rétt á sér. Hingað til hefur það
verið einhliða boðskapur Alþýðu-
bandalagsins að kjarakröfur
væru af hinu góða og helgur rétt-
ur hins vinnandi manns, að beita
öllum ráðum til að þvinga þær
fram. Nú hefur sami flokkur á
skömmum tíma staðið að gerðar-
dómslögum gagnvart flugmönn-
um og fordæmingu gagnvart
læknum í kjarabaráttu þessara
stétta. Það virðist ekki sama
hver eigi í hlut.
AAeð þessu er ekki verið að rétt-
læta ítrustu kröfur lækna eða
telja hörku þeirra eðlilega. Um
það getur enginn tjáð sig, sem
ekki veit í einstökum atriðum um
kröfugerð eða ágreiningsmál.
Þó verður að ætlá að þeir telji
sig hafa nokkuð til síns máls, úr
því þeir héldu málstað sínum svo
mjög til streitu, þrátt fyrir and-
snúið almenningsálit og neyðar-
ástand á sjúkrahúsum.
Hvort sem mönnum líkar betur
eða verr, þá er hér um að ræða
sérhæfða stétt, sem þjóðfélagið
getur ekki án verið. Hér er á
ferðinni hópur læknismenntaðs
fólks, sem gegnír lykilhlutverki.
Hættan er sú, að ef kjör þeirra eru
miklu mun lakari á (slandi en
þeim stendur til boða annars
staðar, þá hverfa læknar til
starfa erlendis. Þetta er hin
kalda staðreynd. Læknadeilan
snýst því um annað og meira en
bílastyrki og fasta yfirvinnu.
Hún snýst um almenn lífskjör í
landinu, starfsvettvang fyrir
menntað fólk á þessu sviði sem
öðrum og viðnám þjóðfélagsins
gegn atgervisf lótta.
Eru flagar Bani-Saúr taldir?
Bani-Sadr, maöurinn, sem
var einlægur andstæöingur al-
ræðisvalds íranskeisara, mað-
urinn, sem fagnaði sigri með
avatollah Khomeiny ’79 fjár-
málaráðherrann, utanríkis-
ráðherrann og fyrsti lýðræðis-
kosni forsetinn i Iran, er nú
valdalaus og allslaus og berst
fyrir Ilfi sinu. En hvers vegna
skipast svo skjótt veður i lofti?
ekki samleið.
bað má telja fullvist, að hin-
um pólitiska ferli Abolhassan
Bani-Sadr sé lokið fyrir fullt og
allt i íran. Jafnskjótt og hann
komst til valda og var kosinn
með yfirgnæfandi meirihluta
sem forseti landsins i ársbyrjun
’80, er hann hrakinn frá völdum
nú. Má vart á milli sjá, hvorir
eru fyrirlitnir meira i íran
þessa dagana Bani-Sadr og
stuðningsmenn hans eða stuðn-
ingsmenn keisarans.
Bani-Sadrer hagfræðingur og
hlaut menntun sina i Sorbonne-
háskóla i' Paris. Þegar hann var
á leið upp á stjörnuhimininn i
Iran haföi hann uppi hugmyndir
um að reyna aö þræöa einhvern
milliveg Múhameðstrúarinnar
og sósialiskra skoðana sinna en
fljótlega komst hann að raun
um að siikar hugmyndir féllu
alls ekki i kramiö hjá
Khomeiny,, érkibiskup.
Klerkavaldið i Iran með
Khomeiny i broddi fylkingar
vill, að landinu sé stjórnað i
anda og nafni trúarinnar. Þeir
kæra sig ekki um menn, sem eru
að reyna að koma landinu út úr
einangruninni, er einkennt hef-
ur alltstjórnarfar siöastliðin tvö
ár, menn, sem trúa þvi, að al-
þjóðleg menntun sé til góös, og
sem viðgengist hefur i landinu
að undanförnu, en það var Bani-
Sadr einmitt að reyna. Aftur og
aftur reyndi hann að færa íran
nær nútimanum, reyndi að
koma fótunum undir atvinnulif-
ið, lét ekki sitt eftir liggja við
lausn gisladeilunnar og svo
mætti lengi telja, en allt var
unnið fyrir gig, smám saman
féll hann i ónáð hjá Khomeiny
og var hann sakaður um að
stjórna landinu fremur i anda
bandariskra franskra eða jafn-
vel þýskra hugmynda, en þeirra .
sem komu fram i stjórnarskrá
Irans.
Markviss ofsókn.
Ósamkomulagið milli þeirra
aöutan
Kristin
Þor-
steinsdóttir
blaðamaður
skrifar.
Bani-Sadr og Khomeinys magn-
aðist stig af stigi en varð fyrst
algert, þegar Khomeiny lýsti
hann ekki lengur æðsta yfir-
mann hersins. Frá þeim degi
mátti forsetinn heita valdalaus
þjóðhöfðingi. Forsetinn var út-
hrópaður, sprengju var kastað
að húsi hans og loks var hann
lýstur valdalaus og allslaus og
þar kom, að Bani-Sadr var orð-
inn einhver óvinsælasti maður i
tran og almennt hataður af
landslýð, jafnvel meira en keis-
arinn fyrrverandi.
Khomeiny hefur þó ekki sjálf-
ur veitt þessum fyrrum ráð-
gjafa sinum og samstarfsmanni
banahöggið með kröfu um dóm
og rétt yfir honum, en auðvitað
hefði ekkert af þessu gerst
nema með fullu samþykki
erkiklerksins.
Þrieykið.
Það er ljóst, að helstu and-
stæðingar forsetans fyrrverandi
eru núverandi ráðamenn Irans,
Þrieykið svokallaða, það er
segja þeir Mohammed Behesti,
forseti hæstaréttar, Rafanjani,
forseti þingsins, og Ali Rajai,
forsætisráðherra, auk Sadegh
Khalkhali klerks hefur. Hefur
oft slegið i brýnu milli þessara
manna og forsetans fyrrverandi
og hefur hann sakað þá um að
vilja koma á alræði eins flokks
og varpa öllum kosningum fyrir
róða. Margir telja nú þann
fyrstnefnda einhvern vaida-
mesta mann trans i dag og lik-
legastan eftirmann Bani-Sadr.
1
Atti
I
1
I
|
I
vo ----—■ ---------- * -aiarei meir en einmui nu. »5
reyna aö koma reglu á þá óreiðu Bani-Sadr, sem fyrir stuttu var meö valdameiri mönnum I tran, er nú smáður og hrakyrtur af flestum. —-KÞ ra
Bani-
Hvað verður um
Sadr? ^
Miklar vangaveltur eru nú uppi SS
um, hvar forsetinn fyrrverandi SS
sé niðurkominn og hver verði SS;
afdrif hans, en, hann hefur ekki w
sést siðan 11. júni siðastiiðinn. w
Eruuppigetgáturum, að hon-
um hafi tekist að komast úr
landi, og er Egyptaland oftast
nefnt i þvi sambandi. Það hefur SS
gefið sögusögnunum byr undir
báða vængi, að Sadat, forseti, SS
hefur hvorki viljað neita þessu SJs
né játa, en hann er yfirlýstur ív
andstæðingur klerkastjórnar- SSj
innar i tran. SX
Sé Bani-Sadr aftur á móti enn to
i íran, eins og haldið er fram
þar i landi, þarf vart að spyrja NS
að leikslokum. En Bani-Sadr á SS
marga stuðningsmenn og ekki XS
er gott að segja, hvað þeir taka w
til bragðs, þó er eitt vist, að oft
hefur lran verið á barmi SS;
borgarastyrjaldar og ef til vill
-aldrei meir en einmitt nú.