Vísir - 24.06.1981, Side 14

Vísir - 24.06.1981, Side 14
14 Miövikudagur 24. júni 1981 Miövikudagur 24. júni 1981 VISIR „FflRÁNLEG SKRÁNING GENGIS STEFNIR FERDAIÐNAÐI í HÆTTU - ekki merkianiegur samdrátlur i komu útlendinga ennpá Ekki er reiknaö meö umtalsverðri fjölgun erlendra feröamanna frá þvf sem var á siðasta ári en þaö ár var eitt lélegasta feröamannaáriö í mörg ár. „Við erum ekki farnir aö sjá neinn áþreifanlegan samdrátt i btíkunum erlendra feröamanna tiltsiands og erum enn bjartsýnir á að ná aftur hluta þeirra ellefu þúsund sem töpuöust i fyrra”, sagði Kjartan Lárusson, forstjóri Feröaskrifstofu rikisins i samtali við Visi. „A hinn bóginn erum við laf- hræddir, ekki við afbókanir, held- ur afkomu ferðaiðnaðarins á þessu ári vegna kolvitlausrar gengisskráningar. Spurningin er ekki hvort afpantanir verði meiri i sumar en áður, heldur hvort is- lenskum yfirvöldum tekst að sannfæra Utlendinga jafn hressi- lega, og sjálfa sig, um að íslenska krtínan sé og verði áfram einn sterkasti gjaldmiöill heims. Svo til allir evrópskir gjaldmiðlar hafa fallið gagnvart krónunni okkar, þar sem hún hangir i doll- aranum, án þess að nokkur skilji hvaðan þessi skyndilega sterka staða er komin”, sagði Kjartan. Ferðamenn sem hingað koma frá Evrópu, greiða sinar ferðir og þjónustu með gjaldiniðli sem rýrnar stöðugt gagnvart islensku lorónunni og sagðist Kjartan ekki geta séð hvar feröaþjónustuaðilar ættu að taka mismuninn. Ekki væn unnt aö koma með hækkanir á siðustu stundu og þetta ásamt gegndarlausri skattheimtu rikis- ins væri að skapa mikla erfið- leika. Hann taldi ekki að þjónusta hér væri of dýr, stærstu liðimir i kostnaði við tslandsferðir væru flugið og svo álagning erlendra ferðaskrifstofa, enda væri dýrt fyrir þá og mikil fyrirhöfn að selja ferðir hingað. Sumir tækju jafnvel allt að fimmtlu prósent- um. „Það er margt sem bendir til þess að yfirlýsingar Ferðamála- ráðs og fleiri aðila um aukningu erlendra ferðamanna hingað i sumar, hafi verið ótimabærar og byggðar á óskhyggju fremur en staðreyndum, þar sem aðstæður hér á landi hafa ekkert breyst frá þvi i fyrrasumar sem var eitt hið lélegastaiþessari þjónustugrein i mörg ár. Verðlag hefur til að mynda hækkað jafnmikið milli ára og áður”, sagði Kjartan Lárusson. Samkvæmt upplýsingum Birgis Þorgilssonar hjá Ferðamálaráði er heldur verra útlitið nú en var seinnihluta vetrar og I vor og vildi hann einnig kenna hækkun doll- ars gagnvart Evrópugjaldmiðl- um þarum.Sem dæmium verð á tslandsferðum sagði hann, að tveggja vikna ferð frá Bretlandi með flugi, skoðunarferðum um landið og gistingu kostaði sem svarar 8.800 krónum og hefði vegna gengisbreytinga hækkað um 35—50prósent frá i fyrrasum- ar. Fyrir sambærilegt verð mætti fara og dvelja i góðu yfirlæti i þrjár vikur einhvers staðar á fjarlægari slóðum, þar sem veður og verðlag væri stöðugra en hér. Birgir sagði að reiknað væri með aukningu ferðamanna frá Bandarfkjunum, þar hefðu fyrir- spurnir verið hvað mestar. Frek- ar væri vandamál að Utvega sæti þaðan, en hitt að ferðir væru af- pantaðar. —JB Húsnæðismálalán: ANNAÐ HVORT 23% EBA 90% - sex milljon gkr. tekjumark ræður hvorum megln tólk lendlr Til þess aö hjón geti talist láns- hæf i Byggingasjóöi verkamanna veröa þau aö hafa samanlagt undir tæpum 6 milljtínum gam- alla króna að meöaltali i tekjur siöustu þrjú ár. Sama gildir um einhleyping en ofan á þessa meö- altalstölu bætast sföan 526 þúsund gamlar krtínur fyrir hvert barn á framfæri innan 16 ára aldurs. Samkvæmt upplýsingum Guð- mundar Vigfússonar hjá Hús- næðismálastofnun rikisins, er þetta tekjumark fundið þannig að lagðar eru saman tekjur hjóna, eða einhleypings, siðast liöin þrjú ár og svo deilt i þá tölu með þrem- ur. Sú tala er þá kemur fram má ekki fara fram úr 5.952 þúsund- um, eða tæpum 6 milljónum gkróna. Þeir sem eru undir þessu tekjumarki geta fengiö lán úr byggingasjóði verkamanna sem nemur 90% af byggingarkostnaöi 4 herbergja ibúöar i verka- mannabústööunum.Þeir sem eru ofan við 6 milljtínir gkróna fá lán úr almenna byggingarsjóönum, sem nemur aöeins 23% af veröi sambærilegrar íbúöar. Nokkrir tugir nýkróna geta þvi ráðið um það hvort einstaklingur fær 90% lán eða 23% lán. —AS Mjög mikill munur er á almennum húsbyggjendalánum og lánum úr Byggingasjtíði verkamanna. „Forkastanieg vinnubrðgð' - segir Gunnar Bjðrnsson framkvæmdastjóri Meistarasambands byggingamanna um reglur ByggingasjoOs verkamanna „Við höfum mjög deilt á þá reglu sem gildir varðandi úthlut- un á ibúðum úr verkamannabú- stöðum. Hún er nánast forkastan- leg, þegar um er að ræða að einn einstaklingur i ákveðinni starfs- stétt kemst undir tekjumörkin og fær þvi 90% af byggingarkostnaði lánað, þegar annar einstaklingur i nákvæmlega sömu starfsstétt leggur á sig i yfirvinnu einhvern ákveðinn tima og dettur út vegna þess að hann er rétt ofan við tekjumörkin”. Þetta hafði Gunn- ar S. Björnsson hjá Meistarasam- bandi byggingamanna um tekju- mörk Byggingasjóðs verka- manna að segja. „Við höfum hvatt til þess að lánamörkin, sem slik verði stig- hækkandi miðað við tekjumörk, þannig að launalægstu hóparnir fengju t.d. 90% lán og siöan yrðu þau stiglækkandi eftir tekjum”, sagöi Gunnar. Eins og skýrt var frá i Visi á MUN HAGSTÆÐARA AD KAUFA NÝLEGA (BUÐ FREKAR EN NÝJA A töflu þessari sést glöggt hvar mismunurinn liggur eftir þvi hvortibúðin telst til verkamanna- bústaös, nýlegrar ibúðar á al- mennum markaði eða nýrrar á sama markaði 4ra herbergja fbúö Nýverkam. 520.000 útb. Nýalm.mark. 520.000 útb. Nýleg 520.000 útb. Algengt verð á fjögurra her- bergja blokkaribúð i Reykjavik er um 520 þúsund krónur. En mjög er mismunandi hversu auð- velt er fyrir menn að eignast slika fasteign, eftir þvi hvort þeir telj- ast lánshæfir úr Byggingasjóði verkamanna, eða kaupa ibúðina nýja eða nýlega á hinum almenna markaöi. Fái einstaklingur inni i ibúð á vegum Verkamannabústaða, þarf hann aðeins að borga 10% út eða 52 þúsund krónur. Afganginn 90% fær hann að greiða á 43 árum með fullri verðtryggingu, sem i raun fylgir þá nokkurn veginn fullri verðtryggingu og 2 1/4 vöxt- um. Þriðji möguleikinn i ibúða- kaupum, nýleg ibúð á 520 þúsund, er þó mun skárri en að kaupa nýja ibúð. Þá eru 70-72% greidd út á 12 mánuðum, eða um 315 þús- föstudaginn i siðustu viku, hafa fimm byggingameistarar boðið stjórn verkamannabústaða i Reykjavik, 64 ibúðir til sölu, sem ýmist eru tilbúnar eða i byggingu. „Það sem veldur þessu er fyrst og fremst það að mjög mikil tregða hefur verið i ibúðasölu á hinum almenna markaði. Fólk ræður einfaldlega ekki við kjörin á þessu i dag”, sagði Gunnar. Gunnar sagði að verkamanna- bústaðakerfið væri i ákveðinni vöntun með ibúðir á Reykjavik- ursvæðinu og þvi var ákveðið að reyna þessa leið. Aðeins hefur verið samið um kaup á 14 ibúðum af þeim 64 sem i boði eru, og kaupir stjórn Verkamannabú- staða þær á betri kjörum en gilda á hinum almenna markaði, bæði vegna þess að hér er um magn- sölu að ræða, „og svo þarf ekki að óttast vanskil”, sagði Gunnar. — AS 52.000 lán 402.000 lán 315.000 lán lán 468.000 43 ár, fullv.,1/2% 118.000 26 ár, fullv., 2 1/4% 59.000 16 ár, fullv., 2 1/4% 146.000 4 ár, óv., 20% nækkandi iaunum, auk 1/2% vaxta. Sá sem ekki nær tekjumarkinu, sem þarf til þess að fá inni i verkamannabústaðaibúðum, greiðir út á árinu, af 520 þúsund króna nýrri ibúð hvorki meira né minna en 402 þúsund úr eigin vasa en fær rétt um 23% af verði ibúðarinnar lánuð til 26 ára, með und krónur. Húsnæðismálastofn- un lánar 59 þúsund fullverðtryggt til 16 ára með 2 1/4% vöxtum, en seljandi lánar jafnan afganginn, um 146 þúsund, til fjögurra ára óverðtryggt með 20% vöxtum. Þó hefur sú breyting orðið á að sumir seljendur bjóða lægri útborgun, en verðtryggja eftirstöðvar. HERB/— AS Gunnar S. Björnsson fram- kvæmdastjóri Meistarasam- bands byggingaiönaöarmanna. „Stighækkandi lán eftir tekjum” VÍSIR Svona líta nú seiöin út. Hluti af ööru flotbúrinu sést f bakgrunninn. — Visismyndir/GS Akureyri. 7000 laxaseiði i eldi í ðlatsfiarðarvatni: „Það má ekki vera nein handvömm á” „Þaö er taliö, aö ekki þurfi nema um 8% af laxinum aö skila sér aftur af hafbeitinni, til aö fyr- irtækiö geti staðiö undir sér”, sagöi Sveinbjörn Arnason, um- sjónarmaður meö laxaseiöunun- um i Ólafsfjaröarvatni, i samtali viö Visi. Þar eru nú um 7000 laxa- seiöi i eldi, en þeim veröur sleppt til hafbeitar eftir mánaöamótin. „Þetta er tilraun, sem við leggjum mikið upp úr að takist vel. Þess vegna má engin hand- vömmveraá þessu”,sagði Svein- björn, en hann er formaður veiði- félags Ólafsfjarðar, sem stendur að tilrauninni ásamt Fiskifelagi íslands. Rannsóknir Björns Jóhannes- sonar, verkfræðings og Unnsteins Stefánssonar, efnaverkfræðings, á skilyrðum i Ólafsfjarðarvatni, leiddu i ljós sérstaka eiginleika vatnsins. Yfirborð þess er ferskt niður á 2.5 m dýpi, en undir er saltvatn. Saltmagnið i undirlag- inu reyndist svipað og er t.d. i Eyjafirði. Leiddu rannsóknirnar i ljós, að saltvatnið hitnar mun meira af sólinni yfir sumarmán- uðina en ferskvatnið. Mestur hiti þess i fyrrasumar reyndist 20 gr. C. á sama tima og ferskvatnið var ekki nema 10 gr. C. Þessi hiti dugði vel, þvi þegar yfirborðið var isilagt i april i vor, þá var saltvatnið enn 8 gr. C. Jafn heit vötn eru fátið, en Sveinbjörn taldi að ef til vill mætti finna hliðstæð- ur syðst i Evrópu. Með hliðsjón af þessum hag- stæðu skilyrðum var ákveðið að gera tilraunina, sem framkvæmd er undir stjórn Ingimars Jó- hannssonar, fiskifræöings. ólafs- fjarðarbær ber kostnaðinn, en Sveinbjörn sagöi, að Jón Frið- riksson bæjarstjóri, hefði sýnt þessu máli sérstakan skilning og áhuga. Sýndi málinu áhuga Upphaflega stóð til að setja 3.000 seiði i vatnið til að byrja með og voru þau pöntuð frá Laxa- mýri. En Laxamýrarbændur sýndu málinu slikan áhuga, að þeir lögðu til 4.000 seiði til viðbót- ar, sem ekki þarf að greiða fyrir nema tilraunin gefi eitthvað af sér. Það fóru sem sagt 7 þúsund seiði i vatnið 25. mai. Þar eru þau nú geymd i flotbúrum og alin á sérstöku fóðri. Seiðin voru 30—35 grömm þegar þau voru sett i vatnið. Reiknað er með að þau verði orðin um 40 gr. er þeim verður sleppt úr búrunum til haf- beitar, þegar um vika verður liðin af júli. Verða þau þá orðin „sjó- uð” og betur búin undir að bjarga sér i hafinu, en venjuleg sleppi- seiði. — En hvenær koma þau aftur? „Við eigum von á einhverjum hluta af þeim næsta sumar, en þó ekki stórum hluta”, svaraði Sveinbjörn, en hann vildi enga hlutfallstölu nefna i þvi sam- bandi. Megináhersla verður lögð Sveinbjörn Arnason er meö 7.000 matargesti þessa dagana. á að telja það sem skilar sér næsta sumar. Verður gildru- búnaði komið fyrir i ósnum við brýrnar, en þar er aðstaða til þess góð frá nátturunnar hendi. Hins vegar er óráðið hvort einhverju verður slátrað af laxinum, sem væntanlega verður þá orðinn 5—7 pund. Þá verður hann kominn í heppilega stærð „Við eigum hins vegar von á stærstum hlutanum til baka eftir tvö ár. Þá verður laxinn kominn i 12—14 pund, sem er heppileg stærð. Með hliðsjón af þvi voru Laxamýrarseiðin valin þvi reynslan hefur sýnt að þau skila sér best á 2. árinu”, sagði Svein- björn. í haust er ætlunin að sleppa aft- ur seiðum i vatnið, ef til vill 20.000, ef fjármagn til þess verður fyrir hendi. Er þá miðað við að þau seiöi lifi i vatninu i vetur, en gangi i sjóinn með vori. Ef vel tekst til, þá verður lax- eldið góð búbót fyrir ólafsfirö- inga. En tilgangurinn með þess- um tilraunum er ekki eingöngu áð ala lax til „slátrunar”, þvi einnig binda menn vonir við, að hægt verði að gera Ólafsfjarðará aö eftirsóttri laxveiðiá. Sú var tiðin, að áin var með betri silungsám. Var algengt að menn fengju þar 5—7 punda bleikjur og sömu sögu var að segja um vatnið. En þess- um eftirsóttu fiskum hefur farið fækkandi og þeir sem gefa sig, þeir eru mun smærri en áður, venjulegast ekki nema pundið. Taldi Sveinbjörn lagnetaveiðum um að kenna, þvi þar sæti stóri fiskurinn eftir fastur i netinu, en smáfiskurinn slyppi. Það hefur samt verið vinsælt, .einkum hjá yngri kynslóðinni, að renna fyrir silunguna I vatninu og þá sér í lagi i ósnum. Samfara laxeldinu hafa þessar veiöar ver- ið bannaðar, við miklar óvinsæld- ir þessara ungu veiðimanna. „Það ætti að skjóta ykkur alla, helvitin ykkar” hrópaði einn gutt- inn til Jóns Friðrikssonar, bæjar- stjóra og Sveinbjörns, þegar þeir voru að fara með búrin inn á vatniö. Til að koma á móts við veiðimennina, hefur veriö ákveð- ið aö leyfa stangaveiði i vatninu, frá vikinni við hótelið inn að Hornbrekkuengi. Er sú veiði heimil án veiðileyfa. G.S./Akureyri Nær 1800 farpegar um úlafsfjarðar- flugvöll á 6 mán. - lengja uart tiugbrautina og bera á hana finna slitlag Hátt i 1800 manns fóru um flug- völlinn i Ólafsfirði 6 fyrstu mán- uðina, sem þangað var haldiö uppi áætlunarflugi á vegum Flug- félags Norðurlands. „Þessum samgöngubótum hef- ur verið mjög vel tekið af Ólafs- firðingum, jafnvel mun betur heldur en gert var ráð fyrir i upp- hafi”, sagði Þórgunnur Rögn- valdsdóttir i samtali við Visi, en hún er umboðsmaður Flugfélags Norðurlands i Ólafsfirði. Um 1800 farþegar á 6 mánuðum er ekki svo litið, þegar litið er til þess, að ibúar i Ólafsfirði eru um 1200. Þórgunnur sagði, að farþegarnir væru langflestir á leiðinni Ólafs- fjörður-Reykjavik, en Ólafsfjörð- ur-Akureyri væri nær „dauð leið”. Þó hefði sá ferðamöguleiki komið sér vel i vetur, þegar veg- urinn um Múlann var ófær lang- timum saman. Flugfélag Norðurlands hefur nýlega tekið i notkun hraðfleyga vél, sem forráðamenn félagsins hafa hug á að nota á þessari leið. Sá hængur er hins vegar á, að flugvöllurinn i Ólafsfirði er varla nógu góður fyrir þessa vél. Ofani- burðurinn er of grófur og brautin um 200 m of stutt, ef vel á að vera. Torfi Gunnlaugsson, einn af stjórnarmönnum i Flugfélagi Norðurlands, sagðist telja kostn- aðarlitið að lengja brautina til suðurs, út i vatnið. Um leið mætti færa veginn við brautarendann vestur fyrir brautina. Hins vegar er ekki ætlað að verja nema 100 þús. kr. til framkvæmda á Ólafs- fjarðarflugvelli í sumar og er þegar búið að kaupa viölaga- sjóðshús frá Vestmannaeyjum fyrir þá upphæð, en húsið á að nota sem „Flugstöð Ólafsfjarð- ar”. Á sama tima er ætlað að verja 300þúsundum kr. i flugvöll i Hrisey, en slik framkvæmd kem- ■ir engum að gagni nema sport- Texti og inyndir Gfsli Sigur- geirsson Akur- eyri. flugmönnum yfir hásumarið, þar sem um grasvöll verður að ræða, að sögn Torfa Gunnlaugssonar. G.S./Akureyri. Meöal þess sem kemur meö áætlunarvélinni er Visir. Hér réttir Þtír- gunnur Rögnvaldsdtíttir Vísisbarni pakkann. Gunnar Karlsson, flugmaöur, réttir einum farþeganum farangurinn. HANN ER FlNN ÞESSI - vaxandi áhugi lyrir hestamennsku í ólafsfirði „Það er mikill og vaxandi áhugi fyrir hestamennsku hér i Ólafsfirði”, sagði Dagur Guð- mundsson, þegar blaðamaður Visis hitti hann i ólafsfirði, en þá var Dagur aö koma frá að liöka Neista, 6 v. gæðing.- „Hanner finn þessi, hefur allan gang, þó ég hafi nú litið reynt hann á skeiðinu enn, en það er i | Dagur Guömundsson á Neista, 6 vetra gæöingi frá Kviabekk honum”, sagði Dagur, og hann er greinilega stoltur af gæðingnum, sem er undan Blakk frá Kvia- bekk, en afinn er Eyfirðingur. Dagur sagðist hafa fylgst með hestamennskunni frá þvi hann var smápatti, en undanfarin tvö ár hefur hann stundað hesta- mennskuna af fullum krafti. Dag- sir var spurður um aðstöðu til íestahalds I ólafsfirði? „Aðstaðan hefur verið heldur idgborin. Ég er til dæmis með Tiina hesta i skúr inn i miðjum Dæ. Nú stendur þetta hins vegar til bóta, þvi hestamannafélagið Gnýfari hefur fengið land til um- ráða hérhandan við Ósinn. Þar er verið að byggja félagshesthús, en siðan geta félagsmenn fengið keypta bása. Þar verður einnig landrými til hagagöngu, þannig að við hestamenn sjáum fram á bjartari tið”, sagði Dagur um leið og hann snaraði sér á bak. G.S./Akureyri. I

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.