Vísir - 24.06.1981, Síða 27
Miðvikudagur 24. júni 1981
VÍSIR
„Viö verðum á lokl-
inum í sumar”
Baldur Sigurðsson og synir
hans bjóða ferðir á vatnajðk
ul úr Gæsavötnum í sumar
„Viö erum ákveðnir i að vera
á jöklinum i sumar og er það þá
4. sumarið, sem ég held uppi
ferðum á Vatnajökul”, sagði
Baldur Sigurðsson, snjóbilstjóri
á Akureyri, i samtali við Visi.
1 sumar verður Baldur með
úthald við skála sinn i Gæsa-
vötnum, en þaðan býður hann
upp á mismunandi langar ferðir
upp á Vatnajökul. Til ferðanna
hefur Baldur 3 snjóbila:
„Kisa”, „Bangsa” og óskirðan
Willys jeppa, sem er búinn er
beltum. Með Baldri verða synir
hans, Sigurður og Baldur Ólaf-
ur, „auk vina og vandamanna
sem vilja hjálpa til og konan
min Stefania Armannsdóttir,
sér um reddingarnar heima”,
sagði Baldur.
Yfirleitt er um dagsferöir að
ræða. Ferðá Bárðarbungu og til
baka tekur um 7 tima og kostar
550 kr. Feröin i Grimsvötn tekur
hins vegar 12-16 tima og kostar
750 kr. Feröin i Kverkfjöll kost-
ar það sama. Verðið er miðað
viö aö allir fái sæti. Hins vegar
hefur það farið i vöxt að menn
láta snjóbilana draga sig á skiö-
um upp jökulinn og renna sér
siðan til baka. Með þessu móti
komast fleiri i feröirnar og
þannig geta þær óröið ódýrari.
„Það hefur notiö mikilla vin-,
sælda, að láta draga sig á skið-:
um, en það er betra að vera á;
svigskiðum. Sérstaklega hefur
verið vinsælt þegar veðrið er
gott enda fer hitinn iðulega upp
undir 30 stig á jöklinum á sól-
skinsdögum. Þá eru menn fljót-
ir að veröa brúnir”, sagði Bald-
ur.
Eins og áður sagði er skáli
Baldurs i Gæsavötnum, en
þangað er greiðfært yfir sumar-
mánuðina. Þar geta jöklafarar
fengið gistingu, en þeir verða
sjálfir að sjá sér fyrir öllum við-
legubúnaði og nesti. Þá eru góð
tjaldstæði við skálann i einu
vininni þar um slóðir.
Þeir sem ekki hafa tök á að
keyra upp i Gæsavötn geta allt
eins komið með flugvél, þvi
Baldur hefur gert 900 m flug-
brautum 10 km norðan við skál-
ann. Þar hafa litlar vélar lent og
i sumar ætlar Baldur aö valta
völlinn og „gera hann finan”.
SagðiBaldur það mikið öryggis-
atriði að hafa þarna flugbraut,
t.d. ef einhver slasaöist, þvi
margra klukkustunda akstur
væri til byggða. í sumar verða
Baldur og félagar hans með tal-
stöð, þannig að þeir geti haft
samband við flugvélar og leið-
beint þeim um flugskilyröi
hverju sinni.
„Ég er bjartsýnn á veðriö á
jöklinum i sumar og þá þarf
ekki að kviöa aðsókninni. Til
dæmis er þegar búið að panta
fyrir hóp frá Frakklandi, sem
ætlar i 10 daga ferð um jökulinn,
og ég veit að þeir veröa ekki
sviknir, þvi það er margt aö sjá
á jöklinum”, sagði Baldur Sig-
urðsson.
Þaö þarf vist ekki að segja
neinum, að þaö hefur veriö kalt
um stærstan hluta landsins þaö
sem af er sumri. Þess vegna
eru fjallavegir seinni til, en
strax og fært verður með snjó-
bilana inn i Gæsavötn hefjast
jöklaferöirnar. Baldur sagðist
vonast til aö það gæti oröiö um
miðjan næsta mánuð.
G.S./Akureyri
//Kisi" minn getur dregið um 30 manns"/ segir Baldur
Sigurðsson, sem hér er með „Snjókettinum".
Vísismynd GS
JórnbrQutQf-
stöðinni
K AUPM ANHAiÖFN
Aukatekjur
Þénið allt aö 1000 kr. auka á
viku meö léttri heima og tóm-
stundavinnu. Bæklingur meö
100 uppástungum um heimilis-
iönaö, verziunarfyrirtækl, um-
boö eöa póstverzlanir, veröur
sendur fyrir 50 kr. — 6 daga
skilafrestur. Frítt póstburöar-
gjald, ef greitt er fyrirfram, eöa
eftir póstkröfu + burðargjald.
Handelslageret,
Allegade 9, DK-9700
Horsens, Danmarhu
VEIKIR BURÐIR - VONÐIR SAMNINGAR
Sennilega myndi ekki mikið
þýða að ráðleggja tsraelsmönn-
um að leggja einhliða niður
vopn sin og varnarviðbiínað.
Jafnvel þótt þarlendir heims-
friðarmenn myndu dansa hring-
inn í kringum landið helga og
aftur tilbaka er ekki víst að þeir
gugnuðu. Sagan hefur kennt
þessari þjóð, sem í fréttum er
jafnan latin biia fyrir botni Mið-
jarðarhafs, sitt af hverju, sem
seint vill gleymast. Þess vegna
þótti tsraelsmönnum óvarlegt
aðtreysta yfirlýsingum um það,
að kjarnorkuver nútima kalif-
ans iBagdað yrði aðeins brdkað
öllum til blessunar. Þeir sendu
þvi þrjátiu manna lið I þriggja
klukkuti'ma ferð yfir sandauðnir
Jórdaníu og Saudi-Arablu og
sáu til þess með eigin styrk, að
voöavopnið yröi örygglega ekki
næstu árin i höndum þessa óvin-
ar tsraels, sem liklegastur væri
til þess að fara gáleysislega
með það. Nú er Begin forsætis-
ráðherra sakaður um aö hafa i
raun sent hina snjöllu flugliða
sina i kosningaferðalag,en ckki
aðeins i h'fsnauðsynlega herför.
Ekkert sérstakt bendir til þess,
að þær ásakanir eigi rétt á sér.
Og jafnvel þótt svo væri, þá er
ekkert ut á það aö setja, að
starfandi forsætisráðherra
kynni stefnu sina með þeim
hætti, að enginn kjósandi geng-
ur að henni gruflandi.
Þegar litið er á kort af svæð-
inu, sem nd er eldfimast i ver-
öldinni, hlýtur sú hugsun að
flögra að hverjum manni, að til-
vera tsraels verði aldrei tryggð
til frambdðar þarna. Andstæð-
ingarnir eru mörgum tugum
sinnum fleiri, þeir eru handhaf-
ar hins eina raunverulega fljót-
andi gengis heimsins, olíunnar,
og hafa þar með marga þá, sem
vildu kannski veita tsrael liö, i
slæmri klemmu. tsrael er langt
komið í tækni og menntun, en
óvinaríkin vanþróuð. En þau
hljóta að sækja á og Sadat,
merkasti nUlifandi stjórnmála-
maöur veraldarinnar, er ekki
eilífur fremur en þeir spámenn,
sem minni eru. Arásin á kjarn-
orkuverið við Bagdað rifjar
óneitanlega óþyrmilega upp
þessa veiku stöðu. Frakkar og
ttalir, sem lögðu til þá tækni og
þekkingu, sem er forsenda sliks
verks lögðu hart að trökum að
hafa það ekki stærra I sniðum en
svo, að ekki myndu vakna grun-
semdir um, að fyrir þeim vekti
ekki annað en aö reisa saklaust
raforkuver. trakar svöruðu
þessum tilmælum með þvi aö
benda á olíusamninga sina við
þessar tvær þjóðir og gefa um
leið til kynna, að þau viðskipti
stæðu vissulega ekki of traust-
um fótum. ítalir og Frakkar
létu undan.
Arásiná kjarnorkuverið bind-
urkannski enda á, að arabar fái
kjarnorkusprengju I þetta sinn.
Ef írakar halda hins vegar sinu
striki geta þeir bætt upp
skemmdirnar á tveim árum.
Hvað sem öllu því liöur, þá er
ljóst að tæknilegir og hernaöar-
legir yfirburðir lsraels geta
ekki dugað þeim til eiliföarnóns,
jafnvel þótt þeir njóti styrks
Bandarikjanna, en sá bakhjarl
getur vissulega brugðist einsog
annaö. Þeir verða því að nota
það tóm, sem enn gefst, til að
semja um framtið sina og til-
veru. Það geta þeir gert i skjóli
styrks, sem þeir enn bUa yfir.
En um leið og þeir verða komnir
I þá aðstöðu, sem friðargöngu-
menn sovétvinafélagsins viða
um veröld, vilja koma E vrópu I,
og þurfa að fara að semja um
framtiösina af veikum burðum,
eru þeir bUnir að vera.
Svarthöfði.