Morgunblaðið - 08.04.2004, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 2004 B 3
NFRÉTTIR Þjónusta er ekki
hilluvara...
Sigurbjörg Leifsdóttir
Fjármögnun atvinnutækja
„Þjónusta er ekki áþreifanleg vara en starfsfólki Lýsingar er það
sérstakt keppikefli að viðmót þess endurspegli áhuga á starfinu
og þörfum viðskiptavinanna.Markmiðið er að veita persónulega
þjónustu byggða á reynslu og og sérþekkingu á fjármögnun
atvinnutækja.
Kannanir sýna að viðskiptavinir Lýsingar eru ánægðir með
þjónustuna sem segir okkur að við erum á réttri leið. Það er
metnaður okkar að þekkja þarfir viðskiptavinanna og vera ávallt
í takt við atvinnulífið“.
LÝSING
Lýsing hf.
Suðurlandsbraut 22,
108 Reykjavík
Sími 540 1500
www.lysing.is
Fjármögnun í takt við þínar þarfir
F
t
o
n
/
S
Œ
A
F
I
0
0
7
3
8
3
VELTA bæði hlutabréfa og
skuldabréfa í Kauphöll Íslands var
á fyrsta ársfjórðungi meiri en
nokkru sinni fyrr. Ársfjórðungur-
inn er því í heild sá veltumesti frá
upphafi en borið saman við sama
fjórðung í fyrra nam aukningin
33% en veltan var alls 507 millj-
arðar króna. September sl. er sem
fyrr veltumesti mánuðurinn frá
upphafi (207,4 milljarða velta) en
mars (207 milljarðar) og febrúar
(159 milljarðar) á þessu ári koma
þar á eftir. Meðalvelta á dag það
sem af er árinu er rúmir 8 millj-
arðar króna. Þetta kemur fram í
Ársfjórðungsyfirliti Kauphallar Ís-
lands.
Velta með hlutabréf jókst um
44% frá sama fjórðungi í fyrra og
nam 168 milljörðum króna. Það er
þó 6% minni velta en á ársfjórð-
legu hámarki í lok febrúar þegar
hún fór í 2.628,8 stig en vísitalan
hækkaði um 21% á ársfjórðungn-
um.
Velta með skuldabréf og víxla
nam 339 milljörðum á fyrstu þrem-
ur mánuðum ársins
og er það 29% veltu-
aukning frá sama
tíma í fyrra. Mars
var veltumesti mán-
uðurinn með skulda-
bréf og víxla frá
upphafi en þá námu
viðskipti 149 millj-
örðum króna. Mest
skuldabréfaviðskipti
voru sem fyrr með
húsbréfaflokk IBH
41 0315. Meðalvelta
með skuldabréf og
víxla nam 5,4 millj-
örðum á dag.
Ávöxtunarkrafa verðtryggðra
skuldabréfa lækkaði um 0,2 til 0,4
prósentustig á ársfjórðungnum og
ávöxtunarkrafa óverðtryggðra
bréfa lækkaði um 0,7 til 0,8 pró-
sentustig.
Veltan í Kauphöll meiri
en nokkru sinni fyrr
Úrvalsvísitalan hækkaði um 21% á fyrsta ársfjórðungi
Morgunblaðið/Sverrir
Mikil viðskipti Velta hlutabréfaviðskipta jókst um
44% milli fyrsta ársfjórðungs í ár og í fyrra.
ungnum á undan og er þetta annar
veltumesti ársfjórðungurinn frá
upphafi. Mest var veltan með
hlutabréf í Íslandsbanka, þá KB
banka, Burðarási, Landsbankanum
og Pharmaco. Meðalvelta með
hlutabréf nam 2,7 milljörðum á
dag.
Hlutabréfaverð fór hærra á
fyrsta ársfjórðungi en áður hefur
gerst og náði Úrvalsvísitalan sögu-
● HLUTABRÉFAVERÐ mun halda
áfram að hækka í Kauphöll Íslands
að mati greiningardeildar Íslands-
banka. „Hækkun á næstu mánuðum
verður þó ekki eins skörp og hún hef-
ur verið frá því í haust. Greining ÍSB
spáir því að Úrvalsvísitala Aðallista
hækki um 8-10% á næstu sex mán-
uðum og að hækkun næstu 12 mán-
aða verði 16-20%,“ segir í nýrri
Afkomuspá bankans.
Greining ÍSB ráðleggur sölu á hluta-
bréfum í Burðarási, Flugleiðum,
Granda, KB banka og Pharmaco. En
mælir með kaupum í Össuri, Þormóði
ramma-Sæberg og Og Vodafone.
Íslandsbanki býst við góðum upp-
gjörum fyrir fyrsta ársfjórðung, sér-
staklega hjá bönkunum, Pharmaco og
fjárfestingarfélögunum.
ll STUTT
Verð hlutabréfa mun
áfram hækka
Morgunblaðið/Ásdís
● VERÐLAGNING hlutbréfamarkaðar-
ins er í hærra lagi, að því er segir í Árs-
fjórðungsriti greiningardeildar Lands-
bankans. Engar vísbendingar eru þó
sagðar um að hlutabréfaverð sé kom-
ið úr böndunum og því sé ekki
ástæða til að hræðast almennar
lækkanir á næstunni.
Samkvæmt verðmati greining-
ardeildar Landsbankans á hluta-
félögum í Kauphöllinni er vænt ávöxt-
un hlutabréfamarkaðarins 6,9% og
hefur hækkað úr -0,8% frá í febrúar.
Meginástæðan er sögð hækkað verð-
mat á Pharmaco og áhrif af vaxta-
lækkun á skuldabréfamarkaði. Vænt
ávöxtunarkrafa hlutabréfamarkaðar-
ins er þó enn undir 12,7% ávöxt-
unarkröfu greiningardeildarinnar.
Verðlagning hluta-
bréfa í hærra lagi
Morgunblaðið/Kristinn