Morgunblaðið - 08.04.2004, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 08.04.2004, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 2004 B 7 NVIÐSKIPTI                                             Pappírstætarar margar stærðir og gerðir. Plasthúðunarvélar fjölbreytt úrval. Járngorma innbindivélar margar stærðir og gerðir. ÞEKKING • GÆÐI • ÞJÓNUSTA Úrval gólfþvottavéla Vatnagarðar 14 - 104 Reykjavík Sími: 544 2130 Fax: 544 2132 Allar stærðir af gólþvottavélum frá COMAC Úrval gólþvottavéla, iðnaðarryksuga og bónslípivéla frá Nilfi sk Mikið úrval ræstingavéla, ásamt bóni og hreinsiefnum frá Pioneer 1 4 4 4 w w w. g u l a l i n a n . i s SAMKEPPNI ríkja eða land- svæða um beina erlenda fjárfestingu hefur lækkað skatta á fyrirtæki, en ekki dregið úr sértækum kröfum sem gerðar eru til fyrirtækjanna, að sögn dr. Ronalds B. Davies, kenn- ara í hagfræði við háskólann í Oreg- on í Bandaríkjun- um, en hann flutti fyrirlestur um þetta efni í Há- skóla Íslands á dögunum. Davies segir að sam- kvæmt kenning- unni ættu skattar að lækka vegna samkeppni ríkja, og rannsóknir sýni að sú hafi einnig orðið raunin. Við fyrstu sýn ætti þró- unin að vera sú sama hvað varðar sértækar kröfur til fyrirtækja, svo sem um að ráða innlent vinnuafl og að nota tiltekna framleiðslutækni, en reynslan sýni að þessar kröfur hafi ekki minnkað. Skýringin á þessu sé sú að fyrirtækin, þegar litið sé á þau öll saman, geti haft gagn af því að blandað sé saman sértækum kröfum og lágum sköttum. Kröfurnar geti haft jákvæð áhrif á umhverfi fyrir- tækjanna, til dæmis með því að fjölga þjálfuðu starfsfólki á tilteknu sviði. Ísland getur haldið uppi kröfum Spurður um þann lærdóm sem Ís- lendingar geti dregið af rannsókn hans, segir Davies að Íslendingar geti séð, að það sé ekki nauðsynlegt að draga úr kröfum til fyrirtækja, til dæmis í umhverfismálum, til að laða erlendar fjárfestingar til landsins. Ísland geti einbeitt sér að því að bjóða lága skatta, eins og það hafi gert, til að laða að beina erlenda fjár- festingu, en um leið að halda uppi kröfum, svo sem í menntamálum, frekar en að reyna að keppa við önn- ur smærri ríki sem ef til vill geri minni kröfur. Ísland þurfi ekki að keppa á þeim forsendum en eigi þess í stað að halda uppi háum lífsgæðum og nota lága skatta til að keppa um erlenda fjárfestingu. Davies segir að það geti borgað sig fyrir Ísland að fá fyrirtæki til landsins sem ráði í vinnu vel mennt- aða og vel þjálfaða starfsmenn, þó að hvetja þurfi til fjárfestingarinnar í gegnum skattakerfið, en hann segist þó ekki geta sagt til um hvort fyr- irtækjaskattar þurfi að lækka frekar en orðið er. Fyrirtækjaskattar séu þegar mjög hagstæðir hér á landi, 18%, en þeir séu til að mynda 50% í Þýskalandi og að meðaltali 35% í Bandaríkjunum. Davies segir að Írland sé að mörgu leyti líkt Íslandi og því hafi gengið vel að fá inn beina erlenda fjárfestingu. Írland hafi gert ýmsar sértækar kröfur til fyrirtækja, en á móti boðið mjög lága skatta til að bæta það upp. Skattar lækka en kröfur minnka ekki Aðgerðir til að laða að beina erlenda fjárfestingu voru umfjöllunarefni dr. Ronalds B. Davies í fyrirlestri í Háskóla Íslands Morgunblaðið/Golli Erlend fjárfesting Vegna lágra skatta á fyrirtæki þarf Ísland ekki að draga úr kröfum til erlendra fyrirtækja svo þau fjárfesti hér á landi. Dr. Ronald B. Davies THERIAK ehf., dótturfyrirtæki TölvuMynda hf., og svissneska fyr- irtækið Swisslog AG hafa gert með sér alþjóðlegan samstarfssamning um samnýtingu hugbúnaðar og vél- búnaðar sem heldur utan um lyfja- gjöf á heilbrigðisstofnunum. Theriak leggur til samstarfsins margreyndar hugbúnaðarlausnir til dreifingar, meðhöndlunar og notkun- ar lyfja. Swisslog leggur hins vegar til nauðsynlegan vélbúnað sem not- aður er við lyfjagjafarferlið. „Þessi kerfi halda utan um allt lyfjagjafar- ferlið, allt frá rafrænni útgáfu lyf- seðla og meðferðaráætlun til pökk- unar, geymslu og staðfestrar dreifingar lyfjanna til sjúklinga. Um er að ræða tímamótasamstarf þar sem sjálfvirkni einkennir nær alla þætti sem lúta að lyfjagjöfinni,“ segir í tilkynningu. Læknar með handtölvur Hugbúnaðurinn frá Theriak gerir læknum kleift að skrá fyrirmæli um lyfjagjöf og skammtastærð í þráð- lausar handtölvur á stofugangi. Sam- an stuðla lausnir fyrirtækjanna marktækt að fækkun mistaka við út- gáfu lyfseðla, pöntun og dreifingu lyfja og við lyfjagjöf. Notkun strika- merkja við lyfjaskömmtun og dreif- ingu lyfja til sjúklinga tryggir rétta lyfjagjöf. Swisslog er alþjóðlegt fyrirtæki með um 2.350 starfsmenn í 23 löndum um allan heim. Það framleiðir sam- hæfðar lausnir til að hámarka fram- leiðslu- og dreifingarferli. Meðal verkefna Swisslog er bygging flók- inna vöruhúsa og dreifingarstöðva og gerð lausna fyrir starfsemi sjúkra- húsa og apóteka auk ráðgjafastarfa í stjórnun og skipulagi aðfanga. Theriak semur við Swisslog Lyfjagjöf á heilbrigðisstofnunum Rafrænt Læknir ávísar lyfjum við rúm sjúklings með handtölvu. SÆNSKA tryggingafélagið Skandia hefur kært tvo fyrrverandi æðstu stjórnendur félagsins, for- stjórann fyrrverandi Lars-Eric Pet- ersson og fjármálastjórann fyrrver- andi Ulf Spang. Fer Skandia fram á að þeir greiði félaginu 264 milljónir sænskra króna, 2,5 milljarða ís- lenskra króna. Ákæran er gefin út í kjölfar skýrslu lögfræðingsins Otto Rydbeck sem kom út í síðasta mán- uði en þar sýnir hann fram á græðg- is- og blekkingarmenningu innan fyrirtækisins á uppgangsárunum í efnahagslífinu á seinni hluta tíunda áratugarins og fram til ársins 2000, eins og segir í Ft.com. Á þeim tíma þróaðist fyrirtækið upp í að vera annað stærsta fyrirtæki Svíþjóðar. Fyrir árangur sinn á tímabilinu fengu stjórnendurnir ríflega umbun; bónusa og önnur hlunnindi. Í skýrslunni er Petersson ásakað- ur um að hafa afnumið þak sem verið hafði á hvatakerfi félagsins, „Wealthbuilder“ þannig að greiddar voru út 550 milljónir sænskra króna umfram 356 milljóna þakið sem verið hafði á greiðslunum. Upphæðin sem Skandia krefst nú af stjórnendunum er talin vera mis- munur á milli þess sem lagt var inn í „Wealthbuilder“ samkvæmt árs- skýrslunni 2000 og þess sem áætl- unin kostaði fyrirtækið í raun. Þá vill Skandia að auki fá endur- greiddar 11 milljónir sænskra króna frá hvorum mannanna, en þá fjár- muni notuðu þeir til að endurnýja lúxusíbúðir sem þeir höfðu afnot af. Í frétt FT.com segir að þrátt fyrir ákæruna vilji Skandia reyna að ná samkomulagi í gerðardómi. Nýlega var einnig tilkynnt um uppsögn eins af endurskoðendum fé- lagsins, Jan Birgersson hjá Ernst og Young. Hann var á meðal þeirra sem gagnrýndir voru í skýrslu Rydbecks. Skandia vill 2,5 milljarða frá fyrrverandi stjórnendum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.