Lesbók Morgunblaðsins - 25.05.2002, Síða 7
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 25. MAÍ 2002 7
Pierre Charpin teiknaði skápa fyrir Zanotta
sem lokast ýmist með marglitum álrörum eða
glerperlum og hinir frönsku Bouroullec-bræð-
ur sýndu tvílita, málaða skápa og fallegan, þrí-
litan Samourai-stól hjá Cappellini. Aðrir bræð-
ur, Fernando og Humberto Campana frá
Brasilíu, voru með furðulegan stól hjá Edra,
Sushi, og gerður var úr ótal mislitum efnis-
afgöngum.
Gólfslöngur
Jafnvel þó „lounging“-stíllinn sé enn í fullu
fjöri virðist sem „sprawling“-stíllinn sé að leysa
hann af hólmi. Sá einkennist af lágum, mjúkum
sætum sem hvíla beint á gólfinu og hafa til-
hneigingu til að dreifa verulega úr sér. Edra-
fyrirtækið var með einn mest áberandi og vin-
sælasta básinn á opinberu sýningunni. Þar
mátti sjá Superblob, risastóra kúlustóla eftir
Karim Rashid klædda hulstri sem var svart og
ýmist skærbleikt eða sterkgult, fyllt litlum
plastkúlum.
Boa-sæti Campana-bræðra sópaði einnig að
sér. Sætið er gert úr 90 metra langri slöngu
fyllt teygjanlegu plastefni klætt flaueli. Þessir
frumlegu bræður urðu frægir fyrir nokkrum
árum fyrir húsgögn úr stáli og samflæktum
köðlum, en í fyrra notuðu þeir plaströr. Í ár má
segja að slönguformið, mýkt þess og frelsi, hafi
algerlega tekið yfirhöndina og sé fært út í ystu
æsar. VIA, þróunardeild franska húsgagnaiðn-
aðarins, sýndi einnig Buldang eftir Japanann
Hiro-Hiro Kamiya, eins konar slöngu, fimm
metra langan hólk fylltan plastkúlum sem
hægt er að leggja til eftir vild. Svipaðar hug-
myndir koma fram eins og svo oft áður á ólík-
um stöðum, þær eru hluti af tíðarandanum.
„Sprawling“ minnir óneitanlega á kúlustóla-
og sessumenningu hippatímabilsins. Fer hönn-
un þá í eintóma hringi? Að vissu leyti, en eldri
stílar eru aðlagaðir kröfum nútímans, nýjum
framleiðsluaðferðum og breyttum áherslum.
Pullurnar kringum 1970 endurspegluðu ný-
fengið þjóðfélagslegt og líkamlegt frelsi en í
dag virðumst við leita í glaðlega liti, munstur
og mjúk form til að hressa upp á móralinn í blá-
upphafi óvissu nýs árþúsunds. Nú sem fyrr er
um andsvar við naumhyggju og vissum stíf-
leika að ræða.
Ský, kúlur og aðrar nýjungar
Á sýningum sem þessum reynir gestkom-
andi einnig að skyggnast um eftir nýjungum
eða áhugaverðum hlutum sem skera sig úr al-
mennri tilhneigingu. Meðal þess sem helst
vakti athygli í Mílanó má nefna stól Konstantin
Grcic hjá Magis, Chair One, úr lituðu áli og líkt-
ist helst skúlptúr. Einnig Cloud, uppblásið her-
bergi, eftir hina sænsku Monicu Förster hjá
Snowcrash. Herbergið er úr hvítu næloni og
rúmast í tösku sem blæs sjálfkrafa út þegar
hún er opnuð og verður að óefniskenndu, ljóð-
rænu rými til hvíldar, fundarhalda eða einbeit-
ingar.
Í Salone Satellite, sýningarsvæði ætluðu
ungum hönnuðum, var athyglisverð, sívöl
þvottavél frá ítölsku pari sem kallar sig
deepdesign, unnin í samvinnu við Whirlpool.
Ytra byrði hennar er úr teygjanlegu plastefni,
hún er allt að því lífræn og lögun hennar breyt-
ist eftir því hvar hún er stödd í þvotta-
prógramminu. Þarna var íslenski hönnuðurinn
Tinna Gunnarsdóttir einnig með bás og sýndi
athyglisverðar kúlur kallaðar Rolling Stones
sem hún vann í samvinnu við líbanska hönn-
uðinn Karenu Cherkadijian, en þær kynntust
við nám í Domus Akademíunni í Mílanó. Kúl-
urnar eru úr ýmsum efnum og geta gegnt
margs konar hlutverki, s.s. að geyma hluti eða
sem blómavasar, skálar eða lampar. þær henta
vel við „gólfstílinn“, þ.e. lág sæti og óformfasta
herbergisskipan.
Hollenskur ferskleiki
Þau fyrirtæki sem skáru sig úr í Mílanó hvað
varðar frum- og ferskleika reyndust öll vera
hollensk. Moooi var stofnað fyrir ári og starfar
nokkuð í anda Droog Design hópsins. Hol-
lenskir og enskir hönnuðir eins og Marcel
Wanders, Ross Lovegrove og Jeffrey Bernett
teikna fyrir Moooi einföld húsgögn og hluti en á
sölulista fyrirtækisins eru einnig endurnýttir
hlutir eins og svokallaðir Salvation Stacks úr
aflóga bollastellum. Li Edelkoort, konan sem
leggur línurnar í hönnunarheiminum nokkur
ár fram í tímann, valdi málningu og lit fyrir
Moooi sem henni finnst lýsandi fyrir 2002–
2003. Hann er sterkgulur og má nota til að
flikka upp á eldri húsgögn. Hann er kallaður
„moooi weer“ sem þýðir fallegt veður á hol-
lensku og er því fullur bjartsýni og hagstæðrar
spár.
Wetdesign hét sýning á vegum EKWC
(European Ceramik Work Center) sem stuðlar
að alþjóðlegri nýsköpun í keramiki og hefur
bækistöðvar í ‘s-Hertogenbosch í Hollandi. Í
stað þess að vera stillt upp á stöpla eða í gler-
kassa voru sýningarhlutirnir hafðir í upp-
þvottavélum með glerhurðum og í fullum
gangi. Hlutina mátti einnig sjá á stórum ljós-
myndum í sérstakri sviðssetningu með nýstár-
lega klæddu módeli. Þannig urðu þeir hluti af
heildarmynd þar sem tíska og umhverfishönn-
un gegna stóru hlutverki. Grafísk og útlitsleg
hönnun sýningarbæklinga þessara fyrirtækja
var einnig áberandi skemmtileg.
Mesta athygli í Mílanó vakti trúlega framlag
Droog Design. Þau leigðu lítið, dæmigert, einn-
ar stjörnu hótel í miðborginni og settu hluti í
ganga og herbergi hótelsins, sem að öðru leyti
hélst óbreytt. Sumir hlutanna höfðu visst nota-
gildi, eins og ferðabað eða skotheldur svefn-
poki, aðrir voru fremur eins og innsetningar.
Með því að taka sjálfa sig og markaðinn ekki of
hátíðlega léku meðlimir Droog sér með landa-
mæri listar og hönnunar, hluta og hugmynda.
Tískutengsl
Eitt af því sem einkenndi venju fremur Míl-
anósýninguna í ár voru greinileg tengsl hennar
við tískuheiminn. Opnanir voru skipulagðar
eins og tískusýningar með sýningarstúlkum og
ljósaleik; fyrirtæki eins og Cappellini og Mor-
oso fengu tískuhönnuði á borð við Paul Smith,
Jean-Paul Gauthier og Tom Ford til að teikna
fyrir sig hluti og á hinn bóginn, iðnhönnuðir
eins og Marcel Wanders og Ilkka Suppanen
hönnuðu föt og fylgihluti fyrir tískuhús. Það
má segja að vor- og sumarlína hönnunarheims-
ins hafi verið kynnt í Mílanó með tilheyrandi
markaðssetningu. Líkt og í tískuheiminum er
til hópur um 20 ungra hönnuða, eins konar al-
þjóðlegt stjörnulið sem starfar fyrir bæði stór
og smá fyrirtæki sem svo nota nöfn þeirra
óspart í söluskyni.
Þessi tengsl hafa síðan viss áhrif á húsgögnin
sem hafa tilhneigingu til að verða að nokkurs
konar fatnaði. Hægindastóllinn Alice eftir an-
Archi hjá VIA er til dæmis klæddur stórri úlpu
sem sitjandinn getur smeygt sér í. Svisslend-
ingarnir Lisa Besset og Thomas Withrich hjá
Fashion Force kynntu eins konar vestissæti
sem í eru festar stillanlegar ólar sem gera að
verkum að notandi þessarar stólflíkur getur
setið í afslappaðri stöðu hvar sem er.
Það var því margs að gæta í Mílanó og
greinilegt að hönnunarheimurinn er bjartsýnn
og í fullu fjöri. Er óskandi að tilraunastarf-
semin eigi ekki eftir að lúta í lægra haldi fyrir
tískusveiflum og skyndibólum heldur, þvert á
móti, að tengsl hönnunar við myndlist, fata-
hönnun og umhverfislist megi opna nýjar dyr
og nýjar víddir í framtíðinni.
Victoria & Albert safnið í London býður upp
á úrval frá Mílanósýningunni í „Milan in a Van“
og stendur sýningin til 9. júní
(www.vam.ac.uk).
Upplýsingar um Mílanósýninguna er að
finna á vefsíðunni www.cosmit.it.
Aðrar vefsíður: www.cappellini.it, www.-
deepdesign.it, www.droogdesign.nl, www.-
edra.it, www.ekwc.nl, www.fashionforce.org,
www.fritzhansen.com, www.kartell.it, www.-
magis.it, www.moooi.com, www.moroso.it,
www.offecct.se, www.snowcrash.se, www.-
swedese.se, www.via.asso.fr, www.zanotta.it.
Höfundur er listfræðingur.
ÖNGUR OG SKÝ
Teppi og mottur minna á íslenskan mosa.
Sýningarsvæði ítalska hönnunarfyrirtækisins Cappelini.