Lesbók Morgunblaðsins - 25.05.2002, Blaðsíða 15
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 25. MAÍ 2002 15
MYNDLIST
Englaborg, Flókagötu 17: Sigtryggur
Bjarni Baldvinsson. Til 26.5.
Gallerí Fold, Rauðarárstíg: Tryggvi
Ólafsson, Olga Pálsdóttir og Emil Þór
Sigurðsson. Til 9. júní.
Galleri@hlemmur.is: Björk Guðna-
dóttir. Til 26.5.
Gallerí i8, Klapparstíg 33: Markús
Þór Andrésson. Til 2.6.
Gallerí Kambur, Rangárvallasýslu:
Helgi Þorgils. Til 2.6.
Gallerí Reykjavík: Alda Ármann
Sveinsdóttir. Til 31.5.
Gallerí Skuggi: „My name is Þorri
but they call me Elvis.“ Til 2.6.
Gallerí Sævars Karls: Tígurinn og ís-
björninn. Til 26.5.
Gerðarsafn: Úr einkasafni Þorvaldar
Guðmundssonar og Ingibjargar Guð-
mundsdóttur. Til 28.7.
Hafnarborg: Loftur Guðmundsson
ljósmyndir. Elías B. Halldórsson. Til
3.6.
Hallgrímskirkja: Húbert Nói. Til 29.8.
Hús málaranna, Eiðistorgi: 10 mynd-
listarmenn. Til 31.5.
i8, Klapparstíg 33: Ólafur Elíasson.
Til 22.6.
Íslensk grafík: Asta Rakauskaite.
Listasafn Akureyrar: Rússnesk
myndlist 1914-1956. Til 26.5.
Listasafn ASÍ: Guðbjörg Lind Jóns-
dóttir, Guðrún Kristjánsdóttir og
Kristín Jónsdóttir frá Munkaþverá.
Til 30.6.
Listasafn Einars Jónssonar: Opið
laugardaga og sunnudag kl. 14-17.
Listasafn Íslands: Rússnesk myndlist.
Til 16.6.
Listasafn Reykjavíkur - Ásmundar-
safn: Listin meðal fólksins. Til 31. des.
Listasafn Reykjavíkur - Hafnarhús:
Íslensk samtímalist. Til 11.8.
Listasafn Reykjavíkur - Kjarvalsstað-
ir: Mary Ellen Mark. Kínversk sam-
tímalist. Til 2.6. Myndir úr Kjarvals-
safni. Til 31.5.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar:
Ljóða- og höggmyndasýning. Til 30.6.
Listasalurinn Man, Skólavörðustíg:
Dröfn Guðmundsdóttir og Hrönn Vil-
helmsdóttir. Til 4.6.
Mokkakaffi: Aaron Mitchell. Til 9.7.
Norræna húsið: Púslusving - Innsetn-
ingar og myndbandsverk. Til 26.5. Siri
Derkert. Til 11.8.
Nýlistasafnið: Hollenski listamaður-
inn Aernout Mik. Til 30.6.
Skálholtsskóli: Kristín Geirsdóttir. Til
1.7.
Stöðlakot: Hulda Jósefsdóttir. Til 9.6.
Þjóðarbókhlaða: Yfirlitssýning á
verkum Halldórs Laxness. Til 31. des.
Þjóðmenningarhúsið: Landafundir og
ragnarök.
Upplýsingamiðstöð myndlistar:
www.umm.is undir Fréttir.
TÓNLIST
Laugardagur
Langholtskirkja: Styrktartónleikar.
Kl. 14.
Sunnudagur
Grafarvogskirkja: Vortónleikar Graf-
arvogskirkju. Kl. 17.
Salurinn: Spænski gítarleikarinn Jos-
ep Henríques. Kl. 20.
Tónlistarskólinn í Garðabæ: Elín
Halldórsdóttir sópran. Richard Simm
píanó. Kl. 20.
Mánudagur
Dómkirkjan í Reykjavík: Fagottería.
Kl. 20.
LEIKLIST
Þjóðleikhúsið: Jón Oddur og Jón
Bjarni, lau. Með fulla vasa af grjóti,
lau., fös. Hollendingurinn fljúgandi,
sun. Virginía Woolf, lau. Veislan, sun.,
fim.
Borgarleikhúsið: Kryddlegin hjörtu,
fös. Boðorðin 9, sun. Með vífið í lúk-
unum, lau. And Björk of course, sun.
Fyrst er að fæðast, lau. Píkusögur,
sun., fim. Gesturinn, lau., fös.
Nemendaleikhúsið: Sumargestir,
þrið., mið.
Hafnarfjarðarleikhúsið: Rauðhetta,
lau. Sellófon, lau., sun., þrið., fim.
Upplýsingar um listviðburði sem ósk-
að er eftir að birtar verði í þessum
dálki verða að hafa borist bréflega eða
í tölvupósti fyrir kl. 16 á miðvikudög-
um merktar: Morgunblaðið, menning/
listir, Kringlunni 1, 103 Rvík. Mynd-
sendir: 5691222. Netfang: menning-
@mbl.is.
MENNING
LISTIR
N Æ S T U V I K U
M
EISTARI Teruhisa
Fukuda shakuhaci
flautuleikari frá Jap-
an er kominn til
landsins ásamt eigin-
konu sinni, shamisen-
leikaranum Shiho
Kineya. Þau eru gest-
ir Listahátíðar og leika á tónleikum á Hafn-
arhússkvöldi á sunnudagskvöld kl. 20 með
Kolbeini Bjarnasyni flautuleikara. Shiho
Kineya er sérstakur gestur á tónleikum Kol-
beins og Fukudas. „Einhver spurði mig að
því um daginn hvernig væri að stilla svona
saman hinni háþróuðu silfur-þverflautu og
frumstæðri bambusflautu frá Japan,“ segir
Kolbeinn. „Því er til að svara, að okkar vest-
ræna flauta er afar frumstætt hljóðfæri mið-
að við japönsku shakuhachi-flautuna en ég
mun gera allt sem í mínu valdi stendur til að
verða ekki troðinn undir … Shakuhachi-
flautan ræður yfir ótrúlegum tjáningarmætti
og Teruhisa Fukuda er einn snjallasti shak-
uhachi-blásari sem nú er uppi.“
Tónlistin ávöxtur samstarfs
Árið 1999 pantaði Fukuda fjögur tónverk
fyrir shakuhachi og vestrænar flautur af jap-
önskum tónskáldum. Þessi verk frumflutti
hann ásamt Kolbeini á tónleikum í Tókýó í
maí árið 2000. Þau eru öll á efnisskrá
Listahátíðartónleikanna. Þeir frumflytja
einnig nýtt verk eftir Atla Heimi Sveinsson,
og leika rúmenskt verk Over Time, eftir
Doina Rotaru en hún er eitt virtasta núlif-
andi tónskáld Rúmena. Í því verki kemur hin
rúmenska hjarðflauta, fluier, einnig við sögu.
Japönsku verkin fjögur sem samin voru
fyrir þá félaga árið 2000 eru Breath on Call-
igraphy eftir Atsuki Sumi, Kage eftir Ken
Nunokawa, Différance eftir Yoshihiro Nak-
agava og Chromosphere eftir Koji Kaneta.
Auk þessa leika japönsku hjónin þjóðlega
japanska tónlist fyrir shamisen og shak-
uhachi, en shamisen er þjóðlegt strengja-
hljóðfæri, mikið notað í Kabuki-leikhúsinu.
Leikur á hljóðfæri frá 17. öld
Teruhisa Fukuda segir að shakuhachi-
flautan eigi sér langa sögu. „Shakuhachi-
bambusflautan kom til Japans frá Kína fyrir
um 1.200 árum. Hún hefur alltaf verið tengd
andlegri iðkun, bæði Búddamunkum, en ekki
síður samúræjum, en eldri og atvinnulausir
samúræjar spiluðu gjarnan á shakuhachi-
flautuna og þóttu mjög flinkir. Hljóðfærið
sem ég sjálfur leik á er frá Edo-tímanum
sem hófst um 1600. Shakuhachi-flautan og
evrópska flautan eru mjög ólíkar og hugs-
unin í tónlistinni annars konar. Meðan Evr-
ópumenn hugsa tónlist sína í mismunandi
tónum, ólíkum að gerð, er tónlist shakuh-
achi-flautunnar hugsuð sem aðeins einn tónn
í ótal blæbrigðum. Hljóðfærið hefur alltaf
verið tengt tilfinningum mannsins og því
andlega; það var til dæmis aldrei notað í
neins konar herhljómsveitum, lúðrasveitum
eða við einhverjar athafnir; – heimur þess er
það sem býr innra með okkur.“ Fukuda segir
hina hefðbundnu tónlist shakuhachi-flaut-
unnar ekki beinlínis eins og spuna eða
improvisation, heldur sé hugtak flautuleiks-
ins miklu víðara þótt það sé vissulega tengt
augnablikinu. Öldum saman var tónlist flaut-
unnar til, en aldrei skrifuð á blað. Þetta var
list sem menn lærðu hver af öðrum, og til
voru þekkt lög sérstaklega ætluð til leiks á
shakuhachi. En svo gekk nútíminn í garð. „Á
Megi tímanum sem stóð frá 1868–1923 fóru
menn að skrifa nótur fyrir fyrir shakuhachi-
flautuna. Þá var þó mestmegnis verið að skrá
þau lög sem til voru og jafnvel að útsetja
þau. Það var ekki fyrr en löngu seinna, þegar
japönsk tónskáld fóru að sækja menntun
sína til Evrópu og evrópsk áhrif að berast til
Japans, að farið var að semja tónverk fyrir
hljóðfærið. Hugmyndin um sérstaka tónsmíð
samda fyrir hljóðfærið var einfaldlega ekki
til fyrr. Það var ekki fyrr en fyrir um þrjátíu
til fjörutíu árum að farið var að semja slík
tónverk.“
Ótrúleg litbrigði
Árið 1967 frumflutti Fílharmoníuhljóm-
sveitin í New York hið margfræga tónverk,
November Steps fyrir shakuhachi, biwa (jap-
anskt strengjahljóðfæri) og hljómsveit eftir
Toru Takemitsu. Síðan þá hafa hinir dáleið-
andi tónar shakuhachi-flautunnar heillað
Vesturlandabúa. Aðalsmerki shakuhachi-
flautunnar eru gríðarleg dýnamísk breidd og
ótrúlegustu litbrigði. Sannur shakuhachi-
leikur sameinar himneskan innblástur jarð-
bundnum ástríðum. „Shakuhachi-flautan er
vinsæl enn í dag, og mér virðist hún sækja í
sig veðrið ef eitthvað er, því nú er hún æ oft-
ar farin að hljóma utan Japans.“
Shiho Kineya segir strengjahljóðfæri sitt,
shamisen, ekki alveg á sama stalli og shak-
uhachi-flautuna. „Það er ekki jafn mikið
samið af nýjum verkum fyrir shamsien og
shakuhachi-flautuna, en þó er það eitthvað
að færast í vöxt. Ég er til dæmis á leiðinni til
Frakklands í janúar í næsta ári að frumflytja
verk eftir japanskt tónskáld, samið fyrir
shamsien og óbó.“
Kolbeinn Bjarnason segir samvinnuna við
Fukuda hafa verið einstaka. „Ég hef aldrei
unnið með manni sem vinnur svona spontant.
Tónlistin sem við erum að leika eru nátt-
úrulega öll skrifuð á nótur, en ég hef aldrei
heyrt hann spila eina einustu nótu þannig að
maður finni að hún sé skrifuð á blað. Hann
lifir í augnablikinu sem hann spilar og tón-
listin kemur frá hjartanu.“
Dagblaðið Washington Post lýsti shakuh-
achi-leik Teruhisa Fukuda meðal annars með
þessum orðum: „Hljóð náttúrunnar samofin
tilfinningatjáningu mannsins … áköf og ein-
læg hugleiðsla öndunarinnar … skjálfandi
hvískur … skerandi óp bambussins … mun-
úðarfullir og rakir tónar … “
Teruhisa Fukuda er einn helsti núlifandi
meistari shakuhachi-flautunnar. Hann fædd-
ist í Nagano árið 1949 og nam list sína hjá
Baizan Nakamura og Kohachiro Miyata. Auk
þess að leika hefðbundna tónlist hefur hann
unnið mikið með japönskum tónskáldum og
frumflutt verk þeirra. Hann hefur leikið ein-
leik með þekktum japönskum hljómsveitum
og hljómsveitum í Evrópu og Asíu og verið
fulltrúi lands síns á tónlistarhátíðum víða um
heim. Leikur hans hefur verið gefinn út á
mörgum geisladiskum.
Kolbeinn Bjarnason stundaði framhalds-
nám í flautuleik hjá Manuelu Wiesler í Sviss,
í Hollandi og Bandaríkjunum þar sem hann
lagði einnig stund á shakuhachi-nám. Hann
hefur frumflutt fjöldamörg verk íslenskra og
erlendra tónskálda og komið fram í Ameríku,
Evrópu og Japan. Leikur hans hefur verið
gefinn út hjá íslenskum, dönskum, ítölskum,
hollenskum hljómplötuútgáfum og um þessar
mundir kemur út hjá Bridge Records í New
York fyrsta heildarútgáfa af flaututónlist
Brians Ferneyhough í flutningi Kolbeins.
Hann stofnaði CAPUT ásamt Guðna Franz-
syni árið 1987 og hefur ásamt honum verið
listrænn stjórnandi hópsins frá upphafi. Kol-
beinn hefur lagt sérstaka rækt við japanska
nútímatónlist. Tónleikarnir í Hafnarhúsinu
verða sem fyrr segir annað kvöld kl. 20.
Stefnumót vestrænnar og japanskrar flautu á tónleikum á Listahátíð
Morgunblaðið/Kristinn
Kolbeinn Bjarnason, Shiho Kineya og Teruhisa Fukuda leika á tónleikum í Hafnarhúsinu annað kvöld.
SHAKUHACHI-HLJÓÐ-
FÆRI SAMÚRÆJANNA