Lesbók Morgunblaðsins - 08.06.2002, Blaðsíða 3

Lesbók Morgunblaðsins - 08.06.2002, Blaðsíða 3
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 8. JÚNÍ 2002 3 Þ ví er stundum haldið fram að pólitísku siðferði sé ábóta- vant hér á landi og er þá einkum vísað til þess að ráða- menn neiti að sæta pólitískri ábyrgð þegar þeir misstíga sig í starfi. Þessu til sönn- unar er bent á að í mörgum nágrannalöndum okkar tíðkast það að ráðamenn segi af sér embætti ef þeim hef- ur orðið á í störfum sínum eða að embætt- isverk þeirra eru mjög umdeild. Forsenda afsagna er ekki brot á landslögum heldur sæta stjórnmálamenn og embættismenn pólitískri ábyrgð á gjörðum sínum. Póli- tískt siðferði nær hins vegar til margs fleira en misgjörða í starfi. Í kjölfar sveit- arstjórnarkosninganna stendur þrennt upp úr þegar litið er til pólitísks siðferðis. Í fyrsta lagi eftirlit stjórnmálaflokka með kjósendum á kjörstöðum. Í öðru lagi sú leynd sem hvílir yfir fjárframlögum til stjórnmálaflokka. Í þriðja lagi árásir ein- stakra stjórnmálamanna og fylgisveina þeirra á fjölmiðlafólk og fræðimenn. Eftirlit stjórnmálaflokka með fram- kvæmd kosninga er nauðsynlegur þáttur í lýðræðislegum kosningum. Stjórn- málaflokkar eiga skilyrðislausan rétt á því að fylgjast með framkvæmd kosninga allt frá undirbúningi þeirra í kjörnefndum til talningar atkvæða. Eftirlit stjórn- málaflokka á kjörstöðum er mikilvægur hluti þessa ferils. Það virðist hins vegar gæta nokkurs misskilnings á þessu eft- irlitshlutverki hjá einstaka stjórn- málaflokkum. Lagt er ofurkapp á eftirlit með kjósendum á kjörstað en minna lagt upp úr því sem hið raunverulega eftirlit felur í sér, þ.e. eftirlit með fulltrúum rík- isins sem sjá um framkvæmd kosninga. Nöfn allra þeirra sem mæta á kjörstað eru skrifuð niður. Nöfnum er safnað í bunka með reglulegu millibili og brunað með upplýsingarnar á flokksskrifstofuna. Þar er haldið bókhald yfir alla þá sem mætt hafa á kjörstað sem og þá sem hafa kosið að sitja heima. Þannig heldur flokk- urinn lista yfir stóran hóp kjósenda sem kýs að nýta sér ekki atkvæðisrétt sinn í kosningum og veit þar af leiðandi að þess- ir kjósendur eru ekki stuðningsmenn flokksins. Á kjördag mega einstaklingar úr þessum hópi eiga von á því að flokk- urinn hringi í þá og hvetji þá til þess að kjósa nú rétt. Þeir sem einkum eiga von á hringingum eru þeir sem eru plúsmerktir á listum flokksins og einstaklingar sem tilheyra tilteknum markhópi sem flokk- urinn vill sérstaklega höfða til eins og t.d. ungt fólk eða konur á tilteknum aldri. Skilaboð flokksins eru skýr. Ef þú mætir ekki á kjörstað veit flokkurinn það. Ef þú mætir ekki á kjörstað ert þú ekki stuðn- ingsmaður flokksins. Og við vitum það! Þessi vinnubrögð hafa ekkert með eft- irlit á framkvæmd kosninga að gera. Hér er ekki neitt annað á ferðinni en persónu- njósnir af verstu gerð. Kjósendur hafa val um það hvort þeir mæta á kjörstað eða ekki og það er óásættanlegt að flokkar haldi lista yfir þá kjósendur sem kjósa að sitja heima á kjördag. Í sumum löndum er lagaleg skylda að kjósa og ríkið fer með það hlutverk að fylgjast með því hverjir brjóta lögin. Okk- ur getur fundist að allir eigi að nýta sér atkvæðisrétt sinn og að flokkar eigi að hvetja fólk til að nýta sé þennan rétt. Stjórnmálaflokkar hafa hins vegar ekkert með það að gera að halda lista yfir það hverjir mæta á kjörstað og hverjir ekki. Eftirlit stjórnmálaflokka á kjörstöðum á að beinast að því hvort fulltrúar ríkisins framkvæma kosningar eins og lög gera ráð fyrir. Eftirlitið á ekki að beinast að kjósendum. Ísland er eitt af fáum lýðræðislöndum í heiminum sem ekki hafa sett reglur um fjárframlög til stjórnmálaflokka. Þessar reglur eru einkum settar í þeim tilgangi að upplýsa kjósendur um það hverjir standi á bak við stjórnmálaflokka og að koma í veg fyrir að einstaklingar og fyr- irtæki kaupi sér stuðning þeirra. Sú leynd sem hvílir á fjárframlögum til stjórn- málaflokka hér á landi stangast á við lýð- ræðishefðir. Þessi leynd grefur einnig undan trausti almennings á stjórn- málaflokkum. Það er sjónarmið út af fyrir sig að ekki megi takmarka fjárstuðning einstaklinga og fyrirtækja við stjórn- málaflokka þar sem það er réttur þessara aðila að reyna að hafa áhrif á aðra með fjárframlögum sínum. Það hlýtur hins vegar að vera skilyrðislaus krafa fyrir ótakmörkuðum fjárframlögum til stjórn- málaflokka að kjósendur viti hverjir borgi. Fyrirtækjum sem og einstaklingum er gert skylt að gera grein fyrir tekjum sínum gagnvart hinu opinbera. Það sama hlýtur að eiga við um stjórnmálaflokka og er í raun grundvöllur fyrir trausti almenn- ings á stjórnmálaflokkum og trúverð- ugleika þeirra. Það er nokkuð sérstæð naflaskoðun að kenna öðrum um ófarir sínar. Skammir einstakra stjórnmálamanna og fylgi- ssveina þeirra í garð nafngreindra fjöl- miðlamanna og fræðimanna nú að loknum kosningum eru hreint með eindæmum. Það er ekki hægt að horfa fram hjá því að hér er um ekkert annað að ræða en árásir á fólk sem er að reyna að sinna störfum sínum eftir bestu getu. Tilgangur þessara árása virðist vera sá einn að sverta nafn þessa fólks og reyna að koma í veg fyrir að það sé trúverðugt í störfum sínum. Lík- lega sjáum við einungis hluta af þessum árásum í opinberri umræðu þar sem þær fara oftar en ekki fram á bak við tjöldin með símhringingum, einkabréfum, tölvu- pósti og heimsóknum flokksgæðinga. Það er ekkert sjálfsagðra en að fjöl- miðlafólk og fræðimenn sæti gagnrýni fyrir störf sín eins og aðrir. Gagnrýni ætti að leiða til þess að fólk vandaði sig betur við vinnu sína öllum aðilum til hagsbóta. En beinar árásir og útúrsnúningar virðast oft þjóna engum öðrum tilgangi en hræða fólk frá því að beita gagnrýnni hugsun á stjórnmálalífið í landinu og útiloka það frá opinberri umræðu. Slíkar árásir eru ekki til þess fallnar að stuðla að upplýstri stjórnmálaumræðu. Pólitísku siðferði er klárlega ábótavant í íslenskum stjórnmálum. Við eigum því miður langt í land að ná þeim pólitíska þroska sem nágrannalönd okkar hafa náð. Leifar gamla flokksræðisins endurspegla enn athafnir einstakra stjórnmálaflokka og stjórnmálamanna sem neita að horfast í augu við nýja og breytta tíma þar sem réttur kjósenda til upplýstrar umræðu er til staðar sem og réttur þeirra til að fá að vera í friði fyrir flokksræðinu. PÓLITÍSKT SIÐFERÐI Í KJÖLFAR KOSNINGA RABB B A L D U R Þ Ó R H A L L S S O N NÍNA BJÖRK ÁRNADÓTTIR SKÁLDIÐ Hvers minnist ég Kossa þinna sem vöktu mig alveg þeir voru svo ólmir Handa þinna sem trylltu mig alveg þær voru svo óðar Nei þessa minnist ég varla En andartaksins þegar ég sá óttann þeysa um augu þín andartaksins þegar þú hékkst í firringu skelfingarinnar Úr Engill í snjónum. Iðunn, 1994. LESBOK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING LISTIR 2 2 . T Ö L U B L A Ð - 7 7 . Á R G A N G U R EFNI Myndlista- og handíðaskóli Íslands heyrir sögunni til, orðinn deild í Listhá- skóla Íslands. Vekur margar spurningar, en orðræðan lítil ef nokkur á opinberum vettvangi. Þó mikið álitamál hvort alfarið sé ávinningur af þeirri þróun, t.a.m. hvort breytingin hafi ekki einnig skapað tóma- rúm í sjónmenntafræðslu á landinu. Þetta verður Braga Ásgeirssyni að spurn. Yoichi Onagi myndlistarmaður er á sjötugasta og þriðja aldursári, og segist aldrei hafa verið jafn frjáls til að sinna listinni og nú. Heiða Jó- hannsdóttir ræddi við þennan þekkta jap- anska myndlistarmann, en yfirlitssýning á verkum hans verður opnuð í Hafnarborg í Hafnarfirði dag. Íslensk raftónlist í dægurtónlistarlegum skilningi, hefur átt gengi að fagna þótt það hafi farið skamm- arlega lágt hérlendis. Arnar Eggert Thor- oddsen skoðaði þennan lifandi en um margt dulda tónlistargeira og velti fyrir sér inn- taki hans og eðli. Robyn Archer söngkona og stjórnandi listahátíða víðs vegar um Ástralíu kom hingað til lands fyr- ir skemmstu til að kynna sér íslenska list á Listahátíð í Reykjavík. Guðrún Arnalds fór með Helgu Arnalds og leikhúsinu Tíu fingr- um í boði menntamálaráðuneytisins og Regional Arts of Australia til Tasmaníu síð- astliðið vor og átti síðan samtal við Robyn Archer þegar hún kom hingað til lands um listahátíðina í Tasmaníu og í Reykjavík og samskipti þessara þjóða. FORSÍÐUMYNDIN er tekin í miðborg Prag. Ljósmyndari Kristinn Ingvarsson.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.