Lesbók Morgunblaðsins - 08.06.2002, Blaðsíða 5

Lesbók Morgunblaðsins - 08.06.2002, Blaðsíða 5
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 8. JÚNÍ 2002 5 S KÁLDSÖGURNAR Heimsljós eftir Halldór Laxness og Lífið er annars staðar eftir Milan Kundera eru um margt afar ólíkar, bæði að innihaldi og um- fangi, sprottnar úr ólíkum menningarlegum og þjóðfélags- legum jarðvegi, skrifaðar af ólíkum höfundum sem eru hvor af sinni kynslóð- inni, auk þess sem um það bil þrjátíu og fimm ár skilja þær að: Heimsljós kom út á árunum 1937– 40 og Lífið er annars staðar kom út 1973. En við nánari skoðun er merkilega margt líkt með þeim. Leiftrandi frásagnargáfa einkennir þær báðar, báðar eru á köflum fullar af dálítið grall- aralegum húmor og báðar eru þær heimspeki- legar í aðra röndina, glíma við spurningar um ástina, skáldskapinn, réttlætið og fleira. En það sem blasir við hverjum lesanda við það eitt að lesa aftan á bókakápurnar er að aðalpersóna beggja skáldsagnanna er ljóðskáld, eða kannski ljóðskáldið með ákveðnum greini, erkitýpa þess hlutskiptis að vera skáld. Sögurnar eru hins vegar, eins og áður segir, sprottnar úr afar ólíkum samfélögum. Annars vegar er íslenskt sveita- og millistríðsárasam- félag, hins vegar tékkneskt borgar- og eftir- stríðsárasamfélag. Önnur gerist og er skrifuð fyrir síðari heimsstyrjöldina, helförina og Hír- ósíma, hin er skrifuð og gerist eftir þá hildar- leiki. Önnur endurómar af dálítið rómantískri og bernskri bjartsýni þrátt fyrir allt, hin lýsir grimmúðlegum og grátbroslegum endalokum ljóðrænna byltingarhugsjóna, jafnvel evrópskr- ar ljóðlistar sem slíkrar. Sögur af skáldum Lífið er annars staðar kom fyrst út árið 1973. Aðalpersóna bókarinnar er ljóðskáld eða réttara sagt ungskáld sem heitir Jaromil. Samkvæmt hefðinni er ljóðskáldið óvenju frumlegur og sjálf- stætt þenkjandi einstaklingur. Skáldið, og þá kannski sér í lagi ljóðskáldið, er listamaður sem fer ótróðnar slóðir í meðferð tungumálsins og varpar spánnýju ljósi á heiminn og tilveruna. En strax í upphafi skáldsögunnar læðir Kundera inn hjá lesandanum þeim óþægilega grun að svo sé ekki, því í þessu tilfelli er skáldið kallað skáld allt frá fæðingu, jafnvel getnaðurinn átti sér stað við ljóðrænar kringumstæður að áliti móður hans. Hún telur með öðrum orðum að skáldskapargáfan sé honum meðfædd og Jaromil stendur varla út úr hnefa þegar hann uppgötvar ákveðin lykilorð í tungumálinu, eða móðurmálinu í orðsins fyllstu merkingu, því faðir hans kemur nánast ekkert við sögu. Móðirin fylgist nákvæmlega með litla ang- anum sínum og skrifar niður hver einasta orð sem hrýtur af litlu vörunum hans. Eitt sinn segir Jar- omil t.d. bálreiður: „Ljóti pabbi lakkrís tók“ og all- ir klöppuðu honum lof í lofa og síðan segir: „Jar- omil áttaði sig kannski ekki á því þá hvers vegna þetta vakti svona mikla lukku, en við vitum hins vegar að það var stuðlasetningin sem bjargaði honum frá rassskelli og þannig uppgötvaði hann að ljóðlistin býr yfir dularfullu kynngimagni.“ Hliðstætt dæmi er að finna á einni af fyrstu blað- síðum Heimsljóss: „Nú átti Magnína afmæli, og Ó. Kárason Ljósvíkíngur var fastráðinn að muna henni hvað hún hafði verið honum góð í vetur. Hann orti um hana. Hann tók sér húsgánga til fyr- irmyndar og reyndi að yrkja bæði kent og liðað. Meðal annars stóðu þessar línur í ljóðinu: Para sólar dýrust dís, dýrðarhóla skírust flís. Hann var svo upp með sér þegar hann hafði ort ljóðið, að honum fanst sér væri alt fært á himni og jörðu. Hann var sannfærður um að í ljóðinu leyndist einhver skáldleg merkíng þó það væri torskilið á yfirborðinu.“1 Hún bregst að vísu illa við og þetta er sár reynsla fyrir skáldið unga, en það spyrst út í sveitinni að hann sé skáld og ekki löngu síðar vinnur hann sér það til lífs að yrkja ástarljóð í orðastað annars bróð- urins, Nasa, til að ná ástum yngismeyjarinnar Jönu. Nasi greyið hafði þá reynt og reynt án ár- angurs og kvartar sáran: „En mikið helvíti get- ur verið erfitt, þó maður hafi fullkomna náttúru einsog ég, að koma saman vísu til kvenmanns- tuðru og láta standa í hljóðstafnum. Og það þó hún hafi sama sem boðist til að sofa hjá manni. Að láta standa í hljóðstafnum, maður, það er nefnilega sem er það erfiðasta í skáldskap. Og það þó maður byrji strax og maður kemur á fæt- ur og sé að reyna allan daginn og vaki fram- meftir öllum nóttum. Ég vildi heldur borga mín- um versta óvini tuttugu og fimm aura heldur en að vera að pæla í þessu sjálfur.“2 Í framhaldi af þessu yrkir Ólafur Kárason síðan fyrir hann ljóðið fræga sem hefst á orðunum: „Líneik veit ég lángt af öðrum bera...“ Strax frá upphafi mætir Jaromil mun meiri skilningi en Ljósvíkingurinn. Babblið í barninu er skráð og hafið upp til skýjanna og drengurinn uppgötvar að hann getur varist áreiti frá um- hverfinu með orðum. Og eins og tápmiklum dreng sæmir lætur hann ekki þar við sitja, held- ur gengur alla leið og býr til sinn eigin heim úr orðum: hann fer að yrkja. Hann er svo næmur á orð, orðin snerta hann svo djúpt að hann tekst allur á loft. Hann áttar sig smátt og smátt á táknkerfi orðanna og verður frá sér numinn þegar hann heyrir orð á borð við: útvalinn, ung- skáld, dauði, borgari, súrrealískur hlutur, og svo framvegis. Þessi orð eru honum ekki einungis uppspretta sköpunar og veita honum innblást- ur, heldur notar hann þau, rétt eins og við hin, til að ná sambandi við hinn svokallaða raunveru- leika, veröldina í kringum sig. Báðir gera þeir Ljósvíkingurinn og Jaromil sér grein fyrir töfrum orðanna, áhrifamætti tungu- málsins, bæði á þá sjálfa og aðra. Þeir uppgötva smátt og smátt að þeir búa yfir einhvers konar valdi, fólk í kringum þá gerir þeim ljóst, mis- hranalega þó, að þeir eru öðruvísi en annað fólk, jafnvel „ekki alminlegir“, varasamir en líka gagn- legir. Skýr dæmi um það er áðurefnd bónorðsvísa Ó. Kárasonar og slagorð sem Jaromil býr til á borða og spjöld í þágu byltingarinnar. Kundera einskorðar sig ekki einungis við per- sónu Jaromils, heldu vísar hann sífellt til meira og minna þekktra skálda frá nítjándu öld. Jar- omil er „framlenging“ á Victor Hugo, Rimbaud, Keats og Lermontov. Hann er skopstæling á þeim, en jafnframt hugleiðing um endalok evr- ópskrar ljóðlistar. Raunar vísar Laxness á svip- aðan hátt í hefðina, Ljósvíkingurinn hefur and- stæðurnar Jónas og Breiðfjörð undir, auk margra annarra. Og báðir hika þeir ekki við að skjóta hugleiðingum inn í meginfrásögnina, samanber þessar setningar úr Lífið er annars staðar: „Aðeins ekta ljóðskáld getur orðað þá gríðarlegu löngun að vera ekki ljóðskáld, þá löngun að yfirgefa speglasalinn þar sem þögnin ríkir ein.“ Og annars staðar segir: „Konur hafa ævinlega ráðið lögum og lofum í þeim húsum þar sem ljóðskáld hafa litið dagsins ljós.“ Er ljóðlistin kvenlæg eða karllæg? Ljóðlistin er kvenleg hjá Kundera. Móðir Jaromils er í senn akkeri hans og fjötur. Hann getur unað sér vel undir verndarvæng hennar, en ef drengurinn sýnir einhverja sjálfstæðistil- burði breytist verndarvængurinn snarlega í fjalakött. Framan af er mamman þó nokkuð klassísk mamma og fyrstu ljóðin sem hann yrkir eru hálfgerð saknaðarljóð til þess sæla tíma þegar hann var enn í móðurkviði: „Hann lætur ljóðin snúast umhverfis sig eins og pláneturnar umhverfis sólina; hann verður miðja dálítils al- heims þar sem ekkert kemur á óvart, þar sem hann er sæll og glaður eins og barn í móður- kviði, því hér hefur hann allt eins og hann vill hafa það, hér passar allt við sál hans.“ Innan þessa heims getur hann gert það sem hann lyst- ir. Og ef eitthvað angrar hann leiðréttir hann það bara: býr til sinn eigin raunveruleika. Slíkur er töframáttur ljóðlistarinnar. Eða eins og segir á einum stað í sögunni: „Ljóðlistin er svæði þar sem allar fullyrðingar eru sannar... Ljóðskáldið þarf ekki að færa sönnur á neitt, sönnunin bygg- ist á því einu að tilfinningin sé sterk.“ Það eru hins vegar karlmenn sem koma Ólafi Kárasyni, niðursetningnum, á skáldskapar- bragðið, þessum vesalingi sem móðirin, „mikil persóna í Aðalfirði“, kemur í fóstur. Faðir hans sendir honum bækur, gamla skáldið opnar augu hans fyrir rímum, Pétur Þríhross, Örn Úlfar og fleiri ræða skáldskap við hann. Hins vegar er at- hyglsvert að kona leiðir hann í í undraheima prósans, lausamálsins, þegar heimasætan Magnína les Felsenborgarsögurnar fyrir hann á bænum Fæti undir Fótarfæti. Jaromil lítur svo á að ljóðið sé spegill sem hann skoðar sjálfan sig í til að upphefja sjálfan sig. Hann elskar fyrst og fremst ástina, en ekki aðrar manneskjur, elskar það að elska, ekki ólíkt Emmu Bovary í skáldsögu Flauberts. Því er hins vegar öfugt farið með Ólaf Kárason Ljósvíking, enda hefur hann gjarna verið túlk- aður sem Kristsgervingur eins og kunnugt er. Í Heimsljósi er ljóðlistin leið skáldsins til að hefja sig upp úr heldur nöturlegu og andlausu umhverfi, skáldskapurinn er endurlausnari alls og allra eins og þar stendur. Ólafur Kárason er niðursetningur og talinn auðnuleysingi við upp- haf sögunnar en hann hefur sigur að lokum, hverfur inn í jökulinn, tákn hinnar eilífu fegurðar. Heimsljós er þannig á vissan hátt þroskasaga skálds og sver sig í ætt við Bildungsrómanana. Lífið er annars staðar er hins vegar alls ekki þroskasaga, því skáldið Jaromil nær engum þroska, ekki frekar en Arthur Rimbaud, sem er orðinn nokkurs konar táknmynd hins eilífa ung- skálds. Líkt og Rimbaud deyr Jaromil ungur og óreyndur, ljóðrænan er þar orðin að pólítískri og hættulegri tálsýn: skáldið er nytsamur sak- leysingi sem er settur í að semja pólítísk slagorð til að hrópa í mótmælagöngum, dekurrófa sem sér sér leik á borði í byltingunni og gengur til liðs við hana í ljóðrænni sæluvímu. Þeir Jaromil og Ljósvíkingurinn höfðu báðir til að bera skáldagáfu og sakleysi. Annar þeirra náði að hefja sig upp úr meðalmennskunni, verða ljós heimsins. Hinn varð fórnarlamb eigin ljóðrænu sjálfsblekkingar og lenti undir valtara mannkynssögunnar. Með hæfilegri hugarleik- fimi má því segja að Jaromil í Lífið er annars staðar sé „sjálfstætt“ framhald af Ljósvíkingn- um í Heimsljósi, því þær endurspegla ákveðna þróun ljóðlistarinnar frá miðju og út á jaðar bókmenntalífsins í Evrópu. 1. Halldór Laxness: Heimsljós, bls. 18. 2. Ibid. bls. 65 LJÓSVÍKING- URINN OG JAROMIL Ljóðskáldið hjá Halldóri Laxness og Milan Kundera E F T I R F R I Ð R I K R A F N S S O N Milan Kundera Halldór Laxness Báðir gera þeir Ljósvíking- urinn og Jaromil sér grein fyrir töfrum orðanna, áhrifa- mætti tungu- málsins, bæði á þá sjálfa og aðra. Þeir upp- götva smátt og smátt að þeir búa yfir einhvers konar valdi.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.