Lesbók Morgunblaðsins - 08.06.2002, Qupperneq 13
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 8. JÚNÍ 2002 13
KLÁM, skyndibitar og kvik-
myndir eru meðal viðfangsefna
þeirra fjögurra listamanna sem
tilnefndir eru til Turner-
verðlaunanna í ár. Verðlaunin
nema um 2,6 milljónum króna
og eru þau hæstu sem veitt eru
innan
breska lista-
heimsins.
Þau þykja
jafnan
nokkuð um-
deild, en
meðal verka
Martin
Creed, sem
vann Turner-verðlaunin á síð-
asta ári, má nefna tómt gallerí
þar sem kveikt var og slökkt á
ljósum til skiptis.
Að þessu sinni eru það lista-
mennirnir Fiona Banner, Liam
Gillick, Keith Tyson og Cather-
ine Yass sem hafa verið tilnefnd
og þykja verk þeirra ná yfir
mjög breitt svið.
Banner skapar m.a. þrívíðar
innsetningar, en er hvað þekkt-
ust fyrir að skrá á stóra striga
túlkun sína á því sem hún sér í
kvikmyndum. Á einni sýningu
bauð hún þannig sýning-
argestum upp skrásetningu sína
á klámkvikmynd. Verk Gillicks,
sem er yngstur listamannanna,
hafa hins vegar mikið verið unn-
in sem innsetningar úr plex-
igleri, áli og við og vill hann þar
með vekja upp spurningar um
hið manngerða umhverfi okkar.
Tyson er þá hvað þekktastur
fyrir vélskúlptúra sína sem m.a.
hafa byggt á skyndibitafæði og
Yass fyrir líflegar og skærlit-
aðar ljósmyndir.
Turner-verðlaunin eru, líkt
og áður sagði, nokkuð umdeild
og hafa m.a. verið gagnrýnd
fyrir að sniðganga „hefð-
bundna“ listsköpun. Að mati
Stephen Deuchar, framkvæmd-
arstjóra Tate er það þó ekki
hlutverk verðlaunanna að sýna
þversnið nútímalista í heild
sinni. „Turner-verðlaunin […]
draga athygli manna að fram-
úrstefnulegri list,“ segir Deuch-
ar.
Ævintýraleg
list í Óðinsvéum
UNNIÐ er að því að koma skúlp-
túrum eftir 17 þekkta danska
listamenn fyrir í Óðinsvéum og í
nágrenni. Sýningin, sem er að
öllu leyti staðsett utandyra,
verður formlega opnuð síðar í
mánuðinum. En verkunum er
ýmist dreift um Ævintýragarð-
inn í miðborg Óðinsvéa eða um
íbúðarhverfið Vollemose sem er
í úthverfi borgarinnar.
Sumarskúlptúrsýningar á
borð við þessa hafa jafnan verið
haldnar í borginni þriðja eða
fjórða hvert ár og þykir staðall
þeirra verka sem þar eru sýnd
að öllu jöfnu mjög hár.
Í ár er listræn stjórnun sýn-
ingarinnar í höndum mynd-
höggvarans Elisabeth Toubro
og hefur hún valið verk lista-
manna sem bæði vinna í hefð-
bundna miðla sem og með miðla
á borð við ljósmyndir, mynd-
bandsverk og innsetningar. En
meðal þeirra sem verk eiga á
sýningunni má nefna Torben
Ebbesen, Thomas Bang, Kristen
Ortwed og Finn Reinbothe sem
unnið hafa stök verk fyrir sýn-
inguna. Á meðan að yngri lista-
menn á borð við þá Cai Ulrich
von Platen og Jørgen Carlo Lar-
sen vinna hins vegar tveir og
tveir saman.
Klám og
skyndibitar
vekja athygli
Turner-dómara
Eitt verka
Fionu Banner.
ERLENT
Ý
MISLEGT spennandi má sjá í söl-
um Kjarvalsstaða frá og með
deginum í dag, þegar sumarsýn-
ing Kjarvalsstaða er hafin. Á
sýningunni gefur að líta verk
tæplega fimmtíu listamanna og
eru þau dagsett allt frá árinu
1927 til síðasta árs. Þetta rúm-
lega sjötíu ára tímabil býður að sjálfsögðu upp á
mikla breidd í framsetningu og túlkun á viðfangs-
efnum og unnt að sjá svipaðar hugmyndir settar
fram með ólíkum hætti. Hinn sameiginlegi þráður
í verkunum á sumarsýningunni að þessu sinni er
maður og borg, upplifun listamannsins á borg-
arlandslaginu, götum, húsum og borgarlífinu,
sem og sambýlinu við annað fólk, samkennd, ein-
manaleika, hópkennd og einstaklingshyggju.
Klisjan um París
Hver listamaður á sýningunni nálgast þemað á
sinn hátt, en verkin bera einnig merki þess tíð-
aranda sem þau eru sprottin úr. Þannig er til
dæmis athyglisvert að bera saman elsta verkið á
sýningunni, hina þekktu styttu af Nótt í París eft-
ir Ásmund Sveinsson frá árinu 1927, og eitt af
þeim yngstu, Ljóskur í París, eftir Bjargeyju
Ólafsdóttur, og sjá hin ólíku tök á því náskylda
viðfangsefni sem endurspeglast í titlinum. „Í
verkinu mínu er ég einmitt að taka á þessari
gömlu rómantík sem er til staðar í kring um París
almennt, um myndlistamenn í París og svo fram-
vegis,“ segir Bjargey en verkið var einmitt unnið
þar á sínum tíma. „Ég dvaldi í Kjarvalsstofu með-
an á gerð verksins stóð, gagngert til þess að upp-
lifa klisjuna enn frekar. París er frábær og ég er
komin í samstarf við galleríið Claude-Samuel þar
í borg, þannig að það er langt frá því að ég sé búin
með Parísarklisjupakkann.“
Verk Bjargeyjar er skyggnumyndasýning með
tónlistarundirleik og fjallar um tvær íslenskar
stelpur og drukkin samskipti þeirra við franskan
mann. Hún segir að verkið sé í takt við þau verk
sem hún hefur unnið að undanförnu. „Verkin mín
snerta oft á einhverjum sudda; ofbeldi, drykkju,
afbrýðisemi og annarri óáran. Einnig er um leið
alltaf fantasía, kaldhæðni og glamúr ríkjandi í
verkunum mínum,“ segir Bjargey, en til dæmis
fjallar verk sem hún hefur gert um tannlækni sem
flýgur og sænska vampýru.
„Ljóskur í París fjallar um norrænt fyllerí.
Klisjan um norrænu konuna, sem sé alltaf full og
uppi í rúmi hjá útlendingum, er tekin fyrir. Svo
gerist kannski ekkert milli þeirra, vegna þess að
hún er svo full. Þessi klisja er til dæmis eitt af aðal
sölutrixum Flugleiða til þess að draga hingað til
lands útlenska karla,“ segir listakonan, sem seg-
ist ekki komast að neinni sérstakri niðurstöðu í
verkinu. „Fólk verður bara að draga sínar eigin
ályktanir. Ég kem ekki með neinar lausnir.“
Verkið er fyrsta skyggnumyndasýning Bjarg-
eyjar, en síðan hefur hún gert aðra slíka fyrir Nú-
tímalistasafnið í Stokkhólmi. Ljóskur í París var
keypt af Listasafni Reykjavíkur í vor, en Bjargey
gerði verkið árið 1999 fyrir sýningu í galleri-
@hlemmur.is. Tónlistina undir myndirnar gerði
Kristján Eldjárn gítarleikari. „Ég bað hann að
gera tónlist fyrir verkið til að skapa frekari
stemmningu. Það má segja að hún sé frekað vír-
uð,“ segir Bjargey. „Hún er gerð á rafmagnsgítar
og á svolítið skemmtilegan hátt. Það eru tveir
diskar sem eru spilaðir, annar með laglínunni og
hinn með bassanum. Svo ganga diskarnir saman,
þannig að tónlistin virkar eins og tvö tannhjól. Út-
koman getur þessvegna verið allavega, og tónlist-
in undirstrikar þannig vandræðaganginn í þess-
um stelpum á myndunum, sem verkið fjallar um.“
Börn á þríhjólum
Verk Þórodds Bjarnasonar á sumarsýningunni
ber heitið Takið börnin ykkar með og er innsetn-
ing með nokkrum sterklituðum þríhjólum. Ætl-
unin er að börn sem sækja sýninguna geti hjólað á
þeim um safnið. Verkið er eitt af nýjustu aðkaup-
um Listasafns Reykjavíkur, en það var keypt í
vor og strax notað í sýninguna. Aðspurður um
sínar pælingar varðandi tengsl verksins við þema
sýningarinnar, segir Þóroddur að fyrst og fremst
sé þetta sýn sem gaman væri að sjá í borg. „Meg-
inmarkmiðið er að þetta sé fallegt að sjá. Þegar
ég fékk hugmyndina að verkinu fyrir mörgum ár-
um snerist hún um þessa sýn að sjá hóp af börn-
um hjóla á opnu svæði. Nú hjóla þau um safnið og
er frjálst að fara hvert sem þau vilja á hjólunum
innan þess. Fólk getur kannski séð sjálft sig í
börnunum á ferð um leyndardóma safnsins,“ seg-
ir Þóroddur og bætir við að verkið hafi tekist vel
þegar það var sett upp í Osló árið 1998. „Ég vona
að hérna verði þau líka óhrædd við að taka þátt.
Þetta er auðvitað líka ástæða fyrir þau að koma á
safnið. Þau geta þá hjólað á meðan foreldrarnir
njóta annarar listar.“
Þóroddur segir að verkið sé í anda þeirra við-
fangsefna sem hann sé að fást við um þessar
mundir, til dæmis um hópa og sameiginleg áhuga-
mál. „Þríhjólahópurinn er alveg eins og mótor-
hjólaklúbbur, ef maður yfirfærir þetta á full-
orðna,“ segir Þóroddur og hlær. „Þeir sem eru í
þannig hópum hittast gjarnan í þeim eina tilgangi
að hjóla saman um götur borgarinnar eða vegi
landsins. Í verkinu mínu er sama stemmningin á
ferðinni, nema bara hjá börnum.“ Börn hafa hing-
að til ekki verið sérstakt viðfangsefni í verkum
Þórodds. „Maður hrífst bara af forminu á þríhjól-
unum og litunum,“ segir hann. „Svo reyni ég yf-
irleitt að hafa verkin mín opin og flæðandi þannig
að þau bjóði fólk velkomin.“
MAÐUR OG BORG,
PARÍS OG ÞRÍHJÓL
Morgunblaðið/Arnaldur
Þríhjól Þórodds Bjarnasonar í verkinu Takið börnin ykkar með, sem börn geta notað að vild.
Bjargey Ólafsdóttir við kassann þar sem skyggnumyndasýning hennar fer fram.
Sumarsýning Kjarvalsstaða var opnuð í gærkvöldi og kennir þar margra grasa.
INGA MARÍA LEIFSDÓTTIR tók púlsinn á sýningunni og ræddi við tvo unga listamenn
sem eiga verk á sýningunni, þau Þórodd Bjarnason og Bjargeyju Ólafsdóttur.
Nótt í París eftir Ásmund Sveinsson er meðal
verkanna á sýningu Kjarvalsstaða.
ingamaria@mbl.is