Lesbók Morgunblaðsins - 24.08.2002, Side 15

Lesbók Morgunblaðsins - 24.08.2002, Side 15
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 24. ÁGÚST 2002 15 HRÓÐUR sýningar Leikfélags Kópa-vogs á nokkrum af ævintýrumGrimms-bræðra í leikstjórn ÁgústuSkúladóttur fer vaxandi. Sýningin var valin athyglisverðasta íslenska áhugaleik- félagssýning leikársins 2001–2 og var þar af leiðandi sýnd í Þjóðleikhúsinu síðasta vor. Hópurinn fór fyrir Íslands hönd á alþjóðlega leiklistarhátíð í Västerås og miðað við viðtök- urnar þar kæmi ekki á óvart ef fleiri leikferðir væru á döfinni. Litháar, Hvítrússar og Rússar sýndu m.a. áhuga á því að bjóða Grimms-hópn- um heim. Arosia-leiklistarhátíðin í Västerås, sem stóð dagana 1.–7. ágúst, var önnur alþjóðlega leik- listarhátíð Bandalags áhugaleikfélaga í Norð- ur-Evrópu, NEATA, sem Norðurlöndin og Eystrasaltslöndin þrjú eiga aðild að. Þá var leikfélögum frá Rússlandi, Hvíta-Rússlandi og Makedóníu boðið að sýna á hátíðinni. Að þessu sinni voru fimmtán leiksýningar frá tólf lönd- um í boði og voru umræður um hverja sýningu að henni lokinni. Leikhóparnir fluttu leikritin á sínu eigin tungumáli og verður að viðurkennast að það gat stundum verið erfitt að halda fullri einbeitingu þegar maður þekkti ekki leikritið. Þetta gaf þó áhorfendum tækifæri til að taka betur eftir öllu hinu sjónræna sem fram fór á sviðinu því textinn truflaði þá ekki. Sýningarn- ar voru mjög ólíkar, allt frá því að vera hálf- gerður sirkus í að vera hádramatísk sígild leik- rit. Áhorfendur risu úr sætum Framlag Íslendinga til hátíðarinnar var mjög vel fallið til alþjóðlegrar leiklistarhátíðar. Sýningin er mjög sjónræn og tungumálið skipt- ir ekki öllu máli. Ágústa Skúladóttir leikstjóri vann sýninguna út frá spuna upp úr ævintýrum Grimms-bræðra, um Hans og Grétu, herra Kuskan, hérann og broddgöltinn, gullgæsina, spunakerlingarnar og kátan kunningja. Síðast- nefnda ævintýrinu var sleppt í Västerås þar sem hópurinn þurfti að stytta sýninguna fyrir hátíðina. Í uppklappinu í lok sýningarinnar stóðu allir í leikhúsinu upp og sögðu margir, þar á meðal framkvæmdastjóri hátíðarinnar, Billy Nilsson, og Bobo Lundén, annar gagn- rýnandi hennar, að sýningin hefði að þeirra mati verið besta „leikhús“ hátíðarinnar. Rússneski hópurinn bauð upp á frábæra sýn- ingu þar sem þeir léku sér með leikhúsformið. Sýning var hálfgerð sirkussýning, þar sem trúðaleikur og spuni var notaður jöfnum hönd- um og útkoman var hreint út sagt frábær. Hóp- urinn kallar sig Studia Teatra Mannequin og er frá iðnaðarborginni Chelyabinsk, um 2000 kíló- metra austan við Moskvu. Gleymdi að anda af hrifningu Sýninguna kölluðu Rússarnir „Klinika“ og var hún samansett úr nokkrum atriðum sem öll gerðust á geðveikrahæli. Það segir kannski nokkuð um snilli þeirra að sýningin var yfirleitt um 1 klukkutími og 20 mínútur í Rússlandi en viðtökur áhorfenda í Västerås Teater ætluðu allt um koll að keyra og því ákváðu Rússarnir að lengja hana og alls var sýningin tveir tímar – og aldrei kom dauður punktur. Leikararnir ótrúlega færir í því að bregða á leik með áhorf- endum. Í umræðunum um sýninguna sagðist einn áhorfendanna hafa gleymt að anda, þvílík var hrifningin, og kæmi það ekki á óvart ef það ætti við um fleiri áhorfendur. Rússarnir sögðu að sýningin hefði verið um það bil 50% spuni og 50% æfð atriði en hópurinn hittist á hverju kvöldi til æfinga. Væri það óskandi að einhver sæi sér fært að bjóða þessum hópi hingað til lands svo að sem flestir fái að berja þessa ein- stöku listamenn augum. Allar þjáningar Romafólksins á einum klukkutíma Roma, makedónískum leikhópi sígauna, var boðið sérstaklega á hátíðina sem fulltrúum CEC, Bandalags áhugaleikfélaga í M-Evrópu. Höfðu margir hlakkað til að sjá leiksýningu sí- gaunanna en reyndist hún mikil vonbrigði. Var hún sögð leikgerð á skáldsögu Günters Grass, „Hundejahre“ eða Hundaárin, en fór lítið fyrir söguþræði enda kom á daginn að leikstjórinn sótti einungis innblástur í bók Nóbelskáldsins um lífið í fangabúðum nasista í síðari heims- styrjöld. Í leikskrá Makedónanna átti sýningin að sýna „allar þjáningar Romafólksins“ og strax og í salinn var komið upphófust mikil harma- kvein. Alla sýninguna var linnulaust kveinað, vælt og grátið af miklum ekka og var útkoman sú að sýningin var langt frá því að snerta strengi í hjörtum áhorfenda. Sannaðist þarna að ef leikararnir gráta gera áhorfendur það ekki. Litháar sýndu hátíðargestum Vinnukon- ur hins franska Jeans Genets í stílfærðri útgáfu og Lettar tefldu fram Þremur konum stórum eftir Edward Albee. Sagði Bobo Lundén gagn- rýnandi að leikur lettnesku kvennanna þriggja hefði sómt sér vel í konunglega leikhúsinu í Stokkhólmi. Eistar sýndu velheppnaða leik- gerð unna upp úr þjóðsögunni um „Rehepapp“ þar sem að baka böku úr saur og að skjóta oblátu úr byssu á róðukross voru sögð óbrigðul ráð til að vinna ástir þeirra sem maður elskar. Sænskir götulistamenn Gestgjafarnir voru með þrjár sýningar, tvær á sænsku og eina á finnsku. „By Accident“ frá Cirkity Gravikus frá Gautaborg þótti tvímæla- laust ein skemmtilegasta sýning hátíðarinnar. Hópurinn samanstendur af götulistamönnum sem hafa fjölbreytta sirkustækni á valdi sínu. Sirkusatriðin voru notuð á frumlegan hátt og tvinnuð saman við lauslegan söguþráð. Almennt má segja að austur-evrópsku leik- félögin hafi verið með eftirminnilegustu sýn- ingarnar á hátíðinni. Augljóst er að áhugaleik- húshreyfingin stendur mun sterkar að vígi í Eystrasaltslöndunum og Rússlandi en á flest- um Norðurlandanna. Það verður að segjast eins og er að ákveðnar sýningar frá Norður- löndunum á hátíðinni áttu sáralítið erindi á al- þjóðlega leiklistarhátíð, sérstaklega norsku og færeysku sýningarnar og sýning frá sænsku- mælandi Finnum. Þykir íslenskt áhugaleikhús þó í hæsta gæðaflokki. Alþjóðleg leiklistarhátíð í Vesterås Leikfélag Kópavogs fékk frábærar móttökur á alþjóðlegri leiklist- arhátíð, sem haldin var í Västerås í Svíþjóð í byrj- un ágúst, við sýningu sinni, Grimms. NÍNA BJÖRK JÓNSDÓTTIR fylgdi hópnum til Svíþjóðar og sá m.a. rússneska snillinga leika listir sínar. Leikfélag Kópavogs fékk góðar viðtökur í Vesterås. Morgunblaðið/Nína Leikhópur frá Rússlandi vakti mikla athygli. nina@mbl.is Morgunblaðið/Nína Grimms-ævintýri slógu í gegn MYNDLIST Árnastofnun, Árnagarði: Handrita- sýning opin mán. til lau. kl. 11–16. Til 25.8. Gallerí Fold, Rauðarárstíg: Ljós- myndir Jóns Kaldals. Til 7.9. Gallerí List, Skipholti 50: Samsýn- ing 40 listamanna.Til 28.8. Gallerí Skuggi: Berglind Björnsdótt- ir og Holly Hughes. Til 8.9. Gerðarsafn: Gerður Helgadóttir, Jó- hannes Jóhannesson og Valgerður Hafstað. Til 8.9. Hafnarborg: Jón Thor Gíslason. Til 9.9. Hallgrímskirkja: Húbert Nói. Til 29.8. Hús málaranna, Eiðistorgi: Einar Hákonarson. Til 1.9. i8, Klapparstíg 33: Helgi Þorgils Friðjónsson/Kristinn G. Harðarson. Til 12. okt. Undir stiganum: Arnfinn- ur Amazeen og Bryndís Erla Hjálm- arsdóttir. Til 6.9. Listasafn Akureyrar: Nútímalist frá arabaheiminum. Til 8.9. Listasafn ASÍ:Sigrún Ó. Einarsdóttir og Søren S. Larsen glerverk en Ólöf Einarsdóttir textílverk. Til 25.8. Listasafn Borgarness: Karl Kristján. Til 11.9. Listasafn Einars Jónssonar: Opið alla daga kl. 14–18, nema mánudaga. Listasafn Reykjavíkur -Ásmundar- safn: Listin meðal fólksins. Til 31. des. Listasafn Reykjavíkur – Hafnarhús: MHR-30 – afmælissýning Myndhöggvarafélags Íslands. Til 6.10. Listasafn Sigurjóns Ólafssonar: Hin hreinu form. Til 1.9. Listhús Ófeigs, Skólavörðustíg: Verk Jóhannesar Jóhannessonar. Til 28.8. Ljósmyndasafn Reykjavíkur, Gróf- arhúsi: Blaðaljósmyndir. Til 1.9. Norræna húsið: Götulistaverk Ka- jols. Til 22.9. Norska húsið, Stykkishólmi: Dýr- finna Torfadóttir skartgripahönnuð- ur. Til 1.9. Safnahús Borgarfjarðar: Skógasýn- ing, myndlist og handverk. Til 1.9. Safnasafnið, Svalbarðsströnd: Átta sýningar á alþýðulist. Til 15.9. Sjóminjasafn Íslands, Hafnarfirði: Rebekka Gunnarsdóttir. Til 8.9. Skálholtsskóli: Benedikt Gunnars- son. Til 1. okt. Þjóðarbókhlaða: Yfirlitssýning á verkum Halldórs Laxness. Til 31. des. Þjóðmenningarhúsið við Hverfis- götu: Landafundir. Ljósmyndir úr Fox-leiðangrinum. Vestur-íslenskar bókmenntir. Skákeinvígi aldarinnar. Upplýsingamiðstöð myndlistar: www.umm.is undir Fréttir. TÓNLIST Laugardagur Hallgrímskirkja: Christopher Herr- ick. Kl. 12. Sunnudagur Fríkirkjan í Reykjavík: Anna Sigríð- ur Helgadóttir mezzosópran, Anna Kjartansdóttir píanó og Rögnvaldur Valbergsson orgel. Kl. 20.30. Hallgrímskirkja: Christopher Herr- ick. Kl. 20. Norræna húsið: Nikolaj Wolf, bassi, Karoline Skriver, og Grímur Helga- son. Kl. 17. Víðistaðakirkja, Hafnarfirði: Þýsk blásarasveit Haus Overbach Orch- ester. Kl. 15. Þriðjudagur Listasafn Sigurjóns Ólafssonar: Hrólfur Sæmundsson, Steinunn Birna Ragnarsdóttir. Kl. 20.30. LEIKLIST Hafnarfjarðarleikhúsið: Sellófon, fim., fös. Tjarnarbíó: Dansleikhús með ekka: Eva³ Kaffileikhúsið: Ferðaleikhúsið Light Nights. Flutt á ensku, lau. Upplýsingar um listviðburði sem óskað er eftir að birtar verði í þess- um dálki verða að hafa borist bréf- lega eða í tölvupósti fyrir kl. 16 á miðvikudögum merktar: Morgun- blaðið, menning/listir, Kringlunni 1, 103 Rvík. Myndsendir: 569 1222. Netfang: menning@mbl.is. MENNING LISTIR N Æ S T U V I K U

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.