Pressan - 23.09.1988, Blaðsíða 21
Föstudagur 23. september 1988
21
DRA UMURINN AÐ SPILA
IHALLGRÍMSKIRKJU!
Hljómsveitin Ham er ung að árum, meira að segja svo
ung að aldur hennar verður ekki talinn í árum. En þó
hafa þessir heiðursmenn náð að gefa út fimm laga plötu
á starfsferli sínum. Þetta er platan Hold og er skemmti-
legur gripur, sómir sér vel innan um kristalinn og postu-
línið. Tónlistin er einnig mjög Ijúf, á sinn hátt að vísu.
Rokkpressan átti því láni að
fagna um daginn að hitta tvö
„sjentilmenni“ úr Ham, þá Óttar
Proppé söngvara og Sigurjón
Kjartansson gítarleikara, á heimili
þess fyrrnefnda. Rótsterku kaffi,
svo sterku að það hefði nægt til að
drepa fíl, var hellt í bolla, engin
mjólk að sjálfsögðu, enginn sykur,
Ham vill hafa hlutina hráa. Á
plötuspilaranum snerist drullug
smáskífa með Boney M.
— Uppruni Ham?
„í rauninni erum við ennþá að
baksa við upprunann, erum að
okkar dómi ennþá að renna upp.
En við byrjuðum að spila saman í
febrúar. Þannig að við erum búnir
að vera starfandi í átta mánuði.“
— Höfðuð þið eitthvað verið í
öðrum hljómsveitum áður?
„Nei, það var voðalega lítið. Við
vorum aðallega í kvikmyndagerð,
gerðum súper 8-kvikmyndir, og eft-
ir okkur liggur m.a. fyrsta íslenska
ofbeldiskvikmyndin, sem samt sem
áður var aldrei gerð. Þannig að við
hættum bara í kvikmyndum og
ákváðum að stofna hljómsveit."
— Nafnið Ham, er þetta
skammstöfun?
„Ham er bara kjaftæði, okkur
fannst þetta flott nafn og það geng-
ur bæði á ensku og dönsku, þýðir
skinka á ensku en hann á dönsku.
Við erum líka svo spenntir fyrir
bæði enska og ekki síst danska
_____________________________►
Bandaríski kjötrokkarinn
Meatloaf og skoska húsfrúin
Bonnie Tyler voru ekki meö
vinsælasta fólki á Reading-
tónlistarhátiðinni sem haldin
var á Englandi fyrr i mánuðin-
um. Var mikið um ólæti meðal
áhorfenda og grýttu þeir alls-
konar drasli að þeim skötu-
hjúum, sem þegar vel er að
gáð eru bæði íslandsvinir
(guð, ég elsk’idda, pælið í’ðí að
vera vinir heils lands)! Meat-
loaf hætti að spila þegar 50
mínútur voru liðnar af hans
dagskrá og þurfti að fara í
athugun á sjúkrahúsi eftir að
hafa sloppið naumlega úr
flöskuregninu. Bonnie barðist
hins vegar af mikilli hörku í
gegnum sitt prógramm, enda
skosk í báðar ef ekki allar
ættir. Hörkukelling og væri fín
í stjórnleysið hér.
Fyrrum Velvet Underground-
meðlimirnir John Cale, Mo
Tucker og Lou Reed hafa í
hyggju að hefja samstarf að
nýju. Cale og Tucker munu
báðir vera með Reed á plötu
sem hann er að taka upp um
þessar mundir. Velvet Under-
ground var ein af áhrifamestu
hljómsveitum rokksögunnar
og eru hljómsveitir eins og
Jesus and Marychain (gáfu út
Birthday með Sykurmolunum
um daginn) undir sterkum
áhrifum frá Velvet. Þýska söng-
konan Nico, sem lést úr heila-
blóðfalli fyrr í sumar, starfaði
talsvert meö VU og er platan
þeirra, Velvet Underground &
Nico, talin eitt af meistaraverk-
um rokksins.
GUNNAR H.
ÁRSÆLSSON
Það verður mikið um dýrðir i
Lækjartungli að kveldi I. október
nk., en þá ntun bandaríska hljóm-
sveitin Pere Ubu leika og syngja
l'yrir landann. Sveitin var stofnuð i
Ohio-fylki i Bandaríkjunum árið
1975 og er skipuð þeim David
Thomas (söngur og lúðrablástur),
Allen Ravenstine (hljómborð, saxó-
fónn), Chris Cutler (slagverk), Jim
Jones (gítar), Seott Krauss (tromm-
ur) og Tony Maimone (bassi).
David Thomas ætti ekki að vera ís-
lendingum alveg ókunnur því hann
hefur komið hingað tvívegis og
haldið tónleika upp á eigin spýtur,
var hér síðast á ferðinni í haust sem
leið. Allt frá stofnun hefur hljóm-
sveitin Pere Ubu verið talin til
merkilegri rokksveita. Það er afar
erfitt að lýsa tónlistinni sem sveitin
spilar, en almennt er hún talin leika
framsækið rokk og eru þeir lelag-
arnir vægast sagt engin meðal-
menni í tónsmiðum. í vor kom út
breiðskífa Pere Ubu, nefnist hún
THE TENEMENT YEAR og er sú
fyrsta frá Ubu i sex ár, þar sem
hljómsveitin tók sér frí frá störfum
árið 1982 því hinir ýmsu meðlimir
vildu snúa sér að eigin hugðarefn-
um.
Með Pere Ubu á tónleikunum
verða tvær af öflugustu rokksveit-
um landsins i dag, Svarthvítur
draumur og Ham. Að vísu verða
þetta síðustu opinberu tónleikar
Draumsins (í bili vonandi!) en alls
ekki þcir síðustu með Ham sem nú
inniheldur Gunnar Hjálmarsson,
bassaleikara Svarthvíts draums.
Það er þvi ljóst að laugardagurinn
1. október verður góður dagur og
forsala er í Gramminu ásamt plötu-
búðinni á Laugavegi 20.
Allir í Tunglið!