Pressan - 15.12.1988, Page 20

Pressan - 15.12.1988, Page 20
20 Fimmtudagur 15. desember 1988 Vídeómyndavélar renna út í Bretlandi og Bandaríkjunum JÓIALEIKFANG FULLORÐNA FÓLKSINS Hélt einhver að fótanuddtækja- eða ljósálfaæði væri séríslenskt fyrirbæri á jólaföstunni? Ekki aldeilis. Úti í hinum stóra heimi eru menn óðir í einn hlut öðrum fremur um þessar mundir. TEXTI: ÁSGEIR TÓMASSON Hún er sögð dýr en samt ómetan- leg. Hún er jólagjöfin sem flestir virðast ætla að gefa sjálfum sér eða fjölskyldunni í Bretlandi og Banda- ríkjunum um þessi jól. Vídeó- myndavél er hluturinn, smærri og meðfærilegri en nokkru sinni fyrr. Og við íslendingar ætlum að taka dálítinn þátt í æðinu líka. Að sögn vídeómyndavélasala sem Pressan hefur rætt við hefur salan glæðst stórlega síðustu vikur. Enginn vill samt tala um að æði hafi gripið um sig. Vélarnar seljast ekki í nudd- tækjastíl. Enda eru þær nokkru dýrari en gengur og gerist um jóla- gjafir þorra fólks. Á GÓDU VERÐI Bandaríska fréttablaðið USA Today greindi frá því á forsíðu um daginn að nú þyrftu landsmenn að fara að setja upp sitt besta tann- kremsbros. Vídeómyndavélarnar bókstaflega rynnu út og búist væri við því að um tvær milljónir véla seldust á þessu ári. — Um leið var því spáð að þær yrðu komnar inn á 13,6 milljónir heimila vestra í árslok 1992. — Þetta jólaleikfang full- orðna fólksins kostar á bilinu eitt til tvö þúsund dollara. Eða sem nemur 46—91.000 krónum. í Bretlandi segir blaðið okkur að meðalverð vídeómyndavéla sé 999 sterlings- pund eða tæplega 85 þúsund krón- ur. Og nú kemur það undarlega. Vél- arnar eru á mjög sambærilegu verði hér á landi og í Bretlandi og Banda- ríkjunum. Skýringin er sú að á þeim er enginn tollur. Og ekkert vöru- gjald — ennþá að minnsta kosti. — Þar af leiðandi þarf enginn að leggja leið sína til annarra landa til að fá sér vídeómyndavél nema þá til að kaupa hana í fríhöfn. í fríhöfn- um er verðið vitaskuld eitthvað lægra en í venjulegum verslunum. Og til að mæta erlendu og ekki síður innlendu samkeppninni enn frekar segja okkur verslunarmenn að álagning á vídeóupptökuvélun- um sé nánast engin. SflLAN EYKST Verslunarmönnum sem Pressan ræddi við ber saman um að sala á vídeóupptökuvélum hafi verið við- unandi á árinu. Reyndar datt hún al veg niður er gengið var fellt síðast, en er nú að ná sér á strik að nýju. Nú koma gjarnan heilu fjölskyld- urnar og spá og spekúlera, bera saman verð, fylgihluti og mögu- leika þeirra véla sem á markaðinum eru. Vélarnar á miðjuverðinu, 77—80 þúsund krónur, virðast vera vinsæl- astar hjá þorra fólks. Fullkomnustu vélarnar seljast jú líka, en eins og einn sölumaðurinn orðaði það „langar marga Toyotueigendur í Benz. En Toyotan er alveg jafngóð' þegar maður getur ekki látið Benz- drauminn eftir sér“. Ul hvgrs kaupir fólk vídeó- myndatökuvélar? Jú, auðvitað til að taka á þær myndir. Og sam- kvæmt dagblaðinu USA Today, sem fyrr var vitnað til, virðist fólk aðallega taka myndir af fjölskyldu sinni. Heimilisfaðir einn sem vinn- ur langt frá fjölskyldunni fær til dæmis reglulega senda spólu að heiman þar sem konan og börnin senda kveðju sína í stað þess að hringja eða skrifa bréf. Átta millimetra kvikmyndatöku- vélar virðast til að mynda alveg vera að hverfa af markaðinum vegna handhægu vídeómyndavélanna. Spólurnar þarf ekki að senda í framköllun. Engin þörf er á að slökkva Ijósið þegar árangurinn er skoðaður. Vídeóvélinni er einfald- lega stungið í samband við sjón- varpstækið og síðan er ýtt á afspil- un. Vélin er nefnilega myndbands- tæki auk þess að vera upptökuvél. Auðvelt er að læra á vélarnar. Einhvern tíma var því spáð að árið 1985 yrði tölva komin á hvert heim- ili í velmegandi löndum hins vest- ræna heims. „Fólk átti samt alltaf í vandræðum með bannsettar tölv- urnar og gafst upp,“ segir banda- rískur blaðamaður, John Franz að nafni. „Simpansar ráða hins vegar við vídeómyndavélarnar.“ — Franz hefur að sjálfsögðu keypt sér vél. Til að mynda unga- dóttur sína og geta fylgst með vexti hennar og þroska. HVAÐA VÉL Hvaða vídeómyndavél á fólk svo að kaupa? Best er að beita sömu að- ferð og þegar Ijósmyndavél er valin. Velja þá sem fólk telur sig ráða best við. Sumar vélar taka 8 millimetra spólur. Aðrar notast við VHS-kerf- ið. Litlu VHS-spólurnar kallast VHS-C og má með svolitlum auka- búnaði stinga í venjulegt VHS- myndbandstæki. 8 millimetra spól- urnar, sem geta verið allt að 90 mín- útum að lengd, ganga hins vegar ekki i nein myndbandstæki nema náttúrlega vídeóupptökuvélar fyrir 8 mm kerfið. — VHS-C-spólurnar eru hálftíma langar. Nokkuð er misjafnt hversu mikið fylgir með er vídeóupptökuvél er keypt. Rétt er að spyrja sölumann- inn í þaula um það. Sumum tegund- um fylgir bæklingur á íslensku. Aðrir leiðbeina fólki áður en það fer með gripinn heim. Við fréttum meira að segja af fyrirtæki sem býð- ur viðskiptavinum sínum að koma og klippa upptökurnar sínar til í tækjum, sem til staðar eru í húsa- kynnum fyrirtækisins. Vídeómyndavél er dýrt leikfang, eins og komið var að í upphafi. Því gildir það að velja vel. Ekki endi- lega dýrustu vélina. Margar ódýrari gera fullt eins mikið gagn. Sé árang- urinn góður verður hann ómetan- legur þegar fram líða stundir. Ann- ars ekki. Sá svartklœddi með sorgmæddu röddina er látinn Roy Orbison á óútgefna hljómplötu Roy Orbison er fallinn frá. Gamli svartklæddi ballööurokk- arinn meö sorgmæddu röddina lést fyrir rúmri viku. Banameiniö var hjartaslag. Orbison var aö sönnu ekki meö hæst skrifuðu dægurtón- listarmönnum heimsins. En hann haföi sín áhrif og átti vinsælli lög en margur annar. Hver kannast til dæmis ekki vió Blue Bayou með Lindu Ron- stadt? Roy Orbison samdi þaö. Eða Crying meö Don McLean? Þaö var eftir Roy Orbison. Nú, eöa þá þrumurokkarann Pretty Woman meö Van Halen? Rétt til getið. Úr smiöju Orbisons. Reyndar dó hann ekki alveg jafngleymdurog hann leit oft út fyrir aö vera á meira en þrjátíu ára ferli sínum. Hann var einn fimmmenninganna í Travelling Wilburys sem sendu fyrir nokkr- um vikum frá sér plötu. Þar var hann í hópi meö George Harrison, Bob Dylan, Tom Petty og Jeff Lynne og sómdi sér bara vel, gamli maóurinn. Margur unglingurinn ætti aö kannast viö hann úr poppþáttum sjón- varpsins, þar sem hann syngur um aö hann hafi verið svo einmana. Gamall var Roy Orbison þó raunar ekki, — 52 ára er hann lést á sjúkrahúsi í Tennessee. Ferillinn hófst á sama staö og hjá Elvis Presley, í Sun-stúdió- inu hans Sams Phillips áriö 1956. Margir skjólstæðingar Phill- ips uröu þekktir rokkarar. Nægir þar aó nefna Jerry Lee Lewis, Carl Perkins og aó sjálfsögöu Presley. Þaö voru angurvær dægurlög Orbisons sem mesta hrifningu vöktu. Svo sem Only The Lonely, l’m Hurtin’, Crying, Dream Baby og Blue Bayou. Ekki má gleyma laginu sem fyrst vakti athygli á Roy Orbison. Claudette heitir þaö og varö fyrst þekkt meö The Everly Brothers. Vinsælast allra laganna úr söngbók Orbisons varð þó sennilega rokkarinn Pretty Woman, sem kom út áriö 1964. Líf þessa gamalreynda popp- ara var aldeilis ekki dans á rós- um. Hann missti konu sína i mótorhjólaslysi. Viö þaö dró hann sig úr sviðsljósunum og þegar eitt þriggja barna hans fórst í bruna tveimur árum seinnadró hann sig alveg í hlé í langan tíma. En vinir Orbisons komu til hjálpar. Með hjálp þeirra fór hann að láta til sín taka á ný. Fyrir nokkru var gerður sjón- varpsþátturinn Roy Orbison og vinir. Þar komu meðal annarra fram Bruce Springsteen, Elvis Costello og Jennifer Warnes. Springsteen þreyttist reyndar aldrei á aö segja hverjum sem heyra vildi aö Roy Orbison væri einn af sínum uppáhaldssöngv- urum. Fyrr á þessu ári hóf Orbison aö hljóðrita nýja sólóplötu undir stjórn Jeffs Lynne. Sú plata er enn ekki komin út. Þeir sem hafa hlustaö á hana segja aö gamli svarthæröi popparinn í svarta leöurjakkanum með dökku sólgleraugun eigi eftiraö slá í gegn aö nýju. En því miður of seint. Roy Orbison er allur.

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.