Pressan - 14.12.1989, Síða 31
pyt'l bf ',urjí,r.;'j1r»^
Fimmtudagur 14. des. 1989
31
sjónvarp
FIMMTUDAGUR
14. desember
Stöö 2 kl. 23.55
FLUGRAUNIR***
(No Highway in the Sky)
fíandurísk bíómvnd
Gerd 1951
Ijeikstjóri: Henry Koster
Adulhlutverk: jumes Stewurt.
Murlene Dietrich, Glynis Joltns.
Juck Huwkins
Mynd um vísindamann sem upp-
yötvar fyrirbæriö málmþreytu í
flugvélum. Hann þarf að sýna fram
á að uppgötvunin eigi við rök að
styðjast og reynsluflýgur vélinni en
það verður ekki hættulaus för. Jam-
es Stewart leikur vísindamanninn,
Marlene Dietrich leikur farþega í
fluginu, glæsilega konu með af-
brigðum, og Glynis Johns leikur ást-
konu Stewarts.
FÖSTUDAGUR
75. desember
Sjónvarpiö kl. 22.25
LEÓNA FELLUR í
FREISTNI***
(The Seduction of Miss Leona)
fíundarísk sjótwurpsmynd
Gerd I9S0
Leikstjóri: Joseplt Hardy
Adulhlutverk: Lynn Redt’ruve,
Anthony Zerbe, Conchutu Ferrell
Vel heppnuð mynd á rómantíska
sviðinu, fjallar um kennslukonu
nokkra sem er ákaflega hlédræg.
Hún fær til sín viðgerðarmann og
það veröur til aö hún lætur undan
freistingum sem hún áður hefur
ekki látið glepjast af.
Stöö 2 kl. 23.45
SÍÐASTA ORRUSTAN
(Dernier Combat)
Frönsk bíómynd
Leikstjóri: Luc fíesson
Adulhlutverk: Pierre Jolivet, Jeun
Bouise, Fritz Wepper, Jean Reno
Luc Besson ætti að vera íslending-
um að góðu kunnur. Nú er sýnd eftir
hann myndin Björninn í Regnbog-
anum og hann kom hingaö sem
gestur síðustu Kvikmyndahátíöar
þar sem þessi mynd var m.a. sýnd.
Lftir hann er líka myndin Subway
sem hefur gengiö hér í bíó af og til
í mörg ár við miklar vinsældir. Hér
segir af veröldinni eftir að allt er um
garö gengið, meginhluti jarðarinnar
er í eyði og menningin öll farin veg
allrar veraldar. Þær fáu mannverur
sem eftir eru geta ekki tjáð sig
vegna breytts andrúmslofts. Aðal-
persónurnar eru þrjár, gamall lækn-
ir, einhleypur maður sem hefur lok-
ast inni í skýjakljúfi og blóðþyrstur
sjálfskipaður leiðtogi eftirlifenda.
Þeir eiga sér allir sama markmiðið;
að finna konu á lífi, sem verður til að
leiöir þeirra liggja saman.
Stöö 2 kl. 01.15
MAÐUR KONA
0G BARN**,/2
(Man Woman and Child)
fíandarísk sjónvurpsmynd
Gerd 19S2
Leikstjóri: Dick Richurds
Adulhlutverk: Martin Sheen,
fílythe Dunner, Cruií> T. Nelson
Hér segir af háskólakennara sem fer
til Frakklands og heldur fyrirlestur.
Hann kynnist þar franskri konu og
getur við henni barn. Síðan skilur
leiðir þeirra; maðurinn fer aftur til
Bandaríkjanna og heldur upptekn-
um hætti með konu sinni og börn-
um sem koma til síðar. En tíu árum
síðar knýr fortíðin dyra þegar mað-
urinn fær þær fréttir að hin franska
ástkona hans sé látin og sonur hans
væntanlegur í heimsókn. Þetta
reynir verulega á fjölskylduböndin í
bandarísku fyrirmyndarfjölskyld-
unni, eiginkonan tekur þessum syni
mannsins fremur illa og dætur hans
verða óðar þegar þær skilja hvernig
í pottinn er búið. Þetta er hin þokka-
legasta mynd — aldrei þessu vant
tekst Kananum að hefja sig upp úr
ofurveldi tilfinninganna sem oftast
nær gerir slíkar myndir erfiðar á aö
horfa.
LAUGARDAGUR
16. desember
Stöð 2 kl. 20.45
HEIMURINN MEÐ
AUGUM GARPS****
(The World According to Garp)
fíundurísk biómynd
Gerd 19S2
Leikstjóri: George Roy Hill
Adalhlutverk: Robiri WiUiums,
Mury Beth Hurt, Glenn Close, John
Lithgow, Hume Cronyn
Kvikmynd vikunnar á Stöð 2. Ein af
betri bandarískum myndum níunda
áratugarins ef að likum lætur. Segir
af ungum manni og ferð hans um
refilstigu lífsins, sérstæðu sambandi
við ógifta móöur hans, leikin af
Glenn Glose sem þarna er í sínu
fyrsta stóra hlutverki á hvíta tjald-
inu. Þessi ungi maður vill gjarna
verða rithöfundur en móöir hans
slær honum við á því sviði, auðveld-
lega, og það veröur honum til mik-
illa leiðinda. Garp kvænist dóttur
glímuþjálfara síns, þau flytja upp i
sveit ásamt tveimur börnum og
Garp reynir að horfast í augu við
brostna drauma og gengna æsku.
Myndin er lauslega byggð á skáld-
sögu Johns Irving, leikstýrt af Ge-
orge Roy Hill sem m.a. gerði Sting.
Myndin ferðast á öruggan hátt í
gegnum þjóðfélagsskoðun, háös-
ádeilu, fáránleikahúmor, gleði og
sorg. Vel leikin mynd, vel gerð á ali-
an hátt. Góð mynd — hæsta einkunn.
Sjónvarpið kl. 21.50
KING K0NG*,/2
Bundurísk bíómynd
Gerd 1970
Leikstjóri: John Guillermin
Adalhlutverk: Jeff fíridges, Jessicu
lumge, Churles Grodin
Myndin státar af góðum leikurum,
Jeff Bridges til að mynda og Jessicu
Lange, sem reyndar er hér í sínu
fyrsta hlutverki á hvíta tjaldinu. Aö
öðru leyti er lítiö um myndina aö
segja, sagan af King Kong er allt
önnur en hér er sýnd, myndin gerir
ekkert úr þeim atriðum sem skipta
öllu máli en dregur fram fáránlega
smáatburði og atriði sem engu máli
skipta. Lægsta einkunn.
Stöö 2 kl. 23.45
SVEFNHERBERGIS-
GLUGGINN***
(The Bedroom Window)
Bandartsk bíómynd
Gerd 19S7
Leikstjóri: Curtis Hunson
Adulhlutverk: Steve Guttenberg,
Ehzubeth McGovern, Isabelle
Huppert
Segir af ungum manni sem heldur
viö konu yfirmanns síns. Eitt sinn er
þau hafa lokiö ástaleik sínum og
konan gengur að svefnherbergis-
glugganum til að horfa út veröur
hún vitni aö morði. Hún getur ekki
sagt lögreglunni frá vitneskju sinni
vegna þess að þá myndi hún ljóstra
upp um ástarsamband sitt viö unga
manninn. Þessi litla þúfa, sem þögn
þeirra er, veröur til þess að velta
þungu hlassi og mikil alvara færist
yfir myndina, allt logar í spennu og
dularfullum atburðum. Þetta er
nokkuð góð spennumynd, að vísu
er Maltin óvenju örlátur á stjörnurn-
ar en myndin stendur fyrir sínu,
þykir minna á vinnubrögö
Hitchcocks og þá myndina Rear
Window og þrátt fyrir að Gutten-
berg sé enginn James Stewart stend-
ur myndin ágætlega fyrir sínu.
SUNNUDAGUR
17. desember
Stöö 2 kl. 23.25
HVÍT JÓL**
(White Christmas)
fíandurísk bíómynd
Gerð 1954
Leikstjóri: Michuel Curtiz
Adalhlutverk: fíing Crosby Dunny
Kuye, Rosemury Clooney, Veru-
Ellen, Deun Jugger
Söngva- og dansamynd af gamla
skólanum með stjórstjörnum í aðal-
hlutverkum. Segir aí fjórum ung-
mennum sem fara til vetrardvalar-
staöar í Vermont í Bandaríkjunum.
Þegar þangað er komið kemur í Ijós
að eigandi staðarins er fyrrum yfir-
maður karlpeningsins úr hernum.
Það er auðvitað hið besta mál nema
hvaö blessaður maðurinn á ekki bót
fyrir rassinn á sér og er aö fara á
hausinn með þennan fina vetrar-
dvalarstað. Þá eru góð ráð dýr en
þar sem Bing og Danny Kaye eru
skemmtikraftar aö upplagi getur
þetta bara gengiö á einn veg. Tón-
listin er eftir Irving Berlin og þykir
góð, hinsvegar eru söguþráðurinn
og leikurinn í allra þynnsta lagi.
Tvær stjörnur, ei meir.
mms\
eftir Mike Atkinson
MHAA'lJ'ýýA
^ \ * /
11
.r3
V,
TTl
j;
GÓÞA RÖPP,..
11 i MMl U JL.I1
mr
jr
LJO's rÞFZlG&JA
QATbJA FJA^LÆ6.£>yilli|:ij:;l';'1 •
Éftl.,
“llijf
dagbókin
hennar
Oft finnst mér nú fullorðið fólk
leiðinlegt, en aldrei eins hrút-hund-
leiðinlegt og í desember. Mann lang-
ar mest til að flytja að heiman eða
skrá sig úr fjölskyldunni eða eitt-
hvað. . .
Pabbi er líklega skástur, því hann
hreinlega gufar upp svona þremur
vikum fyrir jól og birtist ekkert aftur
fyrr en eftir hádegi á aðfangadag.
Það er svo rosalega mikið félagslíf
hjá honum á þessu tímabili. Þetta
byrjar með alls konar jólaglöggum í
vinnunni þar sem hver einasta deild
heldur sinn eigin gleðskap og býður
náttúrulega öllum hinum deildun-
um aö koma líka. Síðan enda ósköp-
in á Þorláksmessu með því að ráðu-
neytiö býður öllum í allsherjar jóla-
boð og þá er þetta sama fólk búiö að
vera saman á fylleríi í meira en hálf-
an mánuð.
Við sæjum samt pabba einstaka
sinnum í desember, ef hann þyrfti
bara aö drekka soðið rauðvín meö
vinnufélögunum. En hann er í alls
konar félögum, sem öll passa sam-
viskusamlega upp á að halda jóla-
fund. Eitt félagið keypti sér meira að
segja nektardansmær á jólafundinn
um daginn og þá lá pabbi heldur
betur í því, vegna þess að það birt-
ust myndir af fundinum í einhverju
blaði og mamma trylltist. Hann
þóttist sko vera að vinna eftirvinnu
til aö komast á nektardansmeyjuna
í staðinn fyrir að setja kork á eldhús-
gólfið!
Þetta með korkinn er annars al-
veg dæmigert fyrir mömmu. Hún
trassar heimilið algjörlega allan árs-
ins hring, þangað til í desember.
Þá á helst að koma öllu í stand, sem
mátti með ánægju drabbast niður
hennar vegna hina ellefu mánuö-
ina. En af því hvað pabbi er upptek-
inn neyðist hún oftast til að gera
þetta flest sjálf og það hefur heldur
betur afleiðingar fyrir skapið í
henni, maður. Það bætir heldur ekki
neitt hvað hún er með sjúklega sekt-
arkennd yfir ómyndarskapnum í
sér, þó hún viöurkenni það að sjálf-
sögðu aldrei upphátt. Hún má ekki
heyra minnst á smákökur eða laufa-
brauð í tvö hundruð metra fjarlægð,
án þess að brjálast og halda ræðu
um að lífshamingjan sé ekki fólgin í
lagkökum og laufabrauði.
Mér finnst ansi skítt að fá ekkert
gúmelaði á jóiunum, bara af því
mömmu finnst plebbalegt að hnoða
í nokkrar smákökusortir, svo ég
bauðst um daginn til að sjá sjálf um
jólabaksturinn. En þá var það líka
ómögulegt. Mamma sagði að ég
myndi örugglega ofbaka vanillu-
hringina og gleyma laufabrauðsfeit-
inni á eldavélinni á meðan ég væri
á kjaftatörn í símanum. Hún hefur
alveg rosalega mikla trú á mér, hún
mamma. . .
Svo ég sneri mér bara til ömmu á
Einimelnum, sem sagði að bakstur-
inn léki alveg í lúkunum á mér. Við
erum búnar að baka saman gyð-
ingakökur, hálfmána, spesíur og
(mátulega!) vanilluhringi, sem ég
smyglaði heim í íþróttatöskunni.
Amma sagði aö ég skyldi geyma
kökurnar inni hjá mér og njóta þess
aö hafa almennileg jól, þó mamma
mín væri svona „blottuð". Síðan býð
ég pabba í partý til mín, því hann
elskar bakkelsið hermar ömmu.