Pressan - 11.01.1990, Qupperneq 8
8
Fimmtudagur 11. jan. 1990
UPPGJÖR Á GJALDÞROT
Stærstu kröfuhafar i þrotabú Lindalax
hf. áttu veð i fyrirtækinu og voru jafn-
framt hluthafar. Skuldir Lindalax voru
tæplega milljarður við gjaldþrot i des-
ember og hafa aukist siðan. Veðhafarnir
haf a nú samið við þrotabúið um greiðslur
fyrir veðsettum skuldum. Þeim mun tak-
ast að fá allmikið upp i sinar skuldir hjá
eigin fyrirtæki, en búst jórar telja að aðr-
ir kröfuhafar fái litið sem ekkert.
EFTIR: ÖDDU STEINU BJÖRNSDÓTTUR
Rekstur Lindalax stóð á brauðfót-
um frá upphafi að sögn manna sem
starfa að fiskeldi. Stofnendur fyrir-
tækisins, Vatnsleysa sf. og Seafood
Developement hf., lögðu ekki fé í
reksturinn, heldur land og tækni-
þekkingu. Hlutafé átti upphaflega
að safna í Noregi, en það gekk illa.
Hérlendis var byggingarfjár aflað
með lánum frá Iðnaðarbankanum
og Iðnþróunarsjóði. í Noregi lánaði
Den Norske Kreditbank fé og gerð-
ist síðar hluthafi til að reyna að
bjarga stöðinni þegar Ijóst varð
hvert stefndi.
„Þetta var hæpið dæmi frá upp-
hafi,“ segir maður sem unnið hefur
við fiskeldi. „Vatnið þarna er of kalt
og tvisvar lá við stórtjóni þegar raf-
magn fór og vararafstöð fór ekki í
gang."
Iðnaðarbankinn
kemur til hjálpar
Þegar stöðin varð gjaldþrota kom
í Ijós að helstu kröfuhafar hérlendis
voru Iðnaðarbankinn og Iðnþróun-
arsjóður. Veðsettar skuldir þrota-
búsins við þá og Den Norske Kredit-
bank nema 750 milljónum króna.
Einn af eigendum stöðvarinnar
var hlutafélagið DraUpnissjóðurinn
(sama félag hét Draupnir hf. til 5.
júní sl.) sem er að hluta til í eigu Iðn-
aðarbankans (Verðbréfamarkaðs
Iðnaðarbankans) og Iðnþróunar-
sjóðs. Annar eigandi Draupnis er
Iðnlánasjóður, sem til skamms tíma
var rekinn af Iðnaðarbankanum.
Samkvæmt ársskýrslu Iðnlánasjóðs
er tilgangur Draupnis að stuðla að
þróun hlutabréfamarkaðar hér á
landi, meðal annars með kaupum á
hlutabréfum, skuldabréfum eða
öðrum verðbréfum atvinnufyrir-
tækja, er líkleg eru til þess að
skila góðum arði miðað við
áhættu.
Nýtti Iðnaðar-
bankinn aðstöðu
sína I Draupni?
Það má eflaust deila um hve bjart-
sýnir menn voru á framtíð Lindalax
Það er fleira í sögu Lindalax sem
vekur athygli. Uppbyggingin var öll
fyrir lánsfé og forsendur búsins af
mörgum taldar hæpnar. Fram-
kvæmdastjóri þar til síðasta vor var
Þórður H. Ólafsson. Honum var
sagt upp þegar staða fyrirtækisins
var orðin verulega slæm vorið 1989
og hlutafé var aukið í Lindalaxi hf.
Þórður var áður framkvæmdastjóri
íslandslax (sem varð líka gjaldþrota
á síðasta ári) en var sagt upp þar,
hf. þegar Draupnissjóðurinn hf.
keypti hlutafé. Með tilliti til lélegrar
eiginfjárstöðu og gífurlegra skulda
má hins vegar ætla að fyrirtækið
hafi ekki verið líklegt til að skila
góðum arði miðað við áhættu í
bráð.
Iðnaðarbankinn hafði umsjón
með Iðnlánasjóði. Iðnlánasjóður
hefur fulltrúa í lðnþróunarsjóði og
allir þrír aðilarnir eiga hlut í
Draupnissjóðnum. Iðnaðarbankinn
hefur legið undir því ámæli frá fjár-
málamönnum að nýta aðstöðu sína
í Iðnlánasjóði þegar illa horfir fyrir
stórum skuldunautum bankans.
Forsvarsmenn bankans hafa alltaf
neitað því. Það er hins vegar ekki
óeðlilegt að menn spyrji sig hver var
hlutur bankans og Iðnþróunarsjóðs
i því að Draupnissjóðurinn hf.
keypti hlut í fyrirtækinu og á nú hlut
í Laxalind hf. sem hefur gert tilboð
í eignir þrotabús Lindalax hf.
samkvæmt heimildum Pressunnar.
Hann hefur nú fengið stöðu hjá
Framkvæmdasjóði og er tæknilegur
ráðgjafi varðandi ýmis verkefni,
éinkum fiskeldisverkefni, sem ber
hæst um þessar mundir. Hann á því
hlut að máli þegar teknar eru
ákvarðanir um styrki til fiskeldisfyr-
irtækja. Þessi ráðning hefur mælst
illa fyrir hjá laxldisfyrirtækjum,
samkvæmt heimildum Pressunnar.
FYRRVERANDI FRAMKVÆMDASTIÓRI
TVEGGJA GJALDÞROTA FYRIRTÆKJA
ER NÚ RÁÐGJAFI FRAMKVÆMDASJÓDS
Yfirtaka eignir
sem þeir áttu
Lindalax fékk greiðslustöðvun-
þann 27. september. Til að fá nauð-
synlegt rekstrarfé til að halda fyrir-
tækinu gangandi á þeim tíma stóðu
bankarnir að stofnun Laxalindar
hf„ sem síðar tók að sér að halda
þrotabúinu gangandi til að helstu
verðmæti þess, seiðin, glötuðust
ekki. Skráðir eigendur Laxalindar
eru meðal annars Den Norske Kred-
itbank og Draupnissjóðurinn. Laxa-
lind hf. lánaði Lindalaxi fé í rekstur-
inn og er það lán komið hátt á ann-
að hundrað milljóna núna.
Laxalind hf. hefur gert tilboð í
eignir stöðvarinnar, aðrar en lax-
inn, og kaupir stöðina líklega, að