Pressan


Pressan - 15.02.1990, Qupperneq 7

Pressan - 15.02.1990, Qupperneq 7
Fimmtudagur 15. febr. 1990 7 A ^fFftir lokun Kolaportsins sl. laugardag mun starfsmanni hafa oröið það á að reka prik í eldvarn- arúðunarkerfi byggingarinnar með þeim afleiðingum að allt kerfið fór í gang með tilheyrandi sírenu- væli og úðaðist vatn yfir bifreiða- geymsluna. Kerfi þetta, sem er mjög fullkomið, er einnig tengt lögreglu og slökkvistöð og tók það lögréglu og slökkvilið nokkurn tíma að stöðva það. Viðvörunarkerfið er tengt um alla Seðlabankabygging- una og fékk þarna sína fyrstu próf- un . . . Íformannaskipti verða yfir Al- þýðuflokksfélaginu í Reykjavík á aðalfundi þess innan skamms. Magnús Jónsson veöurfræöingur lætur þar af formannsstörfum og höfum við heyrt að gerð hafi verið tillaga um Arnór Benónýsson í stöðuna, en undanfariö hefur hann unnið að undirbúningi borgarstjórn- arkosninga á vegum fulltrúaaráðs flokksins . . . ftú er að koma í Ijós hverjir gefa kost á sér í prófkjöri krata á Akureyri fyrir bæjarstjórnarkosn- ingarnar í vor. Meðal þeirra sem eru reiðubúnir eru Bjarni Kristjáns- son, Gísli Bragi Hjartarson, Hanna Björg Jóhannesdóttir, Hermann R. Jónsson, Hulda Eggertsdóttir, Jóhann Möller, Pétur Bjarnason, Sigurður Ing- ólfsson, Sigurður Oddsson, Þor- steinn Þorsteinsson og Þórey Eyþórsdóttir . . . launamisrétti kynjanna á vinnu- markaðnum virðist alls staðar vera fyrir hendi, jafnt í láglaunastöðum og þegar ofar er komið í launastig- ann. Jafnvel virðast konur ekki fá sambærileg laun og karlar, þó þær séu orðnar ráðherrar, ef marka má úttekt DV á launum ríkisstjórnar- innar. Þar kom fram að einungis ÓIi Þ. Guðbjartsson er með lægri laun en eina konan í ríkisstjórninni, Jó- hanna Sigurðardóttir. Einnig eru karlarnir duglegri að nýta sér fríð- indi eins og ráðherrabíla, en Jó- hanna þiggur ekki einu sinni fyrn- ingarfé af einkabifreið sinni, sem hún notar í stað bíls í eigu ríkisins. Nemur fyrningarféð 20% af verði bílsins og getur ráðherra fengið þá upphæð greidda árlega í fimm ár . . . LEIÐRÉTTING I síðustu viku urðu þau leiðu mis- tök að nafn höfundar Pressupenna- pistils, sem fjallaði um verktaka- starfsemi á Keflavíkurvelli, féll nið- ur. Höfundur greinarinnar var Guð- mundur Arni Stefánsson, bæjar- stjóri i Hafnarfirði. Biðjumst við vel- virðingar á þessum mistökum. Ritstj 15. febrúar 1990 BREYTING Á REGLUGERÐUM Læknaþjónusta Greiðslur hjá heimilisiækni og heilsugæslulækni. 0 kr. - Fyrir viðtal á stofu læknis á dagvinnu- tíma þ.e. á milli kl 0800 og 1700. Inni- falin er ritun lyfseðils. 500 kr. - Fyrir viðtal á stofu læknis utan dag- vinnutíma og á helgidögum. Innifalin er ritun lyfseðils. 400 kr. - Fyrir vitjun læknis til sjúklings á dag- vinnutíma. 1000 kr. - Fyrir vitjun læknis til sjúklings utan dagvinnutíma. Greiðslur fyrir sérfræðilæknishjálp og komur á göngudeild, slysadeild og bráðamóttöku sjúkrahúss. 900 kr. - Fyrir hverja komu til sérfræðings, á göngudeild, slysadeild og bráðamót- töku sjúkrahúss. 300 kr. - Elli- og örorkulífeyrisþegar fyrir hverja komu til sérfræðings, á göngudeild, slysadeild og bráðamóttöku sjúkra- húss. Greiðslur fyrir rannsóknir og röntgengreiningu. 300 kr. - Fyrir hverja komu. 100 kr. - Elli- og örorkulífeyrisþegar fyrir hverja komu. Elli- og örorkulífeyrisþegar skulu aldrei greiða samanlagt hærri fjár- hæð en kr. 3000 á einu almanaksári fyrir sérfræðilæknishjálp, komu á göngudeild, slysadeild, bráðamót- töku sjúkrahúss, rannsóknir og röntgengreiningu. Allir eiga að fá kvittanir fyrir þessum greiðslum. ~ Ofangreindar greiðslur eru hámarksfjárhæðir. Innifalinn í greiðslu er kostnaður vegna hvers kyns einnota áhalda, umbúða og þess háttar. Lyíjakostnaður Greiðslur fyrir lyf. 550 kr. - Fyrir lyf af bestukaupalista. 170 kr. - Elli- og örorkulífeyrisþegar fyrir hverja lyfjaafgreiðslu af bestukaupalista. 750 kr. - Fyrir önnur lyf sem greidd eru af sjúkratryggingum. 230 kr. - Elli- og örorkulífeyrisþegar fyrir önnur lyf sem greidd eru af sjúkratryggingum. Eitt gjald greiðist fyrir hvern 100 daga lyfja- skammt, eða brot úr honum. Gegn framvísun sérstaks lyfjaskírteinis í lyfja- búð fást ókeypis ákveðin lyf, við tilteknum langvarandi sjúkdómum. Læknar gefa vottorð til Tryggingastofnunar ríkisins í þeimtilvikum, sem réttur á skírteini kann að vera fyrir hendi. SKÝRINGARÁ FRAMKVÆMD REGLUGERÐAR NR. 62/1990 UM GREIÐSLUÞÁTTTÖKU SJÚKRATRYGGÐRA í LÆKNISHJÁLP O.FL. Koma til heimilis- eða heilsugæslulæknis Koma til heimilis- eða heilsugæslulæknis á dagvinnutíma er sjúkl- ingi ætíð að kostnaðarlausu. Það skiptir ekki máli hvort um er að ræða bráðakomu eða komu skv. tímapöntun. Vegna komu til heimilis- eða heilsugæslulæknis utan dagvinnu- tíma greiðir sjúklingur kr. 500 nema læknir hafi beinlínis sjálfur ákveðið að sinna læknisstarfinu utan dagvinnutíma. Koma á slysavarðstofu Sjúklingur greiðir kr. 900 (kr. 300 fyrir elli- og örorkulífeyrisþega) vegna komunnar. Til viðbótar komugjaldi greiðir sjúklingur fyrir röntgengreiningu og rannsóknir á rannsóknarstofu ef um það er að ræða. Sjúklingur greiðir þó aldrei hærri fjárhæð en kr. 300 fyrir hvort (kr. 100 fyrir hvort fyrir elli- og örorkulífeyrisþega) í hverri komu. Sjúklingur greiðir fyrir röntgengreiningu og rannsóknir á rann- sóknastofu heilsugæslustöðvar (ef sérstakur starfsmaður sér um rannsóknastofuna). Sjúklingur greiðir þó aldrei hærri fjárhæð en kr. 300 fyrir hvort (kr. 100 fyrir hvort fyrir elli- og örorkulífeyrisþega) í hverri komu. Koma til sérfræðings Fyrir komu til sérfræðings og endurteknar komur til sérfræðinga greiðir sjúklingur í hvert skipti kr. 900 (kr. 300 fyrir elli- og örorkulíf- eyrisþega). Til viðbótar komugjaldi greiðir sjúklingur fyrir röntgengreiningu og rannsóknir á rannsóknastofu ef um það er að ræða. Sjúklingur greiðir þó aldrei hærri fjárhæð en kr. 300 fyrir hvort (kr. 100 fyrir hvort fyrir elli- og örorkul ífeyrisþega) í hverri komu. Fari sjúklingur í aðgerð og svæfingu greiðir hann aðgerðarlækni kr. 900 og svæfingalækni kr. 900 (kr. 300 + 300 fyrir elli- og örorkulíf- eyrisþega). Rannsóknir á rannsóknarstofu Sjúklingur greiðir kr. 300 (elli og örorkulífeyrisþegar kr. 100) fyrir hverja komu til rannsóknar á rannsóknastofu heilsugæslustöðvar, sjúkrahúss eða annarrar stofnunar. Þótt hluti rannsóknarsýnis sé sendur annað til rannsóknar greiðir sjúklingur ekki viðbótargjald vegna þess. Sendandi sýnis skal gera grein fyrir því á rannsóknar- beiðni hvort sjúklingur sé þegar búinn að greiða vegna rannsókn- ar, sem fram fór á sýnistökustað. Röntgengreining Vegna hverrar komu til röntgengreiningar, á heilsugæslustöð eða annars staðar, skulu sjúklingar greiða kr. 300 (kr. 100 fyrir elli- og örorkulífeyrisþega). Ekki skiptirmáli hvaðan sjúklingurkemur, þ.e. frá heilsugæslulækni, heimllislækni eða sérfræðingi. Hvers kyns önnur innheimta hjá sjúklingum en að framan greinir, þ.m.t. vegna einnota vara, umbúða o.þ.h., eróleyfileg. HEILBRIGÐIS- OG TRYGGINGAMÁLARÁÐUNEYTIÐ TRYGGINGASTOFNUN RÍKISINS vjs/snoav

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.