Pressan - 15.02.1990, Qupperneq 11
Fimmtudagur 15. febr. 1990
PRESSU
l^ónleikagestir á Hótel íslandi
síöastliðiö fimmtudagskvöld urðu
margir fyrir vonbrigðum þegar þeir
mættu í sínu stífasta pússi til að
hlusta á Tammy Wynette. Sveita-
söngkonan og hljómsveit hennar
brugðust að vísu ekki aðdáendum.
Hins vegar höfðu flest borð verið
fjarlægð og stólum raðað í þéttar
raðir líkt og á skólaskemmtun.
Flestir gestanna þurftu því að sitja
með vínveitingarnar í kjöltunni
og gátu illa klappað með fyrir vikið.
Ólafur Laufdal, eigandi Hótels ís-
lands, segir þetta alvanalegt á tón-
leikum í miðri viku, þegar ekki er
matur. Með þessu móti geta 1000
manns séð sviðið vel, en þegar set-
ið er við borð geta aðeins 600
manns séð vel hvað fram fer. Þessi
þétta uppröðun er því greinilega
gerð fyrir áhorfendurna, það er að
segja þá sem eru reiðubúnir að
borga 3.000 krónur fyrir að sitja í
þröngri sætaröð með vínglasið á
hnjákollunum . . .
b
að vakti verðskuldaða at-
hygli á dögunum þegar málverk af
Kristínu Guðbrandsdóttur bisk-
ups og maká hennar, sem talið var
frá öndverðri sautjándu öld, reynd-
ist vera eftirlíking og ekki nema
hálfrar annarrar aldar gamalt. Mál-
verkið átti að fara á uppboð á Gall-
erí Borg. IJlfar Þormóðsson,
stofnandi Gallerís Borgar, sat yfir
kaffibolla á fundi Alþýðubanda-
lags Reykjavíkur á þriðjudag þeg-
ar Mörður Árnason Birtingar-
maður gekk hjá og sá Úifar, sem er
fylgismaður Flokkseigendafé-
lagsins. Varð Merði þá að orði:
Hvort skyldi þetta vera frum-
myndin eða eftirlíkingin af Úlf-
ari Þormóðssyni sem situr
þar? ...
H^Éenn þurfa ekki nauðsyn-
lega að vera þekktir til að fá nafn sitt
í afmælisdálk DV. Svo eru aftur til
þekktir menn sem alls ekki lenda í
afmælisdálki á stórafmælum, eins
og sást best í DV í gær. Þá varð
nefnilega fertugur hárgreiðslu-
meistarinn Brósi, Sigurður Be-
nónýsson. Lítið fór fyrir afmælis-
haldi enda kappinn á Kanaríeyj-
um, en þangað sendu stúlkurnar á
ritsímanum skeyti frá viðskiptavin-
um sem öðrum vinum ...
Þ
ótt þættir Hemma Gunn í
ríkissjónvarpinu séu með afbrigð-
um vinsælir eru greinilega ekki ailir
jafnánægðir með kappann. Helgi
Pétursson, sem stjórnar þættinum
Það kemur í ljós á Stöð 2, mun
kominn í harða samkeppni við
Hemma og eftir því sem við fregn-
um er hann ekki í vandraéðum með
að fá fólk til að koma fram í þáttun-
um. Helsta ástæðan sem fólk gefur
fyrir því að vilja láta Ijós sitt skína
hjá Helga er hversu skemmtilega
ólíkir þættir hans og Hemma Gunn
I frétt Morgunblaðsins í gaer
segir frá því að Flugleiðir bjóði ís-
lendingum vestanhafs flugferð
heim á kostakjörum. Ef menn ætla
í hina áttina er annað upp á teningn-
um. Ef borin eru saman lægstu far-
gjöld frá íslandi og til íslands er yfir-
leitt töluvert dýrara að hefja ferðina
hér. Þetta er mismunandi eftir verð-
lagsþróun og árstíma. Núna er yfir-
leitt milli 2.000 og 5.000 krónum
dýrara að ferðast frá íslandi en á
sömu leiðum til íslands. Mismunur-
inn á Lúxemborgarfluginu er þessa
stundina 3.500 krónur íslendingum
í óhag og 2.500 krónur í Kaup-
mannahafnarflugi, einnig okkur í
óhag. Þessar tölur gilda fyrir ódýr-
ustu miðana, en verð á almennum
farmiðum er svipað í báðar áttir. En
hvernig stendur á því að það er
styttra frá Kaupmannahöfn til Kefla-
víkur en frá Keflavík til Kaup-
mannahafnar? Að sögn Einars Sig-
urðssonar, upplýsingafulltrúa
Flugleiða, stafar mismunur á verði
meðal annars af gengissveiflum, og
því að ekki er hægt að flytja aukinn
kostnað á íslandi úr landi. Einar seg-
ir aö verðmunurinn sé ekki alltaf Is-
lendingum í óhag . . .
U
tvarpsstöðin Bylgjan er um
þessar mundir að kynna nýja pistla-
höfunda í þættinum Reykjavík síð-
degis. Þeir munu alls verða fimm
talsins og má þar m.a. nefna Ingva
Hrafn Jónsson, fyrrum frétta-
stjóra, Laufeyju Steingrímsdótt-
ur næringarfræöing og Hannes
Hólmstein Gissurarson lektor . . .
AMERISKU RUMIN KOMIM AFTUR!
Amerísku „Sealy '-rúmin eru alveg ómótstæðileg. Þau eru hönnuð
í samráði við færustu beinasérfræðinga Bandaríkjanna. Tvær þykkar
dýnur, undir- og yfirdýna, sem flaðra saman og ná þannig að gefa
þér góðan nætursvefh án bakverkja að morgni. 15 ára ábyrgð.
- ; Opið laugardaga frá kl. 11.00-14.00.
ÍVlcLrCG* hf., Langholtsvegi 111, 2. hæð sími 680690.
A.HANSEN • VEITINGAHÚSIÐ í FIRÐINUM • A.HANSEN • RÓMAÐ FYRIR VEITINGAR
Veitíngahúsið í Firðinum
... nœr en þig grunar!
l|gp
í febrúar og mars bjóðum
við spennandi máltíð á
aðeins 795 kr. Val eftir vild.
Forréttur
• Súpa dagsins.
• Reyktur lax með eggjahrœru.
Aðalréttur
• Omeletta með þremur
mismunandi fyllingum.
• Pasta Fortelini með
sveppum, skinku og fleski.
• Soðinn saltfískur með
spínatsósu.
• Vínarsnitsel með
pönnusteiktum kartöflum.
Kaffi
HELGARTILB0Ð
• Reykþurrkuð gœsabringa
með Waldorfsalati.
• Kjötseyði „Julienne“.
• Sítrónu sorbet.
• Turnbauti með sveppum
og bakaðri kartöflu.
• ís JAelba “.
Verð samtals 2.450 kr.
f dag er ekki meira mál að skella sér
suður í Fjörð í A.HANSEN úr miðbæ Reykjavíkur
en upp í Breiðholt eða Árbæ.
ALHLIÐA
VEITINGAHÚS
í rúmgóðum og vinalegum
veitingasal á neðri hæð
leggjum við metnað okkar í
lipra og þægilega þjónustu
á öllum veitingum. í nýjum
sérréttaseðli er að finna ótal
spennandi og girnilega rétti.
SÉR Á PARTI
Salirnir á efri hæðinni eru
tilvaldir fyrir smærri og
stærri kaffi- og matarfundi,
hádegisklíkur í leit að næði
og árshátíðir klúbba og félaga
A.HANSEN
Vesturgötu 4 (gegnt Strandgötu) s. 651130
FAGMENNSKA í
FYRIRRÚMI
Nú þegar fermingarnar
nálgast, er rétt að hafa í
huga fjölbreytta veislu-
þjónustu okkar í húsinu
og utan þess.
f DAGSINS ÖNN
Það er heitt á könnunni
allan daginn og kakóið
okkar yljar ekki síður en
kaffið.
LÍF
OG FJÖR
„Pöbbinn“ á efri hæðinni
er vinsæll samkomustaður
á hverju kvöldi. Frá
fimmtudagskvöldi til
sunnudagskvölds er
sprelllifandi tónlist og
stemningin ólýsanleg!
A.HANSEN • NOTALEGT UMHVERFI • A.HANSEN • ALHLIÐA VEITINGAHÚS • A.HANSEN