Pressan


Pressan - 15.02.1990, Qupperneq 12

Pressan - 15.02.1990, Qupperneq 12
Fimmtudagur 15. febr. 1990 spáin 16. — 21. febrúar (21 murs—20. upríl) Náin tengsl munu myndast viö einhvern fjölskyldumeölim sem þú hefur hingaö til haft lítið álit á. Ekki er allt sem sýnist og fleira fólk sem vill þér vel mun koma fram á sjón- arsviöið. Það borgar sig samt ekki aö stofna til ástarsambands í þessari viku, þvi einhver gæti reynt aö notfæra sér ást þína í vafa- sömum tilgangi. (21. u/)ril—20. muí) Þér finnst kannske fjármálin vera meö verra móti. Örvæntu ekki því happaþrennan er á næstu grösum. Hún getur birst meö ýmsu móti. Kauphækkun eöa happdrættis- vinningur eru meðal möguleikanna. Viöhorf þitt skiptir samt öllu máli, því margur er rík- ari en hann hyggur. Þetta er rétta vikan til þess aö fjárfesta og taka áhættu, sem þú hefur lengi veriö aö hugsa um. Varúö á öllum sviöum er lykilorð þessarar viku. Misskilnings gætir víöa og þér getur hæglega oröiö kennt um eitthvaö sem þú átt enga sök á. Fæst orö hafa minnsta ábyrgö og þú ættir aö forðast allar sögu- sagnir. Þú skalt ekki trúa öllu sem þú heyrir og alls ekki bera neinar sögur áfram. Baktal um nágranna þinn reynist ekki á rökum reist. (22. júní—22. júlí) Þessi vika getur skipt sköpum í lífi þinu ef þú hefur kjark til aö taka mikilvægar ákvaröanir. Ef þú ert ánægö(ur) með lífiö veröur þessi vika gott framhald. Annars er þetta góöur tími til þess aö breyta til, stofna til nýrra kynna, byrja í nýrri vinnu, fara á námskeiö, eöa nota frítímann betur en hingað til. (22. júlí—22. útfúst) Þú leysir óvænt vandamál meö aðstoð góöra vina. Ef þú lendir í erfiöleikum geturöu fengið stuðning frá fleira fólki en þú heldur. Vinir þínir eru tryggir og öruggir og sama má segja um ástarsambandið, þó þú hafir stundum efast. Tengdafólk gæti reynst af- skiptasamt. (22. úfiúst—22. sept.) Breytingar sem þú hefur ekki reiknaö meö gætu átt sér staö í vikunni. Þetta er ekki eins erfitt og þaö sýnist vera. Sumt fær maður ekki ráöiö viö og þá er ekki um annað aö ræöa en reyna aö gera þaö besta út úr hlut- unum. Varastu þunglyndi þitt og annarra og reyndu aö finna nýjar leiðir til þess aö njóta lífsins. (22. sepl —24. okt.) Mannleg samskipti eru lykilatriði. Frestaöu sem flestum framkvæmdum til þess aö geta notið samverunnar viö góöa vini. Láttu yfirvinnuna eiga sig og faröu frekar út aö skemmta þér. Jafnvel í miöri viku. Ný kynni í vikunni gætu leitt til varanlegs ástarsam- bands af betri geröinni. Gamla kulnaöa ástin getur líka blossaö upp aö nýju ef rétt er á málum haldið í vikunni. (24. okt.—22. nóu.) Tortryggni og neikvætt hugarfar geta komiö þér i vanda. Enginn óskar þér hins versta og þér er óhætt aö treysta vinnufélögunum betur. Þaö sem þú telur forvitni og afskipta- semi er í raun greiövikni. Þaö er óþarfi aö smjaðra, komdu til dyranna eins og þú ert klæddur. Þaö fer þér best. Byrjun vikunnar gæti fært þér óvænta ánægju. (23. nóv.—21. des.) Þetta eru dagar dugnaðar og atorku. Notaöu þennan mikla kraft sem í þér býr. Þú gætir komið frá þér fjölda verkefna sem hafa lengi setiö á hakanum. Sendu siöustu jólakortin þó þaö séu aö koma páskar, þeim verður samt tekið meö þakklæti. Borgaöu reikning- ana og þvoöu gardínurnar og bilinn. Þú átt skilið einhverja upplyftingu i lok vikunnar. (22. des.—2(l. jun.) Þér hættir til eigingirni þessa dagana. Var- astu aö troöa á fólki. Nánasta umhverfi þitt hefur lengi sýnt þér þolinmæði og mikla sanngirni. Þessa góðvild gæti þrotið. En þú býrð yfir mörgum góöum eiginleikum og ef þér tekst aö láta þá veröa yfirsterkari á vin- um þínum eftir aö fjölga áfram. Þú átt marga aðdáendur. (21. janúur—19. íebrúar) Skemmtun og gleðskapur einkenna um- hverfi þitt. Mest er þetta saklaust gaman en það liggur ákveöiö taumleysi i loftinu. Reyndu aö standa traust meö báöa fætur á jöröinni og faröu ekki mjög seint heim af mannfögnuðum. Þú ert fædd(ur) foringi og þessir hæfileikar njóta sín sérstaklega vel i þessari viku. (20. febrúar—20. mars) Öll ferðalög eiga nú vel viö, bæöi innanlands og utan. Ný sambönd gætu oröiö afdrifarik. Varastu aö svikja gamla vini þó nýir virðist meira spennandi. Sinntu skyldum þinum af alúö og þá getur þessi vika oröið byrjunin á betra lífi. i framhjáhlaupi Eva Ásrún Albertsdóttir dagskrárgeröarmaöur og Ijósmóðir Leiðist fullorðið fólk sem hefur ekki stjórn á skapi sínu — Hvaða persóna hefur haft mest áhrif á þig? „Besta vinkona mín, Ema Þór- arinsdóttir. Okkar samband er mjög náiö og hún er alveg ein- stök. Þaö er mannbætandi aö umgangast hana." — Án hvers gætirðu síst ver- ið? „Eiginmannsins og litlu gull- molanna minna." — Hvaö finnst þér leiðinleg- ast? „Skapvonska og rifrildi og mér leiöist fulloröið fólk sem hefur ekki náö þeim þroska aö hafa stjórn á skapi sínu." — En skemmtilegast? „Aö fylgjast meö börnunum mínum vaxa og þroskast." — Hvenær varðstu glöðust? „Þaö var 8. október 1977 þeg- ar ég vaknaði eftir keisaraskurö og fékk aö vita að barnið mitt væri á lífi, en hann var hætt kom- inn og aöeins 1.320 grömm." — Hvað fer mest í taugarnar á þér? „Óstundvísi og fólk sem kem- ur ekki til dyranna eins og þaö er klætt." — Manstu eftir ákvörðun sem breytti miklu fyrir þig? „Sú ákvöröun sem breytti mestu á síðasta ári var þegar ég ákvað aö gifta mig. Þaö er ein al- besta ákvöröun sem ég hef tekið á ævinni." — Við hvað ertu hrædd? „Ekkert. Ég bý mér ekki til drauga, ég horfi bara á björtu hliöarnar. Ef ég á aö nefna eitt- hvaö sem ég hræöist er þaö helst umferðarmenningin." — Manstu eftir neyðarlegu atviki sem hefur hent þig? „Já þegar við vorum aö kynna plötuna Módel í stórmarkaði. Tónlistin og söngurinn voru flutt af bandi en viö áttum aö „maema". Hljómtækin í verslun- inni voru hins vegar eitthvað bil- uö þannig aö afgreiöslumaður- inn þurfti aö halda saman tveim- ur snúrum. í miðju lagi missti hann takið og allt stöövaöist. Þiö getið ímyndaö ykkur hvernig viö litum út!" — Hvar vildirðu helst eyöa sumarleyfinu þínu? „Uppi í sveit meö fjölskyld- unni minni." — Hver er eftirlætisbílteg- undin þín? „Renault." — Hver er tilgangurinn með lífinu? „Er hann ekki sá aö lifa því, vaxa og þroska sjálfan sig?" — Ef þú þyrftir að skipta um starf, hvað vildirðu helst taka þér fyrir hendur? „Snúa mér aftur að Ijósmóö- urstarfinu. Þaö er besta starf sem hægt er aö hugsa sér og mest gefandi. En þaö er illa borg- aö!" — Hvað er betra en kvöld- stund í góðra vina hópi? „Kvöldstund meö karlmönn- unum þremur í lífi mínu." lófalesfe I þessari viku: Vog (kona fædd 25.9. 1957) Þessi kona hefur átt mjög erfiöa ævi — þ.e.a.s. í æsku, en þó sér- staklega unglingsárin. Hún hefur mjakast hægt og sígandi áfram í lífinu, en þaö hefur veriö mjög um- hleypingasamt tímabil frá því hún var 18 ára og fram undir 32 ára ald- ur. Á næstu tveimur til þremur ár- um verður konan aö sýna mikla seiglu í fjármálum og vera afar varkár á því sviði. T.d. ætti hún ekki aö segja upp starfi sínu eöa annað í þeim dúr. Toluverðar breytingar verða á högum konunnar eftir 1994—1996 og á það sérstaklega viö um starf hennar. Þaö er aö hefjast rólegt og já- kvætt tímabil í einkalífi hennar. Jafnvel má búast viö einhverjum breytingum á því sviði, sem reyn- ast henni hagstæðar í tilfinninga- málum. Þessi kona þjáist af vanmáttar- kennd. Hún ætti aö passa sig á kulda og hún ætti aö takmarka yf- irvinnu og kvöldvinnu, því hún viröist ekki hafa mikið úthald. Helst þyrfti hún aö vinna á staö þar sem hún heföi öryggi og jöfn kjör. VILTU LÁTA LESA ÚR ÞÍNUM LÓFA? Sendu þá TVÖ GÓÐ LJÓSRIT af hægri lófa (örvhentir Ijósriti þann vinstri) og skrifaöu eitt- hvert lykilorð aftan á blööin, ásamt upplýsingum um kyn og fæðingardag. Utanáskrift: PRESSAN — lófalestur, Ármúla 36, 108 Reykjavík. draumar Yfir kaldan eyðisand... Sandur og gróðurleysur hafa ekki þótt góð draumtákn. Að dreyma sand á gólfinu hjá sér eða í skónum sínum veit á erfiðleika. Þykist mað- ur sópa sandinum burtu yfirstígur maður erfiðleikana. Að vera á göngu eftir söndum eða melum er sömuleiðis örðugleikadraumur. Dreymi ungt fólk slíka drauma er hætt við að lífsgangan verði ekki auðveld. Sandur er eitt af táknum jarðarinnar, en mörg draumtákn tengjast henni, enda erum við börn jarðarinnar engu síður en himins- ins. Ég held að við höfum áður nefnt kletta eða hamra, að þeir tákna oft- ast hindranir á lífsleiðinni, einkum þykist maður hætt kominn við að klífa þá og er óörugg/ur og óttasleg- in/n. Gangi maður meðfram hömr- unum í draumnum og komist hvergi upp verða erfiðleikarnir „heimilis- fastir" hjá manni. En þyki manni einhver rétta hjálparhönd eða kasta til manns stiga eða kaðli, þá berst einhver hjálp. Svart klettabelti segja sumir að tákni landamæri lífs og dauða, þannig að þykist dreym- andi vita af vini eða vandamanni handan við dökka hamra er hann líklegast ekki lengur hérna megin. Dökki liturinn á klettunum táknar huluna sem við sjáum ekki gegnum. Og klettarnir að okkur sé þessi leið ófær í bili. Grasi gróin jörð hefur líka ýmisleg tákn. Grænt gras er sagt fyrir harð- viðrum ef mann dreymir það að vetrarlagi, enda er grængresi af mörgum talið fyrir mótlæti, það á þó ekki við ef draumagrasið er ný- græðingur og manni þykir vera vor í draumnum. Þá fer eitthvað á betri veg. Einnig dreymi mann byrjandi gróður undan hraunum eða hrjóstr- um. En að raka nýslegið gras er fremur fyrir basli. Sölnað og fallið gras er veikindadraumur. Þyki manni grasrótin rifin upp og skemmd eða að maður gangi eða sé að vinna í flagi, þá er það neikvæð- ur draumur, sér í lagi ef manni þykir maður detta í flagið. Að hirða um og rækta garð í draumi merkir að maður kemur fram til góðs, jafnar deilur og sýnir sanngirni. Garður getur haft marg- vísleg tákn sem við höfum ekki tíma til að gaumgæfa að sinni, þar sem við höldum okkur aðallega við hin neikvæðari tákn jarðar í dag. Þykist dreymandi sjá eldhraun stefna til sín má hann búast við að lenda í miklum deilum. En storkni það áður en það nær til hans jafnast misklíðin væntanlega. Þykist maður vera úti í náttúruhamförum á sjó og landi er það fyrir miklum breytingum, ann- aðhvort í einkalífi eða jafnvel stjórnmálum eða heimsmálum. Sandbylur er afleitur í draumi. Hin- ir fornu draumaráðningarmenn virðast hafa verið hlynntir gróður- vernd.

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.