Pressan - 15.02.1990, Blaðsíða 13

Pressan - 15.02.1990, Blaðsíða 13
Fimmtudagur 15. febr. 1990 13 umræða Þær framkvæmdir ó áhorfendasvæði sem innan skamms hefjast i Þjóðleikhús- inu munu reynast dýrkeyptar. „Endur- bæturnar## á aðstöðu áhorfenda felast i þvi að sjónlina batnar i tæpum tveimur þriðju hlutum salarins. Um leið mun sæt- um fækka um f jórðung frá þvi sem nú er. Breytingarnar i salnum leiða svo til stór- felldra breytinga á salarkynnum gesta og mun þetta verk Guðjóns Samúelsson- ar þvi brátt heyra sögunni til. I byrjun síðasta árs, þegar í ljós kom að vilji var fyrir því hjá stjórn- völdum að hefja endurbætur á Þjóð- leikhúsinu, skipaði Svavar Gestsson menntamálaráðherra fimm manna byggingarnefnd til þess að hafa^fir- umsjón með verkinu, þau Arna Johnsen, Sveinbjörn Oskarsson, deildarstjóra í fjármálaráðuneytinu, Runólf Birgi Leifsson, deildarstjóra í menntamálaráðuneytinu, Helgu Hjörvar, skólastjóra Leiklistarskóla rikisins, og Guðna Jóhannesson verkfræðing. Formaður er Skúli Guðmundsspn og verkefnisstjóri Gunnar St. Ólafsson verkfræðingur. Embætti Húsameistara ríkisins hafði þá þegar gert viðamikla úttekt á húsinu og þörfum starfseminnar og í framhaldi af því mótað stefnu um endurbætur á húsinu — nokkurs konar framtíðarsýn. Þær framkvæmdir sem nú standa fyrir dyrum og hlotið hafa nafnið „Endurreisn Þjóðleikhússins" eru fyrsti áfangi endurbótanna. Þessi áfangi er tvískiptur. Annars vegar er um að ræða nauðsynlegt viðhald á húsinu og endurnýjun á öllum lögn- um og tæknikerfum. Hinsvegar um- bætur á aðstöðu gesta, þ.e. lagfær- ingar á áhorfendasal og á „gesta- svæðum", þ.e. því rými á fyrstu, ann- arri og þriðju hæð sem umlykur áhorfendasalinn. Af hagkvæmnis- ástæðum verður unnið að þessu tvennu samtímis, þ.e. viðhaldsað- gerðunum og endurbótunum á að- stöðu gesta. Nú um eins árs skeið hefur emb- ætti Húsameistara ríkisins unnið að tillögugerð um það hvernig beri að standa að endurbótum á framhús- inu, þ.e. áhorfendasal og gesta- svæði. Tillaga E-4.2 er hin endan-^ lega tillaga sem fyrir vali byggingar- nefndar varð og sú sem styr stendur um nú. Róttækar breytingar — yfirbragðið hið sama Tillagan, sem byggingarnefnd kynnti í nóvember sl„ hljóðaði upp á allverulegar breytingar á áhorf- endasvæði. Þar er gert ráð fyrir að halli salargólfs verði aukinn veru- lega og að einar svalir komi í stað- inn fyrir tvennar sem fyrir eru. Við það breytir salurinn um svip, en byggingarnefnd hefur bent á, að með þessari nýskipan muni^sjón- lína áhorfenda stórbatna. Ennfrem- ur hefur verið lögð á það þó nokkur gangarnir liggja upp á þriðju hæð hússins. Áhorfendur verða tæpast betur settir á nýju svölunum en gömlu efri svölunum, því hvorar tveggja eru ofan og aftan við kjör- sjónlínu. Af því mætti ætla að sætin á nýju svölunum verði í tímans rás jafnóseljanleg og sæti á núverandi efri svölum. Nú er 661 sæti í húsinu; nýja tillagan gerir ráð fyrir 481 (i áhersla, að viðarklæðning á veggj- um verði áfram hin sama, ennfrem- ur áklæði og teppi og því verði litir, áferð og yfirbragð almennt alveg eins og nú. Með öðrum orðum, þá yrði „karakter" hússins áfram hinn sami. Að vísu fækkar sætum talsvert við þessar breytingar (um 180), en bygg- ingarnefnd, svo og Þjóðleikhús- stjóri, hefur lagt fram tölur sem sýna að nýting efri svala er með minnsta móti, eða um 5%, þannig að lítil eft- irsjá verði að þeim 146 sætum sem þar eru. Verða öll sæti bestu sæti? Þetta er, í fáum orðum, aðalinn- takið í þeirri kynningu sem bygging- arnefnd hefur staðið fyrir á fundum og í fjölmiðlum. Sitthvað er athuga- vert við þessa framsetningu. Á teikningunum sést að hinar til- vonandi nýju svalir eru i engum að- alatriðum frábrugðnar efri svölum. Þær verða að vísu aðeins lægri, en þó ekki lægri en svo, að neyðarút- EFTIR: ÖNNU TH. RÖGNVALDSDÓTTUR mesta lagi), og af þeim er 131 á svöl- um. í rauninni felast breytingarnar í því, að salargólfið teygir sig upp á neðri svalir og að efri svalir lækka dálítið. Tvær öftustu sætaraðirnar í sal verða i sömu hæð og tvær fremstu sætaraðirnar á neðri svöl- um, en fjær sviði. Þrjár aftari sæta- raðir á neðri svölum, sem eru ágæt sæti hússins, falla alveg niður. Það er því fjarri lagi að segja að öll sæti verði bestu sæti. Af tæknilegum ástæðum verður brattinn á salargólfinu mun meiri en kjörsjónlína krefst. Þessi ýkti halli gjörbreytir salnum og því virðist það einkennileg ráðstöfun að halda í gamla yfirbragðið. Skriða fer af stað En „endurbæturnar" taka ekki aðeins til áhorfendasvæðanna sjálfra, heldur verður að breyta gestasvæðunum umhverfis til þess að þjóna hinum nýja sal. Fremur hljótt hefur verið um þennan þátt og þá keðjuverkun sem leiðir af sal- arbreytingunni. Aðeins tvennar salardyr af sex á fyrstu hæð verða áfram og því verð- ur að beina flestum áhorfendum upp á aðra hæð hússins til þess að komast í sæti sín í sal eða á svölum. Fatahengin á fyrstu hæð verða færð vegna þess að þau þjóna ekki lengur tilgangi sínum. Við það losna langar og mjóar ræmur meðfram austur- og vesturveggjum. Það liggur bein- ast við að koma þar fyrir einhvers konar aðstöðu fyrir gesti, veitinga- sölu, eða í það minnsta sætum. í ráði er að nýta rýmið sem myndast undir áhorfendapöllunum undir fata- hengi. Þar mun það blasa við gest- um þegar þeir koma inn úr anddyr- inu, þar sem miðasalan er. Nýja fatahengið, sem enn er á teikniborðinu hjá embætti Húsa- meistara ríkisins, mun því að öllum líkindum setja svip á fyrstu hæöina, svo og þær innréttingar sem verða á ræmunum tveimur. Þó mun ef- laust verða séð um að litir og áferð á veggjum verði óbreytt. Það liggur í augum uppi, að eftir þessar framkvæmdir verða leifarn- ar einar eftir af innréttingum Guð- jóns Samúelssonar, nánar tiltekið stigarnir og sælgætissölurnar í stigakrikunum. Nýjar inngöngu- leiðir — ný hönnun Önnur hæð mun einnig breyta um ásjónu. Brjóta þarf fyrir tvennum nýjum dyrum fyrir salinn. Við-hlið þeirra dyra verða steyptir upp nýir stigar upp á svalir, því að ætlunin er að komið verði upp á nýju svalirnar neðanveröar. Þegar efri svalir eru lækkaðar lenda þær niðurfyrir gólf- plötu þriðju hæðar og mun svala- bakið mynda nýstárlegan fláa, eða súð, í loftinu. Gamli stiginn, eða sá hluti hans sem liggur á milli annarrar og þriðju hæðar, verður nú eingöngu notaður af leikurum og öðrum starfsmönn- um hússins, en þeir fá afnot af litla salnum á þriðju hæð, forsal efri syala. Engar þessara breytinga eru nauðsynlegar eða æskilegar í sjálfu sér. Þær stjórnast eingöngu af breyttu fyrirkomulagi á áhorfenda- pöllum og þeim nýju inngönguleið- um ser.i það hefur í för með sér. Ný- smíðin á gestasvæðunum verður svo fyrirferðarmikil í rúmmetrum talið, að hún verður á engan hátt „felld inn í" upphaflegar innrétting- ar Guðjóns Samúelssonar. Þótt Þjóðleikhúsið sé ekki nema 40 ára gamalt eru teikningarnar mun eldri. Húsið var að mestu teiknað á árunum 1928 og 1929. Það ber yfirbragð fúnkisstílsins, en er í raun barrokk-leikhús að innri skipan. Sviðið virkar sem gluggi, og áhorfendasalurinn er mjór og djúp- ur. Þjóðleikhúsið er með öðrum orð- um 19. aldar leikhús að gerð. í nútímaleikhúsum er lögð höfuð- áhersla á náin tengsl leikara og áhorfenda, góða sjónlínu, góðan hljómburð. Þetta krefst grynnra og breiðara áhorfendasvæðis en í Þjóð- leikhúsinu og allt annars sviðsfyrir- komulags. Með tillögu E-4.2 er reynt að ganga eins langt og unnt er til að fullnægja þessum kröfum, raunar lengra en rammi hússins leyfir. Ávinningurinn felst helst í því að sjónlína batnar talsvert í bröttum, þröngum og djúpum sal — að öðru leyti verður húsið á engan hátt „sambærilegt" við nútímaleikhús hvað varðar tengsl áhorfenda og leikara.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.