Pressan - 15.02.1990, Side 16

Pressan - 15.02.1990, Side 16
16 Fimmtudagur 15. febr. 1990 sjúlcdómar og fólk Minni og minnisleysi Hann kom til mín á stofuna einn föstudaginn, settist niður, andvarp- aði og sagðf: — Ég held, ég sé far- inn að kalka. — Af hverju held- urðu það? spurði ég. — Ég er orðinn svo gleyminn, sagði hann, og huldi andlitið í höndum sér. Viðmælandi minn var maður um þrítugt á hraðri uppleið í þjóðfélaginu, hann átti fal- lega konu og myndarleg börn, rennilegan þýskan bíl og raðhús á besta stað í bænum. Hann var klæddur að sið ungra manna á framabraut, í tvíhneppt gráleiti Boss-jakkaföt, röndótta skyrtu og litskrúðugt grænleitt slifsi, hann var í handsaumuðum ítölskum mokka- sínum, þó úti væri rok og rigning. Við ræddum ítarlega um þessar kvartanir og honum fannst minnið svíkja sig öðru hvoru. Hann mundi ekki alltaf þau símanúmer, sem hon- um fannst hann eiga að muna, hann átti stundum í erfiðleikum með and- lit og mannanöfn og fannst það ákaflega óþægilegt, enda hafði hann á ótal námskeiðum fyrir unga menn á uppleið lært mikilvægi þess að muna nöfn og andlit viðskipta- vinanna. — Þetta er alveg ferlegt, sagði hann, stundum finnst mér ég þekkja viðkomandi en get ekki komið honum fyrir mig. Ég hlýt að vera farinn að kalka, þetta er í ætt- inni, bætti hann við og sagði mér langa sögu um ömmu sína, sem mundi fátt sem máli skipti síðustu æviár sín. Ad bíöa og sjá til Mér fannst hann fullkomlega eðli- legur í viðtalinu, skoðun var eðlileg svo og einföldustu minnispróf, svo ég ákvað að bíða og sjá til í viku. í næsta viðtali var hann ekki eins óró- legur yfir minnisleysinu, en viður- kenndi að mikil streita hefði hrjáð sig, hann væri farinn að halda fram- hjá konunni sinni með stúlku hjá fyrirtækinu og fjárhagurinn var ekki eins góður og ég hélt. Hann kom ekki aftur en nokkru síðar frétti ég að hann væri skilinn við konuna og fluttur út. — Vegir upp- ans eru yfirleitt torfærir, sagði ég spekingslega við sjálfan mig. Ég hitti hann á málverkasýningu nokkru síðar og spurði hvernig gengi. — Þetta var bara rugl með minnisleysið, sagði hann, ég var allt- of stressaður eins og þú sagðir. Hann herti beltið á síðum frakkan- um brosti til mín gleðilausu brosi með sorg í augunum, og við héldum hvor í sína áttina. Margbrotiö minni Minnið er ákaflega furðulegt fyr- irbæri og erfitt að skilgreina hvað það er eða hvernig það starfar. Allar lífverur hafa sennilega einhvers konar minni, einföldustu dýr forð- ast ákveðnar kringumstæður sem virðast vekja upp einhverjar óþægi- legar minningar. Minni manneskj- unnar er ákaflega háþróað og furðulegt hvað flestir muna mikið. Þó hafa allflestir áhyggjur af minni sínu og telja það ekki eins gott og það ætti að vera og bölsótast yfir gleymsku og takmörkun minnisins. En við munum ótal margt; nokkur þúsund andlit þó við getum ekki nafngreint þau öli, mikinn fjölda af nöfnum, stöðum, atvikum, o.fl. Talið sannar hversu mikið við í raun mun- um. Þegar talað er þarf sífellt að færa hugsun í orð, muna eftir mál- fræði orðanna og setningaskipan og á sama tíma hlustum við, túlkum og skiljum allt sem sagt er og rifjum upp svipaðar orðræður, sem áður hafa farið fram. Þetta er stórkostlegt og sýnir hversu vel þróað minnið er. Enginn veit með vissu hvernig minnið starfar. Þó er sennilega um að ræða rafstrauma í miðtaugakerf- inu og boðefni sem flytjast milli taugaenda og valda því að við mun- um. Uppbygging taugafrumanna virðist breytast og þannig festast atriði inni í heilanum í einhvers kon- ar minnisbanka, þar sem löngu liðin atvik geymast eins og gömul verð- bréf í sparisjóði. Minningu er oft skipt í þrennt; skynfæraminni sem tekur við áreiti eða boðum frá skyn- færunum og geymir í örskamma stund (0,5 sek); skammtímaminni sem geymir upplýsingar í 15—20 sek. og langtímaminnið sem er hið eiginlega minni, en þar geymum við upplýsingar til lengri tíma. Heilinn virðist á einhvern mjög flókinn hátt ákvarða hvað flyst úr skammtíma- minni yfir í langtímaminnið og hvað gleymist strax. Langtímaminni hefur verið skipt í nokkrar undir- deildir eins og atvikaminni, tungumáiaminni, endurminn- ingaminni og fleiri. Skammtíma- minni virðast byggjast á skamm- æjum raffræðilegum fyrirbærum, en langtímaminnið á langvinnri breytingu á eggjahvítuefnum í taugafrumum. Misgott minni Það er mismunandi, hversu vel fólki gengur að muna. Til eru sögur um einstaklinga sem mundu hina furðulegustu hluti. Fræg er sagan um Tyrkjann Mehmed Ali Halici sem 1967 fór utan að með 6.666 vers úr kóraninum á 6 klukkustund- um. Themistokles var sagður muna andlit og nöfn 20.000 Aþenu- búa. Slíkt minni er þó harla óæski- legt. Heilinn getur munað margt en ekki allt, svo hann verður sífellt að flokka það sem hann sér og heyrir og ákveða hvað muna skuli og hvað ekki. Bestu heilarnir eru sennilega þeir sem geta gleymt því sem skiptir litlu máli en munað allt hitt. Á að geyma það í heilanum sem hægt er að varðveita á næstu hillu? spurði Frakkinn August Forel einu sinni. Minni þeirra, sem muna allt, er illa nothæft, þar sem þeim reynist erfitt að skilja á milli þess sem hefur ein- hverja þýðingu og hins. Gáfur og 1 minni snúast ekki um að muna allt heldur það sem máli skiptir hverju sinni og geta notað minnið í sam- ræmi við það. Aðalatriðið er hvern- ig við munum en ekki hversu mikið. En til að geta munað verður við að geta gleymt. Það er því fullkomlega eðlilegt að sitthvað gleymist í þess- um heimi, þar sem áreitin eru ákaf- lega mörg og sífellt upplýsinga- streymi sem nútímamaðurinn þarf stöðugt að tileinka sér. Einstakling- urinn verður að geta gleymt og þannig unnið úr nýjum upplýsing- um á sama hátt og heilu þjóðfélögin verða að geta gleymt og þannig skapað sér nýja framtíð. Vandamál uppans Maðurinn í Bossfötunum, sem leitaði til mín út af minnisleysi, var sennilega ekki gleymnari en gengur og gerist. Á hinn bóginn gerði hann ómanneskjulegar kröfur til sjálfs sín og áttaði sig ekki á takmörkunum og töfrum minnisins. Það var í raun næsta eðlilegt, að hann gleymdi ýmsu undir því gífurlega álagi sem hann var. Streita og spenna fara illa með einbeitingu og athyglisgáfu og síðan er minninu kennt um, þegar hlutir gleymast við slíkar aðstæður. Verum stundum þakklát gleymsk- unni, eða eins og William James sagði einhvers staðar: „Þeir sem muna allt eru jafnilla staddir og þeir sem gleyma öllu.“ ÓTTAR GUÐMUNDSSON #*' ífuskotfimi, snýst um aö skjóta HVAÐ? EFTIR; ÁftNA MAGNÚSSON Í Leirdal, sem er skammt efan við golf- skálann í Grafárholti, er svokallaður Skeet-völlur. Og hvað er nú það? kwnna margir að spyrja. Jú, þetta er iþrótta- leikvangur haglabyssumanna i Skotfé- lagi Reykjavikwr. Þarna fara fram æfingar og keppni í skotfimi og til að reyna að útskýra gróflega fyrir lesendum hvað það er sem gerist þarna ferst einum félagsmanna lýsingin þann- ig: „Þetta fer þannig fram að á svæð- inu er annars vegar turn og hins vegar mark. Á milli þessara tveggja staða er myndaður hálfhringur þar sem eru 8 mismunandi pallar. í hverjum hring er skotið upp 25 leir- dúfum og er kúnstin sú að reyna að hitta sem flestar þeirra. Þær koma ýmist frá markinu og fara þá í átt að turninum eða öfugt. Stundum koma reyndar tvær dúfur í eihu og fara hvor í sina áttina. Aðeins er notað eitt skot á hverja dúfu, þannig að það ríður á að vera hittinn. Á mótum er keppt um 50,100 eða 200 dúfur, en flest mótanna eru svo- kölluð 100 dúfu-mót og eru þá farnir 4 hringir." Skeet er skandinavískt orð að uppruna og ku það vera dönsk eða norsk kona sem upphaflega átti hugmyndina að þessu heiti á íþrótt- inni, snemma á þessari öld eða seint á þeirri síðustu. Hér er íþróttin nefnd Skeet eða flugskifuskotfimi og dæmi nú hver fyrir sig hvort er þjálla í munni! Þessi íþrótt á mjög vaxandi fylgi að fagna og víða um land er verið að opna Skeet-velli eða þeir verða opn- aðir á næstu misserum. Margir þeirra sem þetta stunda gera það til að ná betri árangri á veiðum, koma þá gjarnan annað slagið til að æfa sig og njóta ráðlegginga þeirra sem reyndari eru. í Leirdal koma saman fjórum sinn- um í viku nokkrir harðir náungar sem sjálfir segjast vera Skeet-hólist- ar, samanber alkóhólistar, og æfa skotfimina. Síðastliðin tvö ár hefur sænski landsliðsþjálfarinn komið hingað til lands og liðsinnt þeim sem hafa áhuga á þessari íþrótt hér og er þegar afráðið að hann komi hingað í maí næstkomandi. Síðan hann fór að koma hingað hefur reyndar árangur manna stórbatnað og sem dæmi um það má nefna að annar handhafi lslandsmetsins í greininni, Einar Páll Garðarsson, hefur náð því að skjóta niður 193 dúfur af 200 á æfingu! Þess má geta að heimsmetið er 196. Annars er Is- landsmetið 184 af 200 og ásamt Páli er það Gunnar Kjartansson sem á heiðurinn af því meti. Kröfur manna til sjálfra sín hafa líka stóraukist með bættum árangri og sem dæmi um það má nefna að fyrir u.þ.b. fjórum árum þótti það ágætisárangur að ná 17—20 dúfum af 25, sem þykir ekki mikið í dag. Þó eiga hérlendir keppendur í þessari grein langt í land miðað við erlenda kollega sína og væntanlega stíga þeir ekki á verðlaunapall á næst- unni. Það sem stendur þeim þó fyrst og fremst fyrir þrifum er ónóg keppnisreynsla, því á stórmótum eru það einkum taugarnar sem klikka, vegna álags. Þessi íþrótt getur ekki talist ódýr í iðkun og jaxlarnir fyrrnefndu, sem mæta á svæðið fjórum sinnum í viku, eyða líklega um það bil 30.000 kr. í þetta á mánuði! Hins vegar eru slíkar upphæðir ekki nauðsynlegar fyrir þá sem einungis stefna að því að verða betri skotmenn, því þeim nægir, eins og áður sagði, að mæta við og við og jafnvel fylgjast með þeim sem lengra eru komnir. Svona rétt til gamans má svo geta þess að byssurnar sem sumir þess- ara kappa nota kosta á bilinu. 150—500.000 út úr búð!

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.