Pressan - 15.02.1990, Blaðsíða 18

Pressan - 15.02.1990, Blaðsíða 18
18 Fimmtudagur 15. febr. 1990 SNÆFELLINGAR Upplýsingafundur um evrópska efnahagssvæðið, EES, verður haldinn á vegum utanríkisráðuneytisins miðvikudag 21. febrúar kl. 21.00 í félagsheimilinu í Ólafsvík Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráöherra hefur framsögu og mun ásamt embættismönnum utanríkisráðuneytisins svara fyrir- spurnum um viðræður Fríverslunarsamtaka Evrópu, EFTA, og Evrópubandalagsins, EB, um myndun sameiginlegs markaðar í Evrópu. Utanríkisráðuneytið M INGÓ í EÐFERÐ — PLATAN ÚR UMFERÐ Bítillinn Ringó Starr borgaði fyr- ir skemmstu tæpar fimm milljónir króna tii þess að koma í veg fyrir að nýjasta hljómplata hans yrði sett á markað í Bandaríkjunum. Á plöt- unni flutti Ringó gömul lög, eins og I Can Help og Ain’t That a Shame, en einnig ný frumsamin lög. Ástæðan fyrir því að Ringó vill láta stöðva útkomu hljómplötunnar er sú, að hann vár á villigötum áfengissýkinnar, þegar hann vann að henni. Núna er Bitillinn búinn að fara í meðferð, ásamt eiginkonu sinni, leikkonunni Barböru Bach, og er allur annar maður. Og þegar hann hlustaði á plötuna frá vímu- tímanum komst hann að því að hún var einfaldlega léleg. Þess vegna er hann tilbúinn að greiða framleið- andanum fyrrnefnda fjárhæð fyrir að henda plötunni á haugana. Hann gerir væntanlega bara bet- ur næst! PREDIKARA- DÖTTIRIN STRIPLAST Bandaríski sjónvarps-predikarinn Jim Bakker er í slæmum málum, eins og löngu er frægt orðið. Hann hrapaði af stalli sínum, þegar upp komst að hann — harðgiftur maður- inn — hafði sofið hjá ungri stúlku, sem áður hafði látið mynda sig bera í tímaritinu Playboy. í kjölfarið komu síðan uppljóstranir um með- ferð hans á fjármunum, sem sjón- varpsáhorfendur höfðu gefið í góðri trú um að þeim yrði varið í annað en munaðarlíf og lystisemdir. Nýjustu fréttir af Bakker-fjölskyld- unni eru hins vegar þær, að nú er 19 ára gömul dóttir predikarans, Tammy Sue Bakker, að hugsa um að fækka fötum fyrir ljósmyndara Playboy. Og til hvers i ósköpunum? Jú, til að útvega peninga fyrir pabba gamla, sem þarf að greiða lögfræð- ingum háar fjárhæðir fyrir að verja sig. Tvisvar sinnum var búið að ákveða stað og stund fyrir mynda- tökuna, en í bæði skiptin hætti Tammy Sue við. Fjöiskyldan hefur nefnilega lagt mikla áherslu á aö dóttirin bæti ekki gráu ofan á svart með því að striplast á almannafæri, þrátt fyrir að fregnir hermi að greiðslan eigi að vera litlar 11 millj- ónir króna. Opið: KRINGLUNNI: Virka daga .... Laugardaga .. SÆTÚNI 8: Virka daga .... Laugardaga .. kl. 10-19 kl. 10-16 kl. 09-18 lokað Heimilistæki hf Sætúni 8 SÍMI 69 15 15 • Kringlunni SÍMI6915 20 'ísamuH^um Ch tM\ N-Á-M-A-N NAMU NAMSSTYRKIR Landsbanki íslands auglýsir eftir umsóknum um tvo styrki sem veittir verða NÁMU-félögum. D Einungis aðilar að námsmannaþjónustu Landsbanka íslands, NÁMUNNI, eiga rétt á að sækja um þessa styrki. D Allir þeir, sem gerst hafa félagar í NÁM- UNNI fyrir 15. mars 1990, eiga rétt á að sækja um styrk vegna þessa námsárs. IÉÚÉ Hvor styrkur er að upphæð 100 þúsund krónur og verða þeir afhentir í byrjun apríl 1990. 0 Umsóknir er tilgreini námsferil, heimilishagi og framtíðaráform, skal skilað til Landsbanka ís- lands eigi síðar en 15. mars næstkomandi. Umsóknir sendist til: Landsbanki fslands, Markaðssvið, b.í. Ingólfs Guðmundssonar, Austurstrœti 11, 155 Reykjavík. Náman er nafn á heildarþjónustu Landsbanka íslands, sem er sér- staklega sniðin að þörfum námsfólks. Allir námsmenn 18 ára og eldri eiga rétt á að scekja um aðild að þessari þjónustu. I NÁMUNNl er nú m.a.: - Einkareikningur með yfirdráttarheimild, 3 ókeypis tékkhefti, einkareikningslán o.fl. - Kjörbók, háir vextir, ekkert úttektargjald ef keypt eru verðbréf. - Visa-kort strax við upphaf viðskipta. - Námslokalán, allt að 500.000,-, lánstími allt að 5 ár, viðtal við bankastjóra óþarft. - Ráðdeild, þjónusturit Landsbankans, ókeypis áskrift. - Filofax-minnisbók, ókeypis eftir 6 mánaða skilvís viðskipti. - Styrkveiting, tveir styrkir á hverju ári. - Dreifing og móltaka gagna fyrir Lánasjóðinn, eyðublöð og bœklingar LÍN liggja frammi I afgreiðslum Landsbankans. Af- henda má öll gögn sem eiga að fara til LÍN í afgreiðslum bankans. Viðkomandi afgreiðslustaður sér síðan um að koma gögnunum til LÍN samdœgurs. - Ráðgjöf og upplýsingar, sérstök mappa með upplýsingum, út- reikningum á greiðslubyrði lána o.fl. Til að öðlast þessi réttindi þarf aðeins að stofna Kjörbók og Einka- reikning Peir námsmenn sem fá lán frá LÍN verða einnig að leggja námslánin inn á Einkareikning.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.