Pressan - 15.02.1990, Qupperneq 21
Fimmtudagur 15. febr. 1990
21
SKODA-BRANDARAR
„Eigendur Skoda-bifreiða hafa
efni á kímnigáfu!" Svona hljóðaði
auglýsing í bresku dagblaði en lengi
vel nutu tékkneskir brandarakarlar
þess að búa til brandara um þessa
bíltegund. Margir brandaranna eru
að verða úr sér gengnir, þar sem
þeir gengu út á að verkamenn í
Skoda-verksmiðjunum væru mest-
megnis fangar. Vaclav Havel hefur
veitt 1.600 þeirra frelsi nú þegar, eft-
ir rúman mánuð í valdastóli, og
mannfæð í verksmiðjunni veldur
því að framleiöslan gengur nú hæg-
ar en ella. Hvernig veistu að
Skoda er að miklu leyti búinn til
af föngum? hljóðaði ein skrýtlan.
Og svarið: Af því að um ieið og
hann kemst út úr verksmiðjunni
gengur hann og gengur og geng-
ur og gengur . . .!
Og fleiri brandarar/gátur hafa
verið búin til um Skoda-bíla:
Hvernig er hægt að tvöfalda
verðmæti Skodans?
Með því að fylla hann af bens-
ini.
PRESSU
u
næstu helgi mun breska
útvarpsstöðin BBC helga Skand-
inavíuþjóðum stóran hluta af dag-
skrá sinni. Skipar íslenskt menning-
arefni þar veglegan sess, því flutt
verður leikrit sem gert er upp úr
Njálu. Er það fræðimaðurinn
kunni Hermann Pálsson prófess-
or sem samið hefur leikgerð verks-
ins fyrir Breta . . .
«
AVkráning fóstureyðingarpillu
olli miklu fjaðrafoki í Frakklandi síð-
astliðið sumar. Pillan einfaldar
framkvæmd fóstureyðinga til mik-
illa muna, því ef hún er tekin inn áð-
ur en sjö vikur eru liðnar af með-
göngutímanum er hægt að komast
hjá öðrum aðgerðum. Kristnir hóp-
ar í Frakklandi kröfðust þess að pill-
an yrði fjarlægð af markaðnum en
stjórnvöld neituðu. Miklar deilur
urðu einnig um þessa pillu á Norð-
urlöndum, en hún er nú seld í Dan-
mörku og klínískar tilraunir í gangi
í Noregi. Hér á landi er pillan ekki
skráð. Aftur á móti er afbrigði af
henni notað í sambandi við fóstur-
eyðingar, en eingöngu á spítulunum
og í sambandi við aðgerð, til þess að
mýkja legið og opna það. Hér er
ekki hægt að fá pillu sem kemur í
staðinn fyrir aðgerð, en Bessi
Gíslason lyfjafræðingur segir að
um sama efnið sé að ræða . . .
■ I
daginn sáum við auglýst á
vegum jafnréttisnefndar Banda-
'ags háskólamanna námskeið fyr-
r konur í stjórnunarstörfum. Pað
vakti athygli við þessa auglýsingu
að af fimm kennurum á námskeið-
inu var einungis ein kona . . .
Cartier í París:
EÐALSTEINAR
Menn hafa mikið dálæti á eðalsteinum
og skarti i Petit Palais i Paris eða Litlu
höllinni. Þar voru fjársjóðir Tutankha-
mon sýndir á sinum tima og nú nýlega
krúnudjásn Danadrottningar.
Hver er kosturinn við aö hægt
er að hita afturrúðuna á Skoda?
Hitinn frá henni hlýjar þér á
höndunum þegar þú ert að ýta
bílnum.
í hverju felst bensínsparnaö-
ur Skoda-bifreiða?
Þær fara ekki í gang.
Hver er munurinn á Skoda og
inflúensu?
Þaö er hægt að losna við flens-
una.
Hvað gerist þegar þú setur
ryðeyðandi efni á Skoda?
Hann hverfur.
Hvernig er hægt að fara fram
úr Skoda?
Meö því að hlaupa.
Hvaö heitir Skoda turbo?
Lada.
Hvers vegna þarftu að hafa
tvö varahjól í Skodanum?
Svo þú getir hjólað heim.
Hvað gerðist eftir að Skodinn
ók á músina?
Músinni líður vel en Skodinn
dó.
Nú stendur þar yfir sýning á skart-
gripum sem gerðir hafa verið af
hinu heimsfræga Cartier-fyrirtæki,
sem í tímans rás hefur hannað skart-
gripi fyrir kóngafólk í Evrópu og
auðkýfinga heimsins. Síðasta rússn-
eska keisaraynjan lét hina dverg-
högu Cartier-bræður smíða fyrir sig
mikilfengleg höfuðdjásn og Viktoría
dróttning mun hafa pantað nokkur
stykki hjá þeim.
Fyrirtækið var stofnað árið 1847
af ættföðurnum, Louis Francois
Cartier, í þrön'gri götu frá miðöldum
skammt frá aðalmarkaði borgarinn-
ar, þar sem nú er Pompidou-safnið,
en um aldamót var það flutt í dýr-
ustu götu Parísarborgar, rue de la
Paix, enda hafði þá Cartier-fjöl-
skyldan auðgast svo mjög á skart-
gripasölunni að hún gat um leið
opnað útibú i London og New Yot’k.
Gullsmiðir Cartiers hafa sótt hug-
myndir sínar til margra landa og í
skartgripum þeirra frá ýmsum tím-
um sjást greinilega kíirversk, md-
versk og egypsk áhrif. Raunar
smíða þeir ýmislegt annað en skart-
gripi. A sýningunni í Petit Palais má
sjá forkunnarfagra hluti, svo sem
samkvæmisveski, ilmvatnsglös,
borðklukkur úr gulli og kristal og
fíngerð úr úr hvítagulli, sett dem-
öntum. Parna má sjá sverð með
hörpu Orfeusar á handfanginu, al-
sett smarögðum, rúbínum og dem-
öntum, smíöaö fyrir skáldið Jean
Cocteau, þegar hann var kjörinn í
frönsku akademíuna 1955, og nælu
leikkonunnar Ninu Dyer, lítið tígris-
dýr meö 602 demöntum og 69 safír-
um. Parna er líka hjartalöguð næla,
hlaðin demöntum og rúbínum,
pöntuð af skötuhjúum, kenndum
við Windsor, í tilefni af tuttugu ára
brúökaupsafmæli þeirra árið 1957.
OKKAR KJÖRORÐ
GÆÐI OG GÓÐ ÞJÓNUSTA
ÞAR SEM ÞEIR VERSLA FÖTIN
ÞAÐ ER ÞESS VIRÐIAÐ LÍTA INN TIL OKKAR
JAKKAFÖT - JAKKAR - BUXUfí - FRAKKAR
SKYRTUR OG PEYSUR
FRÁ FRAKKLANDI
V.ÞYSKALANDI
OG ÍTALÍU
HERRAFATAVERSLUNIN
VALENTINO
IÐNAÐARMANNAHUSINU
HALLVEIGARSTIG 1
Sími 621617