Pressan - 15.02.1990, Síða 23
Fimmtudagur 15. febr. 1990
23
'glegri en aðrir — og nú telja
sig vita hvers vegna
fóru þeir í langa og stranga sálfræði-
meðferð.
Þeir Earle og Imrie eru nefnilega
sannfærðir um að ótímabær elli-
merki eigi langflest rætur sínar að
rekja til heiians og því verði að tak-
ast á við bæði líkama og sál til þess
að sporna við þróuninni; auðvitað
með tilliti til þarfa og aðstæðna
hvers og eins. Um þetta hafa þeir
kollegarnir raunar skrifað bók, sem
þeir kalla Your Vitality Qoutient,
en það má t.d. þýða sem Lífsorku-
kvóti þinn. Einnig hafa þeir sett á
markað sérstaka bætiefnablöndu,
sem þeir kalla The Vitality Qouti-
ent Vitamin and Mineral Supple-
ment og hefur að geyma ýmis vít-
amín og steinefni. Bókina er eflaust
hægt að panta í gegnum íslenskar
bókabúðir, ef lesendur skyldu hafa
áhuga á því, en ekki vitum við til að
bætiefnablandan fáist hér á landi.
Konur eldast
hraðar, en. . .
Hin rúmlega sex hundruð til-
raunadýr Kanadamannanna
breyttu lifnaðarháttum sínum sam-
'kvæmt framangreindri formúlu og
undirgengust sálfræðimeðferð.
Þetta skilaði þeim árangri að eftir
fimm mánuði höfðu þátttakendurn-
ir að meðaltali lækkað aldur líkam-
ans um heil 10,2 ár, en sumir höfðu
jafnvel „yngst“ mun meira. Þetta
kom fram í ítarlegri könnun á líkam-
legu og andlegu ásigkomulagi fólks-
ins, sem framkvæmd var af sérfræð-
ingum bæði fyrir og eftir „átakið",
en þeir höfðu að sjálfsögðu ekki
Því er síðan við að bæta að niður-
staða framhaldsrannsóknar á fyrsta
hópnum, sem kanadísku læknarnir
„meðhöndluðu", sýnir að um leið
og þróunin er orðin jákvæð heldur
hún áfram að vera það. I ljós kom að
veikindi fólks í fyrsta tilraunahópn-
um höfðu minnkað um heil 62%
miðað við ástandið áður en blaðinu
var snúið við.
Hamingja
og frábært kynlíf
En það eru fleiri vísindamenn —
sem og leikmenn — sem velta fyrir
sér hvers vegna sumir eru unglegri
en aðrir. Sálfræðingur við háskól-
ann í Edinborg, Dr David Weeks,
kannar nú leyndardóminn að baki
þess, þegar fólk lítur út fyrir að vera
mörgum árum yngra en það raun-
verulega er. En hann tók annan pól
Þú eldist fyrr, ef þú...
... reykir
... drekkur áfengi eöa notar aðra vímugjafa
... borðar lélega fæðu
... hreyfir þig lítið
... hefur fastmótuð og neikvæð viðhorf
til lífsins
er? En hverju sem því líður, þá eru
þessir lukkunnar pamfílar líka kraft-
meiri og hraustari en aðrir og hafa
mikla ánægju af kynlífi, sem þeir
stunda af krafti. Þetta fólk fer ekki til
læknis nema á 8 til 9 ára fresti (með-
altalið í Bretlandi er tvisvar á ári!) og
er langflest algjörlega laust við
streitu. Samt var meirihlutinn í
vinnu, þar sem gerðar voru miklar
kröfur, og margir höfðu lent oftar en
einu sinni i hjónaskilnaði.
Hugsa eins og
unglömb — eru
eins og unglömb
Hinn breski Dr. Weeks segir að
hamingjusama og unglega fólkið,
sem hann hefur rannsakað, neiti
bókstaflega að láta draga sig niður í
slen og þunglyndi. Þegar eitthvað
bjátar á leita þessir einstaklingar
Sigrún Edda Björnsdóttir leikkona, sem fyrir nokkrum árum fór meö
hlutverk hinnar bráðungu Línu langsokks, er lítil, grönn og stelpuleg.
Þórólfur Þórlindsson pró-
fessor við Háskóla íslands
þykir með unglegri og
hressari mönnum, enda
duglegur aö skokka.
Bryndís Schram er glæsi-
legri en fjölmargar mun
yngri konur, þó hún sé kom-
in á sextugsaldur.
í hæðina en kollegar hans í Kanada.
Hann velur einmitt tilraunadýr, sem
eru sérlega ungleg, og hefur rann-
sakað yfir eitt þúsund manns. Og
Weeks telur sig geta fullyrt að ung-
legt fólk er alveg áberandi ham-
ingjusamt og lífsglatt!
Það má auðvitað velta því fyrir
sér hvort kom á undan, eggið eða
hænan. Er þetta fólk svona hresst
og hamingjusamt af því það er vel á
sig komið andlega og líkamlega,
eða er það svona vel á sig komið
vegna þess hve hamingjusamt það
Aíleiðingarnar eru þær að
þú...
... færð fleiri hrukkur í andlitið en jafnaldrarnir
... þreytist fljótt
... verður slæm/ur á taugum
... sýnir lítið frumkvæði
... færð króníska sjúkdóma
... þjáist af svefnleysi
... færð höfuðverkjaköst
... býrð yfir lítilli orku
hugmynd um raunverulegan aldur
tilraunadýranna.
Konur eldast raunar hraðar en
karlar. Það er þó engin ástæða til að
örvænta, því þegar þær byrja að
sporna gegn hrörnuninni gengur
þeim það töluvert betur en körlum.
Télja læknarnir að konur snúi ofan
af líkamlegu aldursklukkunni á um
þriðjungi meiri hraða en karlmenn.
En bæði karlar og konur, sem þátt
tóku í þessu átaki í Kanada, sáu
greinilegan mun á sér. Hrukkur og
pokar undir augum minnkuðu, húð-
in varð almennt frísklegri og fólkið
varð glaðlegra og hressilegra í fram-
með vandamál sín til trúnaðarvina
og fá aðstoð við að leysa úr þeim.
Og þeir gleyma aldrei að horfa á
hinar björtu hliðar tilverunnar, þó
syrti í álinn á einhverjum vígstöðv-
um — alveg eins og Pollýanna.
Það var iíka áberandi að konurn-
ar voru yfir höfuð mjög jafnréttis-
sinnaðar og harðar á því að konur
gæfu körlum ekkert eftir. Margar
eldri konurnar, sem komnar voru á
breytingaskeiðið, sögðust fá horm-
ónameðferð og fullyrtu að sér hefði
aldrei á ævinni liðið betur en eftir
tíðahvörfin, bæði andlega og líkam-
lega.
Fáir úr hópnum reyktu eða tóku
róandi lyf eða svefnlyf. Margir not-
uðu áfengi í hófi og reyndu að borða
heilsusamlega fæðu, þó ekki væri
um neinar öfgar að ræða í þeim efn-
um. Einnig var algengt að þetta fólk
færi u.þ.b. þrisvar í viku í gönguferð
í hálftíma eða svo.
Dr. Weeks telur þó „leyndarmál-
ið“ fyrst og fremst felast í viðhorfi
einstaklinganna sjálfra til aldurs. Ef
þeim finnist þeir vera unglömb fram
eftir öllum aldri, þá séu þeir eins og
unglömb í útliti!
Steinunn Jóhannesdóttir, leikkona og rit-
höfundur, er ein þeirra heppnu, sem virð-
ast ekkert breytast með árunum.