Pressan - 15.02.1990, Síða 28

Pressan - 15.02.1990, Síða 28
PRESSU CS Wið undanförnu hefur borið töluvert á því að austurlenskar kon- ur, sem giftar eru íslenskum mönn- um og búsettar hér á landi, hafi sótt um að ráða systur sínar til sín sem svokallaðar ,,au-pair“-stúlkur. Beiðnum um þetta hefur hins vegar verið hafnað og konunum bent á að systur þeirra geti komið sem gestir í heimsókn til íslands með þriggja mánaða landvistarleyfi... Itl k leynd hefur hvílt yfir framboðsmálum sjálfstæðis- manna í Reykjavík eftir að ákveð- ið var að hverfa frá prófkjöri og láta uppstillingu ráðast á bak við luktar dyr. Þó höfum við óljósar fregnir af því að niðurstaðan muni koma á óvart. Jón Hjaltalín Magnússon komi sterklega til greina í öruggt sæti auk ónefndrar konu sem verði ofarlega. Hins vegar verði Júlíus Hafstein og Jóna Gróa Sigurðar- dóttir látin víkja. Munu nefndar- menn í uppstillingarnefndinni reyna að sýna fram á kosti þessa fyr- irkomulags með því að koma með ný andlit inn á framboðslistana . . . Rl reglugerð um greiðslur al- mannatrygginga í lyfjakostnaði á að beina lyfjanotkun inn á nýjar braut- ir. Stjórnvöld vilja fá lækna til þess að velja ódýrari kostinn þar sem möguleiki á vali er fyrir hendi. Yfir- leitt eru eftirlíkingar lyfja mun ódýr- ari en frumgerðin. Ástæðan fyrir þessu er meðal annars sú að fyrir- tækin sem þróa lyfið hafa kostað til margra ára rannsóknum á lyfinu. Sum þessara fyrirtækja vinna stöð- ugt að þróun nýrra lyfja sem hljóta að verða dýrari en eftirlíkingar þeirra, sem eru framleiddar með iangtum minni tilkostnaði. Það eru fleiri en íslendingar sem vilja spara ríkisútgjöld með því að nota ódýrar eftirlíkingar. Þeir lyfjafræðingar sem vinna að rannsóknum á nýjum lyfjum mótmæla þessu, á þeim for- sendum að ef enginn tími að kaupa frumgerðina muni ekki lengur borga sig að þróa ný lyf. Þar með stöðvist nær allar framfarir á þessu sviði, og ný lyf við alvarlegum sjúk- dómum verði ekki fundin upp. Að- eins lítill hluti nýrra lyfja er árangur háskólarannsókna. Margir læknar eru mótfallnir því að ríkið skipti sér af lyfjavali og sumir telja að eftirlik- ingarnar séu ekki alltaf jafnar frum- gerðinni að gæðum ... ■ að er erfitt að bera saman það verð sem notendur hitaveitna um landið þurfa að greiða fyrir heita vatnið. Nefnd á vegum Orkustofn- unar, iðnaðarráðuneytisins og Sambands íslenskra hitaveitna er að vinna að betri samanburði, en hingað til hafa margir verið ósáttir við forsendur hans. I samanburðin- um er gefið upp að allir noti sama magn á rúmmetra. Þá er til dæmis ekki tekið með í reikninginn að þar sem heita vatnið er dýrast notar fólk eins lítið af því og hægt er, en þar sem vatnið er ódýrast er ef til vill notað óeðlilega mikið. Þannig geti verðmunur milli hitaveitna verið enn meiri enn sýnist. Samkvæmt gamla samanburðinum borgar fólk á dýrustu svæðunum samt tvöfalt meira en gert er á þeim ódýrustu. Nokkrar dýrustu hitaveitur á land- inu þjóna Akranesi og Borgarfirði, Akureyri, Eyrarbakka og Stokks- eyri, Hellu og Hvolsvelli, Vest- mannaeyjum og að lokum má telja Bessastaðahrepp. Ódýrast er heita vatnið á Seltjarn- arnesi, Selfossi, Sauðárkróki, Flúð- um, Húsavík og Hveragerði. Reykja- vík og Mosfellssveit eru einnig í þessum hópi... fl ^MHfar athyglisverðar upplýsing- ar komu fram í þætti um nauðgara á Stöð 2 siðastliðið þriðjudags- kvöld. Þátturinn var bandarískur, svo tölur eiga við um það land, en þarna var m.a. upplýst að ein kona af hverjum fimm getur búist við þvi að verða einhvern tímann á lífs- leiðinni fórnarlamb nauðgara. Ein- ungis tekst að hafa hendur í hári eins nauðgara af hverjum sextíu og 80% nauðga aftur, eftir að þeir hafa afplánað refsingu fyrir glæp- inn. Og þetta eru ekki neinir einbú- ar, sem fá ekki kynferðislega útrás heima hjá sér, því tæplega 70% nauðgaranna eru í hjónabandi eða sambúð. Þeir eiga það hins vegar margir sameiginlegt, eða 60%, að þeim var sjálfum nauðgað í æsku ... lHinir nýfrágengnu kjarasamn- ingar hafa greinilega skerpt verð- lagsvitund almennings í landinu, því fólk hefur verið duglegt að hringja til verkalýðsfélaganna á síð- ustu dögum og benda á hækkun á vöruverði. Við fréttum t.d. að skrif- stofu ASÍ hefði verið tilkynnt um hækkun á verði svínasnitsels í Hagkaup. Alþýðusambandið brá skjótt við, hafði samband við versl- unina og í kjölfarið var verðið snar- lega lækkað aftur ... c ^Pnyrtirinn Heiðar Jónsson ku enn gera það gott út á fríbirtingu ríkissjónvarpsins á starfsemi hans í áramótaskaupinu. Upp- pantað er á litgreiningarnám- skeið hjá Heiðari fram í júní... yrir stuttu voru 80 bílar boðnir upp hjá tollstjóra. Þessir bílar komu flestir úr Vðkuportinu þar sem þeir hafa sumir staðið frá því í sumar og líklega hafa þeir verið þar að meðaltali tvo mánuði hver. Leig- an fyrir að geyma bíla þarna er tæp- ar 400 krónur á sólarhring. Það þýðir að fyrir þessa áttatíu bíla fær Björgunarfélagið Vaka um tvær milljónir króna. Það virðist sem- sagt vera góður bissness að eiga port, enda hafa þeir hjá Vöku veitt þessa þjónustu — ásamt annarri — í þrjátíu ár . . . I verksmiðju Sanitas er um þess- ar mundir verið að þróa nýja bjór- tegund. Þegar hún kemur á markað verður hins vegar hætt að selja Sanitas-pilsner, sem inniheldur 4,6% áfengismagn. Nýja tegundin verður enn veikari, eða einungis um 4%, og jafngildir þá ein flaska af henni um það bil tveimur flöskum af „venjulegum" pilsner, sem fæst í sjoppum og matvöruverslunum .. . lögin sem komust í úrslit i Euro- vision-sönglagakeppninni i ár munu væntanlega ekki heyrast nema á rás 2 á næstunni. Ástæðan er sögð sú að þar sem RÚV hafi tek- ið lögin upp „live“ í þetta sinn hafi ríkisútvarpið einkarétt á flutningi þeirra, en í fyrra fékk höfundur verðlaunalagsins 200.000 krónur til að útsetja það og mátti því ráða sjálfur hvar það var leikið. Núna snýr dæmið hins vegar þannig að ef aðrar útvarpsstöðvar en ríkisút- varpið vilja flytja lögin verða þær að greiða lagahöfundum fyrir. Mikill urgur mun vera í mönnum á frjálsu útvarpsstöðvunum vegna þessa og þeir jafnvel ætla sér þann mótleik að spila lögin hreint ekki neitt, sem að sjálfsögðu myndi koma sér verst fyrir lagahöfundana .. . SEM Fjölbreytt úrval Örugglega eitthvað fyrir þig. Þú velur þína stærð eftir stærðatöflunni á L’eggs söluhillunum. Leggs Sheer Energy Hvíldarsokkabuxur Sheer Energy sokkabuxurnar eru þunnar, fallegar á fæti og endingargóðar. Framleiddar úr sérstökum teygjuþræði, sem vafinn er næloni. Nudda, fríska upp og viðhalda þrótti fótleggjanna daglangt. 40 den sokkar, 70 den buxur. Leggs Control Top Sokkabuxur Mjög teygjanlegar og halda upprunalegum eiginleikum lengi. Þunnar og fallegar á fæti, falla þétt að maga og mjöðmum. 20 den í sokkum, 70 den í buxum. igs Hnésokkar Með breiðu stroffi, sem hindrar ekki blóðrásina. Haldast vel uppi og eru einstaklega þægilegir. Tvö pör í eggi. Little LeggsTights Sokkabuxur fyrir telpur. Hlýjar, mjúkar og þægilegar. Hæfilega stífar, poka ekki eða falla niður. Sterkar og endingargóðar. L'eggs Sheer Elegance Samkvæmissokkabuxur Líta út og eru viðkomu eins og ekta silki. Þunnar, fínlegar, falla mjög vel að líkamanum. 20 den sokkar, 35 den buxur. Einnig stífar að ofan með 70 den buxum. Lfeggs Sheer Elegance Silken Mist „Lúxus“-sokkabuxur. Einstök efnasamsetning hárfíns þráðar gerir Silken Mist næfurþunnar, fisléttar og nær gagnsæjar. Falla þétt að líkamanum, fótleggirnir njóta sín til hins ýtrasta. Stífar að ofan. Einkaumboö íslenskV//// AmftriwTrn

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.