Pressan - 10.01.1991, Blaðsíða 9
FIMMTUDAGUR PRESSAN 10. JANÚAR 1991
9
Jón Inqvarsson stiórnarformaður oq Friðrik Pálsson forstióri SH
ÆTTIIM AD GERA MEIRA AF ÞESSU
ú er frágengið að Stein-
grímur Hermannsson taki fyrsta
sætið á lista Framsóknarflokksins í
Reykjavík og mun
Finnur Ingólfsson
sem hreppti sætið í
frægu forvali vera
upphafsmaður þess-
arar fléttu. Hann
færist þá niður í ann-
að sæti en sam-
kvæmt nýlegri skoðanakönnun nær
flokkurinn tveimur þingsætum í
vor. Málefni Reykjaneskjördæmis
eru meira á huldu enda lítill einhug-
ur um Jóhann Einvarðsson sem
lenti í öðru sæti á eftir Steingrími í
forvali. Meðal annars er rætt um að
fá nýjan kandídat í fyrsta sætið og
hafa nokkur nöfn verið nefnd:
Helgi Pétursson, útvarpsstjóri á
Aðalstöðinni, Siv Fridleifsdóttir,
oddviti ungra framsóknarmanna,
og Jóhann Pétur Sveinsson lög-
fræðingur. Málin skýrast endanlega
á allra næstu dögum en það er farið
að volgna undir Jóhanni. . .
F ramarar hafa gert Sævari
Jónssyni, knattspyrnumanni í Val
og besta leikmanni síðasta keppnis-
tímabils, tilboð um að ganga yfir í
Fram. Framarar gera sér góðar von-
ir um að Sævar taki tilboðinu. Með
innihald tilboðsins er farið sem
mannsmorð. Eins og knattspyrnu-
áhugamenn vita missa Framarar
einn sterkasta varnarmann sinn,
Viðar Þorkelsson, þar sem hann
ætlar að taka sér frí frá fótboltanum
og er Sævari ætlað að fylla skarðið
sem Viðar skilur eftir . . .
mM
■ ^ú hefur verið ákveðið hver
verður næsti forstöðumaður nýju
sundlaugarinnar í Kópavogi. 17 um-
sækjendur voru um
forstöðumannsstarf-
ið en ákveðið var að
tala bara við þrjá
þeirra. Um leið var
haft samband við
Steinar Lúðvíks-
son, núverandi for-
Nú er uppi gagnrýni á mikinn
kostnad uið yfirsljórn SH. Meðal
annars hafa verið nefndir tveir
stjórnarfundir, annar í París og hinn
í Hamborg. Einnig er nefndur til lúx-
usbíll stjórnarformannsins.
Jón: ,,Það er ekkert óeðlilegt að
framleiðendur fari í svona ferðir og
kynnist markaðnum. Þetta tækifæri
var notað til að halda stjórnarfundi
í bá',-■"- ^ ^ssum borgum. Við höf-
um tengio gagnrýni fyrir þetta, ég
ætla ekki að neita því. Varðandi bíl-
inn þykir mér sú gagnrýni vera
ómakleg. Bíll hefur verið og er hluti
af starfskjörum starfandi stjórnar-
formanns í áratugi og ég gekk inn í
þau kjör."
Friðrik: ,,Mér þykir þessi gagn-
rýni vera út í hött. Ef stjórn næst
stærsta fyrirtækis landsins getur
ekki án gagnrýni farið og kynnt sér
starf dótturfyrirtækja erlendis þá
þykir mér það vera úr takti við tím-
ann. Við ættum að gera miklu meira
af þessu. Það er ekkert bruðl í þessu.
Við ferðumst alltaf á ódýrustu far-
gjöldum svo framarlega sem það
fellur að okkar ferðum. Allur rekstr-
arkostnaður hjá okkur er lítill. Við
erum lítið fyrirtæki, með um eitt
hundrað starfsmenn. Við getum
staðið reikningsskil gerða okkar
hvar sem er og hvenær sem er.“
— Þið eruð gagnrýndir fyrir að
vera í litlum og nánast engum
tengslum við framleiöendurna?
Friðrik: „Auðvitað vildum við
hafa meiri tíma til að fara út á meðal
félagsmanna. Skrifborðin toga tals-
vert í okkur. Við lendum í því að sitja
við þau og leysa mál. Við höfum
ekkert á móti því að ferðast. Ferða-
lög eru að vísu tímafrek. Ég get líka
séð að það megi bæta þessi sam-
skipti með því að þeir komi til okkar
þegar þeir eru á ferð í Reykjavík.
Þessi samskipti eiga að vera mikil."
Jón: „Ég vísa því á bug að það sé
erfitt að ná sambandi við mig þegar
ég er á landinu. Starfsemi Sölumið-
stöðvarinnar fer mikið fram á er-
lendri grundu og það hlýtur því að
vera í okkar verkahring að ferðast
til útlanda."
— Það fer ekki á milli mála að fé-
lagsmönnum, mörgum hverjum, er
ofarlega í huga hversu sjaldan þið
sjáist í fyrirtœkjunum.
Friörik: „Það gleður okkur að
heyra þetta. I hvert einasta skipti
sem við höfum farið út á land, sem
við reynum að gera eins oft og við
getum, þá eru þar skemmtilegir og
uppbyggilegir fundir. Mér þykja það
vera góð tíðindi ef mönnum þykir
slæmt að sjá okkur sjaldan."
Jón: „Við höfum byrjað að færa
stjórnarfundi út á land. í sumar vor-
um við með stjórnarfund á Vest-
fjörðum og áður höfðum við verið
með fund á Akureyri."
— Tvö stór frystihús œtluðu að
hœtta um áramót. Það verður til
þess að þið farið í skyndi til Vest-
mannaeyja.
Jón: „Það voru atriði sem þeir
voru ekki ánægðir með. Meðal ann-
ars var fyrir hendi gagnrýni á ýmsa
þætti í starfseminni, sem snúa að
þeim.“
Friðrik: „Það var meðal annars
gagnrýnt að samþykkt var á síðasta
ári að leggja á sérstakt afgreiðslu-
gjald á flök til Bandaríkjanna, tvö
sent á pund.“
— Var ákveðið að falla frá af-
greiðslugjaldinu?
Jón: „Nei. Þetta var ákvörðun
stjórnarinnar. Þess vegna vorum við
ekki til þess bærir.“
Friðrik: „Að sjálfsögðu verða öll
þessi mál rædd mjög opinskátt á
stjórnarfundum. Á fundinum var
einnig rætt um fraktmál. Þeir voru
með hugmyndir um að hægt væri
að fá hagstæðari samninga en við
höfum við Eimskip."
Jón: „Fyrir fáum árum var tekin
ákvörðun um að bjóða út flutninga.
Við það lækkaði kostnaðurinn um-
talsvert. Auðvitað eru þetta atriði
sem verður alltaf að hafa eftirlit
með og það er gert. Af okkar hálfu
hefur Bjarni Lúðvíksson annast
þessa samninga. Ég vil taka fram að
sem stjórnarmaður í Eimskipum og
stjórnarformaður SH tek ég ekki
þátt í þessum samningum og hef
aldrei gert. Mér hefur ekki þótt það
fara saman.“
— Nú hefur samstarfsaðilum ykk-
arfœkkað um tvo. Erþað ekkiáfall?
Friðrik: „Þeir sem eru í viðskipt-
um leggja gjarna upp úr því að hafa
viðskiptin sem mest. Það verður
líka að hafa þau sem best. Ég trúi
ekki á viðskipti milli aðila ef báðir
eru ekki sæmilega sáttir. Þau við-
skipti stæðu aidrei mjög lengi. Mér
finnst það fullkomlega jafn eðlilegt
að aðili ákveði að fara út úr við-
skiptasambandi og að ganga til sam-
starfs við einhvern annan. Þetta er
mismunandi mat manna á mark-
aðnum og hvað þeir telja sig geta
fengið fyrir sínar afurðir."
Jón: „Það er grundvöllurinn í
okkar samþykktum að menn geta
gengið úr samstarfi við okkur hve-
nær sem er. Það eru ákveðnar leik-
reglur. Þeir sem ganga út um ára-
mót eru bundnir okkur með sína
framleiðslu í níu mánuði. Fyrir
þremur árum var tíminn eitt ár.
Menn eru í framleiðslu og það er bú-
ið að gera samninga og menn eru
með umbúðir og fleira og þess
vegna nauðsynlegt að hafa þennan
frest.“
— Sjónarmið þeirra sem reka
minni frystihúsin heyrast mér vera
þau að Sölumiðstöðin sé orðin mik-
ið bákn og að þeir hafi ekki bol-
magn til að taka þátt í þessu öllu.
Friðrik: „Þessi rök snúa algjörlega
öfugt við mér. Það hefur alla tíð ver-
ið þannig, bæði hér og hjá SÍF og
SÍS, að þeir minni njóta mjög góðs af
því að stærri fyrirtækin standa aðal-
lega að því að viðhalda mörkuðun-
um. Ef við gefum okkur það að þessi
hús geti selt allan sinn fisk á hæsta
verði, án þess að SH komi þar nærri,
þá er það þeirra ákvörðun að gera
það. Þetta er mat hvers fyrir sig. Ég
hefði skilið þessi rök ef þau hefðu
komið frá stóru fyrirtækjunum. Þau
bera uppi stóran hluta af rekstrin-
um. Þeir minni njóta góðs af þessu
en stóru fyrirtækin minnast aldrei á
þetta.“
Jón: „Auk þess eru aðeins fá stór
fyrirtæki sem eru í stakk búin til
þess að annast raunverulega sölu-
starfsemi. Ég er ekki að tala um að-
stæður eins og í dag þar sem eftir-
spurnin eftir fiski er það mikil að
það sem unnið er er nánast rifið
beint af hnífunum. Það vantar alls
staðar fisk."
Friðrik: „Þessi rök koma ekki frá
Vestmannaeyjum. Megnið af þeim
rökum sem við erum að hlusta á
núna eru ekki frá Eyjamönnunum.
Þessi rök koma annars staðar frá.
Það yrði hagur margra ef SH missti
flugið. Við eigum ekki að vera hér
að hlusta á þá sem vilja níða af okk-
ur skóinn. Við eigum að fara út á
markaðina og heyra hvað er sagt
þar. Icelandic, vörumerki SH, nýtur
alls staðar álits. Fyrirtækið er talið
áreiðanlegt, varan góð og markaðs-
setningin er góð. Þetta segjum við
með stolti, en ekki monti.“
stöðumann, og honum sagt að hann
ætti ekki möguleika. Sá sem var síð-
an ráðinn heitir Ingimundur Ingi-
mundarson og kemur úr Borgar-
nesi. Hann er góður og gegn ung-
mennafélagssinni og mun Sigurð-
ur Geirdal, bæjarstjóri Kópavogs,
hafa lagt mikla áherslu á að hann
fengi starfið. Ingimundur virðist
hafa haft pata af því að hann ætti
góða möguleika því hann sagði upp
starfi sínu í Borgarnesi fyrir þrem
mánuðum...
lEnn heyrist af jólaglaðningi hjá
stórfyrirtæki. Starfsfólk Kaupgarðs í
Mjóddinni mun hafa fengið upp-
sagnarbréf skömmu fyrir jól...
liandsmenn, margir hverjir að
minnsta kosti, helltu í sig ómældu
jólaglöggi fyrir hátíðarnar. Alþingis-
menn voru engin undantekning frá
því. Á einum þingfundi skömmu fyr-
ir jól voru þingmenn Framsóknar-
flokksins sagðir „þéttir" eftir jóla-
glöggsdrykkju. Þingmönnum Sjálf-
stæðisflokks og Kvennalista ofbauð
kaupstaðarlyktin af framsóknar-
mönnum og gengu af fundi...