Pressan - 11.04.1991, Qupperneq 7
FIMMTUDAGUR PRESSAN 11.APRÍL1991
7
Haraldnr HaraMsson í Andra
Á örskömmum tíma hefur stjarna Haraldar Haralds-
sonar í Andra hrapað í viðskiptalífinu. Sem dugmikill
kaupsýslumaður var Haraldur studdur til formennsku í
Félagi íslenskra stórkaupmanna á sínum tíma. Eftir áföll
sem dundu yfir missti hann tökin þar og féll síðan í kosn-
ingu í Eignarhaldsfélagi Verzlunarbankans þar sem hann
hafði verið stjórnarformaður og missti þar með sæti sitt
í bankaráði íslandsbanka. Eftir skjótan frama er nú talið
að Haraldur rói lífróður til að vinna sig út úr vandanum
sem margir rekja til fjárfestinga hans í Stöð 2 og íslenska
úthafsútgerðarfélaginu.
Haraldur í Andra: Duglegur
sölumaður sem vann sig
upp en berst nú aftur fyrir
framtíð sinni. Á
örskömmum tíma missti
hann ítökin í viðskiptalífinu,
sem formaður Félags
íslenskra stórkaupmanna,
formaður Eignarhaldsfélags
Verzlunarbankans og
bankaráðsmaður í
fslandsbanka.
Haraldur er Reykvíkingur, fædd-
ist lýðveldisárið Í944, sonur hjón-
anna Haraldar Hjálmarssonar mat-
sveins og Jónu Olafsdóttur. Faðir
hans rak síðast hótel og matsölu í
Hafnarbúðum, en hann lést rúm-
lega fimmtugur að aldri. Móðir Har-
aldar er á lífi. Hann er yngstur
þriggja bræðra. Grétar bróðir hans
starfar sem forstöðumaður þjón-
ustusviðs hjá Eurocard og sá elsti,
Ólafur, býr og starfar í Danmörku.
Eiginkona Haraldar er Þóra Andrea
Ólafsdóttir Bergssonar, deildar-
stjóra hjá Sjóva-Almennum, og eiga
þau þrjá syni.
GÓÐUR SÖLUMAÐUR
..Hann var fljótur að læra," sagði
vinur Andra sem PRESSAN ræddi
við. en Haraldur er ekki langskóla-
genginn, lauk gagnfræðaprófi en
fór síðan í verslunarnám í Bretlandi.
í rauninni tilheyrir hann þeim hópi
manna í viðskiptalífinu sem hafa
unnið sig upp og eru enn ekki orðn-
ir gjaldgengir í það merkisrit Ævi-
skrár íslenskra samtíðarmanna.
Harqjdur byrjaði snemma sem
sölumaður í heildverslun og þykir
sölumaður af guðs náð. Árið 1971
kom hann til starfa hjá útflutnings-
fyrirtækinu Andra sem óbreyttur
starfsmaður, en það fyrirtæki hafði
Gunnar Þór Ólafsson stofnað ásamt
fleirum árið 1967.
Þar var Haraldur fyrst sölumaður,
en 1973 var hann orðinn meðeig-
andi ásamt Gunnari Þór, Gunnari
Ólafssyni, fyrrum skipstjóra á Eld-
borginni, Ólafi H. Ólafssyni og fleir-
um. Þeir þrír fyrst nefndu urðu fljót-
lega aðaleigendur, en árið 1986
keypti Haraldur hlut Gunnars Þórs
Ólafssonar og síðan hlut Gunnars
Ólafssonar árið árið 1988.
SVEIFLAST MEÐ
LOÐNUAFLANUM
Umfang Andra hefur oft verið
mikið, en alltaf sveiflast með loðnu-
aflanum. Ef tillit er tekið til brúttó-
verðmæta var fyrirtækið meðal
stærstu útflytjenda á loðnumjöli og
hefur náð mest um 40 prósenta hlut-
deild i þeim útflutningi. Það voru
ekki síst góð viðskiptasambönd sem
Haraldur náði í Póllandi, sem gerðu
Andra að stórveldi í mjölútflutningi.
Þau viðskipti hafa hins vegar verið
stopul vegna ástandsins í Póllandi
síðustu árin svo og mjölviðskiptin
sjálf, vegna mikilla sveiflna í loðnu-
veiðunum.
Á tímabili átti Andri einnig í
tveimur loðnubátum og um skeið
var fyrirtækið líka í töluverðum við-
skiptum vegna lengingar á skipum
og viðhaldi. Á tímabili var fyrirtæk-
ið einnig í innflutningi á matvörum
og byggingarvörum.
RUDDI KREDIT-
KORTUNUM BRAUT
Þótt Haraldur sé gjarnan kenndur
við Andra verður hans líklega lengi
minnst sem brautryðjanda á sviði
kreditkortaviðskipta á íslandi.
Ásamt fleirum stofnaði hann fyrir-
tækið Kreditkort hf. árið 1979. Upp-
haflega voru tíu eigendur en fljót-
lega eignuðust jafnan hlut þeir Har-
aldur, Gunnar Þór Ólafsson, Þor-
valdur Jónsson skipamiðlari, bræð-
urnir Gunnar og Elfar Bæringssynir
og Róbert Árni Hreiðarsson lög-
maður.
Haraldur og félagar þénuðu vel á
Kreditkortum. Árið 1981 seldu þeir
Verzlunarbankanum og Útvegs-
bankanum hlut i fyrirtækinu og
stofnuðu Kort hf. um þann hlut sem
þeir áttu enn í fyrirtækinu. Það var
í nafni Korts hf. sem Haraldur og fé-
lagar lögðu upphaflega 50 milljónir
króna í Stöð 2, síðan hefur Haraldur
eignast meira persónulega. Verð-
mæti eignarinnar í Stöð 2 er hins
vegar mjög á reiki sem kunnugt er
og standa fyrir dyrum hugsanleg
málaferii aðaleigenda Stöðvar 2
gegn Eignarhaldsfélagi Verzlunar-
bankans.
Það var einnig i nafni Korts hf.
sem Haraldur og félagar fjárfestu í
íslenska úthafsútgerðarfélaginu,
sem hugðist gera út verksmiðjuskip-
ið Andra BA á Alaskamið. Eignar-
hlutur Korts hf. var um 20 prósent,
en auk þess átti Haraldur og fyrir-
tækið Andri um 30 prósent. í lok árs
1989 fór skipið vestur um haf, en
leyfi til veiða og vinnslu fékkst aldr-
ei. Um vorið var dæminu lokið og
norskir seljendur skipsins tóku það
til baka. Heildarhlutafé nam 70
milljónum króna, en tap á ævintýr-
inu er talið nema 140 milljónum
króna.
íslenska úthafsútgerðarfélagið
þykir mörgum dæmi um djarfan
hug Haraldar og víðsýni hans, þótt
ekki hafi tilraunin tekist að þessu
sinni og ef til vill sýni hún líka
ákveðinn skort á raunsæi. Annað
dæmi sem menn nefna úr hug-
myndasmiðju Haraldar er pönnu-
fyrirtækið Al-Pan á Eyrarbakka.
ÍTÖK í
GEGNUM STÓRKAUPMENN
I fjögur ár var Haraldur fonnaður
Félags íslenskra stórkaupmanna.
Hann hafði vakið athygli fyrir dugn-
að sinn og var hvattur til að taka for-
mennskuna að sér. Samkvæmt regl-
um FIS hefði Andri aðeins átt að
sitja í tvö ár, en þeim var breytt og
alls sat hann í fjögur. Fyrir aðalfund
á dögunum vann hann að endur-
kjöri, en naut ekki stuðnings.
Sem formaður Félags íslenskra
stórkaupmanna náði Haraldur ítök-
um í Eignarhaldsfélagi Verzlunar-
bankans. Eftir deilur við aðila innan
bankans, meðal annars eftir við-
skipti hans sem eiganda Stöðvar 2
við bankann, er Haraldur sagður
hafa misst trúnað manna. Eftir fallið
í kosningunni í stjórn eignarhaldsfé-
lagins hefur Haraldur látið þung orð
falla í garð Orra Vigfússonar, en við-
mælendur PRESSUNNAR segja
hann persónugera málið um of, því
augljóslega hafi tími hans verið
runninn út í framvarðasveit félags-
ins. Þarsem um margfeldiskosningu
var að ræða þykir einnig sýnt að
Haraldur njóti einfaldlega ekki
stuðnings lengur og munar þar um
baklandið hjá Félagi íslenskra stór-
kaupmanna.
HRUN OG VARNARBARÁTTA
Á örfáum mánuðum hefur því
fjarað verulega undan veldi Harald-
ar. Hann hefur tapað miklum pen-
ingum á Stöð 2 og íslenska úthafsút-
gerðarfélaginu og einbiínt á að fyr-
irtæki hans Andri hf. næði að
styrkja sig í sessi á sínu aðalsviði, i
viðskiptum með loðnumjöl og aðrar
loðnuafurðir. Sú draumsýn hefur
hefur hins vegar hrunið eftir afla-
brest hjá loðnuflotanum og slæmar
horfur á mörkuðum.
Þeir sem vel þekkja til Haraldar
segja að styrkur hans nú felist í
skapgerðinni, að hann gefist aldrei
upp fyrr en í fulla hnefana. Hann
berst á í meðallagi miðað við mann
í svipaðri stöðu, á ágætis einbýlis-
hús i Árbænum og góðan bíl og
hesta, en hefur enga þörf fyrir að
hlaða undir sig persónulegum eign-
um umfram það. ,,Hann hefur sýnt
styrk að standast það sem hann hef-
ur þegar mátt þoía og nú reynir all
verulega á hann," sagði vinur hans,
en minnti á að Haraldur væri ekki
að ganga í gegnum sín fyrstu
„loðnuleysisár".
Kristján Þorvaidsson