Pressan - 11.04.1991, Qupperneq 9
FIMMTUDAGUR PRCSSAN ll.APRÍL 1991
9
Lídó er nú i eigu Björns Baldurs-
sonar og gengur reksturinn erf-
iölega. Aöur var þetta Tungliö í
eigu Vilhjalms Svans og félaga
og síöar Þorleifs Björnssonar.
Hlutafélögin um þann stað eru
gjaldþrota. Lækjarveitingar hf.
er búiö aö gera upp. Ekkert
fékkst upp í 27,7 milljón króna
kröfur. Ouppgert er gjaldþrot
Lækjarniðs, þar sem lystar kröf-
ur nema 12,5 milljónum króna.
lag. Tómas er einnig aðaleigandi ís-
rokks hf., sem rekur Hard Rock
kaffi. Þá vekur athygli að veitinga-
staðirnir Borgarkjallarinn-Amma
Lú og Glaumbar eru skráðir sem
einkafyrirtæki Ingua Týs Tómasson-
ar, 22ja ára sonar Tómasar Tómas-
sonar. Þar eru handhafar veitinga-
leyfa hins vegar Tómas og frú. Sam-
kvæmt heimildum PRESSUNNAR
er Tómas með þessu að dreifa
áhættunni í ljósi fyrri reynslu.
Þeir skemmtistaðir sem þessir
einstaklingar hafa staðið fyrir eru
orðnir margir. Nýverið ætlaði Vil-
hjálmur Svan síðan að opna veit-
ingastað við Arnarbakka, en það
tókst ekki vegna mótmæla íbúa á
svæðinu.
ARNARHÓLL NÝJASTA
DÆMIÐ UM NAFN-
BREYTINGU REKSTRARAÐILA
Inn í þessa upptalningu má síðan
bæta við Þorleiíi Björnssyni, sem
um tíma rak Sælkerann, Fimmuna,
Tunglið og jafnvel fleiri staði, sem
hann keypti af Vilhjálmi Svan.
Annar einstaklingur í veitinga-
bransanum sem á að baki nokkur
gjaldþrot er Birgir V. Halldórsson.
Nafn hans er að finna á bak við
gjaldþrota hlutafélög í veitinga-
rekstri: Hlóðaeldhúsið hf., Lennon
hf. og veitingahúsið Austurstræti hf.
Hann er einnig skráður aðili að
Hauki í horni hf. og Veitingahúsinu
Nonna hf., sem samkvæmt firma-
skrá hafa ekki uppi neina starfsemi.
Þá er hann meðal eigenda Lang-
holts hf., sem mun vera Eika-grill
við Langholtsveg.
Gjaldþrot eru að baki ýmsum öðr-
um stöðum. Þannig varð gjaldþrota
í febrúar síðastliðinum Veitingahús-
ið Hverfisgötu hf. Það var stofnað í
júní 1989, rak Arnarhól og Óperu-
kjallarann og liföi í eitt og hálft ár.
Meðal stofnenda og stjórnarmanna
voru Sveinn E. Úlíarsson og eigin-
kona, Gudbjörn Karl Ólafsson og
kona hans Elísabet Kolbeinsdóttir,
Skúli Hansen og Sigrídur Stefáns-
dóttir eiginkona hans og loks Þor-
björg Ólafsdóttir. í sama mánuði og
þetta hlutafélag var tekiö til gjald-
þrotaskipta var stofnaö hlutafélagið
Fimman viö Hafnarstæti. Vil-
hjálmur Svan opnaði staöinn,
en Þorleifur Björnsson eignaö-
ist hann siöar. Skráður veitinga-
leyfishafi er Sesselja Hennings-
dóttir, eiginkona Vilhjálms
Svan, en reksturinn er leigður
út.
Arnarhreiður hf. Stofnendur eru
þær Elísabet og Sigríður og með.
þeim í stjórn er Þorbjörg. Nýr staður
þeirra opnar um helgina.
Sveinn E. Úlfarsson opnaði hins
vegar nýverið veitingahúsin Berlín
og Pisa í Austurstræti, ásamt Gísla
Gíslasyni lögfræðingi og Bjarna
Óskarssyni. Bjarni er ekki nýr í veit-
ingabransanum. Fyrir nokkrum ár-
um stofnaði hann meðal annars
hlutafélögin Matkerann og Óperu.
Bæði þessi félög eru nú til meðferð--
ar hjá borgarfógeta vegna gjald-
þrots.
I LÆKJARBREKKA:
ÞRJÁR REKSTRAREININGAR
SAMA EIGANDA
Matkerann stofnaði Bjarni með
Einari Ásgeirssyni. Einar hefur víða
komið við í bransanum. Meðal ann-
ars er hann stofnandi og stjórnarfor-
maður Veitingahússins Hamraborg-
ar hf. í Kópavogi. En hann stofnaði
einnig Veitingahúsið Hjallahrauni
hf. í Hafnarfirði og Bleika pardusinn
í Reykjavík. Bæði hlutafélögin sem
ráku þessa staði eru nú þrotabú.
Lækjarbrekka er nú rekin af
hlutafélaginu Móhús hf., sem stofn-
að var í nóvelmber 1989 af Kolbrúnu
Jóhannesdóttur, Bjarneyju Lindu
Ihgvarsdóttur og fleirum. Enn er í
gjaldþrotameðferð hlutafélagið
Lækjarbrekka hf., þar sem Kolbrún
var stjórnarformaður og Bjarney
Linda ritari stjórnar. Það var úr-
skurðað gjaldþrota í mars 1986. Á
tímabilinu á milli| þessara hlutafé-
laga var Lækjarblekka rekin sem
Keisarinn og Moulin Rouge á
Laugavegi 116. Þar rak Vilhjálm-
ur Svan staöina Abracadabra,
Uppi og niöri og jafnvel fleiri.
Hlutafélögin að baki, Laugaveit-
ingar og Veitingakjallarinn,
uröu bæöi gjaldþrota, án þess
aö nokkuð fengist upp í samtals
13,6 milljóna króna kröfur, auk
vaxta og kostnaðar.
einkafyrirtæki Kolbrúnar.
Vilhjálmur Astródsson rekur nú
Casablanca (áður Roxzý) við Skúla-
götu, sem byggt er á rústum þrota-
bús Veitingahússins Skúlagötu 30
hf., í eigu annarra aðila. Vilhjálmur
er nú skráður fyrir hlutafélaginu
Lækjarteigur hf., sem rekur staðinn.
Hann á eins og margir áðurnefndra
gjaldþrot að baki. Hann stofnaði
ásamt Gunnari H. Árnasyni hlutafé-
lag utan um veitingahúsið Evrópu í
janúar 1988. Aðeins átta og hálfum
mánuði síðar var félag þetta úr-
skurðað gjaldþrota og var búið gert
upp í maí 1989. Ekkert fékkst upp í
54 milljón króna kröfur.
VEITINGAR HF: TVENN
GJALDÞROT OG
NÝTT HLUTAFÉLAG
Ótalin eru umdeild gjaldþrot fyrir-
tækja Jóhannesar Stefánssonar,
Veitinga hf. (Múlakaffi) og Veitinga-
hallarinnar, í október síðastliðnum.
Á síöustu einu til tveimur árum
höfðu viðskipti Múlakaffis æ meir
færst yfir á Veitingahöllina og
launagreiðslur til starfsfólks fyrir-
tækjanna sömuleiðis. Undir það síð-
asta var það Jóhannes Stefánsson í
Veitingahöllinni sem rak Múlakaffi
en leigði aðstöðuna og tækin af Jó-
hannesi Stefánssyni í Veitingum.
í kjölfar gjaldþrots Veitingahallar-
innar fundust 1,6 milljón króna virði
af matvælum í Múlakaffi sem voru
eign Veitingahallarinnar, en höfðu
samkvæmt heimildum blaðsins ver-
Borgarkjallarinn-Amma Lú.
Þessi staður ásamt Glaumbar
viö Tryggvagötu eru í eigu Tóm-
asar A. Tómassonar, en skráö
sem einkafyrirtæki Ingva Týs
Tómassonar, 22ja ára sonar
Tómasar. Samkvæmt heimild-
um PRESSUNNAR er þessi
háttur hafður á vegna skakka-
falla Tómasar eftir aö hann
stofnaöi hlutafélög um Tunglið
meö Vijhjálmi Svan. Staðir
Tómasar sjálfs hafa ekki oröiö
gjaldþrota.
iö millifærð á Veitingar sem húsa-
leiga. Jóhannes og bróðir hans Ing-
var Stefánsson stofnuðu hlutafélag-
ið Stefánssynir hf. og héldu viðskipt-
um Múlaka'ffis áfram.
I nóvember 1988 varð hlutafélag-
ið Fógetinn hf. gjaldþrota og er enn
til skipta. Stjórnina skipuðu þeir Er-
lendur Halldórsson, Jón Erlendsson
og Asgeir Halldórsson. Við gjald-
þrotið tóku nýir aðilar við, Teiti hf.,
þar sem í stjorn sitja Ingólfur Jóns-
son. Erla Ingólfsdóttir og Þórdur
Pálmason. Nafn staðarins hélt sér.
Fyrirtæki Kjartans Daníelssonar
og Jóns Þórs Einarssonar Blásteinn
sf., sem rak samnefnt veitingahús,
varð gjaldþirota. í kjölfarið stofnuðu
þeir hins vegar, ásamt fleirum,
hlutafélágið Hóf hf., utan um rekst-
hrinn.
Hér hafa nokkur nýleg tilvik um
gjaldþrot og eignarhalds- og nafna-
breytingar verið tíunduð. Stór gjald-
þrotadæmi hafa ekki verið nefnd,
svo sem gjaldþrot Þórskaffis (Dans-
hallarinnar), Veitingamannsins,
Nausts og Gildis, né heldur hafa ver-
iö nefndar til sögunnar kollsteypur
Olafs Laufdals Jónssonar og Holi-
day Inn. Þá eru ónefnd ,,smærri“
gjaldþrot eins og hjá Hrafninum við
Skipholt, Hressingarskálanum og
Kaffi Hressó.
OF MARGIR STAÐIR -
ÓHÓFLEG BJARTSÝNI
Erna Hauksdóttir, framkvæmda-
stjóri Sambands veitinga- og gisti-
húsa, segir að rekja megi slæma af-
komu veitingahúsanna til offram-
boðs á veitingastöðum.
,,Hjá okkur eru þetta frjáls félaga-
samtök og ekki allir veitingastaðir
innan okkar vébanda. Ég myndi
skipta atvinnurekendum í þessari
grein í tvo hópa. Annars vegar höf-
um við þá sem vilja vera ábyrgir,
standa að kjarasamningum og
borga í púkkið. Hins vegar höfum
við þá sem ekki taka þátt í hags-
munabaráttunni, en hirða molana
af henni. En línurnar þarna á milli
eru ekki skýrar. Ég vil ekki tala um
svarta sauði, sem gera út á gjald-
þrot. Ég vil frekar segja að allt of
mikið sé um gjaldþrot vegna þess að
staðirnir eru orðnir allt of margir.
Fjölmargir fara af stað með óhóf-
lega bjartsýni í farteskinu og telja
sig geta gert betur en þeir sem fyrir
eru. Nú þegar bara vínveitingastaö-
ir í Reykjavík eru orðnir um eitt
hundrað er ekki að undra að dæmið
gangi ekki alltaf upp," sagði Erna.
STARFSFÓLK: LAUN OG
MIKILVÆG RÉTTINDI GLATAST
Tíð gjaldþrot, eigenda- og nafna-
skipti hafa að sögn Sigurdar Gud-
mundssonar framkvæmdastjóra Fé-
lags starfsfólks í veitingahúsum,
skapað félagsmönnum margan
vandann.
„Þessar tíðu nafnabreytingar og
eigendaskipti, þar sem aldrei virðist
hægt að fá á hreint hverjir séu raun-
verulegir eigendur eða rekstraraðil-
ar, hafa vissulega skapað félags-
mönnum okkar ómæld vandræði.
Margir hafa lent í því að þurfa aö
leysa út laun með dýrum hætti í
banka. Mikilvæg réttindi hafa glat-
ast, lifeyrissjóðsgreiðslur, trygging-
ar og fleira.
Það er óneitanlega erfitt um vik
fyrir okkur að hafa aldrei tæmandi
yfirlit yfir hverjir séu vinnuveitend-
urnir á hverjum tíma. Lögreglustjóri
gefur út skrá yfir þá sem hafa veit-
ingaleyfi, þau eru veitt á nafn, en
viðkomandi einstaklingur þarf ekk-
ert að vera tengdur rekstraraðilan-
um. Hvort sá greiðir félagsgjöld eða
skatta kemur leyfishafanum ekkert
við. Þess vegna viljum við tengja
leyfisveitinguna við rekstraraðilann
og höfum rætt við lögreglustjóra um
það,“ sagði Sigurður.
HEILDSALAR TORTRYGGNIR:
STAÐGREIÐSLUKRÖFUR OG
AUKNAR TRYGGINGAR
Heildsalar, sem PRESSAN ræddi
við og þjóna veitingabransanum
sérstaklega, voru sammála um að
mikil bylgja gjaldþrota og nafna- og
eigendaskipta hefði riðið yfir á síð-
ustu þremur árum, en töldu að
skakkaföll sinnar stéttar færu veru-
lega minnkandi vegna viðbragða
þeirra. „Heildsalar hafa einfaldlega
Sveinn E. Úlfarsson hefur yfir-
gefið Arnarhöl og opnaði nýver-
iö veitingahúsin Berlín og Pisa í
Austurstræti, ásamt Bjarna
Óskarssyni og fleirum. Bjarni er
ekki nýr i veitingabransanum.
Fyrir nokkrum árum rak hann
m.a. Matkerann og Óperu.
Skiptameðferð Matkerans lauk
í febrúar án þess að nokkuö
fengist upp í kröfur, sem voru
19,5 milljónir króna, auk vaxta
og kostnaðar. Ópera er enn i
skiptum, en kröfur nema 23
milljónum króna að núvirði.
brugðist við þessum aðferðum, sem
byrjuðu fyrir nálægt þremur árum.
Þá tóku ýmsir í bransanum upp á
því t.d. að skrá fasteignir á eitt félag
en reksturinn á annað og e.t.v. leigja
hann til nokkurra ára. Margir voru
fljótir að tileinka sér ósómann,
gamlir viðskiptaskilniálar hrundu
og ýmsir heildsalar urðu fyrir tals-
verðum skakkaföllum," sagði heild-
sali, sem einkum á viðskipti við veit-
ingahús, í samtali við blaðið. „Síðan
hafa viðskiptin við þennan bransa
einkennst af tortryggni, menn hafa
hert kröfur um staögreiðslu eða
góðar tryggingar og í kjölfarið hefur
skakkaföllum fækkað,“ bætti hann
við.
Við þetta má bæta að innan Fé-
lags íslenskra stórkaupmanna hefur
aö undanförnu farið fram umræða
um upptöku nýrra trygginga, svo
sem viðskiptaábyrgða i bönkum
eða tryggingar gagnvart ákveðnum
viðskiptavinum.
Friðrik Þór Guðmundsson
Arnarhóll-Óperukjallarinn. I
febrúar sl. varö fyrirtækið Veit-
ingahúsiö Hverfisgötu hf. gjald-
þrota, þar sem meöal stofn-
enda og stjórnarmanna voru
Sveinn E. Úlfarsson, Guðbjörn
K. Ólafsson og Skúli Hansen. í
sama mánuði stofnuðu eigin-
konur Guöbjörns og Skúla fé-
lagið Arnarhreiður hf. Verið er
aö gera staðinn upp og opnar
nýtt veitingahús á næstu dög-
um.
Htains og PRESSAN skýrði frá fyr-
ir skömmu þá er Alli Rúts til gjald-
þrotameðferðar. Bílasalan er hins
vegar ekki til skipta þar sem AIIi
breytti henni úr einkafyrirtæki í
hlutafélag fyrir fáum árum. Kröfur í
bú Alla, eða Alfreðs Rútssonar, voru
uin 55 milljónir. Helmingur þeirra
hefur verið afturkallaður svo flest
bendir til þess að Alli sé að kaupa
búið sitt aftur . . .
v
egna fyrirhugaðrar opnunar
hinnar nýju Kringlu, Borgarkringl-
unnar, hefur hafist all nokkurt kapp-
hlaup um viðskipti
við verslunar- og
þjónustufyrirtæki
sem þar verða til
húsa. Stærsti slagur-
inn mun standa um
viðskipti við stóru
verslunina í húsinu,
Kringlusport, sem Víglundur Þor-
steinsson ásamt nokkrum öðrum
frammámönnum í Sjálfstæðis-
flokknum mun reka þar í þúsund
fermetra plássi. Heyrst hefur að að-
eins útvaldir heildsalar fái inni í
sportvöruversluninni og í því sam-
bandi geti flokksskírteini komið að
góðum notum. Að minnsta kosti
segja illar tungur að viðskiptum
hafa verið hafnað við Hauk Bach-
mann forstjóra I. Guðmundsson hf.
vegna tengsla hans við Framsóknar-
flokkinn. Hér mun vera eftir þó
nokkru að slægjast fyrir heildsala,
því talið er að ársvelta fyrirtækisins
geti orðið nálægt hálfum millj-
arði. . .
A
^^■iðalfundur Taflfelags Reykja-
víkur verður haldinn í lok apríl. Þar
verða væntanlega efst á baugi mikl-
ar skuldir TR sem munu skipta tug-
um milljóna króna núna. Skuldirnar
eru að mestu tilkomnar vegna hús-
byggingarinnar í Faxafeni sem skák-
menn kalla nú almennt Skuldafen!
Er talið að TR losni ekki út úr þess-
um vanda nema að opinberir aðilar
komi til hjálpar. Þá er talið líklegt að
skipt verði um formann félagsins á
fundinum en núverandi formaður
er Jón Briem lögmaður.. .
s
A^agt er að Hörður Sigurgests-
son hafi tekið í taumana í stjórnar-
kjöri í eignarhaldsfélagi Verzlunar-
bankans. Hans mað-
ur er nú kominn
þangað inn, Þórður
Magnússon, en for-
jnaður ráðsins var
sem kunnugt er
kjörinn Einar
Sveinsson forstjóri
Sjóvá-Almennra, sem tekur við for-
mennsku í bankaráöi íslandsbanka.
Þaö vekur hins vegar athygli að
annar úr hópi Harðar manna,
Brynjólfur Bjarnason forstjóri
Granda, víkur sæti . . .
I Morgunblaðinu í gær má finna
klausu þar sem greint er frá að ör-
yrki nokkur hafi hringt á kosninga-
skrifstofu Sjálfstæöisflokksins á Ák-
ureyri. Vildi hann kanna hvað feng-
ist greitt fyrir að greiða flokknum at-
kvæði sitt í komandi kosningum.
Það er greinilegt að kjósendur eru
farnir að ætlast til að stjórnmála-
menn gangi hreinlegar til verks en
áður hefur verið talið nauðsynlegt.
Eins og máltækið segir: Betri er
einn fugl í hendi en tveir í skógi. . .