Pressan - 11.04.1991, Qupperneq 11
i
11
II
■ ú er endanlega búið að jarða
hugmyndina um alþjóðlegu ráð-
stefnuna VISION 2000, sem ráðgert
var að halda hér á
landi með fjölda
stórmenna hvað-
anæva úr heimin-
um. Eins og PRESS-
AN greindi frá í
haust höfðu riki og
borg sameinast um
undirbúning ráðstefnunnar og var
Júlíus Hafstein borgarfulltrúi for-
maður undirbúningsnefndarinnar.
Það kom hins vegar ekki í Ijós fyrr
en í haust, að málið var orðið eitt
allsherjar klúður sem gæti skaðað
orðstír íslands svo um munaði. Fyrir
orð Davíds Oddssonar borgar-
stjóra mun Júlíus hafa látið af störf-
um, en Steingrímur Hermanns-
son forsætisráðherra og Stein-
grímur Sigfússon samgönguráð-
herra fengu hins vegar það hlutverk
að sjá um jarðarförina og fólu
Magnúsi Oddssyni settum ferða-
málastjóra faglega framkvæmd
hennar . . .
G»U„e8 «r »i3a á
Austurlandi með þá jameiginlegu
ákvörðun Halldórs Asgrímsson-
ar efsta manns á lista Framsóknar-
flokksins og oddvita Alþýðubanda-
lagsins og Sjálfstæðisflokksins,
þeirra Hjörleifs Guttormssonar
og Egils Jónssonar, að halda að-
eins þrjá sameiginlega kosninga-
fundi í kjördæminu í stað þrettán
eins og áður. Nú mun óánægjan
einnig ná til þeirra staða þar sem þó
eru haldnir fundir, því á tveimur
fundum voru ekki einu sinni leyfðar
fyrirspurnir. Það var einungis á
fundi á Egilsstöðum í gærkvöldi sem
fyrirspurnir voru leyfðar, en þeim
fundi var útvarpað um allt land . . .
N
l^lú er Ijóst að aðeins einn ís-
lenskur skákmaður, Jóhann Hjart-
arson, teflir á heimsbikarmótinu í
skák sem verður hér
í haust. Alþjóðlega
stórmeistarasam-
bandið (GMA) sætti
sig aðeins við að
einn íslendingur
fengi að vera með
en enginn þeirra
náði að vinna sér þátttökurétt á
mótinu að þessu sinni. Mörgum
skákmönnum þykir súrt í broti að
aðeins einn Islendingur verði á
meðal þeirra 16 þátttakenda sem
hingað koma. Það er kannski sér-
staklega vegna þess að alþjóðleg
skákmót eru nánast að falla niður
hér á landi. Hið hefðbundna alþjóð-
lega skákmót sem átti að vera í vet-
ur var fellt niður . . .
yrir nokkrum vikum fjöl-
menntu Seyðfirðingar undir forystu
Jóns Guðmundssonar varafor-
manns verkalýðsfélagsins til
Reykjavíkur til að krefjast aðgerða
vegna alvarlegs ástands í atvinnu-
málum sínum. Þeir höfðu með sér
undirskriftalista og fóru á fund
Steingríms Hermannssonar for-
sætisráðherra. Stjórnvöld lofuðu
fyrirgreiðslu og voru menn bjart-
sýnir, vitandi að í sjáyarútvegsráðu-
neytinu er Halldór Ásgrímsson úr
kjördæminu. Enn bólar hins vegar
ekkert á fyrirgreiðslu — og það þrátt
fyrir að kosningar séu í nánd . . .
rátt fyrir umræður um að tím-
bært sé að selja Rás 2 hefur verið
töluverð ásókn í störf þar. Eru það
sérstaklega starfs-
menn annarra út-
varpsstöðva sem
hafa sótt þangað. Á
tímabili kom bylgjan
frá Aðalstöðinni og
sóttu þá bæði
Margrét Hrafns-
dóttir og Bjarni Dagur um störf og
var Margrét ráðin sem frægt er orð-
ið. Nú mun ásóknin helst vera frá
Bylgjunni og mun vera nokkur
óánægja meðal dagskrárgerðar-
manna þar með stjórnleysi innan
stöðvarinnar . . .
+
Stórleikur á Hlíðarenda
Miðvikudaginn 17. apríl kl. 20.00
VALUR - FH
Laugardaginn 20. apríl kl. 16.30
VALUR - STJARNAN
Miðvikudaginn 24. apríl kl. 20.00
VALUR- HAUKAR
Mætum öll
VALUR ER (bÍSTÁ) LIÐIÐ
3^'
3 SUISSES
NÝR
FRANSKUR
VÖRULISTI
0\o''+.í"*
Kríunesi 7
210 Garðabær
Sími 642100
Opið á
laugardögum
... er líka fyrir þig
3 SUISSES er nýr og glæsilegur franskur vörulisti fullur af fallegum, vönduðum
fötum, samkvæmt nýjustu tísku, í stærðum fyrir stóra og smöa. Fjölmörg þekkt,
vinsæl og alþjóðleg vörumerki. Sparaðu tíma, fyrirhöfn og fjármuni og njóttu þess
að velja þér falleg föt. Hringdu í síma 91-642100 og fáðu franska vörulistann frá
3 SUISSES sendan um hæl fyrir aðeins 400 krónur, sem síðan endurgreiðast við
fyrstu pöntun yfir 5.000 krónur. Við veitum fúslega aðstoð símleiðis. Afgreiðslutími
er 3 vikur og skilafrestur 2 vikur. Kreditkortaþjónusta.