Pressan - 09.06.1994, Síða 14
Óhugnanlegar upplýsingar úr Valhöll
Arni Sigfússon til á lager
Mjúki Árni og Harði Árni halda blaðamannafund.
Reykjavik, 7. júní.
Samkvæmt áreiðanlegum
heimildum GULU PRESSUNNAR
sló miklum óhug á stai’í'sfólk í
Valhöll við tillekt niðri á lager
Sjálfstæðishússins um síðustu
helgi. Kom í ljós að þar var mikið
magn af Árna Sigfússyni fram-
bjóðanda geymt í kjallara húss-
ins.
„Jú, það er rétt, við eigum dá-
litlar birgðir af honum en ég sé
ekki að það þuiTi að vera neitt
óeðlilegt,“ sagði Kjartan Gunn-
arsson, arkitekt þessarar ein-
ræktimar Áma.
„Þama var til Mjúki Árni og
Harði-Ami, Fijálshyggju-Árni og
Rikisafskipta-Árni, Dagheimila-
Árni, Strætisvagna-Árni, Reykja-
víkur-Ámi og Vestmanneyja-
Árni, alhr gerðir eRir fyrirmynd-
inni,“ sagði heimildamaður með-
al starfsmanna Valhallar. Þessi
sami starfsmaður sagði að eng-
inn vissi í raun hvernig Ámi væri
í upphaflegri mynd.
„Eg er viss um að sjálfstæðis-
menn eiga eflir að spila Árna oft-
ar út, í einni eða annarri mynd,“
sagði Einar Örn Stefánsson,
kosningastjóri R-listans.
Starfsfólk Hagstof-
unnar bauð Páli og
Sigrúnu á árshátíð
50 prósent af
vinnu okkar er
hvort sem er
vegna þeirra
iÆ
„Pað eru allir mjög elskulegir
við okkur,“ sögðu þau Sigrún
og Páll á árshátíð Hagstofunn-
ar.
Steingrímur Hermannsson
íhugar að hætta í Seðlabankanum
„Starfið hefur ekki staðið undir mínum væntinguma
segir Steingrímur og leiðist.
Kalkofnsvegi, 8. júni.
„Jú, það er rétt, þetta hefur
hvarílað að að mér,“ sagði Stein-
grímur llemiannsson Seðlabanka-
stjóri, en samkvæmt áreiðanleg-
um heimildum GULU PRESS-
UNNAR íhugar Steingrímur að
hætta í Seðlabankanum.
„Bankinn liefui’ einfaldlega ekki
staðið undir míntmi væntingum.
Það verður að segjast eins og er að
mötuneytið er algerlega oflofað,
píanóglamrið í Birgi er að drepa
mig, vinnan er bæði einhæf og
mikil og svo virðist engmn hafa
áhuga á að bjóða Seðlabankastjúr-
um í lax. Það er eins og þetta fvrir-
tæki eigi enga vini,“ sagði Stein-
grímur, sem játar að að sér sæki
mikill leiði.
Samkvæmt heimildum GP hafa
starfsmenn bankans tekið eflir
þessmn doða yfir Steingrími. „Þótt
hann sé með doktor í hagfræði
virðist honum leiðast absh'akt
peningar eins og við fáumst við
hér í bankanum,“ sagði starfsmað-
ur.
Hrafn Bragason, forseti Hæstaréttar,
fær ekki að fara á Þingvöll 17. júní
„Þorum ekki með
hann á meðan
orðbragðið er
ekki betra4*
- segir Salóme Þorkelsdóttir
Þjóðhátíðarnefnd hefur ákveð-
ið í samráði við handhafa for-
setavalds að Hrafn Bragason, for-
seti Hæstaréttar, fái ekki að fara
á Þingvöli 17. júní.
„Það verður bara að segjast
eins og er að við þorum ekki að
fara með hann á meðan orð-
bragðið er ekki betra. Þama
verður margt erlendra fyrir-
manna og við nenntim hreinlega
eidtí að eyða deginum í að afsaka
Hrafn,“ sagði Salóme Þorkels-
dóttir, forseti Alþmgis, en ljóst er
að Hrafh Bragason, forsetí
Hæstaréttar, verður að flnna sér
eittlivað annað að gera 17. júní
en að spóka sig innan um fyrir-
menni á Þingvöllum.
Þá má geta þess að samtök sjó-
manna buðu Hrafni að halda
ræðu á sjómannadaginn en hann
sá sér það ekki fært. „Við kunn-
um að meta karla eins og Hrafn
sem tala tæpitungulaust,“ sagði
Óskar Vigfússon, formaður Sjó- ,___________ ......
mannasambandsins. Hral’n í snörpu viðtali við GP.
„Nennum ekki að eyða degin-
um í að afsaka Hrafn,“ segir
forseti Alþingis.
„Haltu kj... helv... asn... Þið
eruð allir siúk... menn.“ saeði
F
i llla komið fyrir Bryndísi Schram
Reykjavík, 8. júní.
„Þetta byrjaði á því að ég gafst
upp á að lesa íslensk blöð af því
að þau voru full af slúðri og ill-
mælgi um mig og mína. Síðan tók
ég eftir því að margar bækur voru
engu skárri og að lokum gafst ég
upp á að tala við íslendinga af því
þeir voru alveg eins. Einnig höfðu
þessar eilífu utanlandsferðir sín
áhrif, við vorum nánast alltaf í út-
löndum á tímabili. Þannig gerðist
það smátt og smátt að samskipti á
íslensku skiptu æ minna máli og
nú get ég ekki talað við íslending
nema hafa túlk. Ég er bara mjög
sátt við þessa þróun mála," sagði
Bryndís Schram utanríkisráðherra-
frú, en komið hefur í Ijós að hún
hefur tapað móðurmálinu niður.
Það skal tekið fram að þetta viðtal
fór fram á ensku og var svo þýtt,
lesendum GULU PRESSUNNAR til
hægðarauka.
„Hún Bryndís mín er viðkvæm
rós þannig að það má segja að hún
sé að loka á neikvæð áhrif um-
hverfisins með þessu," sagði Jón
Baldvin Hannibalsson.
BRYNDIS SCHRAM: Segist ekki
ræða við aðra en dýr og útlendinga
þessa dagana.
BRYNDIS SCHRAM: S
ræða við aðra en dýr
þessa dagana.
14 PRESSAN FIMMTUDAGURINN 9. JÚNÍ 1994