Vísir Sunnudagsblað

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Vísir Sunnudagsblað - 05.06.1938, Qupperneq 3

Vísir Sunnudagsblað - 05.06.1938, Qupperneq 3
VlSIR SUNNUÐAGSBLAÐ 3 Þorsteina Bernharðsson: k ,vakt‘ í Hjalteyrarverksmiðjunni Við í svefnskálanum vökn- um við að eldhússtúlkan kallar í dyrunum, að maturinn sé til- búinn. Hve af öðrum ris upp í rúmum sínum. Þeir, sem klukkur eiga, draga þær und- an koddunum og fullvissa sig um, að nú sé aðeins hálftími til stefnu, — til að klæða sig, mat- ast og komast á vaktina. Klukkan er sex. Þegar hún er liálfsjö öskrar eimpípan og hinir liáu tónar hennar hljóma í eyrum oklcar, vaktaskifti •— vaktaskifti. Menn eru fljótir að klæða sig, og einn af öðrum liverfur út um dyrnar, um leið og far- ið er i klossanna, þvi flestir verksmiðjumennirnir ganga á klossum, nema þeir, sem í þrónum vinna, þeim nægir ekki minna en fullhá gúmmí- vatnsstígvél. Hún sagð satt, eldhússtúlk- an. Maturinn er tilhúinn. Hann er vel og stundvíslega fram- reiddur. Kúfaðar skyr- og hræringsskálarnar eru hroðn- ar, liver af annari, og fyrir hvert brauðfat sem tæmist kemur annað fullt. Te og kaffi- bolluín er lyft og úr þeim drukkið. Mönnum liðkast um málbeinið, pípur, tóbaksílát eru tekin upp. Síðan er haldið af stað, liver með sinn kaffi- brúsa og brauðböggul, því vaktin er sex tíma löng, og eitt- hvað volgt er kærkomið þegar á hana líður. Frá því að klukkuna vantar 5 mínútur í hálf-sjö og þangað til flautað er, er kvikt i verlc- smiðjunni. Sú vaktin, sem af hólmi er leyst, keppist við að skila öllu sem hestu í hendur þeirra, sem við taka, og ])eir sem nú koma til starfsins flýta sér í „gallana“, en svo eru á verksmiðjumáli nefnd ystu fötin; þau eru venjulega skil- in eftir á vinnustaðnum, því vinnan í sildarverksmiððju er fremur óþrifaleg, og að lykt- inni er sagt, að ekki þurfi að spvr j a. Það er flaulað. Hver gengur til sins verks, og nær allir ei’u mættir stundvíslega. Það þyk- ir skömm að því, að mæta ekki á réttum tíma, aulc þess sem að á stundvísinni veltur mikið og liart er tekið á, ef að ófyr- irsynju hcr á trassaskap. Yið þcssi vaktaskifti gengur lnnan skamms hefst sildveiðitíminn. Á síldinni velt- ur að miklu leyti hagur þjóðarbúsins. Það, sem her fer á eftir, er brot úr endurmintiingum frá s.l. sumri, skrif- að í stærslu síldarverksmiðju á Norðurlöndum, sem síð- an hefir verið bætt að vélum og öðru því, sem tryggir og eykur afköst hennar. Hjalteyrarverksmiðjan. vinnan vel. Síldin, sem unnið er úr,er ný og fitumikil. Allir eru i góðu skapi. Það eru menn venjulega þegar vel gengur. Vélaskröltið og suðið i skilvindunum lætur í eyrum okkar eins og fegursti söngur; söngur tækninnar og hins nýja tíma. Við erum þrír á vakt i skil- vinduhúsinu. Sá lieitir Gissur, sem fyrir okkur er. Hann gæt- ir þess, að skilvindurnar, sem eru 9 talsins, séu altaf í lagi. Við hinir tökum þær, sem ó- lireinkast og þvoum þær upp. Við þvottinn verður að hafa liraðar hendur, því ekki veit- ir af þessum 9 til að faka móti því lýsi, sem að streymir. Nú eru þær allar hreinar, skilvindurnar. Gólfið nýþveg- ið og ekkert sérstakt fyrir hendi. Það er; þvi óhætt, að einn okkar bregði sér frá og andi að sér lireinu lofti, og al- hugi hvernig það gengur að breyta síldinni, sem fyrir nokkrum klukkutímum sprikl- aði i snurpinót úti í mynni Evjafjarðar, í skraufþurt mjöl og gott lýsi. Við þann enda verksmiðj- unnar, sem að sjónum veit og geymir síldarþrærnar, er hryggja. Hún er ekki löng, því aðdýpi er mikið. Öðru megin á fremri enda hennar er lönd- unartækið, „kraninn“, sem svo er i daglegu tali nefndur. Þeg- ar skip er losað, er fjórkönt- uðum stokk, sem festur er á lilið „kranans“, stungið niður i lestina og hann látinn siga þvi dýpra sem skipið tæmist meira. Rafknúin skúffureim, sem gengur eftir endilöngum stokknum, færir svo síldina upp eftir honum i lárétta skúffu og eftir flutningshandi hennar berst hún inn á bryggju, i mælitækið; og eru í því þrjú hólf, og i sambandi við það sjálfvirkur teljari. Þegar svo eitt hólf tækisins er fult orðið, flyst annað und- ir, en úr þvi sem fult var, steypist á annáð flutningsband, sem liggur upp eftir bryggj- unni, og upp á gang, sem er uppi yfir þrónum. Tveir menn stjórna ,krananum‘. Gæta þeir þess, að alt sé þar í lagi. Á gólfi gangsins uppi yfir þrón- um eru göt og gegnum þau fer svo síldin af flutningsbandinu langa, í þá þró, sem notuð er í það og það skiftið. Niðri milli þrónna er svo gangur, og eftir honum endi- löngum liggur flutningsband- ið, sem her síldina, scm mok- að er út úr þrónum upp í suðu- pottinn. Á liverri þró eru þrjár dyr, og er starf þeirra, sem í þrónum vinna, það að standa í þeim dyrum, sem opnar eru og takmarka með fætinum að ekki renni of mikil síld niður á bandið, og eins liins, að alt- af gangi jafnt og nægilegt í pottinn, ef pott skvldi kalla, því að hann er liið mesta fer- liki, og í honum vellur og sýð- ur dag og nótt. Þegar síldin er liæfilega soð- in orðin kemur liún niður í pressuliúsið, hjarta verksmiðj- unnar. Á þeirri leið skilst mesta lýsið frá, en það, sem eftir verður og alt vatn press- ast úr á leiðinni gegnum iiress- urnar. Þær eru tvær og hver um sig bákn mikið. Rennur vökvinn til vinstri handar inn í skilvinduhúsið, en sjálf síld- in, sem nú er ckki orðin ann- að en smáir beinóttir kögglar, fer vfir til Aðalsteins, sem gæt- ir þurkaranna. Þurkararnir eru tveir tröllauknir sivalning- ar, sem snúast hægt og rólega. Inni i þeim er 6—800° hiti, og þeir skila mjölinu, sem nú er ennþá gróft, fullþurru í kvarn- irnar sem mala það, og spúa því i viftu, sem þeytir öllu, sem i liana kemur í trelct eina mikla uppi á þaki. En þar kólnar mjölið og fellur niður í vog, sem liangir i loftinu neð- Framh. á 7. síðu. Togari við bryggju á Hjalteyri.

x

Vísir Sunnudagsblað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/299

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.