Vísir Sunnudagsblað - 05.06.1938, Blaðsíða 8

Vísir Sunnudagsblað - 05.06.1938, Blaðsíða 8
8 VISIR SUNNUDAGSBLAÐ STÆRSTI FLUGBÁTUR DANA. Mynd þessi er af stærsta flugbát danska flotans og er hann ætlaður til langflugs. Ef til vill kemur flugbátur þessi til íslands i sumar. Þetta er svo kallaður Dornier-Wall-flugbátur. SKRÍTLUR KOM HONUM EKKI VIÐ. Kardináli nokkur liafði einu sinni móðgað Micbaelangelo.Til þess að hefna sín, málaði lista- maðurinn óvin sinn á mynd, sem táknaði Viti, mitt í hóp hinna fordæmdu. Allir skildu háðið, því ómögu- legt var annað en að þekkja kardínálann. Sá hinn sami bar sig upp undan þessu við páfa, en liann mat málarann og snild lians meira en svo, að hann tæki í mál að atyrða hann, en við kardínálann sagði hann: ..Ef Micbaelangelo hefði móðg- að yður á liimnum, á jörðunni eða í hreinsunareldinum, hefði eg getað látið til mín taka, þvi þar hefi eg dálítil völd. En Viti kemur mér ekkert við.“ VÍNFLASKAN. Jacobsen liðsforingi dó og liðsforingjamir Schultz og ISmith áttu að sla-ifa lista yfir liluti þá, sem hann hafði átt. Þar á meðal var vínflaska, sem enginn miði var á. „Þetta er víst Bordeaux-vín“, sagði Schultz. „Eg held að það sé Tokay- vín“, sagði Smith. Scliultz tólc tappann úr flösk- unni og bragðaði á innihald- inu. „Það er Bordeaux-vín, eins og eg sagði!“ Smith fékk sér líka sopa. „Hvaða endemis vitleysa, það er Tokay-vín!!“ Hálfri klukkustund síðar skrifuðu þeir á listann yfir muni bins látna: .... Nr. 27. Tóm flaska. TAUGAÓSTYRKUR. Lestin nam staðar á stórri járnbrautarstöð. Maður nokkur rak höfuðið út um glugga á 3. flokks klefa og kallaði óttasleg- inn: „Það leið hérna yfir kven- mann. Hefir ekki einhver ylckar dálítið brennivín ?“ Honum var í'étt flaska; hann tók lappann úr henni í mesta flýti og —----fékk sér vænan sopa. „— Æ-jæja“ —- sagði liann og varp öndinni léttar, „þetta var golt, ég þoli hreint ekki að sjá líða yfir kvenmenn“. BETRA EN NOKKUR KONUNGUR. Ráðherra nokkur lá rúmfast- ur á sjúkrahúsi. Yfirlæknirinn hafði altaf stóran lióp af lækn- um, lijúkrunarkonum og stúd- enlum með sér á stofugang. Einu sinni, þegar bann kom inn í herbergið til ráðherrans með allan hópinn á eftir sér, sagði ráðherrann: „Herra prófessor, allur þessi skari hlýðir blint hinum minstu bendingum yðar. Það er alveg eins og þér séuð konungur“. Prófessorinn svaraði stutt- lega en þó kurteislega: „Já, yðar hágöfgi, og til allr- ar hamingju ráðherralaus kon- ungur. OF SEINN. MacGregor og MacPehrson ákváðu að gerast algjörðir bindindismenn, en MacGregor liélt að það væri varlegra að bafa eina flösku af whisky í skápnum, ef veikindi skvldu leita á þá. Eftir 3 daga þoldi MacPelir- són ekki lengur mátið og sagði: „Heyrðu, MacGregor, mér líð- ur ekki rétt vel.“ „Of seinn, of seinn MacPelir- son. Ég var sárlasinn í allan gærdag.“ SKRAUTLEGUR LÍKAMI. Mest „tatoveraði“ maður i heimi dó um daginní Sidney. Átla hundruð myndir voru „tatoveraðar“ á líkama lians: Skip, vitar, menn, konur, blóm, fiðrildi, fánar, ernir, hestar, fiskar og höggormar. KVÖLIN OG VÖLIN. Þýskur gyðingur, sem fyrir nokkru liafði sett hér á stofn leðuriðnað, kom með konu sína til tannlæknis í Reykja- vik, til þess að lála taka úr lienni tönn. Gyðingurinn spyr lækninn livað kosti að taka tönnina með og án deyfingar. Læknirinn svarar, að það kosti 5 kr. með deyfingu og 3 kr. án deyfingar. Gyðingurinn hugs- ar sig um augnablik og segir svo: Takið úr henni tönnina án deyfingar. VÍ SIR DAGBLAÐ Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H/F. Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson. Skrifstofa: Hverfisgötu 12. Afgreiðsla: Hverfisgötu 12. (GengiS inn frá Ingólfsstræti). S í m a r: Afgreiðsla 3400 Ritstjórn 4578 Auglýsingastjóri 2834 Verð 2 krónur á mánuði. Lausasala 10 aurar. Félagsprentsmiðjan h/f. SKARPSKYGNI. Maður nokkur frá Aberdeen hitti vin sinn, sem var Lun- dúnabúi. — Meðal annars furð- aði Lundúnabúinn sig á þvi, hve margir Skotar væru í ýms- um trúnaðarstöðum í liöfuð- borginni. „Það kemur til af því, að við Skotar erum yfirleitt skarp- skygnari lieldur en þið Eng- lendingar.“ „Má vera, — eii livernig stendur á því?“ „Það er ósköp einfalt. Við lifum mikið á fiski og það eyk- ur skarpskygnina. Þú ættir bara að reyna þetta. Á ég ekki annars að senda þér fisk fyrir svosem eitt £, þegar ég kem heim ?“ „Golt og vel — gerðu það.“ Og svo fékk Lundúna-búinn Skotanum eitt £ og fékk svo einn þorsk sendan um liæl frá Aberdeen. — Nokkrum dögum seinna hittust vinirnir aftur. „Jæja,“ sagði Aberdeen-bú- inn, „hvernig gekk — finnurðu ekki mun?“ „Ó-nei — ekki get ég nú sagt það.“ „Jæja, þú verður að vera þol- inmóður. -—• Á ég að senda þér fyrir eitt £ í viðbót?“ „Jú, kannske —“ Skotinn fékk eitt £ í viðbót, en Lundúna-búinn einn þorsk. — Þeir liittust aftur. „Jæja — hvernig gengur —, nú hlýturðu að finna mun!?“ „Nei, það get ég ekki sagt.“ „Jæja, en úr þessu máttu nú ekki gefast upp. Þú verður að taka alla n„kúrinn“. Ég sendi þér þá fyrir eitt £ í viðbót?“ „Já . . En heyrðu!! — Þetta er annars voðalegt verð fyrir einn einasta þorsk. Þetta er eitthvað skrítið.“ „Já, hvað sagði ég ekki!!“ lirópaði Skotinn sigrilirósandi. — „Fiskurinn er farinn að verka!“.

x

Vísir Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/299

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.