Vísir Sunnudagsblað - 21.08.1938, Síða 1

Vísir Sunnudagsblað - 21.08.1938, Síða 1
1938 Sunnudaginn 21. ágúst 32. blaö ÞORSTEINN JÓSEFSSON: Hjátrú íþráttamanna. Einhverju sinni, daginn áður en eg kepti í víöavangshlaupinu í Reykjavík, hitti eg Jón Kaldal Ijósmyndara að máli. Þegar við kvöddumst, spýtti Kaldal á eftir mér, en af því, að eg gaf honum lieldur óhýrt auga fyrir þessa ósvifni, gat hann þess lilæjandi um leið, að þetta væri hesta sig- urósk, sem liann gæti gefið ein- um manni. Þetta voru fyrstu drög til þess, að eg tók að frýnast í hjá- trú íþróttamanna. En á Ólymps- leikunum í Berlín liafði eg sér- stakt tækifæri til að afla mér upplýsinga um þetta efni, og sumar þeirra liefi eg liripað nið- ur, samt í mjög stuttu máli- Eg skal taka það fram, að meðal íþróttamanna tel eg flug- menn og lcappakstursmenn, enda þótt sumir geri það ekki. Ef við atliugum út af fyrir sig orðið hjátrú, er okkur oft ekki ljóst hver munurinn er á trú og hjátrú. Eg veit til dæmis að margir Búddhatrúarmenn kalla kristnina lijátrú; og ef það er rétt, að hjátrúin sé trú á til- veru og mátt dularfullra afla, er standa í andstöðu við heil- brigða skynsemi og staðreyndir vísindalegra rannsókna, þá er öft ekki gott að greina á milli hjátrúar og trúarbragða.Því ef við ætlum að draga skarpar lín- ur á milli beggja þessara liug- taka, þá rekum við oklcur óhjá- kvæmilega á ýmsar bábiljur i kristinni trú, sem ómögulegt væri annað en greina undir hjá- trú. Við verðum að viðurkenna þetta. Alt annað er að berja höfðinu við stein. Annars slafar lijátrúin óefað af óánægju gagnvart trúar- brögðum. Þau fullnægja ekki, þau skýra ekki ráðgátur tilver- unnar nægilega og menn skapa sér þessvegna sjálfir nýja trú — lijátrúna. Hún er bygð á per- sónulegum skoðunum, eða und- ir vissum kringumstæðum jafn- vel reynslu. Öll lijátrú er í senn óttatrú og óskatrú. Það er ótti við allskonar dularöfl og óskir um að hagnýta sér þau í eigin þarfir. í íþróttum gætir þessa í noklc- uð rikurn mæli, jafnvel þótt við Islendingar höfum ekki mikið af þvi að segja. Hjátrúin er að hverfa úr islensku þjóðlífi, og í íþróttum hefir liún aklrei fest verulegar rætur. Hinsvegar hefir amerískur háskólakennari fullyrt, að 85% þeirra stúdenta í Bandaríkjunum, sem fást við íþróttir, trúi á dularmátt óska- gripa. Ef til vill ér lijátrúin rikust meðal þeirra íþróttamanna, sem eru liáðir vélum, eins og kapp- akstursmenn, lijólreiðamenn eða flugmenn. Og þetta er skilj- anlegt — þeim mun skiljan- legra, sem vélarnar eru full- komnari. Þar nægir ekki að trúa á getu sína, fimi eöa dirfsku,því maðurinn er liáður vélinni, og augnabliks bilun getur riðið stjórnanda hennar að fullu. Þess vegna er ofur eðlilegt, að menn trúi á hepni sina, eða m. ö. o. trúi á einhvern dularmátt, sem haldi yfir manni hlifi- skildi. Frægur þýskur flugmaður, Helmuth Hirth, hraðapi ein- hverju sinni með flugvélsinniúr mikilli liæð og til jarðar. Flug- véliu molaðist mélinu smærra, en flugmanniim sakaði af ein- liverjum óskiljanlegum ástæð- um ekki neitt. Frá þeini degi trúir hann á mátt skyrtunnar, sem hann flaug í þá, og hann klæðist henni síðan hvert sinn, sem hann fer í erfiðar eða vandasamar flugferðir. En hún hefir aldrei verið þvegin frá því að slysið bar að höndum, — það væri það sama og að glata dul- ‘armætti hennar. Iiliðstæð þessu er saga af öðrum flugmanni, sem vegna hjátrúar bar ávalt prjónahettu undir sjálfri flug- húfunni. Eitt skifti gleymdi liann prjónahettunni, og í það sama sinn varð hann fyrir á- rekstri sem kostaði einn mann lífið, og sjálfur lá hann um mánuð á sjúkraliúsi. Þessi dæmi, sem liér eru til- greind, sýna livaða trú menn leggja á fatnaðinn, sem menn klæðast í. Fatnaður hefir vfir liöfuð mikla þýðingu í hjátrú íþróttamannsins. — Norsku skautadrotningunni Sonju Henie liefir í livert sinn mistekist skautaldaup, þegar liún hefir klæðst rauðri flík. Fjölda marg- ir íþróttamenn hafa ótrú á að keppa í nýjum búningi; sumir keppa lielst ekki nema í bætt- um íþróttabúningi, og sigur- horfurnar eru þeim mun meiri, sem bæturnar eru fíéiri. — 1- SONJA HENIE skautadrotningin, nýtur hér sólarinnar meðan hún er að híða eftir því að skautabrautin verði fyllilega tilbúin, en þar sem hún er stödd, í Miami í Florida, er ísinn búinn til með vélum og skauta- brautin innanhúss. Sonja Henie heftir leikið í nokkrum kvikmynd- um vestra og grætt of fjár. Hún er nú komin til Noregs í bili.

x

Vísir Sunnudagsblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/299

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.