Vísir Sunnudagsblað

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Vísir Sunnudagsblað - 21.08.1938, Qupperneq 5

Vísir Sunnudagsblað - 21.08.1938, Qupperneq 5
VISIR SUNNUDAGSBLAÐ 5 veitli ótal íiyggingarmeisturum og verkamönnum nýja atvinnu og ný viðfangsefni. Hún er mynduð af foringjum eins flokks, sem hefir brotist til valda og leitt skoðanir sínar til sigurs, í einu og öðm, og kem- ur þeim nú í framkvæmd. Það ier því engin l'urða þó að ríkis- stjórnin hafi ekki einungis sem slik staðið fyrir allmörgum' nýj- um byggingaráformum (t. d. loftmálaráðuneytinu í Berlín, olympíuleikvangi, bifreiða- brautum), heldur einnig sem yfirstjórn nasistaflokksins. Sem slík hefir hún látið reisa allar hinar nýju byggingar flokksins í Miinchen, „liöfuðborg lireyf- ingarinnar“, og í Niirnberg, þar sem hin árlegu flokksþing eru liáð, og skóla fyrir flokksfor- ingja um land alt. Með vaklatöku nasista brautst einnig skoðun þeirra í listarmál- um til sigurs. Þetta vakti ugg i hjörtum margra, ekki síst vegna þess að menn óttuðust að ríkisstjórn nasista, sem liefir róttækari áhrif á líf þjóðarinn- ar en nokkur önnur stjórn, hvorki eldri stjórnir þar í landi né stjórnarfyrirkomulag ann- arsstaðar i heiminum, myndi setja listina og vinnu lista- manna undir alt of strangt eft- irlit flokksins eða ríkisins. Yfirleitt mun skoðun all- magra manna lil þessa dags hafa verið sú, að listamaðurinn þurfi að vera algerlega frjáls, ó- bundinn af nokkrum takmörk- um, hvaða nafni sem nefnist, sem gætu stöðvað hugmynda- flug lians eða þrengt að því, og allra síst máttu, að áliti þessara manna, koma til mála stjórnar- farslegar eða þjóðlegar tak- markanir fyrir frelsi lista- mannsins. Spursmál er, hvort slík list hefir nokkurn tíma verið til, a. m. Ic- list, sem hefði getað skap- að sígild listaverk. Alhnörg hinna dýrmætustu listaverka fyrri alda hafa einmitt verið sköpuð eftir föstum reglum, sem einhverjar stofnanir, vald- hafar eða stéttafélög hafa sett. Mætti hér nefna kaþólsku kirlcj- una á miðöldum eða öðrum tímabilum, sem ávalt hafði strangar gætur á því, sem hún lét listamenn byggja, mála eða rita, eðá furstana á renaissance- tímabilinu ítalska eð konunga og keisara Frakklands. Samt hafa á öllum, þessum timum komið fram liin diásamlegustu listaverk, sem aldrei munu tapa gildi sínu. Eða getum við t. d. hugsað okkur Iiina frægu meist- ara Hollendinga án hins inni- Líkan af ,,KDF-Festhalle (KDF-hátíSarhöll) á eyj- unni i Rugen, þar sem IvDF (deild verkamanna- samtakanna, sem sér um íerSalög og skemtanir) er nú aö byggja stóran baö- staö fyrir meölimi sína. Leikhúsið í Dessau, nýj- asta leikhúsið í Þýska- landi, sem var vígt í sum- ar. Leikhús þetta hefir 1261 sæti. Leiktjaldaturn- inn er 38 mtr. hár, leik- svæöið, sem er af nýjustu gerð, er 1470 fm. aö flat- armáli. lega sambands, sem þeir höfðu við lif og athafnir þjóðar sinft- ar, eða byggingarmeistara og tónskáld um allan heim og' á öllum öldum, sem hrósuðu drottins dýrð með verkum sín- um, án hinnar sterku og ströngu trúar þeirra? Þannig hafa á öllum tímum — og hinum nýju leiðtogum í Þýskalandi leiðist aldrei að benda á það í raéðu og riti —■ verið til vissar takmarkanir og' reglur, sem listamenn urðu að fara eftir. Nasistunum, sem samkvæmt kjörorði dr. Goebb- els, „vilja ekki þrengja að list- inni, heldur stuöla að henni“, fanst því ekkí nema sjálfsagt að heimta eitthvað af listamönn- unum, um leið og þeir veittu þeim nýja möguleika til frægð- ar og frama- Þeir heimtuðu af þeim, að listaverk þeirra væru þjóðleg, þ. e. þýsk, og skír. For- ingi þeirra mælti eitt sinn á þessa leið: „Hinn besti kjarni þjóðar okkar, líkami hennar og sál, á að vera mælikvarði ykk- ar. Boðorð fegurðar á að vera heilbrigðin. Þetta vill segja fyr- ir byggingameistarana: skír- leiki og hagsýni“. Himtað er því nú af bygg- ingarlistinni, eins og af öðrum greinum listarinnar, að liún sé nátengd þjóðerni Þjóðverja, hinum miklu viðburðum vorra daga, kröfum nútímans, hvað viðvikur byggingarefni og lagi, og kröfum ahnennings, sem kemur til að nota byggingar þessar eða njóta þeirra. Til þess að tryggja stefnu þessari framgang, hafa allir listamenn verið sameinaðir undir menningarráð eitt, sem byggingardeildin er einn þáttur í. Sérhver byggingarmeistari verður að vera meðlimur deild- ar sinnar, sem svo á fulltrúa í hinu stóra menningarráði. Með þessu móti liafa listamennirnir áhrif á meðferð mála sinna og eiga aðgang að þeim hlunnirid- um, sem ríkið eða aðrar opin- berar stofnanir liafa upp á að bjóða, svo sem verðlaunasam- kepnum, sýningum, gjöfum til listamanna, ellilryggingu o- s. frv. —- Þannig er nú ástatt um list- ina 1 Þýskalandi og byggingar- listina sér í lagi. Hér hefir ekki verið hægt að sýna fram á nema það helsta, sem fram hefir kom- ið á þessu sviði liin síðari ár. Til þess að menn geti sjálfir dæmt um hhia nýju stefnu, sem þar er að brjótast fram, fvlgja greininni nolckrar mynd- ir, svo að hver og einn geti val- ið eða hafriað. H. Þ. og ekki nóg með það, heldur horfist hann í augu við dauðann. Maðurinn hér að ofan lieitir Wayne Pierce frá Hollywood, en hann ók með 15 mílna hraða á klukkustund í gegnum brenn- andi vegg, til þess að sýna lirugrekki sitt og dirfsku.

x

Vísir Sunnudagsblað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/299

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.