Vísir Sunnudagsblað

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Vísir Sunnudagsblað - 21.08.1938, Qupperneq 7

Vísir Sunnudagsblað - 21.08.1938, Qupperneq 7
VÍSIR SUNNUDAGSBLAÐ 7 HJÁTRÚ IÞRÓTTAMANNA. Frh. af 3. síðu. lirækja út úr sér er gamalt og gott ráð gegn draugum, en að lirækja á eftir öðrum er heilla- vænlegt fyrir þann, sem lirækt er á eftir. Austurrískur kapp- akstursmaður leigði sér sótara til að hrækja á bifreiðina sína, af því að haim 'hélt að það væri tryggara heldur en að hann gerði það sjálfur. Sömuleiðis lirækja margar skyttur ýmist á skotfærin eða bóginn á byss- unni til að þær hitti betur. — iDraumar geta haft milda þýð- ingu. Ef iþróttamann dreymir t. d. hænur fyrir kappleik, bíð- ur liann undir öllum kringum- stæðum ósigur. Dreymi hann uglu, er best að ganga úr leik og hætta við kepnina. Blóm eru aftur á móti mjög heillavænleg og ávextir gefa manni óvtiræð- an sigur til kynna. Eg harma það ekki, þótt við Islendingar séum að mestu laus- ir við hjátrú í þessum efnuni. Trú og hjátrú stafa af þekk- ingarskorti; en hinu verður ekki neitað, að h ú í hvaða mynd sem er gefur afl. Þess vegna er það, að trú á sjálfan sig og hepni sína eykur getu manns og eyk- ur möguleikana til sigurs, enda þótt blind sigurvissa valdi of- metnaði og geti orðið manni að falli. Sumir menn ganga í berhögg við alla hjátrú, og gera ná- kvæmlega alt, sem hjátrúin bannar þeim að gera. Og þeim hepnast fyrirtæki sín eftir sem áður, af því að þeir eru sann- færðir um það, nð lijátrúin er eklcert annað en bábiljur og heimska. Hér er eitt dæmi um shkt „stríð“ á hendur hjátrúnni, sem háð var af ameríska flug- manninum Luis Barr, en flug- menn eru yfirleitt allra manna hjátrúarfylstir. Þann 13. mars 1936 (talan 13 er óheillatala amerískra bifreið- arstjóra og flugmanna) lagði Luis Barr í einkennilegt flug. Hann fláug til þess að kasta sér í 13. sinn æfi sinnar út úr flug- vél, og að þessu sinni úr 1300 m. hæð. En áður en hann lagði af stað gerði hann alla þá ó- svinnu, sem einn maður getur gert áður en hann leggur til flugs, og sem í sumra augum gilti það sama og að ganga út í opinn dauðann. Fyrst og | fremst braut hann spegil í j smátt, stráði niður salti, gekk 1 undir stiga, liljóp í veginn fyrir I svartan kött og skrifaði meira að segja sjálfur sína eigin dán- j artilkynningu. En þetta nægði f honum ekki. Hann lét taka af sér mynd rétt fyrir flugið, og fór auk þess öfugu megin inn í flugvélina. Nákvæmlega kl. 13,13 steig hann með vitlausum (þ. e. vinstra) fæti öfugu megin út á flugvélarvænginn og henti sér fram af. Mörg þúsund á- horfendur, er vissu um fyrir- tæki þessa uppreistarseggs hjá- trúarinnar biðu með ugg og kviða, en jafnframt eftirvænt- ingu og forvitni niður á flug- vellinum í Beaconsfield og horfðu á fall jiessa fífldjarfa flugmanns. Og það virlist líka rnuna litlu, að liann vrði fifl- dirfsku sinni að bráð, þvi fall- hhfin opnaðist ekki fyr en á síð- ustu stundu. Samt lenti liann heilu og höldnu og trúleysi lians á örlagamætti kynjaaflanna virtisl ekki liafa komið honum að sök. Þorsteinn Jósepsson. Hitt og þetta* Erfðaskráin og flaskan. Árið 1912 var auglýst í blöð- um víðsvegar um heim, að hver sá, er fyndi ákveðna flöslcu, sem varpað Ixafði verið i sjóinn á skipaleið um Atlantsliaf, skyldi fá 125 þúsund króna fundar- laun. Þessi merkilega flaska liafði að geyma arfleiðsluskrá, er auðinaður nokkur vestan liafs hafði gert rétt fyrir andlát sitt. Hann var svo auðugur, að eignir hans námu 150 miljónum króna. Og nú var málflutnings- maður hans á leið austur yfir liaf með arfleiðsluskrána í vas- anum. Á miðju Atlantshaíi varð hann skyndilega brjálaður. Og þá tók liami sér fyrir hendm*, að láta hina dýrmætu erfðaskrá í flösku, lokaði flöskunni vel og vandlega, að þvi er hann sagði síðar, og varpaði henni í sjó- inn. Þegar auglýsingin um fmid- arlaunm kom í blöðunum, varð uppi fótur og fit meðal sjó- manna og annara, þeirra er við sæ dvöldust eða á sjó fóru stöku sinnum, þvi að alhr vildu hreppa fundarlaunin. En það er af l'löskunni að segja og erfða- skránni, að hvorug liefir fund- ist enn í dag, og munu nú flestir lorðnir vonlithr um, að hreppa fundarlaunin — þessar 125.000 krónur. Fyrsta járnbraut í Kina var bygð 1876. En ekki var þjóðin hrifnari en svo af þeirri samgöngubót, að stjórnin neyddist að lokum til þess, að rífa sporbrautina og eyðileggja vagnana. PAUL DEL RIO, minsti maður í hehni, sést hér á myndinni í viðtali við blaða- menn. Del Rio er 18 ára að aldri, 19 þumlungar að hæð og vegur 12 pund. Hann er fæddur i Madrid á Spáni og þar býr bróðir hans, sem er nautaatskappi, þrjár álnir að hæð. For- eldrar hans báðir eru liáir vexti og systir hans vel í meðallagi. SHIRLEY TEMPLE fór í heimsókn til Washington nú fyrir nokkru til þess að liehnsækja Roosevelt forseta, Hoover og aðra góða menn. — Mynd þessi er tekin á Waldorf-Astoria gLstihúsinu.

x

Vísir Sunnudagsblað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/299

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.