Vísir Sunnudagsblað - 14.05.1939, Síða 8

Vísir Sunnudagsblað - 14.05.1939, Síða 8
8 VlSIR SUNNUDAGSBLAÐ Tarzan-tvíburarxiir np.is Nonni ákvað að framkvæma þeg- ar bragöið, sem átti að forða linifnum. Hann sagði við Bulala: „Segðu honum að taka vel eftir bragðinu, sem eg ætla að sýna“. „Gott ráð?“ spurði Bulala. „Já“, sagði Nonni hiklaust. Höfðingjanum leist auðsjáanlega vel á lmífinn, þegar Nonni sýndi honum liann í hægri liendi sér. Siðan huldi hann hnífinn með þeirri vinstri. „Hokus, pokus“, hrópaði liann. „Nú er hann liorf- inn!“ Það var rétt og liöfðinginn varð mjög undrandi. Svo rélti Nonni höndina að vinstra eyra Surts og jafnskjótt var hnífurinn aftur í lófa lians. Surtur varð svo undr- andi, að liann settist á stólinn sinn. Það fauk í Surt yfir þessu hragði Nonna. Ilann reis á fætur, ösku- vondur og háðir drengirnir urðu skelfingu lostnir. Þeir vissu eklci hvernig hann myndi svala reiði sinni og höfðu enga hugmynd um„ livernig mætti sefa hann. En Galla Galla ágirndist meira fötin þeirra, en að hefna sín á þeim. Hann lét segja þeim að af- klæðast strax og þeir urðu að hlýða. I staðinn tóku þeir garm- ana, sem þeim voru fengnir. Þeir vöfðu þeim um lendar sér, eins og þeir vissu að Tarzan gerði. Það var eklci laust við að þeir vær dálítð lireyknir af að vera nú orðnir svona líkir honum í ,.klæðaburði“. Þeim hafði enn tekist að fela hníf- ana og Nonni var ákveðinn í að 'þeir skyldi lialda þeim. En nú lieimtaði Galla Galla, að liann léki bragðið aflur og hann varð að gera það. Galla Galla sagði nokkur orð. — „Hann vill fá að vita livar þeir eru“, sagði Bulala. Intamo láng- aði til að heyra svarið, þvi að hann ætlaði að láta koma þeim strax fyrir kattarnef, ef þeir væri meiri galdramenn en hann. Nomii Ieit í kringum sig til þess að tefja tímann og hugsa sig um hverju hann ætti að svara. Hann hafði alls ekki í hyggju að segja höfðingjanum, hvernig hann færi að þessu. Nonni kom auga á Paabu, ung- linginn, sem liafði ætlað að rota hann. Hann benti á eyra Paahus. „Hnífurinn er þarna inni og verð- ur þar, þangað til við komust héð- an á brott“, svaraði hann. a-4y___________^ Intamo glotti og hvislaði í eyra höfðingjans: „Hann er ekki töfra- maður. Hann er svikari. Styttum þeim strax aldur“. „Nei“, svaraði Galla Galla, „ekki fyrri en við fréttum lát Tarzans“. Intamo lét sér ekki segjast af þessu, en Bulala lieyrði gi-einilega lxvað þeim fór á milli. Hann fylt- ist skelfingu. Nú gat hann sagt þeim ógurlegar fréttir.

x

Vísir Sunnudagsblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/299

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.