Vísir Sunnudagsblað

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Vísir Sunnudagsblað - 22.02.1942, Qupperneq 1

Vísir Sunnudagsblað - 22.02.1942, Qupperneq 1
 1942 Sunnudaginn 22. febrúai* 1. blad Saga iii* Sandgerði. Sandgerði, liið fiskisæla sjó- þorp Suðurnesja, telur fáa ibúa, en kemur mjög við atvinnu- sögu landsins og er mörgum kunnugt vel vegna verstöðv- anna er verið hafa þar um langan aldur. Mörgum fiskugganum hefir fleygt verið á land i Sandgerði, og margur örþreyttur sjómað- urinn röltir frá bátnum sínum upp að næsta verzlunarhúsi og kaupir þar öl og vindlinga sér til hressingar áður en lagt er af stað i næsta róður, Staðnæmist hann þá slundum við húðar- gluggann með^sjópokann í ann- ari hendinni og vindlinginn í hinni, og starir liugsi nokkura stund. Það eru ekki olíustakkarnir, vettlingarnir eða matarílátin er vekja athygli hans, heldur höf- uðkúpur tvær, er mæna holum augnatóttum út á hafið, lífæð lands vors og vöggu sjómanns- ins, er hann livorttveggja í senn óttast og þráir. Hinum unga sjómanni fljúga þá í hug hætturnar, er starfi hans fylgja, en jafnframt finn- ur hann, að liann er tengdur hafinu órjúfandi böndum. Gunnreifur leggur liann frá landi á nýjan leik og iiræðist livergi, þvi hann þekkir hafið. Það er að vísu' dutlungasamt, en það á í fórum sínuin ótæm- andi auðæfi iianda vöggubörn- um sinum, sjómönnunum, er frá barnæsku bera óslökkvandi þrá í brjósti sér til hafsins, þrá, sem fylgir þeim út yfir gröf og dauða, eins og sagan um höfuð- kúpurnar sýnir okknr. Höfuðkúpur þessar rak á land í Sandgerði fyrir nokkur- um árum. Eigi var mönnum kunnugt um uppruna þeirra, en þess var til getið, að þær væru jarðneskar leifar sjódrukkn- aðra manna. Einliverjir tóku liöfúðkúpurnar úr fjörunni og báru á land. Var þeim lítil liirðusemi sýnd og eigi voru þær grafnar í jörðu niður eða veittur annar veglegri 'umbún- aður. Leið nú svo nokkur timi, að höfuðkúpurnar þoldu mis- jafna meðferð innan um alls- konar skran í vörugeymsluhúsi. En 'er frá leið þóttust menn verða ýmiss varir í sambandi við liöfuðkúpurnar, einkum þeir, er berdreymir og skyggnir eru kallaðir, en fálega var því tekið af öðrum, er ekkert dreymdi og ekkert sáu og eigi kváðust trúa á svipi eður aftur-" göngur. Hina draumskýrari menn dreymdi títt, að til þeirra kæmu menn tveir, er báðu þess, að eigi væri svo hraklega farið með höfuðhein þeirra sem ver- ið liefði. Eigi kváðust þeir óska að vera grafnir i moldu, en vildu gjarnan livíla einhversstaðar þar, er sæi á sjó fram. Er frá leið, tóku draumar þessir að ágerast, og báðu hinir látnu sæfarar stöðugt um það sama, að þeim væri eigi meinað að liorfa út á liafið. Kom það nú fyrir, að menn þóttust verða reimleika varir i vörugeymsluhúsinu og þar i nánd, einkum er nátta tók. Gerðust nú margir atburðir undarlegir og þar kom um sið- ir, að eigendaskipti urðu við verzlunina og dag einn lét hinn nýi eigandi taka liöfuðkúpurn- ar úr vörugeýmslunni. Yar þeim smíðaður stokkur einn lílill með gleri á þeirri hlið, er fram sneri og valinn staður i aðalglugga verzlunarinnar. Þaðan er útsýni gott, þvi hús- ið stendur niður við sjó og íramundan blasir við endalaust útliafið. Virðast hinir látnu una þar betur hlutskipti sínu, því frá þeim degi að höfuðkúpurnar komu í búðargluggann, hefir eigi borið á reimleikum. Eins og fyrr getur, skeðu ýms- fr minnisverðir atburðir í sam- bandi við höfuðkúpur þessar, og mun hér skýrt frá einu slíku fyrirbrigði, eins og sagan Um það gengur manna á meðal enn þann dag í dag. Aðalsöguhetjan er maðureinn, ættaður úr Garðinúm. Hann var sjómaður og munum vér eigi nafngreina hann hér, eu kenna liann við atvinnu sína. Sjómaður jiessi var á bezta aldri og hraustur vel, en nokkuð þótti hann ærslafenginn og djarf- mæltur. Eitt sinn er hann steig á land í Sandgerði ásamt félögum sin- um, gekk liann þar að er höfuð- kúpurnar lágu, tók þær i liend- ur sér og skoðaði. Kvaðst liann engan ótta bera af beinum þess- um, fór um þau nokkrum liáð- uglegum orðum og fleygði síð- an. Að kvöldi sama dags var ekki lagt í róður, og gekk þá sjómað- ur og félagar hans til náða i verbúðum nokkrum á efri hæð í tvílyftú timburhúsi niður við sjó. Verbúðirnar eða svefnskál- ar sjómannanna, opnast þarna allar að sameiginlegum gangi, er liggur um húsið endilangt. Bar ekki til tíðinda um kvöld- ið, en sagt er að um miðnætti hafi maður einn er í innzta svefnskálanum hvildi, orðið þess var, að hurðin opnast og inn er gengið í skálann. Sér hann „Það eru ekki olíustakkarnir, vettlingarnir eða matarílátin, er vekja'. athygli hans, heldur höfuðkúpur tvaer, er mæna holum augnatóttum út á hafiÖ \

x

Vísir Sunnudagsblað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/299

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.