Vísir Sunnudagsblað

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Vísir Sunnudagsblað - 22.02.1942, Qupperneq 6

Vísir Sunnudagsblað - 22.02.1942, Qupperneq 6
« VÍSIR SUNNUDAGSBLAÐ Þjóðverjar hafa sagt frá því nokkrum sinnum, að þeir hafi tekið kvenfólk til fanga af Rússum. Sjást hér tveir kvenfangai’, sem Þjóðverjar tóku í orustu um borgina Notuit við Ladoga-vatn. Rússar halda því hins vegar fram, að þeir hafi engar kvennahersveitir. Mary Churchill, yngsta harn fox-sætisráðherra Breta, hefir gengið í kvenna- herinn brezka. Hún er 18 ára gömul og verður að vinna öll sömu verkin og aðrar stúlkur, þrátt fyrir ætterni sitt. Hún vonast til þess að komast í loftvarnabyssuliðið siðar. liæfis, en liafði ekki hugmynd um „stofnunina“, enda á „frí- vagt“ og visaði mér á íslenzku lögreglustöðina. En þegar eg kvaðst þaðan nýkominn, sagði liann mér að koma með sér, en af því að eg hikaði, sagði liann: „at-í-la-ki“ á góðri islenzku, svo mér þótti nóg um. Bjóst nú við að verða dreginn fyrir her- rétt og drepinn, en mundi þá eftir, að eg átti einhverntímá að kveðja þenna heim, livort sem var, svo mér var alveg sama. En nú bar svo við, að á móti okkur kom enskur lát, Mr. von Laps paa dansk, íturvaxinn og prúðbúinn með eingler til varn- ar vinstra auga. Þessum manni var glæsimennska í blóð borin, það var engin uppgerð. Lög- regluþjónninn lieilsaði látnum á hermannavísu, en látinn benti svo eldfljótt til liöfuðs sér, að sjö sýndust hendur á lofti. En eg notaði tækifærið að stinga af, æpti: Allt í lagi og hentist inn í Reykjavikur apótek, upp á loft, inn í bæjarskrifstofu og liorgaði útsvarið mitt frá toppi til táar i hvellinum. Hefði gjarn- an viljað borga mikið meira, eins og nú stóð á. Bretinn beið mín ekki úti. Og enn var eg engu nær með aðalerindið. Dro eg mig því á íslenzku lögreglu- stöðina í annað sinn, og var nú kominn með þvengmjótt sorg- arandlit,kjökurraddaður og vot- ur um augun. Sagðist hvergi finna úthlútunarskrifstofu rík- isins; væri búinn að leita af mér allan grun í Góðtemplarahús- inu, þar væri líklega verið að svíða, svo menn þyrftu ekki að fara á rakarastofu;en í Tryggva- götu væri ekkert húsnúmer og enginn sem vissi frá hvaða enda hún ætti upptök sin. Kvaðst liafa komið í hús eitt í götunni þar sem margt fólk hefði verið sarrián komið, þar hefðu allir verið grafalvarlegir og sumir með spjöld á milli fingranna, sem á hefði verið letrað S. R., sem eg fyrst hefði útlagt Skömmtunarskrifstofa ríkisins, en með því hvergi hafði sést nein ávísun um að þetta væri jarð- neskt fyrirtæki, hefði eg kom- ist á þá skoðun ,að hér væri Sálarangistarfélag Reykjavikur, nýstofnað í tilefni af ástandinu. Lögregluþjónarnir hresstust auðsýnilega við ræðu mína, og tjáðu mér, að eg mundi hafa verið á réttri leið. S. R. mundi líklega eiga að tákna Sjúkra- samlag Reykjavíkur, en Skömmlunarskrífstofa rikisíns værí eíginlega i sama húsinu, aðeins einni hæð ofar, nœr þjmninum. Mikið varð eg glað- tll’ fíð heyra þetta, Hét m'j á toll- stjórann herra Jón Hermanns- son, að borga skatt minn og til- fallin gjöld, strax í dag, ef eg finndi skrifstofu hans og næði þar háttum (sem þó ekki varð). — Þá er frá að segja að eg er enn kominn í TryggvagÖtu og upp á næstu hæð'fyrir ofan hitt. Þar fann eg í gangi einum of- urlítinn lappa á þili, hvar á stóð letrað: Úthlutunarskrifstofa rikisins. Ekki var nú yfirlætið. Inn fór eg og var þar enginn viðskiptavinur fyrirliggjandi, en nokkúrir starfsmenn stQfn- unarinnar, sem biðu mín með engu minni óþreyju en eg þeirra, og fékk eg skjóta og góða afgreiðslu. Og eftir að hafa spurt mig fyrir um toll- stjóraskrifstofuna, og fundið hana, kom eg þar að lokuðum dyrum og varð að fresta frek- ari framkvæmdum til morg- uns. Er það ömurleg saga. Þá snáfaði eg upp á Skólavörðu- stíg, og hitti svo á, rétt fyrir ofan Steininn, að þar kom mað- ur skokkandi frá bifreið með hnjáskjólstróðu i bóndabeygju og málti ekki greina livers kyns ástand eða uppákoma hent hafði, því ekkert lífsmark var sjáanlegt með snótinni. Þótt skömm sé frá að segja, komu mér í hug orð meistarans: „Stúlkan er ekki dauð lieldur sefur hún.“ Varð mér þá litið um öxl og sá tugthúsið, eina af þeim fáu opinberu stofnun- um, sem enn er á sínum stað, og gladdi það mig stórlega.

x

Vísir Sunnudagsblað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/299

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.