Vísir Sunnudagsblað - 23.04.1944, Síða 2

Vísir Sunnudagsblað - 23.04.1944, Síða 2
2 VlSIR SUNNUDAGSBLAÐ verið þribýli. Þar er kirkjustað- ur og þingstaður hreppsins. Frá bænum inn fyrir fjörðinn er um 3 km. Fyrir botni fjarðarins eru sléttir leirar, sem fellur út af um fjöru. Er þá farið um þá og Bjarnarfjarðará á ósnum. Sé háttsjávað verður að fara all- langt fram með ánni, því flóðs gætir nokkuð upp eftir henni. Þegar yfir ósinn er komið, er fari'ó upp með túninu á Ás> mundarnesi. Er það lítil jörð, en notagóð. iÚt og fram af bæn- um, hinum megin ássins, eru tvær eyjar, nefndar Ásmundar- eyjar.' Þær eru allstórar. 1 þeim er æðarvarp nokkurt og grös- ugt mikið. Eyjar þessar liggja undir Staðaikirkju í Steingrims- íirði. Þær verða nokkuð fyrir ágangi af skepnum, þvi telja má að þurrum fótum megi ganga i þær um stærri fjörur. Sund skilur eyjar þessar frá þriðju eyjunni, er utar liggur, heitir hún Hrútey og liggur und- ir Kaldrananes. I henni er æðar- varp nokkurt. Frá Ásmundar- nesi er löng bæjarleið að Reykj- arvík. Þar er tún gott en litlar engjar, fjörubeit. Næst þar fyr- ir utan er Brúará, er þá komið á Balana, þar er lítið tún og rýrar engjar, beitiland gott og fjörubeit mikil. Þá er löng bæj- arleið að Asparvik, er þar hrjóstrugt land umhverfis. Tún er þar allgott og nokkrar slægj- ur í dal, er gengur norður í f jall- ið skammt fyrir norðan bæinn. Úr þeim dal fellur á er Fossá heitir. Nokkru þar norðar eru Eyjar. Þar er tún allgott en engjar engar. Nokkrar slægjur í eyjum, er liggja skammt frá landi. Er þar mikið æðarvarp. Selveiði var þar allgóð, en þar sem annars staðar mjög að ganga til þurrðar. Á Eyjum hef- ir verið tvíbýli mörg undanfar- in ár. Frá Eyjum er stundar- gangur að Kleifum í Kaldbaks- vík. Á þeirri leið ef Kaldbaks- kleif. Getur hún orðið ill yfir- ferðar á vetrum i liarðfenni, því gatan liggur hátt i skriðum með köflum, en klettar og urð- ir undir. Friá „IUeifum“ er skammt heim að bænum á Kleifum, er þá komið inn í Kaldbaksvijkina. ÍTjún er þar gott en slægjur rýrar. Eru þær á dalnum, sem gengur fram af víkinni. í landi jarðarinnar bef- ir verið byggt nýbýli er nefn- ist Gil. Fyrir botni víkrrinnar ei stórt valn og saudalda all- breið milli þess og sjávar. Fell- ur ós þar i gegn í homi víkur- innar, Kleifarmegin, Fram af vatninu taka við engjar og beitilönd jarðanna, en mjög er það undirorpið skriðuföllum, einkum Kaldbaksmegin. Þegar komið er fyrir vikurbotninn er stnttur spölur út með henni að Kaldbak. Er það nyrsti bær i Kaldrananeshreppi. Nær land jarðarinnar norður með fjall- inu, er þar gott beitiland þegar kemur nokkuð norður frá bæn- um i svokölluðu Kaldbakslandi. Þar er hagasamt, en illt að nota að vetrarlagi vegna snjóþyngsla heima í Víkinni og jafnvel snjó- flóðahættu. Kaldbaksland nær að svokölluðum Spena, sem er hæðarböltur, er gengur fram úr fjallinu með skriðum ofan í sjó. Var vegurinn lagður utan i skriðunum, en er nú búið að færa hann upp fyrir, með f jalls- rótunum. Þarna eru hreppa- mörk Kaldrananess-.og Árness- brepps og landamerki milli Kaldbaks og Kolbeinsvíkur, sem er innsti bær i Árneshreppi. Hefir nú verið fylgt bæjar- röðinni með sjó fram norður hreppinn. Verður þá að bregða sér til baka fram í Bjarnarfjörð. Frá Kaldrananesi er um 6 km. fram að Bakka, sem er byggt úr landi Kaldrananess. Skammt þar framar er (Hvammur, lítið kot, er stundum stendur í eyði. Nokkru framar er Skarð, er stendur undir felli samnefndu, sem gengur norður úr hálsin- um. Ofan með fellinu sunnan er slakki í hálsinum, mun bær- inn draga nafn af þvi, liggur þar þjóðvegurinn niður i Bjarnar- fjörð. Skarð er góð jörð, slægj- ur miklar og beitiland gott .Þar er Iögrétt hreppsins. Dalur gengur norður i fjalllendið þeg- ar kemur nokkuð fram fyrir Skarð, heitir hann Sunndalur. Stendur bær honum samnefnd- ur, skammt frá dalmynninu. Oft er farið fram þann dal norð- ur á Trékyllisheiði. Miklar slægjur eru ó dalnum. Annar dalur -liggur samhliða, en beyg- ir þó heldur meir til austurs. Heitir hann Goðdalur. Bær hon- um samnefndur stendur fram- arlega í dalnum. Ár falla eftir báðum þessum dölum, sem við þá eru kenndar, koma þær sam- an nokkru fyrir framan Skarð. Heitir þar Tungaporður þar sem árnar koma saman og fjallið milli dalanna Tungukotsfjall. Eftir að árnar hafa sameinast heitir áin Bjarnarfjarðará, er hún oft vatnsmikil. Vatnasvæði hennar allstórt, því fjallgarður- inn er hæstur við norðurbrún hálendlslins. Falla þyí gil og lækir inn eftir því. Er oft snjór mikill á Trékyllisheiði og fell- xim þeim, er þar liggja i nánd og Ieysir oft seint, einkum i kuldasumrum. 1 Goðdal er gott tún. Beitiland mikið og gott, en rýrar útengjar. Stundum er far- ið fram Goðdal, þegar farið er norður á Trékyllisheiði. Eftir að mynni Goðdals sleppir, er spölur ofan með fjallinu að Svanshóli. Þar er allgott tún og slægjur noklcrar að viðáttu og nærtækar að mestu. Litlu neð- ar frá Svanshóli er Klúka, er það lítil jörð en hæg og nota- góð. Alllöng bæjarleið er þaðan að Ásmundarnesi, á þeirri leið er Hallardalsá, i henni er all- mikill foss, þar sem hún fellur ofan á láglendið. Er þá komið þar að er fyrr um getur. Frá flestum bæjum, er að sjó liggja, var róið, einkum að hausti til, meðan árabátaút- gerð var stunduð. Síðan vél- hátaútgerð hófst og fækka tók um menn ú bæjum, hefir út- gerðin dregist saman á færri staði og fólkinu fjölgað þar i kring. Hrognkelsaveiði er á flestum bæjum. Bezt mun hún vera i Bæ, Bjarnarnesi, Aspar- vík og Eyjum. Einnig viðarreki á flestum jörðum er að sjó liggja eftir að kemur út að Drangsnesi. Reykjajarðir munu beztar taldar: Bjarnarnes, Kald- rananes, Eyjar og Kleifar í Kald- baksvík. Bjarnarfjarðarhjáls má teljast allgrösugur, er bann yfirleitt láglendur, með smá- hæðahryggjum, er liggja þvert á liann, og eru mest brokflóar með tjörnum og vötnum milli hæðanna. Yzt á hálsinum rís Bæjarfell 380 m. bátt. Er víð- sýnt af þvi inn yfir liálsinn og út ýfir Húnaflóa. Á hálsinn sækja útheyskap allar jarðir á Selströnd og að norðan Kald- rananes og Skarð. Mestu vötn á hálsinum eru Urriðavatn og Bæjarvötn. í þeim er nokkur veiði, en lítið stunduð eink- um í seinni tíð. Vegir liggja yfir hálsinn frá öllum bæjum á Selströnd. Eru þeir nefndir eftir bæjum þeim, sem þeir liggja frá. Svo sem: Bessa- staðaháls, Sandnesháls, Höllu- háls o. s. frv. Áður fyrri voru vegir þessir all-tíðfarnir við kirkjuferðir að Kaldrananesi. Nú gróa þær götur upp, en eru á sumum stöðum haldið við vegna Iieimilisaðdrátta og lækn- isferða. Ræktunarskilyrði á Selströnd eru erfið að því leyti að jörð er grýtt og samfellt ræktanlegt land hvergi mikið á sama stað. Aftur Iiggur það land vel við. Hallar móti suðri og suðvestri og er i skjóli fyrir norðanátt- inni. Á Balabæjum er mjög erf- itt til ræktunar, því land er grýtj pg jarðvegur grunnur, þar sep^ þó er grasi gróið. I Kald-. baksvík er gott til rœktunar, þar sem ræktanlegt getur talizL Sennilega gott til kartöflurækt- ar, því jörð er sendin og oft heitt á sumrum. Eins og fyrr er sagt heitir landið fram af firð- inum Bjarnarfjörður. Gengur norðurbrún hálsins fram með því að sunnan. Er brún sú hvergi há. Liggja samhliða hjallar neðan frá láglendi og fer það smá hækkandi. Á hjöll- um þessum eru nokkurar slægj- ur, en mest eru þeir vaxnir ni’ískjarri og þvi allstórvöxnu á köflum. Að norðan risa fjöll- in hærra. Liggja þau inn af Trékyllisheiði og áframhald að Balafjöllum, enda þau á Hóls- fjalli, er beygist meir til norð- urs eftir að kemur spöl fram- fyrir bæinn á Svanshóli. Fylgir þá láglendið sörnu stefnu og endar við Tungusporðinn nokkuru fyrir framan Skarð. Undirlendið fram af firðinum er um 400 hektarar af ræktan- legu landi beggja megin Bjarn- arfjarðar; um lielmingur þessa lands tilheyrir Kaldrananesi. Pálmi Einarsson ráðunautur hefir mælt þau lönd er liggja á þessu svæði frá jörðinni Kaldrananesi, Skarði, Svans- hóli og Klúku, og gert uppdrátt að framræslukerfi á Kaldrana- neslandi. Honum farast þannig orð: „Það land, sem hér um ræðir er í heild sinni mjög gott ræktunarland. Allt þetta lariH þarf framræslu, j)ó er nokkuð af mólendi, sem tiltölulega litla framræslu þarf.“ Að lokum seg- ir liann: „Það er álit mitt, að fengnum þeim upplýsingum, er felast í athugunum og mæling- um á landi þessu, að hér sé með tilliti til ræktunaraðstöðu álit- Iegt að byggja upp lífvænlegt útgerðarþorp á Kaldrananesi.“ Þá segir hann um virkjun Urriðaár: „Það virðist að við Urriðaá sé bagstæð aðstaða til virkjunar. Áin hefir upptök sín í stóru vatni, er hefir nokkurt aðrennslissvæði á hálsinum millj Steingrímsfj. og Bjarnarfj. Er því engum vafa bundið, að með hækkun á vatnsborði þess með stiflu, má auka vatnsgeymi þennan verulega.“ Eg set þetta liér, af því að Pálmi hefir víða kynnst staðháttum til ræktun- ar og vatnsvirkjunar, því sér- staklega fróður um þessa hluti. Þar sem lilíðin fram með Hólsfjalli beygist meir til norð- urs fram undir mynni Goðdals er allstórvaxþin birkiskógur í hlíðinni nokkuru fyrn* framan Þverá. Þetta mun vera mestur skógur i sýslunni eða sá eini er talizt getur því nafni, Jarðhlta verður viða vart um Bjarnsr* v fjörð. I Gpðdal eru yijSa hgit^

x

Vísir Sunnudagsblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/299

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.