Vísir Sunnudagsblað

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Vísir Sunnudagsblað - 23.04.1944, Qupperneq 5

Vísir Sunnudagsblað - 23.04.1944, Qupperneq 5
VlSIR SUNNUDAGSBLAÐ 5 Á Tunguheiði. Valshamar í Geiradal. Það var í marzmánuði 1908 að frost voru mikil og fannir, einkum á lieiðum uppi. Voru þá í Geiradai vestra enn tiðar ferðir yfir fjallið í verzlunarer- indum, til Hólmavíkur i Stein- grímsfirði, sem þá var orðið smáþorp og tvær verzlanir, og urðu þá nærsveitirnar sunnan fjalls að sækja þangað nauð- synjar sínar bæði sumar og vet- ur hversu sem var um færi og veðurfar. Þá var Kominn aðeins lítill vísir til verzlunar i Króks- fjarðarnesi þ. e. Kaupfélag Króksfjarðar, en sem þá full- nægði á engan hátt þörfum manna í þeim sökum. Til þessara ferða var ætíð valið gott veður, og þá er vænta mætti birtu af tungli, ef svo vildi gefast, og stytti til um veð- urfar. Svo var að þessu sinni að veður var ágætt þegar þeir félagar fóru að lieiman, sex sam- an, Samson póstur á Ingunn- arstöðum Gunnlaugsson, Guð- jón hóndi Sigurðsson á Svarf- hóli, Guðjón Guðmundsson húsm. á Brekku, Jón T. Magn- ússon bóndi á Gróustöðum, Jón Svb. Jónsson í Gautsdal og Krist- mundur Jónsson bóndi á Vals- hamri. Þessir menn fylgdust allir norður yfir Tunguheiði og alla leið til Hóhnavíkur og luku sér af um kvöldið í flýti og hröðuðu sér á náttstað undir heiðina að Tröllatungu til hinna góðkunnu hjóna Jóns Jónssonar bónda frá Laugabóli og Halldóru konu hans Jónsdóttur. Þar gistu þeir með fjölda hesta um nóttina, og skyldi nu leggja á heiðina dag- inn eftir. Um morguninn eftir var komin kófhríð með frosti og veður ískyggilegt. En með því færi var sæmilegt töldu þeir félagar einsætt að leggja á heið- ina. Það var líka undan veðri að sækja, og.mundi veður ekki verra en svo að unnt væri að halda vörðunum. Að morgunverði loknum bjuggust þeir félagar skjótt frá Tröllatungu fram til heiðarinn- ar. Ræðir þá-Guðjón á Brekku um það að fara Dali sem.kallað er, það er fram Arnkötludal og ofan í Gautsdal, og liggur þessi leið lægra en heiðin, en þar er engi vegvísir nema landslagið sjálft. Þar var Guðjón vel kunnugur og kvaðst rata mundu í öllu mögulegu. Vildi Guðjón fara þessa leið sölcum þess að liann hafði þungt sleðaæki en bratt var upp á heiðai’múlann þarna. Ræddu þeir um þetta um stund og sýndist sinn veg hverjum og skildu að því að Guðjón og Jón Torfi lxéldu sína leið fram Arnkötludal og þann veg ofan í Gautsdal, sem er smá- dalur sem liggur til norðurs fram úr Geiradalnum. Gekk þeirn vel og náðu til Brekku um dag- inn lieilu og höldnu, svo ekki skeikaði Guðjóni að rata þó hríðin væri dimm og harðviðri að sama skapi. Nú víkur sögunni til þeirra fjögra sem lieiðina fóru. Þegar upp kom á heiðina harðnaði veðrið og var þegar sortahríð. Var þó létt yfir þeim fjórmenn- ingunum og ræddu unx daginn og ygginn og ugðu ekki að sér senx skyldi því auðvelt mundi að halda vöi’ðununx svöna und- an veði’inu og það gei’ðu þeir allt upp að Skeiðisvörðu, en þá er brekkan búin. En skammt voru þeir konmir er þeir misstu af vörðunum. Segir þá Krist- mundur að auðvelt muni að rata og kveðst munu teyma hnakk- hestinn simx á undan, en hinir þrír sjái þá urn baggahrossin. Bjóst Ki’istnxundur við að finna vörðurnar fljótlega. Halda þeir nú undan veðrinu um stund, en ekki komu vörðuniar. Nú var komið hörkuveður og verður þeim rætt unx hvort þeir séu fyrir noi'ðan vöi'ðurnar eða sunnan og verða ekki á eitt sátt- ix’, en telja þó öllu óhætt og ekki muni vá fyi'ir dýrum, og ein- hversstaðar rnuni þeir ranxma á heiðarbrekkurnar um siðir, og halda nú enn áfram ótrauðir. Hörkuveður var á og sá ekki fyi'ir sér, svo var hríðin hnaus- þykk, og þykir þeim þetta ekki með felldu að rekast ekki á neina vörðu. Gengur nú svo lengi vel, að þeir vita ekki fyrir sér og var Kristmundur og Samson á undan enn sem fyrr. En er nxinnst varði hrapar Kristmundur. Verður nú fyrsta fangaráð þeirra Samsonar að stöðva hrossin, vei'ður þá Jóni í Gautsdal að orði við þá félaga: „Þar er nú Kristmundur farinn, svona förunx við allir.“ Var nú unx að gera að hrossin lirekti ekki fram af líka; tóku þeir nú ofan af öllum hrossunum og gerðu af garð fyrir framan fæt- ur hrossanna. Sagt var að þeim hefði heyrzt eitthvað til Krist- mundar í gegnum veðurgnýinn. Leystu þeir þá tvo bagga og festu reipin sanxan, létu þeir svo Samson síga niður. Hittir liann þá um síðir íxxanninn seixx er að bi’ölta þarna í mjall- kófinu, berhöfðaður með óráði. Var þetta geysihá snjóhengja. allt að 16 metra há, en eigi var grjót undir, lieldxir snjór, og mun þaý liafa hlíft manninum. Var þelta slcammt frá árgljúfr- inu i Baltka-á, og hefir stappað nærri að þeir lentxi í því. Þeir tveir, senx enn ❖oru xippi, leit- uðu sér ofankomu og náðu því um síðir. Nú voru góð ráð dýr að konxa manninum til bæja því ekki liöfðu þeir hugmynd um livar þeir voru niður konxnir. Tóku þeir það í'áð, að liafa einn nxann- inn í bandi, ef vera kynni að • hann hrapaði og gekk hann á undan, einn hélt í hinn endann, en liinir tveir skyldu leiða Kristmund. Hrossin skildu þeir eflir, þar senx áður getur, uppi á hengjunni. Þeir bundu klút unx liöfuð Krist- mundi og var svo lialdið í átt- ina eitthvað undan veðrinu í von uni að fyrirhitta einhvern bæ er niður lcæmi af lieiðinni. Héldu sunxir sig vera í Gautsdal en aðrir á Bakkadal. Það kvað Jón í Gautsdal að sér þætti með ólíkindunx, að liann þekkti hvergi holt eða önnur kennileiti á þessari leið senx þeir höfðu fai’ið unx og það kæmi varla til nxála að þeir væru á Gautsdal. Það var líka orð og að sönnu því bráðum ráku þeir sig á Vals- liamarsgarðinn. Þeir liöfðu því villzt ofan á Bakkadal. Þetta ferðalag tók langan tínxa fi'á þvi er Kristnxundur hrapaði, enda var hann lítt fær til gangs og kvartaði um eýmsl xinx balcið og viðar og var með óráði alla leið heim til bæjar. Konu Kristnxundar brá við konxu nxanns shxs þannig á sig kominn senx von var. Færðu þeir félagar hann úr snjóföt- um, háttuðu ofan í rúm og fékk hann ágæta hjúkrun. Lá hann lengi og náði sér furðu vel, því ekki mun hann liafa verið brot- inn, en fengið heilaliristing. Gx’annar hans (ferðafélagarnir) fóru lieinx til sín, enda skammt á milli bæja. Daginn eftir var betra veður. IJafði þá Guðjón á Brekku konx- ið franx að Valshamri og frétti þá unx ófarir þeirra félaga. Fór hann þá ásamt nokkurum öðr- unx að vitja lirossanna. Höfðu þá þrjú þeirra hrakið franx af hengjunni og voru tvö dauð, en eitt lifandi. Hin stóðu nær í sömu sporunx og hefir það ver- ið ónotaleg nótt lijá blessuðum skepnunum. Var þeim fært hey á meðan stunxrað var yfir hin- um dauðu og síðan búið upp á þau á ný og haldið til bæja. Kristmundur náði sér, senx sagt var, og stundar íiú póst- ferðir frá Króksfjarðarnesi að Gröf í Bitrufirjði, þyldr ötull fei'ðamaður og jafnan bóngóð- ur, því oft lxefir þurft að grípa til hans í bi’áðri nauðsyn, svo senx læknisvitjana og því um líkt og' liefir hann ávallt brugð- ist vel við þeim kvöðum. Og það liygg eg, að það verði nxörg- um’sjónarsviptir að því, er lians nýtur ekki lengur við lil þeirra hluta, þvi oft var leitað til Krist- nxundar, jafnvel úr næstu sveil- um. Nú er Kri.stniimdj.ir póstur 66 ára að aldri, búinn að fara um 500 póstferðir auk annara ferða, og kveðst nú fara að hætta þeim. Hann er nú hér i hænuin, liress i anda og tein- réttur á velli og ekki sýnist mér liann þess legur enn þá að hann sé liættur öllum fex’ðum, þó liann sleppi póstfei'ðunum, sem honum hafa faxáð vel úr hendi. G. J.

x

Vísir Sunnudagsblað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/299

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.