Nýja dagblaðið - 01.11.1933, Page 2
I
N Ý J A
DAGBLAÐIÐ
MAY BLOSSOM
VIRGINA CIGARETTGR
5&C i cráZum vciýáxttum
Nýjasta Ijóðabókin:
Heiðvindav
eftir Jakob Thorarensen, fæst hjá bóksöU
um og kostar. kr. 4,50 og 5,75 í bandi.
Bezta bókin til eignar og gjafa
Vopnasmiðjurnar
keppast við.
Eftirspurnin nóg.
Berlín kl. 11.45 31/10. FÚ.
Þjóðabandalagið hefir gefið
út skýrslu um vopnaverzlunina
árið 1932. Nemur vopnasalan
þetta ár rúmlega einum mill-
jarð tékkneskra króna, og er
Kína langstærsti kaupandinn,
en England og Tékkoslóvakía
stærstu framleiðendumir. —
Tékkóslóvakía hefir haft sig
mjög frammi í vopnafram-
leiðslu síðustu árin; er nú næst
á eftir Englandi og framleiðir
vopn fyrir 150 milljónir tékk-
neskra króna.
Tékknesk króna var í gær
skráð í Landsbankanum rúm-
lega V5 úr.ísl. krónu.
Lögin vernda
glæpamann
London kl. 17 31/10. FÚ.
Dómsúrskurður féll í dag í
Grikklandi í málinu út af því
hvort Grikkir skyldu fram-
selja Bandaríkjunum Samuel
Insull eða ekki. Úrskurðurinn
féll á þá leið, að ekki þyrfti
að framselja hann, samkvæmt
grískum lögum.
Ameríski auðmaðurinn
Samuel Insull varð uppvís að
stórkostlegum fjársvikum í
vor, strauk til Norðurálfu og
hefir dvalið í Grikklandi. Ame-
ríkumenn hafa viljað fá hann
framseldan, til þess að taka út
hegningu fyrir afbrot sín. Nú
eru horfur á að þeim takist
það ekki.
Arásir á dönsku
stjórnina í ríkis-
þinginu í gær.
Kalundborg kl. 17 31/10. FÚ.
í dag urðu allsnarpar um-
ræður í danska þjóðþinginu út
af afstöðu stjórnarinnar til
ýmsra kreppumála, og spunn-
ust umræðurnar aðallega út af
fyrirspurn sem Christmas
Möller, foringi íhaldsflokksins,
gjörði til Staunings forsætis-
ráðherra. Möller taldi aðgerðir
stjórnarinnar í kreppumálun-
um, einkum búnaðarmálunum,
öfugar og ófullnægjandi, og
Krag sagði að meðal almenn-
ings færi óánægjan út af að-
gerðarleysi stjórnarinnar, sí-
vaxandi. Ennfremur sagði
Krag, að verðhækkun búnaðar-
afurða væri knýjandi nauðsyn.
Loks snérust umræðumar
einnig nokkuð um afstöðu
danskra embættismanna til
stjórnmála, og þátttöku þeirra
í þeim. Krag mótmælti því,
að skrifstofustjóri einn hefði
nýlega látið í ljós opinberlega
fylgi sitt við pólitísk mál, sem
ráðherra stjórnardeildar hans
hefði borið fram. Krag taldi
þetta óhæfilegt, að háttsettir
embættismenn tækju þannig
opinberlega þátt í stjórnmál-
um, og sagði, að ef slíkt yrði
algengt, mundi einnig bráðlega
þurfa að koma að því, að
skifta yrði um slíka embættis-
menn um leið og stjórnarskifti
yrðu.
Flugvél ferst.
Hraðflugvél milli Tunis og
Parísarborgar féll niður í
Frakklandi í gær, og fórust
flugmaður og vélamaður. Einn
farþegi særðist. — FÚ.
Frá réttarhöldunum
í Yestur-Skaftafellss.
Framh. af 1. síðu.
bókaðan stuttan rökstuðning
þar að lútandi. Sýslumaður
neitaði þá þegar að verða víð
þessari áskorun, en kvaðst
myndi leggja þetta undir úr-
skurð dómsmálaráðuneytisins
síðar. En með því að afskrift
sú, sem ætla má, að sýslumað-
ur hafi sent eða sendi ráðuneyt
inu, jafnframt umræddri fyrir-
spum, gefur litlar eða engar
upplýsingar um þær raunveru-
legu ástæður, sem liggja til
þess, að, áðumefnd tilmæli eru
fram komin, þá kemst ég ekki
hjá því að gefa nokkrar nánari
skýringar. Mun ég á sínum
tíma staðfesta þær fyrir rétti,
að því leyti, sem ki’afizt verð-
ur.
En hér við bætist, að mörg
afskipti Gísla Sveinssonar af
þessu máli eru á þá lund, að
eigi má ólíklegt telja, að hann
I muni beinlínis dragast inn í
málið, í öllu falli sem vitni.
Það er vitað, að sýslumaður er
einskonar yfirmaður vegavinnu
hér um slóðir, og er kærður að
því leyti einungis undirmaður
hans. Það er og á allra vit-
orði, að þessi aðstaða hefir
af þeim félögum báðum
verið notuð mjög til pólitísks
framdráttar Gísla Sveinssyni í
sambandi við síðustu kosning-
ar. Að sýslumaður þykist eiga
nokkurra hagsmuna að gæta í
sambandi við þetta mál, má m.
a. marka af því, hversu mjög
hann hefir gert sér far um að
fá máli þessu stungið undir
stól. Hefir hann sumpart með
offorsi og hótunum og sumpart
með auðmýkt og loforðum
reynt að fá mig til þess að aft-
urkalla kæruna, og verður
hvorttveggja þetta sannað á
sínum tíma. Margt fleira af
þessu tæi bendir til grunsam-
legrar afstöðu hans til þessa
máls, og mun það væntanlega
koma í ljós við óhlutdræga
rannsókn málsins. Ln Gísla
Sveinssyni má vera það ljóst,
að engin vetlingatök verði þol-
uð í þessu máli. Þess er kraf-
izt, að málið verði rannsakað
frá rótum, og þeir sem sam-
sekir kynnu að reynast, verði
hlífðarlaust dregnir inn undir
rannsóknina, og að það verði
staðreynt, hvort slíkum aðferð-
um hefir verið beitt víðar um
sýsluna og í hve ríkum mæli.
Sérstaklega krafðist ég þess í
síðasta réttarhaldi, að rann-
sakað yrði, að hve miklu leyti
frambjóðandi Sjálfstæðisflokks-
ins hefði hreinar hendur af
meðvitund eða hlutdeild í at-
hæfi því, sem hér um ræðir.
En að Gísli Sveinsson hafi
sjálfur þá rannsókn með hönd-
um, er frá mínu sjónarmiði,
sem leikmanns, hreinasta fjar-
stæða og fullkomið réttar-
hneyksli.
Ég vil því mega vænta þess,
að hið háa ráðuneyti fallist á
að skipa beri setudómara í
þetta mál.
Skagnesi, 26. ágúst 1933.
Virðing'arfyllst
(Sign.) JMagnús Jónsson.
Til dómsmálaráðneytisins.
<35ófmúmitxt - íþrótttr - íiðtxr
V etr arstarfsemi
iþróttafélaganna
í Reykjavík.
15. félög.
í Reykjavík eru 14 íþrótta-
félög innan vébanda í. S. í., en
1 það 15., Iþróttafélag verka-
Ármenningar á „kistunni“.
manna, er ekki í íþróttasam-
j bandi Islands. öll hafa þessi
| félög einhverjum áhugasömum
mönnum á að skipa, en mis-
jafnlega mörgum. — Þrjú fé-
j lögin eru langsamlega fjöl-
mennust og 'athafnamest, en
það eru: Glímufélagið Ármann,
íþróttafélag Reykjavíkur og
Knattspyrnufélag Reykjavíkur.
Hér á eftir verður sagt frá
vetrarstarfsemi félaganna í
mjög stuttu máli; ekki til þess
að dæma starf þeirra eða meta
árangurinn af því, heldur til
þess að vekja á þeim eftirtekt,
og minna á að þau eru öllum
mönnum opin, og er unga fólk-
ið sérstaklega velkomið í fé-
lögin, en eldri menn og allir
þeir, sem einhverju ráða um
fjármál bæjar- og ríkis, ættu
að hlynna að þessum félags-
skap unga fólksins.
Glímufélagið Ármann.
Þann 7. janúar 1906 komu
um 40 menn saman á fund í
Reykjavík, til þess að ræða
um möguleika fyrir því að
koma á félagsskap um að iðka
íslenzka glímu. Félag var
stofnað og því gefið nafnið
1 Glímufélagið Ánnann.
Þá var Reykjavík lítill bær
hjá því sem nú er, enda varð
það mestum erfiðleikum bund-
ið fyrir hið nýstofnaða félag
að fá húsnæði til að glíma í
og varð að nota lítil og ófull-
nægjandi húsakynni. Snemma
eignaðist Ármann þó góða
glímumenn og hefir löngum
átt beztu glímumönnum lands-
ins á að skipa.
Fyrstu árin lögðu Ármenn-
ingar lítið stund á aðrar í-
þróttir en glímur. En eftir ó-
friðinn 1914—18 fór Ármann
að færa út kvíarnar, og nú eru
þar iðkaðar svo að segja allar
íþróttir nema knattspyrna.
Húsnæðisvandræðin hafa enn
valdið því, að Armenningar
eru nú fyrst að hefja vetrar-
starfsemina. í vetur verða það
7 flokkar, sem iðka fimleika,
3 flokkar kvenna, 6 stundir á
viku, 3 flokkar karla, 6 stund-
ir og drengjaflokkur (13—15
ára) 2 stundir. Þá verður ís-
lenzk glíma iðkuð 4 stundir á
viku, en róður í húsi (róðrar-
vél) 2 stundir, og samhliða því
verða ýmsar æfingar fyrir þá,
sem aðallega leggja stund á
„frjálsar íþróttir“.
Kennarar félagsins verða
þeir Jón Þorsteinsson íþrótta-
kennari frá Hofsstöðum og
Vignir Andrésson íþróttakenn-
ari við barnaskólann í Reykja-
vík.
Glímufélagið Ármann heldur
árlega opinbera kappglímu
þann 1. febrúar, skjaldarglímu
Ármanns. — Sigurvegarinn í
þeirri glímu — sá sem vinnur
Ármannsskjöldinn — hlýtur
nafnbQtina: Bezti glímumaður
Reykjavíkur, og verður skjöld-
urinn eign þess, er vinnur
hann þrisvar í röð eða fimm
sinnum alls.
Þá gengst félagið fyrir
flokkaglímu í marz eða apríl
ár hvert; þar er glímumönnum
skipað í flokka, eftir líkams-
þunga, svo sem glímureglur I.
S. I. mæla fyrir; eru kepp-
endur oft margir í þeirri
glímu.
Auk þessa fer fram innan-
félagskeppni í ýmsum íþrótt-
um, enda er það yndi ungum
mönnum, að reyna með sér, og
þeim nauðsynlegt, til þess að
temja sér frjálsmannlega og
prúða framgöngu og drengi-
legan leik. M. '
V - i.v"' v': :
Frá fimleikasýningu á 25 ára afmæli félagsins.