Nýja dagblaðið - 05.11.1933, Blaðsíða 3
NÍJA DAGBLAÖIÐ
Útgefandi: „Blaðaútgáfan h/f“
Ritstjóri:
Dr. phii. JJorkell Jóhannesson.
Ritstjórnarskrifstofur:
Laugav. 10. Síraar: 4373 og 2353.
Afgr. og auglýsingaskrifstofa:
Austurstræti 12. Sími 2323.
Framkv.stjóri:
Vigfús Guðmundsson.
Áskriftagj. kr. 2,00 á mánuði.
í lausasölu 10 aura eint.
Prentsmiðjan Acta.
Hve lengiP
Undanfarið liaía íhaldsblööin
hér í bænum keppst við að þvo !
dómsmálar-áðherrann af þeim
áburði, að hafa náðað mann,
sem Hæstiréttur dæmdi í vor til
í'angelsisvistar fyrir brot á
því nær öllum greinum hegn-
ingaiiaganna, þeim er fjalla
um sviksamlegt athæfi i við-
skiptum.
I sjálfu sér er ekkert við
því að segja þótt Morgunbl. j
og Vísir finni köllun hjá sér
til þess að hlynna að mönnum,
sem þeim kunna að vera eitt-
hvað vandabundnir, og er það
mannlegt. En að þessu sinni
verður þó ekki komizt hjá því
að átelja það, hvemig blöðin
bregðast við. Það er upplýst,
að dómsmálaráðherra hefir far-
ið mjög óvenjulega að í þessu 1
máli, svo að það er engan-
veginn undarlegt, þótt sá kvitt-
ur hafi komið upp, að búið
væri að náða Bjöm Gíslason.
Fyrst hggur máhð í salti hjá
ráðuneytinu nærri 2 mánuði.
Þeim tíma er varið til þess að
ná í .vottorð um heilsufar
mannsins. Og þeir sem vott-
orðin gefa, eru Þórður Sveins-
son á Kleppi og Eiríkur Kjer-
úlf frá ísafirði.
Að þessu fengnu leggur
dómsmálaráðherra svo íyrir, að
meðan þessum læknum sýnist
svo, skuh fangelsisdómnum
ekki fullnægt. Og þegar lög-
reglustjóri bendir á, að rétt só
að iáta rannsaka manninn á
Landsspítalanum, svo sem fyrr
hafi verið gert í líkum tilfell-
um, þá er svarað út af og
ekkert aðhafst í málinu.
Annað eins réttarfar og
þetta er óþolandi. Afbrotamað-
ur, sem hefir gjöreyðilagt
fjölda heimila, er vemdaður
af dómsmálaráðherranum, þeg-
ar dómstólunum hefir loks tek-
izt að koma lögum yfir hann,
eftir margra ára viðureign. Og
hvaða áhrif halda menn að því-
hkt framferði hafi á almenn-
ing og tiltrú hans til réttvís-
innar. Menn, sem stela kjöt-
tunnu, hnupla nokkmm mjóhc-
urflöskum, kápu eða frakka,
eru, svo sem réttmætt er,
dæmdir og settir í fangahúsið
— þá gengur réttvísin sinn
gang. En bæði undan og eftir
fangelsisvistina sjá þessir ó-
lánsmenn einn mesta afbrota-
mann landsins ganga lausan að
boði sjálfs dómsmálaráðherr-
ans.
Hve lengi mun slík „rétt-
vísi“ fá staðizt?
NÝJA DAGBLABIB
a
Dómsmálaráduneytid
og Björn Gíslason.
Brétaskipti ráðuneytisins og lög-
reglustjóra út af tullnægingu hæsta-
réttardóms i málinu gegn Birni
Gislasyni.
Út af umræðum þeim, sem,
orðið hafa hér í blöðunum um
hina einkennilegu' meðferð
Magnúsar Guðmundssonar á
Bj örns Gíslasonar málinu, sneri
ritstjóri blaðsins sér til lög-
reglustjóra og fékk hjá honum
afrit af bréfum þeim, er farið i
hafa milli hans og dómsmála- j
ráðuneytisins um málið.
í máli þessu var Björn
dæmdur fyrir brot gegn 258.
gr., 259. gr., 254. gr., 256 gr.,
262. gr. sbr. 48. gr., 255 gr.
sbr. 46. gr. og 264. gr. 2. mgr.
sbr. 48. gr. almennra hegning-
arlaga frá 25. júní 1869. Dóm-
urinn hljóðaði upp á 12 mán-
aða betrunarhússvinnu. Undir-
réttardómurinn hljóðaði upp á
5 mánaða fangelsi.
Tveim mánuðum eftir að
dómurinn var uppkveðinn sendi
dómsmálaráðuneytið lögreglu-
stjóra svohljóðandi bréf:
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið
Reykjavík, 28. júlí 1933.
Hérmeð sendir ráðuneytið
yður, herra lögreglustjóri,
dómsgjörðir Hæstaréttar í mál-
inu Réttvísin gegn Birni Gísla-
syni og Hansínu Ingu Péturs-
dóttur.
Er þess beiðst, að þér full-
nægið dóminum að öðru leyti
en tekur til fangelsisrefsingar
strax. Að því er tekur til fang-
elisrefsingarinnar, sýna 3 lækn-
isvottorð, er fylgja hérmeð, að
henni verður að fresta, en þess
er vænzt, að þér hafið sam-
j band við læknana og látið ráðu-
neytið vita, er þeir*) telja
fært að fullnægja dóminum að
þessu leyti.
Magnús Guðmundsson
(sign.)
Þórður Jensson
(sign.)
Til lögreglustjórans í Rvfk.
*) Allar leturbreytingar blaðsins.
Vottorðin fylgdu ekki með,
eins og stendur í bréfinu. Rit-
aði lögreglustjóri því ráðuneyt-
inu og- óskaði, að vottorðin
yrði send, og var það gert.
Með þessu bréfi er svo fyrir
lagt, að ekki skuli fullnægja
fangelsisrefsingunni. Lögreglu-
stjóra er boðið að spyrja
„læknana“ hvenær Bimi muni
vera batnað svo, að fært sé að
fullnægja dómnum.
— En ekki svo sem það sé
nóg, því að þeim upplýsing-
um fengnum á lögreglustjóri á
ný að snúa sér til dómsmála-
ráðuneytisins og spyrja hvort
nú megi setja hinn dómfellda
í fangelsið.
Þessu bréfi svai’aði lögreglu-
stjóri með all-löngu bréfi, dags.
14. sept 1933 og er niðurlag
þess þannig:
Svona vottorð tel ég að
verði að taka með varygð, þeg-
ar þess er gætt að ekki bar
á lasleika þessa fólks meðan
það var undir rannsókn og var
þá haft í gæzluvarðhaldi. Björn
Gíslason lagði einnig þá fram
vottorð frá Halldóri Stefáns-
syni lækni og var efni þess
| eitthvað á þá laið, að ekki
mætti setja Bjöm í gæzluvarð-
hald, en ég tók það ekki til
greina, sem ekki heldur bar
skylda til og setti Björn í
gæzluvarðhald og bauð honum
að láta fangahúslæknirinn
skoða hann þegar í stað. Hann
neitaði því. Með dómi sínum
hefir Hæstiréttur fallizt á
þessa aðferð, sem landsyfir-
rétturinn hafði áður slegið
| fastri og styðst einnig við fasta
venju hér í Reykjavík.
! Ég- legg því til að heilsufar
beggja hinna dómfelldu sé
rannsakað á Landspítalanum
eins og gert hefir verið áður
í samskonar tilfellum, t. d. með
Þórð Flygering er hafði vott-
orð eins eða tveggja lækna um
það, að hann gæti ekki úttekið
sinn refsidóm, en rannsókn á
Landsspítalanum leiddi allt
annað í ljós.
En ef ráðuneytið getur ekki
fallizt á þá tilhögun að fara
með þetta dómfellda fólk eins
og aðra og ef endilega á í
þessu tilfelli að víkja frá lög-
um og venju þá mun það
draga dilk á eftir sér. Aðrir
dómfelldir menn munu eðlilega
heimta þann sama rétt og
þetta fólk, að sjá sjálfir að til-
taka þá lækna sem segi til um
það hvort refsidóminum megi
íullnægja eða ekki, og ég skal
benda ráðuneytinu á það, að
þau ár sem ég hefi fengizt við
rannsóknir, hafa fjöldi manna
mætt með læknisvottorð um að
eklci mætti setja þá í gæzlu-
varðhald. Ég rak mig fljótt á
að vottorð þessi voru sum ekki
áreiðanleg, tók þau ekki til
greina, en setti umræddar per-
sónur undir skoðun fangahúss-
læknis, og í miklu meiri hluta
tilfella varð niðurstaða hans
öfug við þau vottorð sem áður
lágu fyrir.
Ef sú leið verður farin al-
mennt, sem ráðuneytið ætlast
til í þessu máli, mætti vel svo
fara, að þeir yrðu æði margir
refsidómarnir, sem aldrei yrði
fullnægt.
Óska svars hins háa ráðu-
neytis við fyrsta þóknanlegt
tækifæri.
Til dómsmálaráðuneytisins,
Reykjavík.
Þessu bréfi svarar svo dóms-
málaráðuneytið 3. október 1933
og- er niðurlag þess bréfs þann-
ig: \
Vegna þessara ummæla yð-
ar, þykir ráðuneytinu ástæða
til að taka það fram, sem hér
segir:
Bréf yðar virðist byggt á
þeirri skoðun, að fullnusta
refsidóma sé athöfn, sem heyri
undir dómsvaldið, en þetta er
algerður misskilningur. Fulln-
usta refsidóma er á verksviði
framkvæmdarvaldsins nema að
því leyti, sem um er að ræða
innheimtu málskostnaðar,
sekta eða skaðabóta, enda hef-
ir ráðuneytið oft áður gefið
ýmsar fyrirskipamr um fulln-
ustu refsidóma, án þess að
nokkur dómari hafi fyr kvart-
að yfir, að farið væri inn á
hans verksvið. Af þessu leiðir,
að það er fjarri sanni, að ráðu-
neytið hafi með áðurnefndu
bréfi sínu vikið frá lögum og
venju.
Þetta er yður hérmeð tjáð til
leiðbeiningar.
M. Guðmundsson.
(sign).
/Gissur Bergsteinsson
(sign).
Til lögreglustjórans
í Reykjavík.
Vottorðin sem ráðherrann
heimtar að farið sé eftir, eru
frá Þórði Sveinssyni á Kleppi
og Eiríki Kjerúlf fyrv. aðstoð-
arlækni á Isafirði.
Þau verða birt síðar.
mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmaamssBBSBsasBsssMmi
HXest úrval at
Ljósakrónum
og' allskonar rafmagnslömpum. Verð á ljósakrónum
frá kr. 14,00. Fallegar skálar frá kr 16,00. Borð-
lampar frá kr. 6,00. Standlampar kr. 19,50, svo tekin
séu nokkur dæmi. Dönsku perurnar Sm., Osram og
Philips krónu stykkið.
Raltækjaverzlun Eíríks Hjartarsonar.
Laugaveg 20. — Sími 4690
HLUTAVELTU
heldur
Knattspyrnufélagið VALUR
í dag í K.-R.-húsina og heist kl. 4 siödegis. Hlé kl. 7—8. Þar veröur á boðstólum fjöldi
GÓÐRA og GAGNLEGRA muna, svo sem:
Vetrarfordi af matvælum. — 300 kr. i peuingum
Sykur (Melis — Strausykur)
Hveiti — Hairamjöl
Smjörliki — Kartöflur — Róiur
Sáltfiskur — Kol til vetrarins.
Baruavagn — Málverk
Skófatnaður
Byggingarvörur — Glervörur
Fatnaður
\