Nýja dagblaðið - 12.11.1933, Page 2
2
N Ý J A
DAGBLAÐIÐ
III
VELflVERZLUN
HAFNHKSTRÆTI 18
Símap 3027 X 212 7-
Aukid öryggi á
hafinu með
V Ö L U N D
M O T O R
Aðalumboðsmenn fyrir
,,VÖbUND“ móiopinn:
á Suðuplandi:
O. J. Fossbergf, Reykjavík
á Nopðuplandi:
Ouðxu. Pétursson, Akureyri.
Brauðgerð
Kaupiél. Beykjavíkur
Bankastræti 2. Sími 4562
Selur brauð og kökur með
lægsta verði bæjarins, svo
sem:
Rúgbrauð .. . . .. 40 aura
Franskbrauð .... 40 —
Normalbrauð ... 40 —
Súrbrauð.......30 —
Kjamabrauð ... 30 —
Vínarbrauð og
Bollur ........10 —
Snúðar........... 8 —
Smákökur . 4. . . 3 —
Góðar vörur, Reynið viðskiftin.
Sent um allan bæ.
Sími 4562. — — Sími 4562.
Andúð gegn
Bretum.
Berlín kl. 11,45 11/11 FÚ.
Óspektir í mótmælaskyni
gegn Bretum urðu í Dublin í
gær, og voru tveir brezkir fán-
ar brenndir opinberlega á báli,
en standmynd af Victoríu
drottningu var sprengd í loft
upp.
j
Urslit atkvœðagreiðsl-
unnar um bannlögin.
Framh. af 1. síðu.
allt að 21% styrkleika að rúm-
máli, en yfirleitt bannað að
flytja inn áfengt öl og sterk-
ari drykki, nema til lyfja. Til-
gangurinn með atkvæða-
greiðslu þessari er að fá að
vita vilja kjósenda um, hvort
leyfður skuli innflutningur
hinna sterkari drykkja eða
ekki.
Þeir kjósendur, sem vilja, að
bann það, sem felst í gildandi
áfengislöggjöf, sé afnumið,
setja blýantskross fyrir fram-
an „Já“, en þeir, sem vilja
afnema það, setja krossinn
fyrir framan „Nei“.
Alls hafa verið greidd í
landinu 27508 gild atkvæði.
Þar af hafa 57,74% greitt at-
kvæði með afnámi bannlag-
anna, en 42,26% á móti af-
náminu.
í 14 kjördæmum er meiri-
hluti atkvæða móti afnámi, en
í 13 kjördæmum meirihluti
með afnámi.
Alþingi í gær.
Fundir hófust í báðum deild-
um kl. 1 e. h. og stóðu stutta
stund. í efri deild var einu frv.
vísað til 2. umr. og nefndar
og ákveðið um eina þings-
ályktunartillögu, hvernig ræða
skuli.
í neðri deild var stjórnar-
skrárfrumvarpið til 2. umr. 1
Eysteinn Jónsson var fram-
sögumaður stjórnarskrárnefnd-
ar. Hún leggur til einróma að
frv. verði samþykkt. Gat Ey- ;
steinn þess, að hann væri að
vísu óánægður með frv. að
sumu leyti, en vildi ekki brjóta :
það samkomulag, sem gert
hefði verið milli flokkanna í
þinglok í vor um afgreiðslu j
málsins.
1. gr. frv. var samþykkt j
með öllum greiddum atkv. gegn \
einu (Hannesar Jónssonar) og
frv. vísað til 3. umr. með öll- j
um greiddum atkv. gegn 2
(Hannesar og Halldórs Stef- \
ánssonar).
Mannfallið á Cuba
London kl. 0,45 11/11 FÚ.
Hermálaráðherrann á Cuba
hefir tilkynnt, að í bardögum
þeim, sem áttu sér stað á
fimmtudaginn, hafi 150 menn
verið drepnir, en 300 særst.
Kristindómur og ásatrú.
Framh. af 1. síðu.
3. Með því að prestar og '
aðrir starfsmenn kirkjunnar
eru ofsóttir, ef þeir geta ekki
skilyrðislaust fylgt að málum !
hinum ráðandi flokki innan !
hennar, er hinu kirkjulega em- 1
bætti stór hætta búin að það
sökkvi niður í hina mestu
óvirðingu. Það fær ekki stað- 1
izt að boðskapur kirkjunnar
. beygi sig fyrir mannasetning-
um.
Á þessari alvarlegu stund,
þegar samvizka vor hefir neytt
. . •
oss til að leggja fram þessi j
i mótmæli vor. • höfum vér lofað j
i því fyrir augliti almáttugs j
j Drottins að leggja allt að veði J
; til að fagnaðarboðskapurinn j
' verði meðal þjóðar vorrar j
boðaður hreint og undan-
j bragðalaust sem opinberun
i hins lifandi guðs í Jesú Kristi“. I
Herréttur í Aust-
urríki.
Dauðahegning leidd í lög.
Berlín kl. 11,45 11/11 FÚ.
Stjórnin í Austurríki hefir
gefið nú ný lög, sem heimila
að pólitískir afbrotamenn séu
settir fyrir herrétt, og skotn-
ir fyrirvaralaust. Er þetta
skoðað þannig, í Austurríki,
að nú hafi dauðahegning ver-
ið innleidd þar aftur, og segir
blaðið Neue Freie Presse, að
þessi ráðstöfun muni sennilega
verða til frambúðar, enda þótt
tilefni hennar séu þær pólitísku
æsingar, sem nú geysa.
Eitt hundrað og níutíu
manns voru teknir fastir út af
óeirðum kommúnista, sem urðu
í Wien í gær. Kommúnista-
uppþot hafa einnig orðið í
Linz, og þar voru í gærkvöldi
skotnir niður tveir Heimwehr-
menn, sem voru á verði. 1
Bregenz var kastað sprengi-
kúlum inn í hús þingmanns
nokkurs, og eyðilagðist húsið,
en enginn var heima. Austur-
ríska stjórnin hefir bannað
Nemendasamband jafnaðar-
manna í skólum i Austurríki.
Vísur dagsíns.
í tilefni af því, að nú er
fullkunnugt orðið hvernig at-
kvæðagreiðslan um bannið
hefir farið birtir blaðið 2 vís-
ur eftir andbanning og aðrar
2 vísur bannmönnum að skapi:
Ennþá gerist gaman nýtt,
gnótt er í kjallaranum,
nú er geðið glatt og hlýtt
í gamla svallaranum.
Það er eins og leysist lönd
úr læðing marga ára,
þegar hnígur heim að strönd
höfug vínsins bára.
Árni Pálsson.
Heiður týnist, heilsa dvín,
hugarpína bítur,
þegar svínin svelgja vín,
sezt á trýnin skítur.
Baldvin Jónsson.
Vínið hi'indir mennskri mynd,
magnar lyndi skitið,
gerir yndið allt að synd
og steinblindar vitið.
Ingunn Hallgrímsdóttir.
<25óf’mcnittir - íþrótttr ~ íistir
Hákarlalegur
og hákarlameun.
Eftir Theodór Friðriksson.
Meðal þeirra bóka, sem út
hafa komið í haust, er engin
líklegri til að ávinna sér al-
mennar vinsældir en þessi
litla bók um hákarlaveiðar. Þó
mætti ætla, að það væri ekki
lítil íþrótt að rita skemmtilega
bók um þvílíkt efni. En höf-
undurinn er gamall hákarla-
maður og bókin er hold af
hans holdi og bein af' hans
beinum.
Theódóri lætur jafn vel að lýsa
sterkur karl að lesa í Jóns-
bók. Hreiðraði hann um sig í
káetukappanum, og kyrjar síð-
an upp með mestu andagt, en
allir krupu berhöfðaðir við
vaðinn á meðan.
En er fram í lesturinn kom,
gerðust sumir óþolinmóðir að
hanga í vaðnum, fundu þeir,
að „gráni var farinn að toga
í“. Hafði -Jörundur þá ekki eirð
í sér lengur, en skipaði háset-
unum að fara að draga. Herðir
nú karlinn sig jafnframt að
lesa alveg eins og hann mögu-
j lega getur; en þegar hákarl-
Gamalt hákarlaskip á Oddeyrartanga.
skipurn og veiðarfærum, land-
legum og hákarlalegum, hvers-
dagsviðburðum og æfintýrum,
aflaleysi og „vitlausum há-
karli“, stilltum sjá og stór-
roki, hákarlinum og hákarla-
mönnunum. Líklega er allra
skemmtilegastur þátturinn um
Látra-Felix, þai- sem hann
segir sögu hákarlaskipsins, en
formennirnir eru sýndir eins
og skuggamyndir á tjaldi, sem
líða hjá, meðan frásögninni
þokar áfram. Ekki er til átak-
anlegri lýsing á því, hvað for-
maðurinn getur orðið skipinu
„innlífaður“, en frásögn Theó-
dórs um það, þegar Felix kem-
ur heim úr síðustu sjóferðinni,
löngu eftir að menn höfðu tal-
ið hann af. Þá er gamli Jónas
á Látrum, sem smíðaði skipið
einn um hánótt niðri við hjall-
húsið til að taka móti því. Hann
1 hafði alltaf sagt: „Felix gamla
1 verður brennt hér á Látrum“.
Og hann fann og vissi, að
skipið mundi koma einmitt á
þessari nóttu.
| , Þá eru þær ekki slakar sög-
urnar af frægasta hákarla-
manni við Eyjagjörð, Jörundi
j Jónssyni í Hrísey (Hákarla-
Jörundi. Fer ein þeirra hér á
, eftir sem sýnishorn af þeim
sögum og ofurlítil augnabliks-
mynd úr hákarlalegum:
j Einu sinni var sagt, að Jör-
undur liafi verið staddur í
miklum hákarli um páskana.
Það var þá siður á mörgum
hákarlaskipum, að menn hefðu
I með sér guðsorðabækur, og vildi
' Jörundur láta lesa lesturinn á
páskadaginn. Veðrið var ósköp
gott, og skipaði Jörundur svo
fyrir, að allir gætu hlustað á
lesturinn — það tæki ekki svo
langan tíma, og gætu menn
verið við vaðinn eins fyrir því.
Var nú valinn til þess róm-
arnir fóru að koma upp að
borðunum, fór heldur að fara
út um þúfur með eftirtektina
og' lesturinn.
„O, hróið mitt og hróið
Jörundur Jónsson í Hrísey.
mitt!“ kallaði Jörundur, „það
verður að bera í hann hróið
mitt!“
„Því skyldum vér þá ekki
allshugar fegnir verða, synd-
ugir ormar? sem vorum dauð-
, ans menn, hefði ekki Drottinn
j upprisið oss til réttlætis ...“.
„Haltu vel við gotið, strákur!“
1 ... „Vér erum jarðaðir með
Kristi fyrir skírnina til dauð-
ans“. . . . „Vertu fljótur, Páll,
og náðu í drepinn!“ „Vér vit-
um ekki hvað nálæg að er vor
endurlausn, eður nær höfuð-
engilsins lúður kveður við í
skýjum himins, og þar vort
páskalamb, Kristur, er fyrir
j oss fórnfærður, þá höldum há-
tíðina ekki í hinu gamla súr-
degi illskunnar og prettvísinn-
ar, heldur í ósýrðu brauði
hreinlyndisins og sannleikans
(1. Kon. 5)“. „Haltu við! Lifr-
in er að detta í sjóinn! ...
Tunnuhákarl!" ... Hróp og
köll um allt skipið, og busl í
hákörlum við borðið. En yfir
allt kyrjar karlinn: Amen! —
Og lestrinum er lokið.