Nýja dagblaðið - 12.11.1933, Qupperneq 4
<
If f 3 A
DAQBLAÐI9
Bifreiðarslys.
1 íyrradag var bíll á leiðinni
úr Borgarfirði til Akraness.
Á leiðinni er gil í svokölluð-
um Geldingadraga og er brú
yfir, en rétt hjá brúnni er
beygja, eins og víðast er við
brýrnar. Jón Guðmundsson bíl-
stjóri hafði farið þama út úr
bílnum og gekk við hlið bíls-
ins, en annar bílstjóri stýrði.
Svo óheppilega vildi til, að bíll-
inn fór með eitt hjólið upp á
stein og valt við það út af
veginum. Jón hljóp þá frá
bílnum, en varð of seinn til
þess að komast undan og féll
bíllinn ofan á hann. Kona Jóns,
sem var í bílnum hljóp út úr
honum um leið og hann valt
og varð hún einnig undir bíln-
um. Fleiri meiddust ekkert að
ráði, en 6 eða 7 manns var
í bílnum.
Bæði hjónin meiddust mikið,
sérstaklega konan, og voru þau
strax flutt til Reykjavíkur og
liggja á Landsspítalanum.
Blaðið fékk í gær þær upplýs-
ingar á Landsspítalanum, að
Jóni Guðmundssyni liði vel,
hafði hann ekkert brotnað.
Fótur konunnar hafði möl-
brotnað um öklann. Var strax
í fyrrakvöld skorið í fótinn og
brotin sett saman, og leið
henni einnig sæmilega eftir at-
vikum.
Sovétvinafélagið
boðar til opinbers íundar í
Iðnó í dag kl. 4. Sjá augl á öðr-
um stað í blaðinu.
Galdra-Loftur
verður sýndur í kvöld í Iðnó.
firði í gærmorgun. Goðafoss
fór frá Hull í fyrradag á leið
til Vestmannaeyja. Brúarfoss
fór frá Vestmannaeyjum í gær
á leið til London. Dettifoss kom
til Borðeyrar um hádegi í gær.
Lagarfoss fór frá Kaupm.höfn
í gærmorgun. Selfoss fór frá
Antwerpen í fyrradag á leið til
Leith.
Góðar viðtökur.
Nýja dagblaðið hefir mætt
svo góðum viðtökum, að suma
dagana hefir allt upplagið selst
undir eins fyrri hluta dagsins,
sem blaðið hefir komið út. Hef-
ir ákafinn verið svo mikill að
ná í það, að afgreiðslan hefir
ekki alltaf gætt þess að stöðva
götusöluna í tíma. Menn úti á
landi eru beðnir velvirðingar
, á því, að ekki er hægt að
senda þeim eins mikið af blað-
nu og ráðgert var. Á þetta
einkum við um 10. og 12. tbl.
Trúlofun.
Á föstudaginn opinberuðu
trúlofun sína ungfrú Elín Guð-
mundsdóttir þorbjarnarsonar
frá Stóra-Hofi og Kjartan ól-
afsson húsasmiður frá Laxár-
dal í Þistilfirði.
Kona gerist múrari.
Fyrir skömmu síðan fékk 19
ára stúlka í Khöfn sveins-
bréf í múraraiðn. 1 tilefni af
þessu flytur Politiken mynd af
stúlkunni og birtir viðtal við
hana. Hún lætur hið bezta yfir
starfinu, sem annars þykir
naumast við kvenna hæfi.
Saumana hefir hún ekki lagt
til hliðar, í staðinn fyrir múr-
skeið og sléttiborð. Þegar
blaðamaðurinn kom heim til
hennar var hún að sauma út.
Annáll.
Aðalfundur
Félags ungra Framsóknar
manna verður haldinn annað-
kvöld (mánudag) kl. 8 í Sam-
bandshúsinu.
Látinn
er 6. þ. m. að heimili sínu,
Veðrará í önundarfirði, Jón
bóndi Sveinsson. Jón var mesti
dugnaðarmaður. Úr jörð sinni,
sem var aumlegt kot, þegar
hann tók við henni fyrir nokk-
uð mörgum árum, gerði hann
myndar býli. Ræktaði hann og
gerði að túni móa og mýrar,
sem fáum myndi hafa dottið í
hug að fást við til ræktunar.
Var Jón mjög mikill atorku-
og áhugamaður. Jón var kvænt-
ur og lifir hann kona hans og
4 böm uppkomin.
Rafmagnsveitan
lokar fyrir sþraum frá kl.
12i/4 e. h. til kl. 15, vegna
vélauppsetningar.
Kristján Kristjánsson
frá Kópaskeri, áður bóndi á
Víkingavatni, er staddur í bæn-
um og dvelur hér nokkum
tíma.
Hákarlalegur og hákarlamenn
hin nýja bók Theodórs Frið-
rikssonar, sem ritað er um á
öðrum stað í blaðinu, er gefin
út af Menningarsjóði og fæst
í bókaverzlun E. P. Briem.
Talstöðin.
Þess var getið í blaðinu fyr-
ir skömmu, að þrír menn hefðu
komið hingað sem fulltrúar
fyrir þrjú félög, til þess að at-
huga um uppsetningu á talstöð
hér, sem næði til útlanda. Ekk-
ert hefir ennþá orðið af samn-
ingum. Fulltrúamir eru nú all-
ir farnir aftur. Undirbúningi
málsins verður haldið áfram.
BOslys við Markarflj ótsbrúna.
Vörubíll, sem var að fara
yfir Markarfljótsbrúna, valt út
af uppfyllingunni við brúna.
Uppfyllingin er ekki alveg full-
gerð, hleðslan í köntunum ekki
alveg búin, og mun bíllinn hafa
farið heldur utarlega í kant-
inn, sem var laus og þessvegna
runnið undan honum.
.. „Norden“,
þýzkt flutningaskip var hér
í gær að afferma. Lögregla
hélt vörð um skipið, sem var
með hakakrossfána.
Eros
fisktökuskip, liggur hér og tek-
ur fisk fyrir Fisksölusamlagið.
Aflasala.
Togararnir Otur og Maí seldu
afla sinn í Grimsby á fimmtu-
daginn. Otur seldi 1500 körfur
fyrir 1128 sterlingspund, að
frádregnum tolli, en Maí fyrir
1337 stpd. brúttó. Hann hafði
keypt dálítið af fiski í viðbót
við aflann, en ekki er kurenugt
hve mikið það var.
Skipafregnir.
Esja fór frá ísafirði kl. 9 í
gærmorgun. Súðin var á leið
til Eskifjarðar á norðurleið kl. j
4 í gær. Gullfoss var á Breíða- I
Listasýningu
hélt Kristinn Pétursson ný-
lega á Isafirði. Kristinn hefir
nú upp á síðkastið valið sér
viðfangsefni úr goðasögum og
íslenzkum þjóðsögum. Myndirn-
ar eru sagðar sérkennilegar og
skemmtilegar. Kristinn seldi á
ísafirði nokkur af listaverkun-
um og fór síðan með sýninguna
til Akureyrar.
Kaupféiag Rauðsendinga
heitir kaupfélag, sem stofn-
að var seinnihluta sumars í
Patreksfirði. Hefir það aðsetur
sitt á Hvalskeri. Formaður fé-
lagsins og framkvæmdastjóri
er Egill Egilsson bóndi í Saur-
bæ.
í dag klukkan 4
Oninber fundur
í ’stóra salnum í „I8nó“.
í>ar verður:
SIG. TÓMASSON, úrsmiður
sýnir skuggamyndir. Eru
þær eítir frummyndum, sem
hann tók á ferðalagi sínu
um Rússland í sumar.
Hinn vinsæli KARLAKÓR
VERKAMANNA syngur und-
ir stjórn Hallgr. Jakobss.
JÓHANNES JÓSEFSSON
talar.
HALLDÓR STEFÁNSSON,
rithöfundur, les upp sögu
eftir MAXIM GORKI: And-
legt þjóðlíf.
Hljómlistarmennirnir pÓR-
ARINN GUÐMUNDSSON,
pÓRHALLUR ÁRNASON og
EMIL THORODDSEN spila
rússnesk þjóðlög.
Formaður Sovétvinafélags-
ins KRISTINN ANDRÉSSON
tlytur erindi: Sovét-Rússland
16 ára.
Fundurinn er öllum opinn.
Menn eru beðnir að greiða
50 aura við innganginn tll
þess að borga með kostnað
af fundinum.
Sovétvlnafélag íslands.
Hjúskapur.
I gær voru gefin saman í
hjónaband Hólmfríður Ólafs-
dóttir og Hans Kr. Kragh,
starfsmaður hjá Landssíman-
um.
Refarækt.
Nokkrir menn í Bæjarhreppi
í Hrútafirði hafa stofnað refa-
ræktarfélag. Fél. hefir keypt
þrjú pör af silfurrefum og ein
íslenzk refahjón. Dýrin voru
keypt í Ljárskógum. (FÚ).
Alltaf batnar það!
I 24. tbl. af „íslenzk End-
urreisn“, segir í svari til „Tím-
ans“: Liggur það næst að ætla,
að hann (Tíminn) kalli það
helgislepju, að blað flokksins
hér í Reykjavík hefir valið sér
fyrir kjörorð hinar frægu 0g
gullfögru setningar úr Alda-
mótaljóðum Hannesar Haf-
stein: „Verði gróandi þjóðlíf
með þverrandi tár, sem þrosk-
ast á guðsríkisbraut". — I
næsta tölublaði kemur „leið-
rétting“!: „Misritun var í grein
% Ódýrn %
augiýsin ga rnar,
Húsnæði
Óskað er eftir góðu herbergi
nálægt miðbænum. Upplýsingar
á Bergstaðastræti 82 eftir kl. 8
á mánud. og þriðjudag.
Vantar litla íbúð, eða vil
jafnvel kaupa lítið hús á góð-
um stað í bænum. A. v. á.
Mæld feiti í mjólk. Sími
2151.
JHBSIIIIII
Skinnhanzkar hafa tapast ná-
lægt Tjarnarbrúnni. Finnandi
geri viðvart í síma 4245 gegn
fundarlaunum.
Munið síma Herðubreiðar
4565, Fríkirkjuvegi 7. Þar
fæst allt í matinn.
Hafið þið reynt hið holla og
ljúffenga kjarnabrauð frá
Brauðgerð Kaupfél. Reykjavík-
ur?
ódýrasta!
vörur fáið þið aðeins á Vest-
nrgötu 16.
Verzlsmin Brúartoss
Sími 3749.
KjÖtfars alltaf bezt hjá
K 1 e i n
Baldursgötu 14. Sími 3073.
eftir P. (Clafsson) í síðasta
tbl. þar sem stóð að einkunn-
arorð ísl. þjóðernissinna væru
eftir Hannes Hafstein, í stað
Matthíasar Jochumssonar". —
Ergo --- eru einkunnarorð þjóð-
emisblaðsins úr Aldamótaljóð-
um Matthíasar Jochumssonar.
Alltaf batnar það! Menn með
slíka þekkingu eru vel fallnir
til þess að kenna sig við ís-
lenzka menningu og ísl. þjóð-
erni!!
RAUÐA HÚSIÐ.
— Vitanlega. Antony brosti á móti og sagði svo
með hughreystandi röddu: Jæja, ég sting nú fyrst
upp á því, að þér hringið til lögreglunnar.
— Lögreglunnar? J — já. Hann leit með efa-
semd á Antony. Jeg held ...
Antony tók nú af skarið.
— Heyrið þér nú mr ...
— Cayley. Ég er frændi Mark Ablett. Ég er hjá
honum.
— Ég heiti Gillingham. Afsakið, en ég hefði nú
átt að segja yður það fyrri. Nú, mr Cayley, það er
gagnslaust annað en ganga hreint til verks. Hér
liggur maður sem hefir verið skotinn — nú, ein-
hver hlýtur að hafa skotið hann.
— Máske hann hafi skotið sig sjálfur, tautaði
Cayley.
— Ja, það er auðvitað mögulegt, en hann
gerði það nú ekki. Eða þó hann hafi gert það, þá
var hér annar maður inni samtímis og nú er hann
farinn. Og sá maður tók með sér skammbyssu. Ég
býst við því að lögreglan vilji hafa hér hönd í
bagga með.
Cayley stóð og horfði þegjandi niður fyrir fætur
sér.
— Ég veit um hvað þér eruð að hugsa og ég
finn til með yður, en við getum ekki farið að eins
og börn. Og ef Mark Ablett var hér í þegsu her-
bergi ásamt þessum þarna — hann benti á líkið •—
þessum manni þarna, ja þá ...
— Hver segir að hann hafi verið þar? sagði
Cayley og’ hnykkti til höfðinu.
— Þér.
— Ég var inni í bókaherberginu. Márk gekk hér
inn — það getur vel skeð að hann hafi farið út
aftur — það veit ég ekki. Einhver annar gat hafa
íarið hér inn ...
— Auðvitað, sagði Antony þolinmæðislega, eins
og hann væri að tala við lítið barn. Þér þekkið
frænda yðar, en það geri ég ekki. Við getum orðið
ásáttir um það, að hann hafi ekkert haft með þetta
hér að gera. En einhver var hér inni í herbergihu
þegar þessi maður var skotinn, og — tja, lögreglan
verður að fá að vita um þetta. Haldið þér ekki . . .
Hann leit á símaáhaldið. Eða viljið þér heldur að
ég geri það?
Cayley ypti öxlum og gekk að símanum.
— Má ég — hm — sjá mig ögn um? Antony
kinkaði kolli til dyranna sem opnar stóðu.
— Já, gerið svo vel. Cayley settist niður og
færði símaáhaldið* nær sér. Þér verðið að afsaka
mig mr Gillingham. Sjáið þér til, ég hefi þekkt
Mark í mörg ár. En auðvitað hafið þér alveg rétt
fyrir yður, og ég fer að alveg eins og bjáni. Svo
tók hann upp heyrnartólið.
Setjum nú svo, að okkur langi til þess að virða
fyrir okkur þetta „vinnuherbergi". Við göngum inn
í það gegnum dyrnar út að forsalnum, sem lokast
á hæla okkar með samskonar töfrum og þær luk-
ust upp fyrir okkur. Við stöndum þá rétt innan
við hurðina og sjáum þá að herbergið er allt á
lengdina frá hægri til vinstri, eða réttara til hægri
aðeins, því veggurinn til vinstri er rúmlega seiling
frá okkur. Á veggnum beint á móti okkur, í svo
sem 5 metra fjarlægð eru dyrnar sem Cayley gekk
um, er hann fór út fyrir nokkrum mínútum síðan
og kom svo inn aftur. Á veggnum til hægri, um 10
metra frá okkur, er franski glugginn. Gangi mað-
ur þvert yfir gólfið og út um dyrnar beint á móti
komum við út í gang og liggja að honum tvö her-
bergi. Herbergið til hægri, það sem Cayley fór inn
í, er rúmlega hálfu styttra en vinnuherbergið. Það
er lítið, nokkurnveginn jafnlangt og það er breitt
og hefir sýnilega verið notað fyrir svefnherbergi í
viðlögum. Rúmið er þar ekki lengur, en í einu horn-
inu er þvottaskál með heitu og köldu vatni, stól-
ar eru þar, skápar tveir og skrifborð. Glugginn veit
í sömu átt og franski glugginn á herberginu við
hliðina. En hver sem lítur út um svefnherbergis-
gluggann, rekur augun í það, að útsýnin til hægri
handar er byrgð af útveggnum á vinnuherbergmu,
J