Nýja dagblaðið - 14.11.1933, Qupperneq 1
NVJA DAGBLAÐIÐ
1. ár.
Reykjavík, þriðjudaginn 14. nóv. 1933.
15. blað
ÍDAG
Sólaruppkoma kl. 8.55.
Sólarlag kl. 3.29.
Háflóð árdegis kl. 2.25.
Háflóð síðdegis kl. 14.50.
Ljósatími hjóla og bifreiða 4.20
e. m. til 8.05 árd.
Söín, skrifstoíur o. fL:
Lundsbókasainið opið kl. 1-7 og 8-10
þjóðskjalasafnið ........ opið 1*4
þjóðminjasafnið .......... kl. 1-3
Néttúrugripasafnið ........ kl. 2-3
Alþýðubókasafnið .... opið 10-10
Landsbankinn .... opinn kl. 10-3
Búnaðarbankinn .. opinn kl. 10-3
Utvegsbankinn .. opinn kl. 10-4
Útibu Landsbankans á Klappai--
stíg ................... opið 2-7
iparisjóður Rvikur og nágrennis
opinn kl. 10-12 og 5-7%
Pósthúsið: Bréfapóstst. .. opin 10-6
Bögglapóststofan .... opin 10-5
Landsíminn .............. opinn 8-9
Búnaðarfél. Skrifst.t. 10-12 og 1-4
Fiskiféi.... Skrifst.t. 10-12 og 1-5
Samband isl. samvinnufélaga
opið ............... 9-12 og 1-6
Sölusamband ísl. fiskframleiðenda
10-12 og 1-6
Skipaútg. rikisins opin 9-12 og 1-6
Eimskipafél. íslands .... opið 9-6
Skrifst. bœjtírins opnar 9-12 og 1-4
Skrifst. lögreglustj. opin 10-12 og 1-4
Skrifst. iögmanns opin 10-12 og 14
Skrifst. toilstjóra opin 10-12 og 1-4
Hafnarskrifstofan opin 9-12 og 1-6
Stjórnarráðsskrifstofurnar
opnar 10-12 og 1-4
Tryggingarstofnanir ríkisins
opnar kl. 10-12 og 1-5.
Baðhús Reykjavíkur opið kl- 8-8
Heimsóknartimi sjúkrahúsa:
Lgpdsspítalinn ............ kl. 3-4
Landakotsspitalinn ............ 3-5
Laugarnesspítaii ...... kl. 12%-2
Vífilst'aðaliselið 121/2-H/a og 3i/2-4y2
Kleppur ................... kl. 1-5
Lögregluvarðstofan opin allan sól-
arhringinn.
Nœturiæknir: Kjartan Ólafsson
Lækjargötu 6B.* Simi 2614.
Næturvöi’ður í Ingólfsapóteki og
Laugavegsapóteki.
Samyöngur og póstferOir:
Póstbíll til Grindavíkur.
Skemmtanir og samkomnr:
(jamla bíó: Nótt eftir nótt kl. 9.
Amerísk talmynd.
Nýja bíó: Útlaginn kl. 9.
Iðnó: Bjarni Björnsson leikari
skemmtir kl. 9.
Heimatrúbpð leikmanna Vatnsstíg
3: Almenn samlcoma kl. 8.
Dagskrá útvarpsins.
Kl. 10,00 Veðurfregnir. 12,15 Há-
degisútvarp. 15,00 Veðurfregnir.
Kndurtekning frétta 0. fl. þing-
fréttir. 19.00 tónleikar. 19.10 veð-
itrfregnir. 19.20 tilkynningar, tón-
leikar. 19,35 Erindi Iðnsambands-
ins: Lýsing liúsa, II. (Steingr.
lónsson rafmstj.). 20,00 Klukku-
sláttur. Fréttir. 20,30 Erindi: Al-
býðufræðsla Rauðakrossins, IV.
Iléilbrigðismál skólabarna. Kaffi,
lóbak ög vín (Dr. Gunnlaugur
< laessen). 21,05 Tónleikar: Pianó-
sóló (Emil Thoroddsen). Grammó
íón: Beethoven: Kvartett í C-dúr.
Danslög.
Kosningaúrslitin í Þýzkalsndi
landinu þar sem menn
þora ekki að sitja heima.
Berlín kl. 11,45 13/11 FÚ.
Þátttaka í þýzku kosningun-
um í gær var meiri en nokkru
sinni fyr, og greiddu um 43
miljónir átkvæði í Ríkisþings-
kosningunum og 43 y± miljón
þjóðaratkvæði um úrsögn j
Þjóðverja úr Þjóðabandalaginu
og afvopnunai’ráðstefnunni.
Af atkvæðufn þessum féllu
91,1% á lista National-Social-
istá í Ríkisþingskosningunum,
en aðrir seðlar voru auðir eða
ógildir. Þjóðaratkvæðið fór
þannig, að 93,5% sögðu já við
utanríkisstefnu stj órnarinnar.
Úrslitin vekja mikinn fögn-
uð í Þýzkalandi. Verður flagg-
að á öllum opinberum bygging-
um í dag, en klukkum hringt
frá kl. 18.00 til 18.15 í þakkar-
skyni.
Hitler fór á fund Hinden-
burgs í morgun, og tilkynnti
honum lokaúrslit kosninganna.
Þakkaði Hindenburg kanzlar-
anum fyrir hve vel honum
hefði tekizst á stuttum tíma
að skapa pólitíska einingu í
Þýzkalandi, og kvaðst vona að
starf hans yrði ekki síðra
framvegis.
Þegar úrslit kosninganna
voru tilkynnt í nótt, hélt
Göbbels ræðu í útvarpið, þar
sem hann þakkaði þýzku
þjóðinni fyrir það, hve vel hún
hefði brugðizt við að sýna
viðurkenningu sína á Hitler-
stjórninni.
Erlendum blöðum er tíðrætt
um úrslit kosninganna, og telja
flest blöðin, að úrslitin kunni
að hafa mikla þýðingu fyrir
framtíðai’pólitík í Evrópu.
Enska jafnaðarmannablaðið,
Daily Herald, segir meðal ann-
ars, að nú geti Hitler hætt að
fiska eftir atkvæðum, og kom-
ið fram sem heimsstjórnmála-
maður. Austurrísku blöðin eru
þó nokkuð vafagjöm út af
kosningunum, og segja að þær
hafi ekki farið löglega fram,
heldur hafi verið beitt mis-
Hindenburg forseti,
sem í gær þakkaði Hitler „hve
vel honum hefði tekizt — —
að skapa pólitíska einingu í
Þýzkalandi“. Þann 10. apríl
1932 kepptu þeir Hindenburg
og Hitler um forsetatignina.
Þá fékk Hindenburg 19 milj.
360 þús. atkv., Hitler 13 milj.
417 þús. atkv. og kommúnist-
inn Thálmann 3 milj. 706 þús.
atkv. Nú er Hindenburg orðinn
86 ára gamall.
réttu og nauðung. Segja þau,
að ef frjálsar kosningar hefðu
farið fram, hefði Hitler ekki
fengið 50% af atkvæðunum.
Eins og kunnugt er, eru all-
ir flokkar, aðrir en Nazista-
flokkurinn, bannaðir í Þýzka-
landi, enda var aðeins einn listi
í kjöri listi Nazista, og var
Hitler þar efstur á blaði. Nýju
þingmennirnir hafa í raun og
veru ekkert verkefni, því að
þýzka ríkisþingið afsalaði sér
sl. vor löggjafarvaldinu í hend-
ur stjórninni um næstu fjögur
ár.
Bilun við rafmagnsstððina í gærkvbldi.
Aldimmt í bænum i hálfa þriðiu
klukkustund.
Kl. 7 í gærkvöldi tók skyndi-
lega fyrir strauminn frá
Rafveitunni við Elliðaámar.
Var rafmagnslaust í bænum frá
kl. 7—9Va og myrkur á götum,
enda dimmt yfir. En í húsum
inni björguðust menn við
kertaljós. Sú var ástæðan til
þessa, að loka bilaði í vatns-
stokk þeim hinum mikla, sem
liggur frá uppistöðunni við
stífluna, ofan við rafmagns-
stöðina, og veitir ratni að
hinum nýju rafmagnuvélum.
Stokknum var lokað að ofan og
voru tveir menn að vinnu niðri
í honum neðan til, er vatns-
flóðið beljaði niður stokkinn.
Gátu mennirnir naumlega
bjargað sér upp úr áður en
vatnið skall á þá, en annars
var þeim háski búinn. Varð að
hleypa úr lóninu við stífluna
til þess að hægt yrði að loka
fyrir vatnsveitustokkinn á ný,
en við það stöðvuðust raf-
magnsvélarnar, þangað til
hækkað var í lóninu aftur.
Hövmulegi slys.
Tveir menn villasi á »fjallinu«
og lenda í hvakningum.
Annar þeirra bíður bana.
Sá, sem eftir lifði, lá úti alla nóttina, en komst
til bæja austur í Selvogi i gærmorgun.
Á sunnudagsmorguninn kl.
8V2 fóru tveir menn héðan úr
Reykjavík, þeir Þóroddur Jóns-
son heildsali og Sigurjón Guð-
mundsson skrifstofumaður hjó
honum, á rjúpnaveiðar. Fóru
þeir í bíl upp á Sandskeið,
skildu hann þar eftir og fóru
þaðan upp í Bláfjöll. Höfðu
þeir gert ráð fyrir að koma
aftur til Reykjavíkur síðari
hluta dags á sunnudaginn.
Á sunnudagskvöld var fólk
þeirra farið að undrast um þá
félaga. Voru menn sendir til
þess að leita þeirra upp á
heiði, en þeir urðu einkis vís-
ari. í gærmorgun héldu svo
nokkrir varalögreglumenn á-
fram leitinni, en sú leit varð
árangurslaus.
En kl. um tíu í gærmorgun
fékk Jón Jónsson faðir Þór-
odds svohljóðandi skeyti:
„Er í Selvogi. Vellíðan.
Þóroddur."
Var það fyrsta fréttin sem
af þessu ferðalagi barst hing-
að til bæjarins.
En síðar í gær var það full-
yrt um bæinn, að þeir félagar
hefðu báðir komizt til byggða
heilu og höldnu. En sú fregn
reyndist því miður ekki rétt.
Þóroddur einn hafði komizt af.
Lát Sigurjóns spurðist hingað
seint í gærdag. Hann hafði
orðið úti, undir fjöllunum,
ofan við Selvog.
ViÖtal við Jón fónsson
föður Þórodds.
Nýja dagblaðið hitti föður
Þórodds, Jón Jónsson, seint í
gærkvöldi. Hann á heima í
Fischerssundi 3.
— Það sem ég hefi frétt er
það, segir Jón, að þeir Þór-
oddur og Sigurjón hafi áður en
þeir yfirgáfu bifreiðina, skilið
eftir eitthvað af fötum, til
þess að vera léttari á sér. Fóru
þeir síðan austur á heiðarnar
og munu hafa fundið rjúpur
og dvalizt lengur en þeir ætl-
uðu og farið lengra austur en
til stóð.
— Höfðu þeir mat með sér?
— Já, þeir höfðu nógan mat
en ég veit ekki hvort þeir hafa
borið hann með sér eða skilið
hann aftir í bílnum. Annara
veit ég mjög lítið um þetta,
segir hann.
Nánari fregnir.
Eftirfarandi fregnir hefir
blaðið fengið til viðbótar, af
þessum sorglega atburði:
Þegar þeir félagar voru
komnir upp í fjöllin, gerði
dimmviðri, svo að þeir sáu
ekkert hvar þeir voru og hafa
þá orðið áttavilltir, enda er þar
mjög vandratað, allt eitt
mosahraun með einlægum
hraunsprungum og gjótum,
sumum mjóum en djúpum og
öðrum afarbreiðum og brött-
um. Er það venja þeirra, sem
á rjúpnaveiðum eru, að flýta
sér út úr þessum hraunfláka
fyrir myrkur.
Þegar þeir koma á eystri
brún fjallgarðsins, uppi yfir
Selvogi, sem var kl. um 4 á
sunnudag, sjá þeir vatn, sem
hefir verið Hlíðarvatn í Selvogi
og halda þá að þeir sjái Hafn-
arfjörð.
Þarna er mjög bratt og
gekk þeim illa að komast
niður og voru mjög lengi að
því. Loks komast þeir þó nið-
urfyrir klettana og setjast þar
og hvíla sig, þá mun hafa
verið komið langt fram á
kvöld.
Var Sigurjón þá orðinn al-
gerlega örmagna af þreytu,
vosbúð og kulda og andaðist
hann þarna undir klettunum
kl. 10 um kvöldið.
Þóroddur var þama yfir
líkinu alla nóttina. Hann vissi
ekki, hvert hann skyldi halda,
því hann sá ekki ljós á bæjun-
um 1 Selvogi. En þeir eru þó
mjög skammt frá þeim stað,
þar sem þeir félagar höfðu
sezt að.
Þegar birti um morguninn
sá hann loks til bæja og komst
þá með illan leik heim að
næsta bæ, Vogsósum í Selvogi.
Þar fékk hann aðstoð til að
sækja lík félaga síns. m
Þóroddur var orðinn mjög
þjakaður og kalt eftir útileg-
una um nóttina, en hresstist
fljótt, þegar hann var búinn
að hita sér og borða.
í gærkvöldi um ellefu-IeýtiÖ
1 Framh. á 4. liðu.