Nýja dagblaðið - 14.11.1933, Page 3
N Ý J A
DA GBLAS19
1
NtJA DAGBLAÐIÐ
Útgefandi: „Blaðaútgáfan h/f“
Ritstjóri:
Dr. phil. þorkell Jóhannesson.
Ritstjórnarskrifstofur:
Laugav. 10. Símar: 4373 og 2353.
Afgr. og auglýsingaskrifstofa:
Austurstrœti 12. Sími 2323.
Framkv.stjóri:
Vigfús íluðmundsson.
Áskriftagj. kr. 2,00 á mánuði.
í lausasölu 10 aura eint.
Prentsmiðjan Acta.
Alvörumál.
Á einum stað hérna 1 bænum
á heima lítill drengur, sem
lengi hefir verið heilsuveill og
er einkennilegur í framkomu.
Auðvitað eru til ýms fleiri
börn, sem svipað er ástatt um.
Þessi drengur á áreiðanlega
enga ósk eins heita og þá, að
fá að leika sér með öðrum
börnum. Það er ekki til mikils
mælst. En allir aðrir drengir
virðast gera sér það að skyldu
að stjaka við þessum veik-
byggða jafnaldra sínum og
hæðast að einkennilegu lát-
bragði hans. Afleiðingin er sú,
að hann verður að sitja heima,
þegar önnur börn fara út í
góða veðrið.
Leikir barna eru oft eitt af
fegurstu og glæsilegustu fyrir-
brigðum mannlegs lífs. En oft
eru þeir líka andstyggilegir á
að horfa, jafnvel reyndum
mönnum, sem ýmislegt mis-
jafnt hafa séð um dagana.
Hérna á götunum getur oft að
líta stóra stráka um ferming-
araldur neyta á klúran og ljót-
an hátt aflsmunar við yngri
leikbræður sína. Fullorðið fólk,
sem framhjá gengur, lætur
þetta oftast afskiptalaust, og
má segja, að það sé vorkunn-
armál, þó að óviðkomandi
menn veigri sér við að sletta
sér fram í það, sem þeim
„kemur ekki við“.
Það verður aldrei of oft
brýnt fyrir fullorðnu fólki, sér-
staklega foreldrum og kennur-
um, að gefa góðan gaum að
leikjum barnanna. Stóru og
sterku leikbræðurnir hafa ekk-
ert gott af því síðarmeir að
venja sig á að níðast á þeim,
sem minna máttar eru. Og
ríkra manna börn í fallegum
fötum hafa heldur ekkert gott
af því í framtíðinni, að gera
gys að fátæku bömunum, sem
þau hitta í skólanum eða á
leikvellinum með föl andlit og í
slitnum klæðum.
Ruddaleg og ónærgætnisleg
framkoma barna í leikjum
stafar sjaldnast af vondu upp-
lagi, heldur öllu fremur af ó-
gætni og gálausri glaðværð.
Slík börn koma oft vel og
prúðmannlega fram í um-
gengni við fullorðna. En upp-
eldið kemur í ljós, þegar barn-
ið kemur fram við hlið jafn-
oka sinna eða yngri barna. Og
'jftir framkomu bamsins á
’eikvellinum, fer sambúðin við
samborgarana á fullorðinsár-
unum og manndómur í sam-
eiginlegum félagsmálum. *
Nýja yatnsveitan.
Yatnið er tekið úr Eiliðaánum, og
borgarstjórinn þarf að kaupa skólp-
síu fyrir 150 þús. kr. til að hreinsa
það.
Flestir bæjarbúar munu hafa
eitthvert veður af því, að nú
eigi að fara að auka vatns-
veituna hérna í Reykjavík.
Menn hafa a. m. k. fengið
átakanlega að kenna á því, að
vatnsveitan er orðin alltof lít-
il. Nú síðustu tvö árin hefir
allur suðausturhiuti bæjarins
verið svo settur að vatnið, a.
m. k. talsverðan hluta úr ár-
inu, hverfur gersamlega úr
íbúðunum þann hluta sólar-
hringsins, sem vatn er mest
notað. Verður fólk því um há-
daginn að kjótla vatninu í
blikkfötum eða bölum, neðan
úr kjallara upp á aðra og
þriðju hæð, ef það þá er fáan-
legt í kjallaranum. Af þessu
leiðir óhjákvæmilega, eins og
hús eru byggð nú, hinn mesta
sóðaskap, því að nú er vatns-
salerni víðast í miðri íbúð, og
þarf ekki að taka fram, hvaða
áhrif það hefir á loftslagið í
íbúðinni, þegar vatnið hverfur
mikinn hluta dagsins.
Þegar vatnsveitan var gerð
í upphafi, átti hún að endast
von úr viti. En framsýnin var
lítil þar eins og annarsstaðar
hjá stjórn bæjarfélagsins. 1923
var vatnsveitan oröin allt of
lítil og þá var varið V2 miljón
króna til aukningar. Þá var
áætlað, að aukningin myndi
nægja bænum næsta manns-
aldur, og Jóni Þorlákssyni
voru greiddar 18 þús. kr. fyr-
ir einhverskonar eftirlit, t. d.
að skrifa upp á reikninga og
þessháttar. En það versta var,
að þessi aukning, sem fyrver-
andi og núverandi borgarstjóri
héldu að myndi endast í heil-
an mannsaldur, entist ekki
nema sjö ár!
Og nú er eins og áður var
sagt, verið að auka vatnsveit-
una á ný. Sjálfsagt hlakka
margir til að losna við vatns-
burðinn og salemaþefinn. En
vita menn hvernig þessi nýja
aukning vatnsveitunnar er?
Það eru víst ekki ennþá
nærri allir, sem vita það, eða
gera sér grein fyrir, hvað það
þýðir, að nýja vatnið er ekki
tekið úr Gvendarbrunnunum,
heldur úr Elliðaánum nokkuð
ofan við rafveituna.
Uppsprettur þessarar nýju
vatnsveitu eru þannig m. a.
skólpræsin frá fuglabúinu í
Gunnarshólma, frá Vatnsenda,
Baldurshaga og yfirleitt af-
rennslið frá þeim fénaðar- og
mannabústöðum, sem þarna
eru í grennd við ámar, sumir
allt árið og sumir tíma úr ái-
inu. Allt frárennsli frá þess-
um stöðum er í Elliðaárnar og
svo þaðan — innan skamms —
eftir hinni nýju vatnsleiðslu
Jóns Þorlákssonar inn í eldhús
allra bæjarbúa niðri í Reykja-
vík.
Hingað til hefir því verið
haidið fram, að Gvendarbrunn-
arnir væri einhver bezta
neyzluvatnsuppspretta, sem
fáanleg er, og það er senni-
lega rétt. Vatnið í Reykjavík
hefir að vísu verið lítið nú
síðustu árin, en það er betra
nú en í flestum öðrum bæjum,
þó leitað sé víða um lönd. En
nú verður því ekki lengur að
heilsa, þegar búið verður að
blanda það með skólpinu úr
Elliðaánum. Og þó að borgar-
stjórinn ætli nú að kaupa
skólpsíu, sem kostar 150 þús.
kr., getur hann sjálfsagt ekki
talið neinum manni trú um,
að vatnið verði jafngott og
áður.
En nýja bragðið á vatninu
í Reykjavík, kemur væntan-
lega ýmsum til að skilja það,
að það borgar sig ekki að hafa
bæjarstjórn, sem er bæði
íhaldssöm, óframsýn og kæru-
laus, en sparar eyrinn til að
kasta krónunni.
fremur að stjórninni verði
skift niður í stjórnardeildir,
svipað því sem er í Frakklandi,
til hægðarauka við stjórnar-
störfin.
Þýzku kosningunum, og öll-
um atburðum í sambandi við
þær hefir verið fylgt af mik-
illi athygli í Austurriki. Búast
sumir við, að kosningaúrslitin
kunni að leiða til þess, að Nati-
onal-Socialistar í Austurríki
geri byltingartilraun. Ekki bar
til neinna tíðinda þar í gær á
15 ára afmæli Austurríska lýð-
veldisins, enda er landið enn í
hernaðarástandi.
í frönskum blöðum er mikið
rætt um kosningarnar í Þýzka-
landi, og því almennt haldið
fram, að þær hafi farið fram
með þeim hætti, að andstæð-
ingar stjórnarinnar hafi haft
mjög takmarkaða aðstöðu til
þess að láta kenna á afli sínu.
Viðurkenna þau að vísu, að
Ilitler mundi samt sem áður
hafa fengið meirahluta, en
ekki eins mikinn og raun varð
á. Eitt blað kemst svo að
orði, að kosningarnar hafi ekki
verið annað en duglega. framin
sjónhverfing.
í Genf virðast menn líta svo
á, að þýzka stjórnin muni að
afstöðnum kosningunum, verða
samningafúsari, og að þessi
kosningaúrslit kunni að greiða
fyrir samningunum um afvopn
unarmálið.
Mussolini hefir látið þess
getið, að Ítalía geti ekki orðið
aðili að neirium afvopnunar-
samningi, sem Þýzkaland taki
ekki þátt í.
Frá Afghanistan
Berlín kl. 11,45 13/11 FÚ.
Nánari fregnir hafa nú bor-
izt af morðinu á Nadir Shah í
Kabul, og átti morðið sér stað
meðan konungurinn var að út-
býta verðlaunum til stúdenta,
í höll sinni. Morðinginn heitir
Guhli Nassi, og er gamall
þjónn konungsins. Komið hefir
í ljós við yfirheyrslur, að hann
hefir lengi lagt hatur á hús-
bónda sinn; hann skaut á hann
þremur skotum og dó kon’ung-
ur samstundis. Stúdentaf,' sem
viðstaddir voru, ætluðu að taka
morðingjánn af lífi án dóms og
laga, en það tókst að vernda
hann fyrir heift þeirra. Nú
ríkir ró og spekt í landinu, og
rnenn hafa svarið hinum nýja
konungi hollustu.
WuWmm^sW‘'^
Borg'ið ekki iyrir
va,nskilamennina!
Verzlun mín hefir í meira en áratug selt eingöngu
gegn peningagreiðslu út í hönd. Þar af leiðandi sel-
ur hún alltaf allra verzlana ódýrast.
É
Hveiti bezta tej
Hrísgrjón..
Haframjöl.
Kartöflumjöl
Hrfsmjöl..
Sagogrjón.
Molasykur
Strausvkur
Sýnishorn:
0,18 1/2
0,18 —
0,20 —
0,25 —
0,25 —
0,35 —
0,28 —
Kaffipakkinn .. .. 90 aura
— Export (L. D.) 65 aura stk.
— Persil.......60 aura pk.
Flik Flak .. .. 55 aura pk.
Rinso. "......50 aura pk.
— Gold Dust .. .. 35 aura pk.
— Sólskinssápa
4
I
-
<
<
<
Olafur Gntnnlaugsson „
0,23--------
175 aura pk.
k
Ránargata 15.
Sími 3932.
aÉ
Þýzku kosningarnar
og afleiðingar þeirra.
London kl. 17 13/11. FÚ.
i
I I þýzku kosningunum höfðu
45 milljónir manna kosningar-
j í'étt, og'< greiddu 95 af hundr-
j, aði af þeir atkvæði. Þrjátíu og
1 níu og hálf milljón atkvæðanna
j féll á lista nazista, og verður
því tala þingmanna, semkvæmt
atkvæðatölunni, 660. Yfir 314
milljón atkvæðaseðla voru ó-
gildir.
1 þjóðaratkvæðinu um úr-
sögn Þýzkalands úr Þjóða-
bandalaginu, varð tala greiddra
atkvæða nokkru hærri. Tvær
milljónir atkvæða voru á móti
úrsögninni, en miklu færri
seðlar voru ógildir í þeirri at-
kvæðagreiðslu.
Hitler gaf út ávarp í dag,
þar sem hann þakkar þýzku
þjóðinni fyrir stuðning hennar,
og kemst svo að orði, að með
atkvæðagreiðslunni hafi hún
fært sönnur á friðarhug sinn,
sómatilfinningu og viljann til
þess að krefjast jafnréttis við
aðrar þjóðir.
Almennt er talið líklegt, að
af kosningum þessum leiði
ýmsar breytingar í stjórnmál-
um Þýzkalands. Meðal annars
þykir sennilegt að pólitískúm
áróðri gegn um útvarpið kunni
nú að linna, og að eitthvað
verði látið laust af pólitískum
föngum. Líklegt þykir einnig,
að af þessum kosningum leiði
breytingar á stj órnskipulagi
ríkisins, svo að sjálfstæði
sambandsríkjanna verði af-
numið, en landið sett undir
eina aðalstjórn í Berlín. Enn-
* jgrésmtöja *
KRISTINS Á. GUÐMUNDSSONAR
Frakkastíg 10 — Reykjavík
Srníðar glugga, hurðir, eldhúsinnréttingar o. fl. Enn-
fremur allskonar húsgögn.
Vönduð vinna. Fljót afgreiðsla. Ódýrt.
Munið Trósmiðjuna Frakkastíg 10. — Sírni 4378.
Kvörtunum um rottuéang
í húsum er veitt viðtaka í skrifstofu minni, Vega-
mótastíg 4, dagana frá 13.—18. þ. m. kl. 10—12
og 2—7. Sími 3210.
Munið að kvarta sem fyrst. ; -
Heilbriéðisfulltrúinn