Nýja dagblaðið - 15.11.1933, Blaðsíða 4
4
N Ý J A
DAOBLAÐIÐ
Annáll.
Iðnaðarmaður, sem auglýsti í
Nýja dagblaðinu fyrir nokkrum
dögum sendi blaðinu hótanabréf
í gœr, er honum hafði borizt eins
og flestum öðrum auglýsendum
blaðsins. Sendi hann með því nýja
auglýsingu, er hann kvað vera
svar sitt til nafnlausu höfund-
anna, sem í skuggum dyljast.
Hnupl. það hefir borið talsvert
á að Nýja dagblaðið hyrfi frá
læstum dyrum á morgnana. Menn
eru beðnir að leiðbeina ungling-
unum, sem bera blaðið út, um ör-
uggan geymslustað og láta af-
greisluna vita sem allra fyrst, fái
þeir blaðið ekki með skilum.
Ull. Sala á ull hefir gengið
miklu betur nú en í fyrra. Frá
áramótum til 1. nóv. í fyrra var
útflutningurinn 424 þús. kg. og
nam verð hans 370 þús. kr. A
sama tíma í ár hefir verið flutt
út 1.144 þús. kg. og fyrir það
fengust 1.223 þús. kr. (Samkv.
skýrslu gengisnefndar).
Gærur. Verð á söltuðum gærum
hefir verið betra i ár en í fyrra.
í tímabilinu jan.—okt. í fyrra
voru fluttar út 200 þús. gærur og
fengust fyrir þær 249 þús. kr. Á
sama tíma í ár hafa verið fluttar
út 160 þús. gærur og er verð þeirra
reiknað 344 þús. kr. Hinsvegar
hefir minna verið flutt út af sút-
uðum gærum en 1932. Voru á
sama tíma i fyrra fluttar út ca.
12 þús. sútaðar gærur, en í ár
hafa þær ekki verið nema 2240
talsins, Verðið hefir yerið nokkuð
svipað (Skv. skýrslu gengisnefnd-
ar).
Saltfisksalan. í október voru
flutt út um 10 þús. tonn af yerk-
uðum saltíiski fyrir 3 milj. og
950 þús. kr. í lok síðastl. mánaðar
var búið að flytja út á þessu ári
94 þúsund tonn fyrir um 19%
milj. kr. Magnið er svipað og 1
fyrra, en verð þessa fiskjar hefir
verið um 1% milj. kr. meira.
Skipafréttlr. Gullfoss fór frá Ak-
ureyri í gær. Goðafoss kom frá
Hull og Hamborg í gær. Brúar-
íoss er á leið til London frá
Vestmannaeyjum. Dettifoss var á
Sauðárkróki í gær. Lagarfoss er á
leið til Leith. Selfoss kom til Leith
í fyrradag.
póroddur Jónsson heildsali kom
í fyrrinótt kl. 1 til bæjarins.
Hafði hann hitt bíl héðan úr
Reykjavík í Ölfusinu og kom með
honum suður. Var þóroddur tölu-
vert hress er vér áttum tal við
hann í gær, en var þó slæmur
af kuldabólgu í höndum og fót-
um. Lik Sigurjóns Guðmundsson-
ar var fiutt hingað til bæjarins
í gær. Misprontast hafði í blaðinu
í gær nafnið á ekkju Sigurjóns.
Heitir hún ekki Elisía eins og þar
stóð, heldur Elín.
í ófriði. Formaður nefndarinnar
er .Tesper Simonsen landsdómari.
- (F.Ú.).
Rjúpur. Allmargt hefir sézt af
rjúpum í þingeyjarsýslu í haust,
einkum í Aðaldalshrauni. Virðist
þeim ætla að fjölga ’þar jafnhratt
og þær hurfu snögglega. — (F.Ú.).
stjóri A Sandi og Sæmundur Ól-
afsson oddviti á Lágafelli í Rang-
árvallasýslut
Aflinn. Samkv. skýrslu Fiskifé-
iagsins var fiskafli (þur fiskur)
á öllu landinu 1. nóv. 68.320 tonn
og er það hérumbil 13 þús, tonn-
um meira en á sama tíma í fyrra.
Byggíngamefndin samþykkti á
síðasta fundi einbýlishús úr
timbri, sem Byggingarsamvinnufé-
lag Reykjavíkur ætlar að byggja
á svokölluðu Jóhannstúni hér í
bænum.
Fisksala. Geir seldi afla sinn í
Grimsby í fyrradag, 1200 körfur,
fyrir 1357 sterlingspund, brúttó.
Esja fer á laugardaginn vestur
um land.
Trúlofun sína opinberuðu ung-
frú Olga Valdemarsdóttir frá Æð-
ey og Jens Hólmgeirsson bústjóri
á ísafirði, nýlega.
Meiri útflutningur hefir verið í ár
en 2 ár undanfarin. Verð útflutn-
ings í ár til 1. nóv. er kr. 39.209.600
í fyrra var það á sama tíma kr.
36. 019.400 og 1931 var útflutning-
urinn kr. 38.149.500.
Áheit á Strandarklrkju frá H.
S. kr. 5,00.
Ný rafmagnsstöð i Vík i Mýr-
dal. Nýlega er fullgerð rafmagns-
stöð fyrir Suður-Vík, er stöðin 7
kw. eða 12 turbínubestöfl. Kostaði
stöðin um 7000 kr. Var aðstaða
þar töluvert erfið og er verðið
mjög lágt eftir því hvernig aðstað-
an er. Bjami Runólfsson frá
Hólmi hefir staðið fyrir byggingu
stöðyarinnar.
íslenzklr matréttir, Undanfarna
daga hefir frk. Helga Torlacius
haft sýningu á réttum úr íslenzk-
um jurtum. Á sýningu þessari var
ákaflega gott sætmauk úr fjalla-
grösum, sem lagt er á kex úr ís-
lenzku rúgmjöli. Skarfakál var
þar matreitt sem spinat, og söl í
salat. Búðingur var þar úr geitna-
skóf og var mjög góður. — Er það
athyglisvert að svo fjölbreyttan og
góðan mat skuli vera hægt að
matreiða úr jurtum okkar. Er
það lofsvert að reyna að kenna
fólki að nota þetta ódýra efni,
sem við höfum og sem um leið er
hollt og gott. Frk. Torlacius hefir
í hyggju að byrja námsskeið, um
þann 20 þ. m. til þess að kenna
matartilbúning úr íslenzkum jurt-
um. •
Eiturgasvamfr f Danmörku.
Danska stjórnin hefir nú skipað
nefnd, sem rannsaka á og gera
tillögur um vemd gegn gaseitrun
Frá Hólum. Á Hólum í Hjaita-
dal var heyfengur 2400 hestar
taða, og 600 hestar úthey. Tíu
manns unnu þar að heyvinnu
með heyvinnuvélum, og hafa afl-
að ferfalt meiri heyja en talið er
í meðallagi eftir sama mannaafla
þar í sýslu. Garðávextir þar voru
40 tunnur jarðepla og 120 tunnui'
af rófum. 1500 jarðabótadagsverk
voru unnin þar í sumar. í Hóla-
siióla eru nú 20 nemendur og
von á nokkrum nemendum enn.
- (F.Ú.).
Fiskbirgðir voru l. nóv. samkv.
skýrslu Fiskifélagsins 22.123 tonn
og er það um 600 tonnum meira
en á sama tíma í fyrra.
Útflulningur á íreðkjöti í októ-
bei' var 620.000 kg. fyrir um 370
þús. krónur. Hefir kjötið svo að
segja allt verið flutt til Englands.
Hraðsaumastofu hefir Kaupfélag
Stykkishólms setl á stofn fyrir
karlmannafatnað, séi'Staklega úr
innlendu efni. Klæðskeri er ráð-
inn Gunnar Sæmundsson.
Samvinnan. 2. hefti yfirstand-
andi árgangs er nýkomið út. Efn-
isyfirlitið er á þessa leið: Hannes
Gebliard og bændasamvinnan
finnska, eftir pórarinn þórarins-
son, Kaupfélag þingeymga 1882—
1932, eftir Jón í Yztafelíi, Heim-
ilisiðnaður, eftir Pál H. Jónsson,
Ástæður bænda, eftir Böðvar á
Laugarvatni, þróun og bylting, eft-
ir Jónas Jónsson, Byggingar, eftir
sama og svo Forstöðumenn sam-
vinnufélaganna og Fréttir. Kaup-
félagsstjórarnir, sem minnst er ,á
að þessu sinni, er Helgi Lárusson
við Kaupfélag Reykjavikur og
þorvaldur Jónsson við Kaupfélag
Alþýðu í Reykjavík.
próun og bylting heitir svar.eft-
ir Jónas Jónsson, sem hann hefir
skrifað móti grein Einars Olgeirs-
sonar: Efling kommúnismans og
andóf Jónasar frá Hriflu. Svar
Jónasar hefir komið út í Samvinn-
unni, en þar sem margir hafa
bæði gagn af og þykir skemmti-
iegt að kynnast þessari ritdeilu er
það nú að koma út sérprentað og
verður selt hér á götunum. þeir
menii úti á landi, sem vildu fá
sérprentunina eiga að snúa sér til
afgreiðslu Samvinnunnar. Utan-
áskriftin er: Samvinnan, Lauga-
veg 10, Reykjavík.
Blfreið stolið. Síðastliðna nótt
var bifreiðinni R.E. 715 frá B. S.
R. stolið. Skömmu síðar hafði lög-
reglan upp á þeim er tekið hafði
bifreiðina. Var það unglingspilt-
ur. Hafði hann ekið bifreiðinni
eftir Fríkirkjuveginum og þar á
girðingu og brotið þar bæði girð-
inguna og bifreiðina.
Meðal gesta í bænum eru Sig-
urður Símonarson kaupfélags-
Uppreistarmenn dæmdir. Dómui'
er nú fallinn í Surabaja á Java
í máli því, sem hafið var gegn
skipverjum á Hollenzka herskip-
ihu de Zeven Provinsien út af
uppreist og stroki þeirra með skip-
ið í marz síðastliðnum, Dómurinn
verður kveðinn upp yfir sakborn-
ingunum í nokkrum flokkum, og
í fyrsta ílokkinum, sem dæmd-
ur var í dag, eru 19 innfæddir
menn, Fimin þeirra voru dæmdir
í 18 ára þrælkunarvinnu, én hinir
14 i 6 til 10 ára þrælkunarvinnu.
Allir mennirnir hafa áfrýjað dóm-
inum. — FÚ.
. Rússar og Tyrklr. þegar tyrk-
neska „lýöveldið" var 10 ára 28.
okt. s. 1. fékk fors.etinn, Mustafa
Kemal m. a. heimsókn 1700 Rússa
undir forustu rússneska hermála-
ráðherrans, Vorosjilov. Forsætis-
ráðherrann tyrkneski, Ismet Pasja,
sló upp veizlu fyrir hina rúss-
nesku sendimenn.
Hitler hefir í viðtali við amer-
ískan blaðamann, sem heitir
Wiegand, lýst yfir því að þýzkum
Nazistum sé stranglega bannað að
agitera fyrir nazismanum erlend-
is, því að það spilli sambúðinni
við önnur ríki, og ef þeir einhverj-
ir verði uppvísir að þessu, verði
þeim tafarlaust vísað úr flokkn-
um.
Skipabygglngar. Slcv. nýkomn-
um skýrslum frá Lloyds Register
hafa verið byggð 216 skip á þriðja
íjórðungi yfirstandandi árs. Sam-
anlögð stærð þeirra er 756 þús.
brutto tonn. Af skipunum eru 101
gufuskip, 7 seglskip, en hin eru
með olíuvélum. Ef dæmt er eftir
þessari skýrzlu, er Stóra-Bretland
mesta skipabyggingarlandið. það
eitt hefir smíðað um 40%* allra
# Ódýru •
auglýsingarnar.
rm Hiísnæði mn
Herberg'i óskast með öðrum.
Uppl. í síma 3328.
Vantar litla íbúð, eða vil
jafnvel kaupa lítið hús á góð-
um stað í bænum. A. v. á.
Atvinna
Ungur maður óskar eftir
vinnu við skepnuhirðingu eð:a
jarðabætur. Uppl. í síma 3328.
Kaup og sala
Rúllugardinur
alltaf til úr bezta efni. Skóla-
brú 2 (hús Ólafs Þorsteins-
sonar læknis).
Gott píanó til sölu með sér-
stöku tækifærisverði (hálf-
virði). A.v.á.
Raímagnsperur
kosta eina krónú hjá
Sig. Kjartanssyni.
Laugavegi 41.
Munið síma Herðubreiðar
4565, Fríkirkjuvegi 7. Þar
fæst allt í matinn.
II
Hafið þið reynt hið holla og
ljúffenga kjarnabrauð frá
Brauðgerð Kaupfél. Reykjavík-
ur?
ÓDÝRASTAR
vörur fáið þið aðeins á Vest-
urgötu 16.
Verzlunin Brúartoss
Sími 3749.
Ný lifur og hjörtu.
Klein
Baldursgötu 14. Sími 3073.
Guðspekilélaéið.
Lesflokkurinn heldur fyrsta
fund í kvöld kl. 8V8 síðd.
skipanna. Næst kemur Frakk-
land, þá Japan og það fjórða í
röðinni er Svíþjóð. Hér eru aðeins
tnlin þau skip, sem stærri eru
en 100 smálestir.
RAUÐA HUSIÐ.
hátt. Hann fór ekki út um gluggann á herberginu'
við hliðina af því það var læst.
— Er það ekki dálítið undarlegt?
— Jú, það fannst mér líka í fyrstunni; en .. •
Hann benti á vegginn, sem skagaði fram til hægri
hægri handar. Gætið þér nú að, fari maður út hér,
sést hvergi til hans úr öllu húsinu og svo er hann
strax kominn inn í runnana. Fari maður út um
franska gluggann, held ég að sjáist miklu betur
til manns. Úr öllum þessum hluta hússins — hann
benti með hægri hendi — vesturhlutanum og norð-
vesturhlutanum líka, eldhúsmegin, sést ekki hingað.
Já, hann hefir verið kunnugur húsinu, hver sem
hann var, og hann fór alveg rétt að þegar hann
fór út um gluggann héma. Svo gat hann í einu
vetfangi stungið sér inn í runnana.
Cayley leit til hans og var hugsandi.
— Heyrið þér nú, mr. Gillingham, það lítur út
fyrir að þér þekkið húsið furðu vel, þegar þess er
gætt, að þetta er í fyrsta skipti sem þér komið
hingað.
Antony brosti.
— Já, ég er aðgætinn, sjáið þér, ég er fæddur
með auga á hverjum fingri. Og haldið >ér ekkl að
ég hafi rétt fyrir mér í því, hversvegna hann hafi
afráðið að fara út hérna?
— Jú, það held ég reyndar. Cayley skotraði aug-
unum til runnanna. Langar yður til þess að fara
þangað og gæta að? Hann hneygði höfuðið í átt
til runnanna.
— Ég held við ættum að láta lögregluna um það,
sagði Antony rólega. Það — liggur ekkert á.
Cayley dró andann djúpt, meðan hann beið eftir
svai'i og gat nú aftur andáð rólega.
— Þakka yður fyrir, mr. Gillingham, sagði hann.
Bróðirinn frá Ástralíu.
Þeir, sem voru gestkomandi í Iiauða húsinu,
höfðu leyfi til að lifa og láta eins og þeir vildu,
innan vissra, skynsamlegra takmarka — en Mark
ákvað sjálfur hvað skynsamlegt var. En úr því
þeir (eða Mark) voru komnir að niðurstöðu um
það hvað gera skyldi, þá varð að fylgja gerðri
áætlun hvað sem tautaði. Mrs Calladine, sem þekkti
ofboð vel þennan veikleika húsbóndans, var alveg
mótfallin tillögu Bills um að fara í annan leik seinni
partinn og aka svo heimleiðis í ró og næði til þess
að drekka te. Hitt golfleiksfólkið var heldur en
ekki á hans máli; en mrs. Calladina stóð fast á
því, að þau skyldu koma heim fyrir fjögur, eins
og búið var að ákveða, án þess þó beinlínis að
nefna það, að Ablett myndi ekki láta sér annað
líka.
— Ég held nú sannast að segja ekki, að Mark
kæri sig um að við komum svona snemma til
baka, sagði majórinn. Honum hafði gengið illa
leikurinn fyrri hluta dagsins og nú langaði hann
til þess að sýna það seinni partinn, að honum gæti
tekizt betur. Þegar þessi bróðir hans er kominn,
verður hann bara feginn að við erum ekki að
flækjast fyrir.
— Já, það er augljóst mál. Nú var það Bill,
sem talaði. Mynduð þér ekki vilja koma í einn,
miss Norris?
Miss Norris leit á húsmóðurina, beggja blands.
— Ef þér viljið fara heim, þá viljum við ekki
halda í yður. Og það er von að yður leiðist að bíða
úr því þér eruð ekki með í leiknum.
— Bara litla stund, sagði Betty, og fór nú bón-
arveginn.
— Þér gætuð nú farið heim í bílnum og sagt
að við ætlum í einn til, og svo getur bíllinn kom-
ið til baka og sótt okkur, sagði Bill, og þótti- þetta
snjallt úrræði.