Nýja dagblaðið - 22.11.1933, Síða 1
Reykjavík, miðvikudaginn 22. nóv. 1933. 22. blað.
IDAG
Sólaruppkoma kl. 9,21.
Sólarlag kl. 3,06.
Háll'lóð áidegis kl. 8,50.
Háflób síðdegis kl. 9,15.
Ljósatími hljóla og bifreiða kl. 3.35
e. m. til 8.50 árd.
Veðurspá: Suðaustan kaldi. Úr- |
komulaust að mestu.
Söfn, skrifstofor o. fL:
Landsbókasalnið opið kl. 1-7 og 8-10
þjóðskjalasafnið ....... opið 1-4
JJjóðminjasafnið lokað.
Náttúrugripasafnið lokað.
Alþýðubókasafnið .... opið 10-10
Listasafn Einars Jónssonar opið 1-3
Landsbankinn .... opiun kl. 10-3
Búnaðarbankinn .. opinn kl. 10-3
ÚtVegsbankinn .. opinn kl. 10-4
Útibú Landsbankans á Klappai'-
stig ................. opið 2-7
Sparisjóður Rvíkur og nágrennis
opinn kl. 10-12 og 5-7%
Pósthúsið: Bréfapóstst. .. opin 10-6
Bögglapóststofan .... opin 10-5
Landsíminn .............. opinn 8-9
Búnaðarfél. Skrifst.t. 10-12 og 1-4
Fiskitél....Skrifskt. 10-12 og 1-5
Samband isl. samvinnufélaga
opið ............... 9-12 og 1-6
Sölusamband isl. fiskframleiðenda
10-12 og 1-6
Skipaútg. ríkisins opin 9-12 og 1-6
Eimskipaféi. íslands »... opið 9-6
Skrifst. bœjarins opnar 9-12 og 1-4
Skrifst. lögreglustj. opin 10-12 og 1-4
Skrifst. lögmanns opin 10-12 og 1-4
Skrifst. tollstjóra opin 10-12 og 1-4
Hafnarskrifstofan opin 9-12 og 1-6
Stjórnarráðsskrifstofumar
opnar 10-12 og 1-4
Tryggingarstofnanir rikisins
opnar kl. 10-12 og 1-5.
Lögregluvarðstofan opin allan sól-
arhringinn.
Baðhús Reykjavíkur opið kl. 8-8
Heimsóknartíml sjúkrahása:
Landsspítalinn ............ kl. 3-4
Landakotsspítalinn ............ 3-5
Laugarnesspítali ...... kl. 12%-2
Vífilstaðahælið 12%-1% og 3%-4%
Kleppur ................... kl. 1-5
Næturvörður í Reykjavíkurapóteki
og lyfjabúðinni Iðunn.
Næturlæknir: Halldór Stefánsson
Lækjarg. 4. Sími 2234.
Samgöngur og póstferðir:
Póstbíll til Reynivalla.
Skemmtanir og samkomnz:
Nýja Bíó: Drottningin og ég, þýzk
mynd, kl. 9.
Gamla Bíó: Bláa ljósið, kl. 9.
Alþingi: Fundur i báðum deildum
kl. 1.
Hæstiréttur kl. 10.
Dagskrá útvarpsins.
Kl. 10,00 Veðurfregnir. 12,15 Há-
degisútvarp. 15,00 Veðurfregnir.
Endurtekning frétta o. fl. þing-
fréttir. 19.00 tónleikar. 19.10 veð-
urfregnir. 19.20 tilkynningar, tón-
leikar. 19,35 Tónlistarfræðsla, V
(Emil Thoroddsen). 20,00 Klukku-
sláttur. Fréttir. 20,30 Erindi. þætt-
ir úr náttúrufræði: Eldgosið á
Krakatá. (Pálmi Hannesson). 21,00
Tónleikar. (Útv.tríóið). Grammó-
fón: Strauss: Rósariddarinn. Sálm-
ur.
Brezka parlamentið sett.
Þingmaður atyrðir kouunginn.
Einstæður viðburður í þingsögu
Bretlands.
London kl. 17,00 21/11. FÚ.
Brezka þingið var sett í dag
á ný, og byrjaði konungur
setningarræðu sína á því að
tala um alþjóðasamvinnu í
friðarmálum og eflingu friðar-
ins. Þvínæst vék hann að Ind-
landsmálum, og lét í ljósi von
um, að lokið yrði við lögin um
nýja stjórnarskipun Indlands á
þessu þingi. Þá minntist hann
á skýrslu þingnefndar, sem
skipuð hafði verið til rannsókn-
ar á málefnum Newfoundlands,
og segir gjör frá henni síðar.
Loks fór hann nokkrum orð-
um um nýja atvinnuleysislög-
gjöf, sem væntanleg væri, og
viðleitni til þess að bæta úr
húsnæðisvandræðum, og lét að
lokurn í ljós von um að áfram
iiald yrði á viðreisn þeirri, sem
vart. hefði orðið í iðnaði og
verzlun Englands.
Kalundborg' kl. 17,00 21/11 FÚ
Þá er konunugur hafði lokið
ræðu sinni, bar það við, sem
aldrei hefir áður gerzt í þing-
sögu Englands, að þingmaður
einn úr flokki verkamanna, Mc
Govern að nafni, reis úr sæti
sínu og hrópaði til konungs:
„Þér ættuð að skammast yðar,
og hugsa um alla þá, sem deyja
hjálparlausir úr sulti“. Upp
steytur mikill varð í þingi er
McGovern hafði mælt þessi
orð, og lét hann í ljós eftir á,
að sér þætti fyrir að hafa
hrellt konung, en sér hefði
I verið ómögulegt að hafa hemil
; á sér. En orsökin mun vera
j sú, að hin væntanlegu atvinnu-
leysislög, sem konungur vék
meðal annars að, eru í ýmsum
greinum strangari í garð at-
vinnuleysingja en gildandi lög.
Jarðskjálítar í
fyrrinótt víða um
heitn
London kl. 17,00 21/11. FÚ.
Bretastjórn ætlar
að setja fjármála-
stjórn Nýfundna-
lands undir eftirlit.
Mikilla jarðsjálfta varð vart
síðastliðna nótt og varð hann
lesinn á mæla svo að segja um
allan heim til dæmis í Kew í
Englandi, Berlín, Bombay í
Indlandi, Sidney í Ástralíu,
Victoria í Canada og Bergen í
Noregi. Ágreiningur er um
það, hvar jarðskjálftinn muni
hafa átt upptök sín, og virtist
í fyrstu, sem það myndi vera
við Svartahaf, en athuganir
bæði í Kew og Bombay benda
frekar til Baffinsflóa á norðan-
verðri Canadaströnd.
Uppreisnir í Kína.
London kl. 17,00 21/11. FÚ.
Herforingi sá, er uppreist
gerði í Kien fjdki í Kína hefir
nú skírt stjórn sína, og nefnir
hana hina byltingasinnuðu
sambandsstjóm Kína. Stefnu-
skrá hefir hann einnig gefið
út, og eru aðalatriði hennar að
halda skuli áfram baráttunni
gegn Japan, og að ekki skuli
viðurkenndir neinir samningar
við vestræn ríki. Uppreistar-
menn hafa náð á vald sitt borg-
inni Foo Chow með því að
setulið borgarinnar gekk þeim
á hönd. Nankingstjórnin hefir
gert ráðstafanir til þess að
bæla niður uppreisnina. Japan-
ar hafa lýst því yfir að þeir
muni ekki láta málið til sín
taka.
London kl. 17,00 21/11. FÚ.
Ensk þingnefnd sat á rök-
stólum frá því í marz og þar
, til í júní s. 1. og rannsakaði hag
j Newfoundlands. Safnaði hún
gögnum og vitnisburðum, bæði
í Newfoundland og Canada, og
hefir nú skilað samhljóða
nefndaráliti. I nefndarálitinu
segir, að fjárhagur landsins sé
alveg gjörsamlega í rústum,
stjórnarskipunin öll sé óvenju-
lega rotin og spillt, og hafi ár-
um samán verið þaulnýtt til
hagsmuna fyrir einstakar per-
sónur eða flokka. Nefndin legg-
ur til að allt fjármála- og lög-
gj afarvald í landinu verði lagt
í hendur landsstjóra, sem
stjórni með aðstoð sex manna
' nefndar, sem sé skipuð þremur
: Newfoundlandmönnum, og
j þremur Bretum, og skuli brezku
nefndarmennirnir fara með öll
fjálmál, nýtingu landgæða, og
opinberan rekstur.
Viðvíkjandi skuldum lands-
ins er það lagt til, að Breta-
stjórn taki á sig þá áhættu, að
hreinsa til í skuldasúpunni, og
reyna að komast að viðunan-
legum samningum við skuldu-
nauta landsins. Til þess að afla
fjár leggur nefndin til, að út
sé gefin Nýfundnalandsverð-
; bréf með lágum vöxtum, sem
j Bretaveldi ábyrgist, og sé fénu
varið til innlausnar vaxtahærri
verðbréfum og skuldabyrðin
þannig létt.
Fra Japan.
Frá því Japanar sigruðu
Rússa í ófriðnum 1905 hefir
Japan verið í stórvelda tölu.
„Gula hættan“ svokallaða hef-
ir síðan verið á orði öðru hvoru
meðal Norðúrálfuþjóða, er
horft hafa með nokkrum ugg
á stórstíga þróun þessa stór-
veldis. Nú er svo komið, að
þótt ófriðvænlegt þyki hér í
Norðurálfunni, þá er enn
brýnni óíriðarhættan austur í
j Asíu, síðan Japanir sögðu sig
: úr þjóðabandalaginu og hófu á
j ný sókn sína til valda á megin-
j landi Asíu. Er nú ekki annað
j sýnna en bráðlega hljóti að
! draga til úrslitabaráttu við
j gulu hættuna, og tii þess bend-
! ir mai’gt, sem gerzt hefir nú
| í sumar og haust fyrst og
j fremst samningar Rússa við
Frakka og Bandaríkjastjórn,
! er nú vekja mesta athygli um
heim allan.
Tvennt er það sern knýr Jap-'
ani nú til nýrra landvinninga
og hernaðar. Fyrst og fremst
j sltoða þeir sig útvalda þjóð til
I þess að ráða fyrir hinum mon-
gólska kynflokki og hrinda
ánauðaroki Norðurálfumanna
af Asíuþjóðunum. Þjóðremb-
ingsstefnan hefir altekið þá.
Hatrið gegn hvíta kynþættin-
um er rótgróið og á því alið.
En þar við bætist fjárhags-
leg vandræði heima fyrir, bæði
vegna gífurlegrar fólksfjölgun-
ar og þrengsla í landinu sjálfu
og örðugleika á því að ná í
markaði fyrir útflutningsvöru
landsins. Allt þetta knýr for-
ráðamenn þjóðarinnar til þess
að hyggja á landvinninga með
hernaði, og er ekki annað sýni-
legt en að þjóðin fylgi slíku
með alhug og vænti sér bóta
við öllum sínum meinum í
nýrri og stórkostlegri land-
vinningastyrjöld.
Japanska ríkið nær yfir
148.756 fermílur enskar, auk
hins nýja ríkis í Mansjúríu.
Ibúatalan var 64.447.724 árið
1930, en vex óðfluga. Síðustu
tvö árin hefir mannfjöldinn
vaxið um 2 milj. eða ca eina
milj. á ári, og er það miklu
meiri fólksfjölgun en í nokkru
öðru landi. Til dæmis má nefna
að fæðingar í Japan eru 33 á
hvert 1000 íbúa, á móti 18 f
Danmörku, 24 í Ítalíu og tæpl.
16 í Englandi og Þýzkalandi.
Jafnframt þessu lækkar hundr-
aðstala dauðsfalla stórum og
var síðasta ár 17,7 á móti 11,4
1 Danmörku, en þar er einna
lægst hundraðstala dauðsfalla.
Þessu veldur stórstíg framför
læknisvísinda í Japan. Vegna
þessarar fólksfjölgunar vex
tala vinnandi manna á ári
hverju um Vá milljón. Og
þessir menn þurfa að fá at-
vinnu. Nú er landið þrautnum-
ið og ræktað og landbúnaður-
inn getur alls ekki fætt fleira
fólk en hann gerir þegar. Vofa
því yfir stórvandræði, ef ekki
er að gert. Á næstu 15—20 ár-
um má gera ráð fyrir að
þurfi að sjá 10 milj. nýjum
verkamönnum fyrir atvinnu.
En ekki er nóg með það, að
landið sé of lítið fyrir þjóð,
sem vex svo ört. Nú þegar er
allt of þi’öngt í landinu og at-
vinnuskilyrðin svo erfið, að
ótrúlegt má þykja. Til þess að
standast samkeppnina við önn-
ur lönd, hefir verið gripið til
þess að fella gjaldeyrinn. Á
þann hátt hefir að vísu tekizt
að halda samkeppninni uppi út
á við. En innanlands hefir
þetta snúizt í kauplækkun
verkafólks og yfirleitt lifir
þjóðin nú við svo þröngan kost
að ótrúlegt mun þykja. Á
sama tíma fer kostnaðurinn til
hermála vaxandi, svo að ríkið
rís ekki undir, og fara ríkis-
skuldirnar dagvaxandi. En
Jijóðin veit, að allt sem nú er
lagt í sölurnar fer til þess að
búa undir mikla, nýja land-
vinninga. Þegar Japanar hafa
rutt sér til rúms eins og þeirra
er rétturinn til meðal mon-
gólskra þjóða í Asíu, þá skort-
ir ekki landrými og markað.
Þá eru engin takmörk lengur
fyrir veldi þeirra og dýrð.
Japanar eru ákaflega seigir og
þolgóðir í öllum mannraunum.
Þeir þykja ágætir hermenn og
hræðast alls ekki dauðaim.
Þessvegna er þeim margt
fært, sem óhugsandi væri með
Norðurálfuþjóðunum. Nýlega
var skýrt frá því, að þeir hefði
látið gera tundurskeyti þann-
ig útbúin að þau eru með
Framh. á 3. síðu,
Margar tillögur eru settar
fram um notkun auðlinda
landsins, meðal annars að mið-
bik landsins verði notað til
þess að efla þar loðrýrarækt.
I öðru lagi er sagt, að gera
megi sjávarútveginn miklu bet-
ur arðberandi, meðal annars
með því að lengja vertíðina
um fjóra mánuði. Ætlazt er til
að þessar ráðstafanir geti orð-
ið grundvöllur efnalegs sjálf-
stæðis fyrir landið.
Eins og kunnugt er eru við
Nýfundnaland einhver beztu
fiskimið í heimi. Sendimaður
þaðan var hér á ferðinni í
fyrra td að kynna sér íslenzka
fiskframleiðslu.