Nýja dagblaðið - 22.11.1933, Side 3
1» Ý J A
DAGBLAÐIÐ
3
NYJA DAGBLAÐIÐ
Út;íefandi: „Blaðaútgáfan h/f“
Ritstjóri:
Dr. phil. porkell Jóhannesson.
Ritstjóniarskrifstofur:
I augav. 10. Símai: 4373 og 2353.
Afgr. og auglýsingaskrifstofa:
Austurstræti 12. Simi 2323.
Framkv.stj óri:
Vigfús Guðmuudsson.
Áskriftagj. kr. 2,00 á mánuði.
í lausasölu 10 aura eint.
Prentsmiðjan Acta.
100°|o álagning á
rafmagnið.
Borgarstjórinn var að tala
um þaö á síðasta bæjarstjórn-
arfundi, að reksturafkoma raf-
veitunnar væri góð og að eign-
ir hennar væru afskrifaðar ríf-
lega á efnahagsreikningi. Gaf
hann í skyn, að eignir r af-
veitunnar væru talsvert meira
virði en þær eru reiknaðar.
í tilefni af þessum hugleið-
ingum borgarstjórans vakti
einn af bæjarfulltrúunum at-
hygli á því, hvernig hin „góða
rekstursafkoma“ rafveitunnar
væri fengin — og peningarnir
til að afskrifa af eignum.
Gjöld rafveitunnar árið 1932
eru (auk afskriftanna) talin
á bæjarreikningunum krónur
549,554,50.
En tekjurnar af rekstri
stöðvarinnar eru taldar á þess-
um sömu reikningum krónur
1,072,638,55.
Við nánari athugun er þá
útkoman þessi:
Á árinu 1932 hefir fram-
leiðsla rafmagnsins í Reykja-
vík (fyrir utan afskriftir)
kostað rúml. J/2 milljón króna.
Á því að selja þetta raf-
magn, sem kostar Vt millj. kr.
að framleiða, græðir rafveitan
um J/2 milljón króna, þar sem
kostnaðurinn er rúml. Vt millj.
og tekjurnar rúml. 1 milljón.
Rafveita Reykjavíkur leggur
þannig um 100% á kostnaðar-
verð rafmagnsins, sem hún
framleiðir handa bæjarbúum.
Þetta myndi þykja mikil á-
lagning annarsstaðar, jafnvel
á sement, sagði áðurgreindur
bæjarfulltrúi!
Enginn mælir væntanlega á
móti því.
En rafstöðin við Elliðaárnar
hefir þurft á peningum að
halda. Bærinn er nú búinn að
leggja samtals í hana og raf-
taugakerfið um 6 milljónir
króna, og þó er aflið algerlega
ófullnægjandi. Til þess að
vinna upp allan þennan stofn-
kostnað, og til þess að draga
úr rafmagnsnotkuninni er raf-
magnið selt með 100% álagn-
ingu og hefir verið. Mannvirki,
sem kostuðu 6 milljónir, eru nú
uppfærð aðeins nokkuð á
þriðju milljón. En þau ei’u
minna virði en það. Á meðan
Elliðaárstöðin er notuð til að
tefja fyrir virkjuninni við
Sogið, er víst óhætt að halda
áfram að afskrifa hana og
leggja 100%’ á rafmagnið í
nokkur ár enn.
Þetta ei' óbeinn skattur —
neyzlutollur — á fátæka jafnt
sem ríka, sem almenningur
verður að greiða fyi-ir óstjórn-
ina í bænum.
Frá Alþingi í gær.
Þriðja umræða kosningalaganna
hefír nú staðið tvo daga i neðri
deild og- er enn ólokið. Fjöldi
breytingatillagna liggur fyrir. —
Um hvað er ágreiningurinn?
í gær hófust fundir í báðum
deildum kl. 1. Voru aðeins tvö
mál á dagskrá í efri deild, en
12 í neðri deild. Þar af voi’u
tvö tekin út af dagskrá. En
mestallur fundartíminn fór í
umræður um kosningalögin og
er 3. umi’æðu þó enn ekki lok-
ið, en hún hófst í fyrradag. I
gær gerðu Halldór Stefánsson,
Hannes Jónsson og Vilmundur
Jónsson grein fyrir bi’eytinga-
tillögum sínum. En Eysteinn
Jónsson gerði grein fyrir af-
stöðu stjórnarskrárnefndar til
tillagnanna, og Thor Thors
fyrir ágreiningsatriðum innan
nefndai’innar sjálfrar, en þau
ágreiningsati’iði eru nú fram
komin í sérstökum breytinga-
tillögum.
Þessi eru helztu ági’einings-
atriði:
Hvenær kosning skuli fara
fram.
Hvort vera skuli einn kjör-
dagur eða tveir í sveitum.
Hvort sýslumenn og hx-epp-
stjórar skuli vera sjálfkjörnir
í kjörstjórnir.
Hvort yfirlýsing flokks-
stjórnar sé áskilin um, að
frambjóðandi eða listi sé í
kjöri af hálfu flokksins.
Hvoi’t vera skuli sérstakur
landlisti fyrir utanflokkamemx,
sem ekki hafa formleg sarntök.
Hvort landlisti skuli tak-
markaður við frambjóðendur í
kjördæmunx.
I júní eða júli?
Við kosningalagafrv. liggur
nú fyrir fjöldi breytingartill.
frá stjórnarski’ánxefnd og ein-
stökum þingmönnum. Margt
af þeim tillögum felur aðeins
í sér orðabreytingar eða ann-
að, sem ekki skiptir miklu
máli. En hér skulu nefndar
nokkrar helztu brtt.
Vilmundur Jónsson ber fram
brtt. um, að kjördagur skuli
vera fyrsti sunnudagur eftir
nxiðjan júní.. En í frv. eins og
það liggur fyrir er kjördagur
ákveðinn fyrsti sunnudagur í
júlímánuði.
Tveir kjördagar.
Eysteinn Jónsson og Bergur
Jónsson bera fraro hrtl. um
tvo kjördaga. í kjördeildum
utan kaupstaða og kauptúna
þeirra, sem samkvæmt síðasta
manntali hafa haft yfir 300
íbúa, er, sanxkvæmt þessum
tillögum, skylt að halda auka-
kjörfund daginn fyrir hinn
almenna kjördag, ef a. m. k.
þriðjungur kjósenda innan
kjördeildarinnar, sendir undir-
kjörstjórn skriflega áskorun
um það eigi síðar en viku fyr-
ir kjördag. Skal kjörstjórn þá
auglýsa aukakjörfundinn tafar-
laust.
Aukakjörfundur skal standa
frá kl. 2 til kl. 7 síðdegis.
Yfirlýsing
fiokksstjórnar
Halldór Stefánsson flytur
bi’tt. um, að frambjóðendur
skuli „láta fylg’ja framboði
sínu yfirlýsingu sína, ef þeir
óska að taka fi’anx, að þeir
bjóði sig fx-am fyxár tiltekinn
stj órnmálaflokk“, og teljist
þeir þá franxbjóðendur þess
flokks. En í frv. eins og það
liggur fyrir, er gert ráð fyrir,
að yfii'lýsing flokksstjói’nar sé
áskilin. Miðlunarleið í þessu
efni felst í bi’tt. Bernharðs
Stefánssonar og Gísla Sveins-
soixar. Þá vill H. St. láta falla
niður ákv. frv. um, að atkvæði,
sem fallið hafa á frambjóð-
endur utan flokka, komi ekki
til greina við úthlutun upp-
bótarþingsæta. Loks vill hann
gera strangai’i kröfur til kjós-
enda unx frágang kjörseðils en
gert er í frv.
Prótkosx ing i
flokksfélög-um
Gísli Sveinsson og Bernharð
Stefánsson flytja svohljóðandi
viðaukatillögu við frv.
„Ef prófkosning fer fram í
kjöi’dænxi meðal kjósenda á-
kveðins stjói'nmálaflokks, á
þann hátt, er flokksstjórn tel-
ur fullnægjandi, skal sá, sem
þar fær flest atkvæði, teljast
frambjóðandi fyrir flokkinn".
Allir Irambjóðend-
ur kjördæmanna á
landlista.
Hannes Jónsson, Pétur Otte-
sen og Jón Sigui’ðsson flytja
brtt., senx fai-a í sömu átt og
till. H. Stef. að afnema yfir-
lýsingu flokksstjórixar, og
ennfremur er í tillögum þeiri’a
gert ráð fyrir, að allir fram-
bjóðendur flokks í kjördæmum
skuli jafnfranxt vera á landlista
flokksins nema þeir hafi af-
salað sér þeim rétti.
1 stjómarskrái’frv. er ákveð-
ið, að a. m. k. helmingur manna
á landlista skuli jafnfi’anxt vera
frambjóðendur í kjöx’dæmum
utan Reykjavíkux’, og í kosn-
ingalagafrv., sem fyrir liggur,
er flokkunum í sjálfsvald sett,
hvort þeir vilja hafa sérstakan
landlista eða frambjóðendurnir
j í kjördæmunum séu jafnframt
I taldir vera á landlistanum.
Launuð stört
þingmanna.
Jón Pálmason og Jón Sig-
ui’ðsson flytja svohljóðandi
| tillögu:
| „Ef þingmaður tekur við
i launuðu starfi, sem ríkis-
stjórn veitir eða ræður veit-
ingu á, skal hann tafarlaust
segja af sér þingmennsku.
Þetta ákvæði tekur þó ekki
til þess, er embættismaður
flyzt úr einu embætti í ann-
að í sömu stjórnargrein, eða þó
þingmaður taki um stundar-
sakir að sér starf, sem hann
sökum sérfræðiþekkingar er
öðrum færari til að vinna. Sé
þingmaður, sem segir af sér
vegna ákvæða þessarar grein-
ar, hlutfallskjöi’inn, eða hafi
setið sem uppbótarþingmaður,
þá tekur vai’amaður sæti. Ella
fer fi’am aukakosning“.
Sýslumenn
og hreppstjórar
. Meirihluti stjórnarski’ár-
nefndar flytur brtt. um, að
sýslunxenn og hreppstjórar
skuli ekki vera sjálfkjörnir
oddvitar kjörstjói'na.
Einkaréttur isl.
skipa til að ann-
ast strandferðir.
Eysteinn Jónsson og Bergur
Jónsson flytja frv. um strand-
j fei’ðir. Aðalefni frv. er senx
i hér segir:
| „1. gi'. Ríkisstjómin hefir frá
j 1. júní 1934 að telja eixxkarétt
I til þess að flytja fai’þega milli
lxafna á Islandi.
| 2. gr. Á meðan íslenzka í'ík-
ið hefir ekki nægilegan skipa-
stól til þess að annast far-
þegaflutninga saixxkv. 1. gr.,
getur ríkisstj órnin veitt öðr-
unx skipum leyfi til farþega-
flutnings milli hafna á íslandi,
gegn því að greitt verði í
j i'íkissjóð 20% af fargjöldum.
Undanþegin skatti þessunx ex-u
skip og bátar, sem fá styrk
úr ríkissjóði til þess að annast
samgöngur á sjó meðfram
ströndunx landsins.
6. gr. Lög þessi öðlast þeg-
ar gildi“.
Greinai’gei’ð frumvarpsins er
svohljóðandi:
„Það er kunnugt, að almenn-
ur áhugi er fyrir því, að ís-
lenzk skip njóti flutninga
þeirra, er landsmenn þurfa á
að halda á milli innlendra
hafna. llinsvegar hafa ei’lend
skip löngunx keppt við hin inn-
lendu hvað þetta snertir og
lxagað siglingum sínunx þannig,
að koma nær eingöngu á hinar
stærri hafnir. Hafa þau með
því sölsað mjög farþegaflutn-
inga fx’á íslenzku skipunum,
sem vegna almennings heilla
eru neydd til að konxa á fleiri
hafnir.
Nú mun það hvergi vera
leyft í næi’liggjandi löndum,
að erlend skip reki slíka flutn-
inga, sem áður greinir, og með
tilliti til þess, að eiginn skipa-
stóll íslendinga er fyrir löngu
orðinn svo mikill, að forsvaran-
legt virðist að láta hann eiix-
an annast alla strandferða-
flutninga, getur það ekki tal-
izt vansalaust, að strandferða-
skip ríkisins séu vegna erfiði’-
ar fjái’hagsafkomu bundin í
höfn, á meðan hin erlendu skip
halda áfranx að reka hér
óbreyttan atvinnurekstur sinn
og fleyta rjómann ofan af
sti'andf lutningunum.
Fyllsta ástæða er því til þess
að löggjafarvaldið taki hér í
taumana þegar í stað, til að
tryggja hagsnxuni hins íslenzka
ríkis“.
Kristrún i Hamravik.
Fraxnh. af 2. síðu.
vex-unnar — án þess nokhru
sinni að hopa. Og hún er köld,
alvöruþrungin spurning til
mannfélagsins um það, hve-
nær það ætlar að fara að gefa
slíkum efniviði verðskuldaðan
gaunx.
Kristrún í Hamravík hefir
náttúx-lega haft síixa galla, —
sagan máske líka í augum ein-
hverra gagnrýnenda. En ég
kýs ekki þessháttar „umþenk-
ingar og véringar“ að þessu
sinni, því allt hið einlægasta 1
nxannlund minni og listvitund
telcur undir með Anítutetri:
„Hún er svo góð, hún Krist-
rún, og mér þykir svo vænt
um hana“.
Jóhannes úr Kötlum.
Frá Japan.
Framh. af 1. síðu.
lxreyfli og stýrt af manni. Er
þeinx líkt við litla neðansjávar-
báta. Við árekstur springur
tundurskeytið og stýrimaður-:
inn ferst. Til slíki’a fórnar-
verka eru japanskir hermenn
reiðubúnir og með þvílíkum
liðsmönnum hyggjast hers-
höfðingjar Japana að sigi*a
hina hvítu böðla Asíu. Takizt
það ekki hlýtur í'íkið að sundr-
ast. En hvort senx heldur verð-
ur kostar íxxiklar blóðsúthelL
ingar í ægilegri styrjöld.
Opinn
vélbátur
óskast leigður tveggja
til þriggja mánaða
tíma. Uppl. í síma
2901 kl. 10—11 f. h.
Alþýðu-Magasínið
kemur á morgun. Síðasta
sagan af Leyndardómum
Reykjavíkur byrjar í 1.
hefti.
r
I matinn
i dag:
Norðlenzkt dilkakjöt.
Kjötfars
Hakkað kjöt
Vínarpylsur og
Medisterpylsur.
HERÐUBREIÐ
FRIKIRKJUVEG 7
SÍMI 4565.
Reyfcvíkingar!
Þið, sem eigið frændur og
vini úti um sveitir og kaup-
tún landsins, sendið þeim Nýja
dagblaðið. Fátt verður vinum
ykkar í fjai’lægð jafnkærkomið
í skammdeginu.
Auglýsiö í
Nýja Dagblaðinu.