Nýja dagblaðið - 25.11.1933, Page 3
lí T J A
dagblabib
s
NYJA DAGBLAÐIÐ
Útgefandi: „Blaðaútgáfan h/f“
Ritstjóri:
Di-. phil. porkell Jóhannesson.
Rilstjórnarskrifstofur:
I augav. 10. Síniai: 4373 og 2353.
Afgr. og auglýsingaskrifstofa:
Austurstrœti 12. Sími 2323.
Framkv.stjóri:
Vigfús Guðmundsson.
Áskriftagj. kr. 2,00 á mánuði.
í lausasölu 10 aura eint.
Prentsmiðjan Acta.
Templaralóðin.
i
Svo sem vænta mátti hefir
grein sú, er birtist hér í blað-
inu, um þingsályktunártillögu
um kaup. á húseign og lóð
templara við Vonarstræti, vak-
ið mikla athygli. Mönnum heíir
skilizt það, að sú leið, sem
þar var stungið upp á, var ekki
fær. Fjárveitinganefnd n. d.,
sem fékk till. til meðferðar,
hefir því algerlega horfið frá
orðalagi hinnar upphaflegu
till. og gjörbreytt efni henn-
ar. Meirihl. nefndarinnar legg-
ur til, að eignin sé keypt fyrir
75 þús. kr. Ennfremur sé
veittur 75 þús. kr. styrkur til
að reisa nýtt hús, sem jafnan
verði í eigu og til afnota fyrir
Goodtemplararegluna í Reykja-
vík. Að vísu er verð lóðar og
húss allmiklu hærra sett en
nemi raunverulegu verði, og
hefði verið viðkunnanlegra að
verðleggja lóðina og húsið t.
d. á 50 þús., en tiltaka bygg-
ingarstyrkinn því ríflegar, ef
svo sýndist. Tveir nefndar-
menn leggja til að húsið og
lóðin sé keypt eftir mati dóm-
kvaddra manna.
Nýja dagblaðið vill endur-
taka það, að aldrei hafi brýnni
þörf verið eflingar bindindis-
starfsemi i landi voru en nú,
ekki sízt vegna bruggsins. Á
því verður aldrei bugur unninn
með lögum einum og engu öðru
en vel skipulögðum bindindis-
samtökum um allt landið. 1
þessu efni má benda á samtök
manna í Keflavík og grennd
um að - líða ekki áfengisbrugg.
Og svo aftur á móti háttalag
ýmsra manna annarsstaðar á
landinu, sem hafa tekið af-
stöðu með bruggurum og at-
hæfi þeirra. Það er einsætt, að
ríkinu ber skylda til að efla
skipulagða bindindisstarfsemi,
sem vinni á móti skaðlegri og
siðspillandi áfengisnautn og
með samþykkt þál.till. er stig-
ið drjúgt spor til þess að efla
goodtemplararegluna, sem hing-
að til hefir bezt unnið í þessa
átt. En um leið og að því er
horfið að efla bindindisstarfið
með miklum opinberum fjár-
framlögum, ætti að setja opin-
bert eftirlit með þessum mál-
um öllum á ábyrgð ríkisstjóm-
arinnar, í sambandi við Regl-
una og önnur bindindisfélaga-
sambönd, svo unnt væri að
fylgjast með því, hvemig þau
vinna og hvernig þau fari með
það fé, sem þau fá frá ríkinu
til starfsemi sinnar. Annars
ætti hverskonar starfsemi sem
er og styrks nýtur af opinberu
fé að vera undir ríkiseftir-
liti, svo sem títt er erlendis.
Hvar eig'a simdlaug'.
arnar að vera?
Stefna Framsóknarfiokksins í íþróttamálum
Reykjavíkur. „Að koma upp íþróttahúsi,
leikvöllum, baðstöðum og íþróttasvæðum
handa bæjarbúum, og stuðla að þvi, að
skólarnir fullnægi iþróttaþörf barnanna.
íþróttamálin í Reykja-
vík og skipulag þeirra.
Fram að þessum tíma hefir
náttúran og tilviljunin ráðið
því, hvaða aðstöðu íþróttamenn
irnir í þessum bæ hafa haft
til að rækja íþróttir sínar.
Menn fundu íþróttavöll suður
á Melum í leit eftir skauta-
svelli, en laugarnar voru nátt-
úrusmíði, er bóndi austan úr
Árnessýslu fékk bæinn til að
laga, svo að fullnægt gæti við
sundkennslu, þar sem nægju-
semin er nógu mikil.
En hvenær sem Reykjavík
gerir í fullri alvöru áætlun um
og tilraun til að verða menn
ingarbær, þar sem skipulag og
regla kernur í stað duttlunga
og tilviljunar, verður að taka
íþróttamálin með til skipu-
lagningar.
Því verður ekki um neinn
trúað, að honum séu menn-
ingarmálin alvörumál, ef hann
lætur sleggjuna ráða um íþrótt-
irnar. Án íþrótta er öll menn-
ing’ óhugsandi, því að íþróttin
er menning og menningin í-
þrótt. Líkamlegu íþróttirnar
eru fyrstu spor æskunnar til
andlegra íþrótta, þeirra er
raunverulegt gildi hafa. Fyr-
ir okkar tíma eru íþróttirnai’
eina leiðin og eina lausnin á
því mikla máli, að koma á legg
heilbrigðri og siðsterkri æsku.
Á íþróttamálunum þarf að
vei-a skipulag, sem fellur inn
í skipulag bæjarins og skipulag
fólksins.
f þetta sinn verður aðeins
rætt um skipulag íþróttamál-
anna í sambandi við skipulag
bæjarins.
Hvaða tillit á bærinn að taka
til íþróttanna ?
Sundhöll og sund-
laugar.
Hér í blaðinu hefir áður ver-
ið rætt um sundhöllina og skal
hér ekki miklu við það bæta.
Það skal aðeins tekið fram,
að sundhöllina á að fullgera
strax. Hún verður handa börn-
um og unglingum til sundnáms,
og hún verður ennfremur til
sundiðkana að vetrinum hverju
sem viðrar. En hún veitir eng-
anveginn fullnægjandi aðstöðu
til íþrótta og jafnvel ekki til
sunds. Hún skapar jafnvel rík-
ari þörf fyrir að til séu full-
nægjandi skilyrði handa þeim,
sem eitthvað hafa til íþróttar-
innar lært. Það er einber barna-
skapur að tala um sundhöll
e ð a sundlaugar. Hvorttveggj
þarf að vera.
En hvar eiga sund-
laugarnar að vera?
Ef til vill tfúa menn því,
að sundlaugarnar eigi að vera
áfram á sama stað og þær eru
nú. Gömlu sundlaugarnar eigi
að smá endurbæta að bygging-
um, jafnframt því að tekið er
frá þeim vatnið, þangað til
þær eru orðnar þurrar. Sú
skoðun á málinu er það, sem
Icallað er
fróm einfeldni.
Laugavatnið á að nota allt
til hitunar í bænum, og engu
síður, þó að sótt verði heitt
vatn inn að Reykjum til
viðbótar. En til sundlauga á að
nota vatnið, sem frá húsunum
rennur, eftir að það hefir ver-
ið notað til upphitunar. Á þann
hátt er alltaf hægt að fá
nægilega mikið og nægilega
heitt vatn til nægilegra sund-
lauga í Reykjavík, hversu
fólksmargur sem bærinn kann
að verða. Og þar með er því
máli lokið, að nokkur ástæða sé
til að sundlaugarnar séu nærri
uppsprettu lauganna.
Hitt er auðvitað nokkurt.
kostnaðaratriði, að sundlaug-
arnar séu nærri húsunum, sem
heita vatnið er leitt um til
upphitunar. En önnur atriði
eiga fyrr að koma til greina.
Sundlaugarnar eiga að vera
þar, sem þær hafa rúmt og
hreinlegt umhverfi, og þar sem
íþróttamennirnir geta auðveld-
legast og bezt notið þeirra.
En hvar er sá staður?
Þá er nú komið að megin-
máli þessarar greinar.
íþróttamennirnir og æskan
hér í Reykjavík verða að eiga
sitt sérstaka svæði, sem íþrótt-
unum er helgað, er skipulagt
þeirra vegna og í samræmi við
allt skipulag bæjarins.
Svo vel hefir ráðizt, að hægt
er að benda á svæðið, sem er
til þessa kjörið.
Bærinn hefir heimild til að
taka eignarnámi landið frá
Nauthólavík allt til öskjuhlíð-
ar. Sú heimild hefir verið gef-
in sérstaklega vegna aðstöðu
til sjóbaða. Þetta land og land-
ið vestan öskjuhlíðar allt til
I.aufásvegs á að helga íþrótt-
unum. Þar eiga að koma leik-
vellir barna, íþróttavellir til
hverskonar íþrótta, hlaupa-
brautir, jafnvel skautasvið á
| vetrum, sólbyrgi og að lokum
j íþróttasyið til sýninga. öskju-
! hlíðin sjálf verður lögð í stalla
' og þaðan geta menn notið
i þess að sjá íþróttirnar, jafn-
| framt því, sem menn njóta þar
j hvíldar og sjókælu og sólar í
I senn. En landið frá íþrótta-
; svæðinu yfir Hringbrautina
1 allt til Tjarnarinnar, á að gera
! að garði, þar sem menn geta
l reikað og notið útilofts, veð-
ursins og náttúrunnar sem
næst bænum. Beggja megin
garðsins koma vegir úr Vest-
j urbænum og úr Austurbænum,
j bæði vegir fyrir strætisvagna
. og hjólreiðamenn. En þeir sem
| kjósa að ganga, eiga leið inn-
angarðs í þessum „lungum
Reykjavíkur“.
Síðar verður gerð grein fyr-
ir því hér í blaðinu, hvernig
íþróttasvæðið verður bezt
skipulagt. I þetta sinn verður
aðeins á það bent, að þarna
og þarna aðeins eru sundlaug-
arnar í sínu rétta umhverfi.
Við laugina, sem volgu laugar-
vatninu frá húsunum er veitt
í, á einnig að gera volgá sjó-
laug fyrir fólk, sem þarf sjó-
böð til heilsubóta. Og frá þess-
um laugum er aðeins spölur í
sjálfan sjóinn, í Nauthólavík-
ina. Þarna geta íþróttamenn-
irnir, sem koma heitir úr leik
alltaf átt kost þeirra baða, sem
þeir geta bezt kosið, og þá
verður þeim það regla að fá
sér bað eftir hvern heilan leik.
Kostnaðurinn.
Þessu til viðbótar verður
hér aðeins minnst á eitt at-
riði: kostnaðinn.
Ég kom nýlega til fátæks
barnamanns og sá þar smjör á
borðum. „Mér þykir vænt um“,
sagði ég „að þú hefir þó efni
á þessu“. Maðurinn svaraði
alvarlega: „Ég hef ekki efni á
öðru en hafa smjör á borðinu
hjá mér. Ég hefi ekki efni á
að eiga börn, sem eru heilsu-
laus, af því að þau hafa ekki
það viðurværi, sem þeim er
nauðsynlegt, til að halda
heilsu“.
Hefir Reykjavíkurbær efni á
að eiga heilsulausa, skaplausa
og siðlausa æsku?
Og annað atriði kostnaðar-
ins: Sundlaugar, leikvellir, í-
þróttavellir og íþróttasvið,
sjóböð og sólskýli kosta vitan-
lega mikið fé, þegar allt kem-
ur saman. Og þessu verður
ekki öllu komið upp á einu ári.
Þeir, sem kynnu að eiga 10.,
11. eða 12. tölubl. Nýja dag-
blaðsins, og ekki ætla að halda
blaðinu saman, eru vinsamlega
beðnir að láta afgreiðsluna
hafa þessi blöð.
„ R 0 L L 0 “
steinborar og tappar eru
beztir.
Fást aðeins hjá
Ludv. Storr,
Laugaveg 16.
Rúsínur . . .. 75 aura y2 kg.
Sveskjur . . . 75 — y2 —
t Epli, þurkuð kr. 1,50 l/2 —
Aprecots . . . . — 2,00 y2 —
Ferskjuf ... — 2,00 y2 —
Birgðir eru mjög takmark-
. aðar, því ennþá hjarir sá
ógeðslegi óskapnaður, innflutn-
ingshöftin.
Verzlunin Týsgötu 3.
En kostnaðarins vegna verður
að reyna að tryggja það eftir
föngum, að allt sé gert eftir
heildarskipulagi, svo að ekki
sé alltaf verið að eyða stórfé
til að rífa niður og byggja
upp að þarflausu. Þetta verður
allt ódýrast með því að leggja
skipulagsgrundvöllinn sem
fyrst og leggja hann rétt!
Þegar á réttan grundvöll er
komið til að vinna á, er alltaf
hægt að vinna í rétta átt, án
þess að leggja mikið í kostn-
að á hverjum tíma. Og þó get-
ur mikið unnizt, ef ekkert,
sem unnið er, fer til ónýtis.
A.
Nú er á bnðstólum I sunuudagsmatinn
Rjúpur (reittar og spikdregn- Hangikjöt.
ar ef óskað er).
Norðlenzkt dilkakjÖt.
Norðlenzkt sauðakjöt.
Nautabuff af ungu.
Kjúklingar.
Kálfskjöt.
Saltkjöt.
Svið.
Reykt Kindabjúgu.
Miðdagspylsur.
Vínarpylsur.
Ennfremur allskonar ávextir og grænmeti.
Kiötbúð Reykiavíkur
Vesturgötu 16. Sími 4769.
Beztu cigaretturnar í 20 stk. pökkum, sem kosta kr. 1.10 —
eru
Commander
Westminster Virginia
dgarettur
Þessi ágæta cigarettutegund fæst ávalt í heildsölu hjá
Tóbakseinkasölu ríkisins
Búnar til af
Westnioster Iécco Ctnnpany 11.
London
MT Skiptiö yíö þá sem auglýsa í Nýja dagblaöinu. M